Morgunblaðið - 04.11.1997, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 4. NÓVEMBER 1997 47
i
i
í
:
i
i
i
!
I
<
i
<
<
I
<
(
(
l
I
i
I
_________BREF TIL BLAÐSINS____
Kristin trú eða spíritismi
- þitt er valið
Frá Lindu Karlsdóttur:
MIKIL umfjöllun hefur verið í þjóð-
félaginu síðustu daga um spíritisma
og kirkjuna.
Mig iangar að leggja orð í belg
þar sem ég hef verið á báðum stöð-
um og þekki muninn af eigin
reynslu.
Ég var aðeins unglingur þegar
ég byrjaði leitina. Leitina að sann-
leikanum, leitina að því hvað biði
mín í framtíðinni, leit að kærleika
og ýmsar spurningar vöknuðu. Ég
stundaði bænahring í Ljósgeislan-
um, sótti miðilsfundi, skyggnilýs-
ingafundi og leitaði svara. í tuttugu
ár leitaði ég í spíritismanum og með
árunum varð leitin erfiðari og erfið-
ari því ofan á svörin hlóðust enn
meiri spurningar. Af hvetju þarf ég
að gjalda þess í þessu lífi sem mér
mistókst í síðasta lífi, er þessi Guð
sem ég leita refsiguð, er hann að
hegna mér? í mínum augum var
fjóðkirkjan úrelt, Biblían skáldsaga
og Jesús var sá mesti miðill sem
uppi hafði verið. Djöfullinn var ekki
til og ég sá ekki betur en spíritism-
inn væri það rétta. Ég skildi ekki
af hverju spíritismi væri ekki sam-
þykktur í kirkjunni.
Svo gerðist það fyrir tæpum
þremur árum að ég ákvað að gefa
kirkjunni tækifæri og gefa Jesú
þrjár vikur af lífi mínu (sem reynd-
ar urðu mánuðir og ár) og skoða
þá fordóma sem ég hafði gagnvart
kirkjunni og af hverju sgíritismi
væri ekki samþykktur. Ég hóf
gönguna og fór á mína fyrstu sam-
komu í kirkju, að vísu hafði ég litla
löngun í hefðbundna messu en fann
samkomu á léttari nótunum hjá
Ungu fólki með hlutverk sem í dag
heitir íslenska Kristskirkjan. Svip-
aðar samkomur eru í dag hjá þjóð-
kirkjunni sem Þorvaldur Halidórs-
son söngvari stýrir. En þarna sem
ég stóð á samkomu hjá Hlutverkinu
sá ég að mikið var að gerast, sungn-
ir voru hressir lofgjörðarsöngvar,
fyrirbænaþjónusta var sterk og
þarna var fólk sem gaf sér tíma til
að biðja fyrir mér, hlusta á mig og
hugga. Það var eitthvað þarna sem
ég hafði ekki fundið fyrir áður. Það
var heilagur andi (kraftur Guðs)
sem snerti hjarta mitt. Það var ekki
bara einhver andi. Nei. Það var
þessi eini sanni andi, Heilagur andi.
Það sem ég hafði leitað að öll árin
hafði ég loks fundið og það togaði
í mig að fara aftur og aftur, sunnu-
dag eftir sunnudag. Ég fann frið í
hjarta mínu, ég fann betri valkost.
Á þessum þremur árum hefur
Guð leyst mig undan miklum sárs-
auka, sektarkennd, fordómum, gefið
mér lækningu líkamlega og andlega
og ég hef lært að fýrirgefa sjálfri
mér og öðrum. Guð hefur fyrirgefið
mér mín feilspor, hann tók mér
nákvæmlega eins og ég er með öll-
um mínum kostum og göllum. Guð
er ekki refsiguð, hann er kærleiks-
ríkur Guð og þráir að fá að kynnast
þér, það eina sem þú þarft að gera
er að gefa honum tækifæri, tæki-
færi til að hjálpa þér og bera byrð-
ar þínar með þér.
