Morgunblaðið - 04.11.1997, Síða 50
50 ÞRIÐJUDAGUR 4. NÓVEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
WÓÐŒIKHÚSB sími 551 1200
Stóra sóiðiS kl. 20.00:
FIÐLARINN Á ÞAKINU - Bock/Stein/Harnick
(kvöldfös. örfásætilaus — lau. 8/11 nokkursæti laus — fös. 14/11 — lau. 22/11.
GRANDAVEGUR 7 eftir Vigdísi Grímsdóttur
3. sýn. sun. 2/11 nokkur sæti laus — 4. sýn. fös. 7/11 nokkur sæti laus — 5. sýn. fim.
13/11 nokkur sæti laus — 6. sýn. lau. 15/11 — 7. sýn. sun. 23/11.
ÞRJÁR SYSTUR - Anton Tsjekhof
Lau. 1/11 — sun. 9/11 — sun. 16/11. Sýningumferfækkandi.
SmiðaOerkstœðiÍ kt. 20.30:
KRABBASVALIRNAR eftir Maríanne Goldman
Sun.2/11 — fim. 6/11 —fös.7/11 —fös. 14/11 — lau. 15/11. Ath. sýningin er ekki við
hæfrbama.
Sýnt í Loftkastatanulm kt. 20.00:
LISTAVERKIÐ eftir Yasmina Reza
Fös. 31/10-sun. 2/11 -fim.6/11 -lau.8/11 -fim. 13/11 - lau. 15/11.
Miðasalan er opin mán.-þri. 13—18, mið.-sun. 13—20.
Simapantanir frá kl. 10 virka daga.
LISTAVERKIÐ
Sýning Þjóðleikhússins
fim. 6. nóv. kl. 20
lau. 8. nóv. kl. 20
BEIN ÚTSENDING
fös. 7. nóv. kt. 20
Síðustu sýningar
VEÐMÁLIÐ
fös. 14. nóv kl. 20 örfá sæti laus
ÁFRAM LATIBÆR
sun. 23. nóv. kl. 14 uppselt
og kl. 16 aukasýning
Ath. lokasýningar
Á SAMA TÍMA AÐ ÁRI
lau. 8. nóv. kl. 15.30 örfá sæti laus
mið. 12. nóv. kl. 20
Ath- aðeins örfáar sýningar.
Loftkastalinn, Seljavegi 2.
Miöasala s. 552 3000, fax 562 6775
Miöasala opin frá 10 — 18, lau. 13—18
líaflíLeibhújííð]
Vesturgötu 3
I HLAÐVARPANUM .
„REÍÍAN í DEN“
- gullkorn úr gömlu revíunum
fös 7/11 kl. 21 laus sæti
lau. 8/11 kl. 21 laus sæti
fös. 14/11 kl. 21 laus sæti
„Revían...kom skemmtilega á óvart...
og áhorfendur skemmtu sér
konunglega”. S.H. Mbl.
Revíumatseðiil:
Pönnusteiktur karfi m/humarsósu
^ Bláberjaskyrfrauð m/ástriðusósu v
Miðasala opin fim-lau kl. 18—21
Miðapantanir allan sólarhringinn í
síma 551 9055
—7“i ii i1
ISLÉNSKA OPEIiAN
____iiin
= sími 551 1475
COSl FAN TUTTE
,,Svona eru þær allar“
eftir W.A. Mozart
9. sýn. lau. 8. nóv.
10. sýn. fös. 14. nóv.
11. sýn. lau. 15. nóv.
Sýning hefst kl. 20.00.
Miðasalan er opin alla daga
nema mánudag frá kl. 15—19
og sýningardaga kl. 15—20.
Sími 551 1475,
bréfsími 552 7384.
Takmarkaður sýningafjöldi.
Nýjung: Hóptilboð íslensku óperunnar
og Sólon islandus í Sölvasal.
KOennafundur
d Hótel Borq
um hlut kvenna í
stjórnmálum
morgundagsins.
Midvikudags-
kvöld kl. 20.30.
Draumsólir vekja mig
Leiksýning eftir Þórarinn Eyfjörð
unnin upp úr verkum Gyrðis Elíassonar
9. sýn. fös. 7. nóv. kl. 20.00 laus sæti
10. sýn. sun. 9. nóv. kl. 20.00 laus sæti
Ath. allra sýðustu sýningar
Synt í Hafnarfjarðarleikhusinu
Vesturgötu n, Hafnarfirði
Fjölbreyttur matseðill |
og úrvals veitingar
fyrir og eftir sýningu
Strandgötu 30 * 565 5614
Miðapantanir
í síma 555 0553
fös. 7/11 kl. 23.15, örfá sæti laus
lau 8/11 kl. 23.15, örfá sæti laus
fim. 13/11 kl. 20, uppselt
lau. 15/11 kl. 23.15, laus sæti.
