Morgunblaðið - 28.01.1998, Qupperneq 1
72 SÍÐUR B/C/D
STOFNAÐ 1913
22. TBL. 86. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 28. JANÚAR 1998 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Bandaríkjaforseti hvetur til að tekjuafgangi fjárlaga verði varið til velferðarmála
Samsæri sagt liggja
að baki ásökunum
Washington. Reuters.
Reuters
HILLARY Clinton varði eiginmann sinn með oddi og egg í viðtalsþætti
á NRC-sjónvarpsstöðinni í gær og sagði hann sæta ofsóknum „víðtæks
samsæris hægrimanna".
HILLARY Clinton, forsetafrú
Bandaríkjanna, varði mann sinn,
Bill Clinton, með oddi og egg í sjón-
varpsviðtali í gær og sagði hann
fórnarlamb „víðtæks samsæris
hægrimanna" sem með ásökunum
um meint ástarsamband hans við
Monicu Lewinsky freistuðu þess að
„afmá úrslit tvennra kosninga".
Sagði hún að þegar öll atriði máls-
ins væru komin upp á yfirborðið
hefðu „sumir mikið að svara fyrir“.
Hillary Clinton neitaði að tjá sig
um einstök atriði þeirra ásakana
sem bomar em á Clinton um fram-
hjáhald en ítrekaði ásakanir sínar
um að andstæðingar forsetahjón-
anna á hægrivængnum stæðu að
baki mikilli ófrægingarherferð á
hendur þeim. „Við höfum verið sök-
uð um allt, þar með talið morð, af
nokkrum þeirra sömu og standa að
baki þessum ásökunum," sagði Hill-
ary og vísaði þar til fullyrðinga um
að Vincent Foster, lögfræðingur og
vinur forsetahjónanna, hefði verið
myrtur en ekki framið sjálfsmorð
eins og niðurstaða rannsóknar
stjórnvalda varð.
Sendi Starr kaldar kveðjur
I viðtalinu hélt Hillary Clinton
því fram að Kenneth Starr saksókn-
ari, sem rannsakar málið gegn for-
setanum, væri í bandalagi við sam-
særismennina og væri réttarkerfið
notað til að ná fram pólitískum
markmiðum. Asamt Starr sagði hún
helstu forsprakka samsærisins vera
öldungadeildarmennina Jesse
Helms og Laueh Faircloth, sem
báðir eru repúblíkanar frá Norður-
Karólínu, og sjónvarpspredikarann
Jerry Falwell. Vísaði Starr ásökun-
um forsetafrúarinnar á bug og kall-
aði þær „þvætting".
Allt á huldu um sambandið
Jerry Whitehead, forstöðumaður
Rutherford-stoftiunarinnar, íhalds-
samra lögfræðingasamtaka er fjár-
magna málsókn Paulu Jones, sem
sakað hefur Clinton um kynferðis-
lega áreitni, afhenti rannsóknar-
dómnum skjöl í gær en bar ekki
vitni. Að því búnu skoraði hann á
forsetafrúna að sýna fram á hið
meinta samsæri. Jafnframt bar
Betty Currie, einkaritari Clintons,
vitni fyrir rannsóknardómnum, sem
rannsakar hvort forsetinn hafi
framið meinsæri með því að fá
Lewinsky til að veita rangar upp-
lýsingar I eiðsvarinni yfirlýsingu um
meint ástarsamband þeirra. Currie
mun hafa veitt Lewinsky aðgang að
Hvíta húsinu og Lewinsky sendi
þangað nokkrum sinnum pakka,
sem stflaðir voru á Currie.
Enn er allt á huldu um eðli sam-
bands Clintons og Lewinsky. Menn
sem fróðir eru um öryggismál for-
setaembættisins segja að nánast
útilokað hefði verið fyrir Clinton að
eiga laumuleg samskipti við stúlk-
una.
Jimmy Carter, fyrrverandi for-
seti, hrósaði Clinton í gær fyrir að
hafa haldið einbeitingu sinni varð-
andi alþjóðamál þrátt fyrir ásakanir
um hjónabandshneyksli. „Clinton
forseti er einstökum hæfileikum bú-
inn að halda sig við þau mál sem
varða þjóð okkar,“ sagði Carter á
blaðamannafundi.
Hlupu fjölmiðlar
fram úr sér?
í gær fór að bera á sjálfsgagnrýni
fjölmiðla á umfjöllun um ásakanir
um ástarfundi Clintons og Lewin-
sky og sérfræðingar sögðu fjölmiðl-
ana hafa hlaupið fram úr sjálfum
sér. Um væri að ræða stjómlaust
„fóðrunaræði" þar sem „alltof
margir fréttamenn kepptust um allt
of fáar staðreyndir". Larry Sabato,
prófessor í fjölmiðlun við Virginíu-
háskóla, sagði vísbendingar um að
fréttaflutningurinn þætti óhóflega
mikill og væri farinn að hafa öfug
áhrif. Kannanir bentu til þess að al-
menningur hefði þolinmæði til þess
að bíða eftir því að sannleikurinn
kæmi í ljós.