Sá munur sem t.d. er á spíritisma
og kristinni trú er sá að í spíritisma
er grundvöllurinn lagður öðruvísi,
líkt og þegar hús er byggt þá er
byggður grunnur en það skiptir
máli hvað við byggjum ofaná grunn-
inn, hús úr hálmi fýkur í næsta
roki. Málið snýst nákvæmlega um
það að byggja sterkt hús sem þolir
alla heimsins storma, að byggja hús
sem stendur.
í spíritisma er grunnurinn byggð-
ur réttur, hann er byggður á bæn
til guðs, en hvað er byggt ofaná?
Það er ekki Jesú Kristur. Nei, það
er leitað til framliðinna. Það er leit-
að til fólks sem er dáið, fólks sem
voru ástvinir okkar, frændfóiks og
líka framliðinna sem við könnumst
ekkert við. Við leitum svara annars
staðar en hjá Kristi. Það er eitt sem
við þurfum líka að átta okkur á og
það er að það illa er til. Við þurfum
ekki annað en að lesa blöðin til að
sjá það. Besta aðferð hins illa er
einmitt að fá okkur til að haida að
hann sé ekki til. Ef hinn illi mætti
okkur í þeirri dýrslegu mynd sem
hann er í þá myndi spíritismi ekki
þekkjast, en þar sem hann birtist
okkur á miðilsfundum sem indjáni,
nunna, munkur, eða hvað sem er,
þá nær hann að blekkja okkur til
að nálgast okkur. Við sem höfum
misst ástvini okkar viljum trúa því
að þeir séu hjá Jesú, að það sé Jes-
ús sem gætir þeirra. Getum við
hugsað okkur betri stað? Ættum
við þá ekki að leita líka beint til
hans sem er æðstur? Bænin kostar
ekkert, hún gefur svör, og Guð heyr-
ir bænir þínar, það eina sem þú
þarft að gera er að opna dyrnar
og bjóða honum inn í stofu til þín
því hann ryðst ekki inn, hann er
herramaður. Þú getur sjálf(ur) tal-
að við Guð, við þurfum ekki ein-
hverja milligöngumenn, framliðna
eða miðla til að fá svör, við erum
sjálf þess megnug að geta náð
beinu sambandi við Guð, það þarf
ekki annað en litla bæn sem er
byggð á réttum grundvelli. Ertu
tilbúin(n) til að gefa Guði tækifæri
í þínu lífi og skoða áður en þú for-
dæmir? Það hefur reynst mér vel,
manneskju sem hafði mikla for-
dóma. Viltu betra líf? Viltu hjálp
við að bera byrðar þínar? Viltu frið
og sátt í hjarta þitt? Ef svo er þá
er það mín reynsla að Drottinn
Jesús Kristur er svarið. Að lokum
fyrir ykkur sem eruð Ieitandi:
Kynntu þér Þjóðkirkjuna eða aðra
trúaða söfnuði þar sem grunnurinn
og uppbyggingin er Jesús Kristur.
Því Jesús elskar þig og þráir að
mæta þér hvar eða. hvernig sem
þú ert staddur á lífsleiðinni. Settu
punkt við spurningar þínar og þú
munt upplifa dýrmæta reynslu.
LINDA KARLSDÓTTIR,
Hrísateigi 33, Reykjavík.
ReykingafólK!
Viljið þið vita um kolmónoxíðmagnið
í útöndun og blóði ykkar?
Ef svo er, komið þá í Lyfju
4. og 5. nóvember milli kl. 14 og 18.
Ráðgjöf á staðnum.
20% afsl . af Nicotinell plástrum og tyggjó.
LYFJA
Lágmúla 5
Sími 533 2300
- Lyf á lágmarksverði
-kjarnimálsins!
Tölvuöng-
þveiti 2000?