„Snilldarlegir kómískir taktar ieikaranna.
Þau voru satt að segja morðfyndin."(SA.DV)
^ „Þama er loksins kominn
I sumarsmellurinn í ár“. (GS.DT.I
ALLTAF FYRIR OG EFTIR LEIKHUS
í MAT EÐA DRYKK
LIFANDI TÓNLIST ÖLL KVÖLD
KRINGLUKRAIN
- á góðri stund
Léttir
meðfærilegir
viðhaldslitlir.
Ávallt fyrirliggjandi.
Góö varahlutaþjónusta.
iiBRAR fyrir
|l WlHill
Á undan timanum
í 100 ár.
steinsteypu.
Armúla 29, sími 38640
FYRIRLIGGJIIIIDI: GÚLFSLÍPIVÉLAR - RIPPER ÞJÖPPUR - DJELUR
- STEYPUSAGIR - HRJERIVÉL&R - SIGARBLÖB - Vnnduð franlellsla.
FÓLK í FRÉTTUM
Morgunblaðið/Þorkell
HLJÓMSVEITIN Maus, Birgir Örn Steinarsson, Daníel Þor-
steinsson, Eggert Gíslason og Páll Ragnar Pálsson.
Ríkaf
kímni
og krafti
TÓNLIST
Gcisladisku r
LOF MÉR AÐ FALLA
AÐÞÍNU EYRA
Lof mér að falla að þínu eyra, geisla-
diskur hjjómsveitarinnar Maus.
Mausveijar eru Birgir Óm Steinars-
son gítarleikari og söngvari, Daniel
Þorsteinsson trommuleikari, Eggert
Gíslason bassaleikari og Páll Ragnar
PáLsson gitarleikari. Lög á plötunni
eru öU eftir Maus og textar eftir
Birgi Óm. Útsetningar á sveitin í
sameiningu. Roger O’Donnell lék á
hjjómborð, Lena Viderö syngur í
einu lagi, Þorvaldur Bjami Þorvalds-
son í öðm og Hróðbjartur Róbert í
því þriðja. Sproti hf. gefur úL 45,24
min., 1.999 kr.
NOKKUÐ er um liðið síðan öðl-
ingssveitin Maus sendi frá sér skíf-
una Ghostsongs, afbragðs plötu
sem fórst óverðskuldað í plötuflóði
ársins 1995, líklega fyrir það helst
að hún þótti fullþung. Varla á nokk-
ur sem heyrir þá skífu sem hér er
gerð að umtalsefni, Lof mér að falla
að þínu eyra, eftir að hnýta í Maus-
verja fyrir sömu sakir, ekki vegna
þess að tónlistin sé fiskennd froða,
heldur vegna þess að hún er rik af
kímni og krafti; skemmtileg um
leið og hún vekur til umhugsunar.
Meðal einkenna Lof mér að falla
að þínu eyra er fjölbreytnin, því
platan spannar allan tiifínninga-
skalann, frá gríðarlegri keyrslu í
Égímeilaþig, í epískan gný Poppaid-
ins, í seigfijótandi trega í Tvíhöfða
erindreka. Allar tilraunir ganga
upp; meira að segja upphafskafli
Ungfrúr orðadrepirs, sem fáir hefðu
spáð á Mausskífu, og skemmtileg
sveiflan í Hreistri og slími, að ekki
sé getið lokakafla plötunnar.
Meðal gesta á plötunni er breski
hljómborðsleikarinn Roger O’Donn-
ell. Hann treður sér hvergi þar sem
hann ekki á heima, undirstrikar og
bætir við á réttum stöðum og vissu-
lega gerir fyrirtaks hljómborðsleik-
ur hans sitt til að gera plötuna eins
framúrskarandi og hún vissulega
er. Nefni sem dæmi góðar fyllur í
Ryðguðum geimgengli, skemmti-
lega geggjaðan píanóleik í Hreistri
og slími, hugljúfar fléttur í Tvíhöfða
erindreka, fjarræna hljóma í Ryðg-
uðum geimgengli og svo mætti
lengi telja. Gott dæmi um smekk-
vísi O’Donnells er að við fyrstu
hlustun tekur hlustandi jafnvel ekki
eftir hljómborðunum. Annar góður
gestur á plötunni er söngkonan
Lena Viderö í hlutverki augn-
skuggadrottningarinnar í upphafs-
laginu og hún syngur af skemmti-
legu yfirlæti.
