Morgunblaðið - 28.01.1998, Page 6
6’ MIÐVIKUDAGUR 28. JANÚAR 1998
MÓRGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/August Hákansson
ÞESSI mynd er tekin úr flug-vúl í gærmorgnn og sést vel hvernig
hrunið hefur niður um allt fjallið.
Allt að 10 tonna björg
í skriðunni úr Snæfelli
MILLI 30 og 50 m breitt og 50 til
70 m hátt sár er austanvert í
efstu brún Snæfells þar sem
bergstykki féll úr fjallinu í síð-
ustu viku. Bjargstykkið hefur
fallið í þröngri rás niður hamra-
beltið og á skriðuna þar fyrir neð-
an.
í fallinu hefur stykkið splundr-
ast og má sjá stóra grjóthnull-
unga niður um alla skriðuna og
hefur snjór vöðlast utan um þá
marga. Sigurður Aðalsteinsson,
bóndi á Vaðbrekku, sagði suma
hnullungana enga smásmíði,
sumir væru áreiðanlega kringum
10 tonna björg.
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson
STÓRIR hnullungar eru niður um alla fjallshb'ðina og stendur
Sveinn Pálsson á Aðalbóli í miðri skriðunni ofarlega í Snæfelli.
FRÉTTIR
Ný verðskrá íslandsflugs í næsta mánuði
Algengasta fargjald
hækkar um
ÍSLANDSFLUG hefur sent út
nýja verðskrá sem tekur gildi
næsta sunnudag og hækka lægstu
fargjöldin þá úr 6.900 í 7.230 til
flestra áfangastaða eða um 4,8%.
Til Egilsstaða verður fargjaldið
hækkað í 7.530 og lægsta fargjald
til Vestmannaeyja verður áfram
nánast það sama, 5.930 kr. og er átt
við gjald fyrir flug báðar leiðir í öll-
um tilvikum.
Afangastaðir Islandsflugs frá
Reykjavík eru átta: Akureyri, Vest-
urbyggð, Isafjörður, Sauðárkrókur,
Siglufjörður, Gjögur, Egilsstaðir og
Vestmannaeyjar. Ómar Benedikts-
son, framkvæmdastjóri Islands-
flugs, segir ástæðu hækkunarinnar
annars vegar launa- og kostnaðar-
hækkanir að undanfomu og hins
vegar að nýting hafí ekki verið eins
og vonast var til. Hún sé þó ágæt
og vaxandi á Akureyri, svipuð á
Egilsstaði og Vestmannaeyjar en
mætti vera meiri á Isafjörð. Ómar
bendir á að þrátt fyrir þessa hækk-
un verði fargjöld í innanlandsflug-
inu enn talsvert lægri en þau voru í
júní í fyrra, áður en innanlandsflug-
ið var gefíð frjálst, og nefndi Akur-
eyri sem dæmi. Þá kostaði flug báð-
ar leiðir milli Reykjavíkur og Akur-
eyrar milli 8 og 14 þúsund krónur
en verður hjá Islandsflugi nú milli
7.230 og 9.930 krónur.
Lægsta fargjaldið er nefnt „bók-
að og greitt" en geti menn ekki
bókað far báðar leiðir kemur til
næsti flokkur, almennt fargjald,
þar sem verðið er 8.530 kr. eða
9.930 kr. til flestra áfangastaðanna
og ræðst af nánari greiðslu- og bók-
unarskilmálum, svo og ferðapunkt-
um. Almenna fargjaldið til Egils-
staða verður 8.930 eða 10.930 kr. og
til Vestmannaeyja 6.330 eða 6.930
kr.
Tengist Amadeus-bókunar-
kerfinu
Frá 9. febrúar tengist Islands-
flug bókunarkerfinu Amadeus í
gegnum SAS. Bókunarkerfið nær
til 119 landa og em yfír 41 þúsund
ferðaskrifstofur tengdar kerfinu og
8 þúsund flugfélög. Ómar segir að
með því að tengjast kerfínu geti
bæði ísienskar og ekki síður er-
NÝTT áskriftartímabil Stöðvar 2
mun framvegis hefjast fímmta
hvers mánaðar þannig að dagskrá
stöðvarinnar verður læst frá og
með 5. febrúar en ekki 10. febrúar
eins og verið hefði að óbreyttu.
Hilmar Sigurðsson, markaðs-
stjóri Islenska útvarpsfélagsins,
segir að frá því í september sl. hafí
tvöfalt kerfí verið við lýði hjá stöð-
inni og dagskráin í raun verið höfð
ólæst frá 5. - 10. hvers mánaðar.
Framvegis verði miðað við 5. febr-
úar og er það gert til að færa
greiðsludagsetningar þeirra sem
4,8%
lendar ferðaskrifstofur bókað far-
þega beint í áætlunarflug félagsins.