Frá Leó M. Jónssyni:
„ALDAMÓTASPRENGJAN" nefn-
ist vandamál sem nú er orðið helsti
höfuðverkur tölvudeilda fyrirtækja
um allan heim og af og til hefur
verið varað við (en ekki nógu oft).
Tölvukerfi geyma dagsetningu
eftir reglunni ár-ár-mán-mán-dag-
dag. Sem dæmi skráir tölva dag-
setninguna 23. ágúst 1996 sem
960823. Þetta þýðir að þegar árið
2000 rennur upp verða allar tíma-
breytur á milli dagsetninga 20. og
21. aldar rangar, nema sérstakar
ráðstafanir séu þegar fyrir hendi.
Eins og nú er reiknar tölva út aldur
einstaklings sem fæddur er 1940
með því að draga 40 frá 96 og fær
út 56 ár. Árið 2000 mun tölvan
draga 40 frá 00 og fá út mínus 40.
Þetta þýðir að allur útreikningur
aldurs, vaxtadaga, notkunartíma
o.fl. á milli dagsetninga tveggja
alda ruglast.
Þótt nú séu ekki nema rúm 2
ár til stefnu hafa ekki verið fundn-
ar lausnir á þessu vandamáli fyrir
öll kerfi og því er engin leið að
gera sér grein fyrir þeirri ringulreið
sem kann að skapast. Hafi einhver
haldið að lausnin sé einföld eða
augljós fer hann villur vegar. Sér-
fræðingar um allan heim hafa vax-
andi áhyggjur af þessu vandamáli
vegna þess að nú þegar er ljóst að
ekki hefur verið brugðist nægilega
skjótt við. Skammt er til aldamóta
og hjá mörgum tölvunotendum er
lausnin varla í sjónmáli hvað þá
prófuð.
LEÓ M. JÓNSSON,
tæknifræðingur,
Sólvangi, Höfnum.
Er
að
tölvan þín
gefa upp öndina ?
Þarftu stækkunargler til að lesa á skjáinn ?
Veistu ekki hvað internetið er ?
Er nýjasti tölvuleikurinn eins og flettiskilti ?
Þá er kominn tími til að endurnýja !
TARGA turn
200 MMX AMD K6 örgjörvi
4320 MB Quantum harður diskur
32 MB ED0 innra minni
Tseng Labs ET6000 4mb skjákort
BT.Tölvur kynna vinnuþjark heimilanna sem er á við
tveggja tonna trukk í vinnslu en sem sportbíll í keyrslu.
Hver hlutur hefur verið valinn vandlega í þetta jrábæra
tilboð sem inniheldur geggjaðan 17 TOMMU SKJÁ.
17" Targa skjár (1024x768x85hz)
24 hraða Pioneer geisladrif
Soundblaster 16 hljóðkort
240 watta hátalarar
33.600 mótald m/ faxi og símsvara
Windows 95 CD og bók
6 íslenskir leikir
149.900 kr
GSM símar og fjöldi fylgihluta
NOKIA 1611
•110 tíma rafhlaða
• Númerabirting
• 199 númera símaskrá
• Sendir/Móttekur SMS
• Vinnuþjarkur
NOKIA 8110
• 70 tíma rafhlaða
• Númerabirting
• 324 númera símaskrá
• Sendir/Móttekur SMS
• Sýnir hverjir hringdu
• Einstaklega nettur
ERICSSON 628
• 83 tíma rafhlaða
• Númerabirting
•150 númera símaskrá
• Sendir/Móttekur SMS
• Sýnir hverjir hringdu
• Góður í vasa
19.990
44.990
25.990
$
oð
Stækkun í 64mb og Soundblaster 64
kostar aðeins 10.000.-
BT.T0LVUR
ÖRUGGT 0G ÖDÝRT
Grensásvegi 3 • Sími 5885900 • Fax 5885905
www.bttolvur.is • Netfang : bttolvur@mmedia.is
Opið virka daga 10-19 • Opið laugardaga 10-16