Mausliðar sjálfir eru eðlilega í
aðalhlutverki og hvergi snöggan
blett að finna; trommuleikur agaður
og hugmýndaríkur, bassinn drífandi
fléttur, dæmi: upphafskafii Popp-
aldins og frábær sprettur tæplega
hálfa mínútu inní Égímeílaþig. Gít-
arleikur er svo sérkapítuli át af
fyrr sig, því þessi plata er mikil
gítarveisla og þá ekki vegna skaia-
æfinga og flugeldasýninga, heldur
vegna þéttrar keyrslu oggítarbrims
sem hefst og hnígur með þungri
undiröldu. Upphaf Kristalsnætur er
gott dæmi um gítarleik þeirra fé-
laga Birgis Amar og Páis Ragnars
og einnig syngjandi gítarafjöld í
giymjandi laglínu Halastjaman
rekst á jörðina. Söngur Birgis Am-
ar er snar þáttur í tónlistinni og
þó hann syngi ekki alltaf hreint
gæðir hann textana lífi og þunga
og beiskum trega.
Birgir Örn er og textasmiður
sveitarinnar og hefur ekki í aðra
tíð ort betri texta, skotna beittri
kímni og hreinræktaðri gamansemi
en líka upp fulla með myrkar tilvís-
anir og skírskotanir. Hæst rís hann
kannski í helsta lagi plötunnar,
Poppaldini, þar sem hann glímir við
þráhyggju á eftirminnilegan hátt
með lykluðum líkingum. í textanum
er samlíking sem minnir um margt
á fýrsta erindi Eyðilands Eliots og
þó lokaerindið feli í sér lausn: „Og
þó ég andi aldrei aftur / verð ég
ömggur hér. Og þó ég hugsi aldrei
aftur / verð ég ömggur hér. Og
þó ég kafni í ófrjórri mold, / þá
verð ég öruggur hér í örmunum á
þér“ kyiknar spuming Amlóða:
„Hér kemur hængur. Því að hveija
drauma / menn dreyma kynnu í
dauðasvefni þessum, er fargi holds-
ins hmndið af okkur væri.“
Vert er og að geta annars fram-
úrskarandi lags, Ryðgaðs geim-
gengils, með línunum: „Já, svona
er nú tískan / hún er maðkurinn
sem við krækjum á öngulinn” og
síðar: „og ef tískan kæmi skríðandi
til mín, / ég myndi slíta hana í
tvennt. / bara til að fylgjast með /
hvort báðir hlutar lifi.“
Hljómur á Lof mér að falla að
þínu eyra er bráðgóður, gamaldags
á köflum, vel hreinn og sterkur.
Umslag hennar er byggt á flókinni
hugmynd sem gengur fullkomlega
upp, þó myndin á bakhlið/framhiið
þess sé full dmngaleg og dimm.
Lof mér að falla að þínu eyra er
nánast fullkomin plata, meitluð og
fægð þar til hún glansar eins og
biturt sax, þess albúið að skera upp
sjálfhverft íslenskt rokklíf. Vissu-
lega á þessi plata skilið að seljast
í bílförmum, þó orð Birgis Arnar í
90 kr. perlu bendi til þess að þeir
félagar séu við öllu búnir: „og ég
fmn það núna, að ég er að missa
trúna / á að það sem er gott, það
seljist...”
Árni Matthíasson
JAMES Cameron leikstjóri „Titanic” og Leonardo DiCaprio á
blaðamannafundi sem var haldinn fyrir frumsýninguna í Japan.
hópur veinandi unglingsstúlkna
mættur til að berja stjörnuna
Leonardo DiCaprio augum og var
stemmningin líkust Bítlafárinu.
„Ég held að japanskir aðdáendur
séu bestu og tryggustu aðdáendur
í heimi,“ sagði DiCaprio af þessu
tilefni. Hann lýsti gerð myndar-
innar sem langri ferð sem hefði
komið honum til manns. Framleið-
andi myndarinnar er Fox kvik-
myndafyrirtækið og hefur það
ekki fengist til að staðfesta fregn-
ir um að myndin hafi kostað 200
miljjónir dollara og þar með orðið
sú dýrasta sem gerð hefur verið.
► DÝRASTA kvikmynd sögunnar
var frumsýnd í Japan á mánudag
og hóf þar með siglingu sína um
heiminn. Þetta er að sjálfsögðu
mynd James Camerons, „Titanic”,
sem fjallar um eitt frægasta sjó-
slys sögunnar. Aðalhlutverkin eru
höndum Lenardo DiCaprio og
Kate Winslet og er myndarinnar
með með eftirvæntingu í Banda-
ríkjunum þar sem hún verður
frumsýnd um miðjan desember. Á
frumsýningunni í Japan var stór