Bill Clinton átti að flytja árlega
stefnuræðu sína á Bandaríkjaþingi
sl. nótt að íslenskum tíma. Embætt-
ismenn sögðu að þar myndi hann
boða aukna áherslu á menntamál,
uppstokkun almannatryggingakerf-
isins, er ljúka skyldi á næsta ári, og
hækkun lágmarkslauna. Jafnframt
myndi hann hvetja þingið til þess að
setja 200 milljarða dollara afgangs-
tekjur fjárlaga næstu fimm árin til
hliðar til þess að styrkja almanna-
tryggingakerfið. Tækist forsetanum
vel upp var talið að það gæti dregið
athygli frá vandamálum hans.
■ Sjá umfjöllun á bls. 18-19
Deilan við
Iraka á við-
sjárvert stig
Washington. Reuters.
DEILAN um vopnaeftirlit Samein-
uðu þjóðanna (SÞ) í Irak er komin á
„viðsjárvert" stig. Var það niður-
staða símasamtals Bills Clintons
Bandaríkjaforseta og Tonys Blairs;
forsætisráðherra Bretlands, í gær. I
nótt birti Clinton Saddam Hussein
Iraksforseta aðvörun og sagði að
hann myndi ekki komast upp með að
ganga gegn vilja ríkja heims.
Clinton varaði Saddam við því að
hindra starf vopnaeftirlitsmanna SÞ.
„Þú hefur beitt gereyðingarvopnum
áður. Við erum staðráðin í að koma í
veg fyrii' að þú gerir það aftur,“
sagði Clinton. Ákveðið var í gær að
Madeleine Albright utanríkisráð-
herra færi til Evrópu í dag til þess
að ráðfæra sig við rússneska, breska
og franska starfsbræður sína um
ástandið.
Rót þeirrar spennu sem hlaupin er
í deiluna við Iraka er rökstuddar
grunsemdir um að Irakar, í trássi við
samkomulagið um vopnahlé í
Persaflóastríðinu, starfræki leyni-
lega verksmiðju til framleiðslu
sýklavopna.
Riehard Spertzel, formaður eftir-
litsnefndar SÞ með lífefnavopnum,
sagðist í síðustu viku hafa upplýsing-
ar um starfsemi slflcrar verksmiðju.
Telja sérfraeðingar að þrátt fyrir
framgöngu eftirlitsmanna SÞ við að
uppræta gjöreyðingarvopn íraka
geti þeir líklega framleitt nógan
miltisbrand í tvær sprengjur á degi
hverjum.
I ferð sinni til Evrópu er gert ráð
fyrir að Albright ráðfæri sig við
starfsbræður sína um „næstu ski-ef ‘
gegn Irökum, sem meinað hafa eftir-
litsmönnum að skoða vissa staði og
neitað samvinnu við eftirlitssveitir
sem lúta forystu bandarískra sér-
fræðinga.
Tony Blair sagði í samtali við
arabískt blað í gær, að ekki væri
hægt að útiloka hernað gegn írak
breytti Saddam ekki um afstöðu
gagnvart vopnaeftirliti SÞ í Irak.
Víktor Posuvaljúk aðstoðarutan-
ríkisráðherra Rússlands ræddi við
ráðamenn í Baghdad í gær og hugð-
ist freista þess að finna leiðir til að
höggva á hnútinn í deilu Iraka og SÞ.
BRESK þota hefur sig á loft frá flugmóðurskipinu Invincible á
Persaflóa í gær. Á alþjóðavettvangi þykir frestur til að finna pólitíska
lausn á deilum við Iraka vera að renna út. Tony Blair forsætisráð-
herra Bretlands útilokaði ekki hernað gegn Irökum breyttist ekki af-
staða Saddams Husseins til vopnaeftirlits SÞ í Irak. Kofi Annan fram-
kvæmdastjóri SÞ kvað þó stríð á hendur Irökum ekki vera yfírvofandi.
^ Reuters
Frestur Iraka að renna út
Arafat
hafnar frið-
artillögu
Kaíró. Reuter.
YASSER Arafat leiðtogi Palestínu-
manna freistaði þess í gær að fá
Hosni Mubarak forseta Egypta-
lands til þess að lýsa yfir stuðningi
við það að haldinn verði leiðtoga-
fundur arabaríkjanna um friðar-
horfur í Miðausturlöndum.
Amr Moussa, utanríkisráðheri-a
Egypta, sagði leiðtogana hafa rætt
hugmyndina um leiðtogafund en
alltof snemmt væri að ræða um
hann sem hugsanlegan möguleika.
Arafat mun hafa mælt fýrir hug-
mynd sinni um fund af þessu tagi í
heimsóknum að undanfornu til Már-
itaníu, Marokkó, Alsír og Túnis. Ur-
slitum ræður hvort honum takist að
fá stuðning Egypta við hana.
Eftir viðræður við Mubarak
skellti Arafat skuldinni vegna þrá-
teflisins í deilum ísraela og Palest-
ínumanna á Benjamin Netanyahu
forsætisráðherra. I Washington
telja bandarísk stjórnvöld að þeir
Arafat og Netanyahu hafí í síðustu
viku fallist á hugmyndir Bills Clint-
ons forseta um leiðir til að rjúfa
kyrrstöðuna í friðarferlinu. í því
felst að Israelar dragi her sinn frá
Vesturbakkanum í áföngum og á
sama tíma auki palestínska lögregl-
an aðgerðir gegn hryðjuverkamönn-
um. Þessum hugmyndum vísaði Ara-
fat hins vegar alfarið á bug í gær.