Sé það ekki síst spennandi mögu-
leiki gagnvart erlendum skrifstof-
um og leiði vonandi til aukinnar
sölu.
Þá mun íslandsflug frá deginum
í dag hefja áætlunarflug milli
Bíldudals og ísafjarðar. Verður
flogið þrisvar í viku. Miðvikudaga
kl. 8:45 og 16:35 frá ísafirði og kl.
9:20 og 17:10 frá Bíldudal og
fímmtudaga kl. 16:35 frá ísafirði og
17:10 frá Bíldudal.
greiða gíróseðla nær greiðsludegi
þeirra sem greiða með greiðslu-
kortum eða beingreiðslum, en
greiðslur þeirra berast að jafnaði 2.
hvers mánaðar.
Varðandi stöðu þeirra sem greitt
hafa áskrift frá 10. janúar til 10.
febrúar en hyggjast ekki fram-
lengja áskrift sína sagði Hilmar að
þeir áskrifendur væru beðnir að
hafa samband við fyrirtækið og
gætu þeir valið um nokkra kosti, til
að ráðstafa inneign sihni, þar á
meðal að hafa opna dagskrá frá 5.
til 10. febrúar.
Ný áskriftartímabil Stöðvar 2
Dagskránni læst
frá 5. febrúar
Hraða- og stöðvunar-
skyldubrot algengust
„ALGENGUSTU brotin eru
hraðabrot og brot á biðskyldu og
stöðvunarskyldu eru í öðru sæti,“
sagði Hilmar Þorbjörnsson aðstoð-
aryfírlögregluþjónn í Reykjavík í
samtali við Morgunblaðið í gær.
Segir hann fjölda brota svipaðan
nú og í byrjun síðasta árs, jafnvel
hefði þeim fækkað en samanburður
milli ára væri vart marktækur fyrr
en lengra liði.
Lögreglan í Reykjavík hefur að
undanfömu eins og oft áður verið
með ómerktan bíl í almennu um-
ferðareftirliti auk þess sem merktu
lögreglubílamir era á ferðinni.
Hilmar sagði að við eftirlit væri
ákveðið aðhald fólgið í því að lög-
reglan sýndi sig á gatnamótum hér
og þar í bænum og að lögreglan
beitti því eins og áður hefði verið.
Eftirlit í ómerktum bíl væri ein af
þeim aðferðum sem beitt væri og
hann sagði hvorki meira né minna
um það nú en áður. „Fólk sem er
ekki að brjóta af sér í umferðinni
þarf ekki að hafa neinar áhyggjur
af okkur, það eru aðeins lögbrjótar
sem við tökum og þá eram við ým-
ist á merktum eða ómerktum bfl-
um. Við vinnum að því að fá menn
til að virða reglur og ef menn virða
reglur vonum við að takast megi að
bjarga mannslífum og að færri
slasist. Best er auðvitað að ná þeim
árangri með því að vera á staðnum
án þess að hafa afskipti af nein-
um.“
Auk hraðans era algengustu
brotin í umferðinni í Reykjavík til
dæmis ólögleg stöðvun eða lagning
ökutækis, þlvun við akstur og
stöðubrot. í síðustu viku vora 62
sektaðir vegna hraðaksturs, 45
vora sektaðir fyrir rangstöðu, ólög-
lega stöðvun eða lagningu ökutæk-
is, stöðvunarskylda var ekki virt af
15 ökumönnum, í 24 tilvikum not-
aði ökumaður ekki öryggisbelti, 20
óku ölvaðir og 7 óku mót rauðu
ljósi.
SUÐUR-Afríkumenn, frá rannsóknarstöðinnni Sanae á Suðurskauts-
landinu, lögðu á sig þriggja stunda þyrluflug til að skoða íslensku
jöklajeppana og reyna þá.
Gestagang-
ur í Svea-
stöðinni
SUÐUR-AFRÍKUMENN gerðu sér
sérstaka ferð frá Sanae á Suður-
skautslandinu að stöðvum leiðang-
ursmanna í Svea til að skoða
Toyota-jeppana tvo.
Gestirnir voru hrifnir af jeppun-
um, sérstaklega þægindunum og
hversu hljóðlátir þeir eru. Sáu þeir
möguleikana að geta flutt mann-
skap milli staða fljótt.
Islensku leiðangursmennirnir,
Freyr Jónsson og Jón Svanþórs-
son, gátu boðið þeim í dálítinn
hraðakstur næst Svea-stöðinni en
þegar lengra dró leið bfllinn áfram
á 20 km hraða.
Fjöðrunargormar á bflunum
hafa brotnað. Vinstri afturgormur-
inn á öðrum bflnum brotnaði í þijá
bita en, að sögn leiðangursmanna,
brotna þessir gormar aldrei á ís-
landi. Virðist það benda til þess að
þeir þoli illa kuldann.
!
í
I
I
»
I
t
»
I
»
»
»
»
»
»
»
»
»