Morgunblaðið - 28.01.1998, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
MIÐVIKUDAGUR 28. JANÚAR 1998 13
Morgunblaðið/RAX
ÞRÍR af fjórum nýjum frambjóðendum Sjálfstæðisflokksins til borgarstjórnar, sem tekið hafa sæti í nefndum
á vegum borgarinnar, auk þeirra tveggja borgarfulltrúa sem víkja sæti fyrir þá. Taldir frá vinstri Guðlaugur
Þór Þórðarson, Árni Sigfússon, Júlfus Vífill Ingvarsson, Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson og Guðrún Pétursdóttir.
Borgarstjórnarflokkur Sjálfstæðisflokksins
Fjórir nýir frambjóð-
endur til nefndastarfa
Umsögn borgarlögmanns um Vegas
Athugasemdir við
störf hönnuðar
BREYTINGAR sem gerðar hafa
verið á húsnæði skemmtistaðarins
Vegas voru unnar samkvæmt teikn-
ingum verkfræðings, sem starfaði
um árabil hjá embætti byggingafull-
trúa. Borgarráð hefur mælst til þess
við embætti lögreglustjóra að leyfið
verði afturkallað vegna breytinganna
sem gerðar hafa verið á húsnæðinu
ánvitundar bygginganefndar.
I umsögn borgarlögmanns, sem
samþykkt hefur verið í borgarráði,
kemur einnig fram að verkfræðingn-
um hafi, vegna starfa hjá bygginga-
fulltrúa, verið fullkunnugt um að
óheimilt er að hefja framkvæmdir
án leyfis bygginganefndar eins og
gert var í þessu tilviki. Óskað var
eftir umsögn borgarlögmanns í kjöl-
far mótmæla, sem bárust vegna
ákvörðunar um lokun skemmtistað-
arins.
I umsögninni kemur m.a. fram að
burðarveggur hafi verið fjarlægður
og í hans stað komið fyrir stálbita og
stálsúlum. Að mati borgarlögmanns
er nauðsynlegt að bygginganefnd
taki þátt verkfræðingsins til sér-
stakrar skoðunar, en nefndin getur
samkvæmt lögum veitt hönnuði
áminningu eða lagt til við ráðherra
að hann verði sviptur löggildingu
reynist brotið alvarlegt.
Bendir borgarlögmaður á að ljóst
sé að verulegar breytingar hafi ver-
ið gerðar á húsnæðinu. Borgarráði
beri því að grípa til viðeigandi ráð-
stafana. Ekkert hafi legið fyrir um
burðarþol í húsinu eftir að veggur-
inn var fjarlægður og ekkert liggi
fyrir um þær afleiðingar sem breyt-
ingarnar hafa á eldvarnir í húsinu.
Það væri því ábyrgðarhluti að veita
rekstraraðila frest til að fá breyting-
arnar samþykktar eða koma hús-
næðinu í fyrra horf og leyfa sam-
komuhald í húsinu á meðan. For-
sendur jákvæðrar umsagnar borg-
arráðs séu brostnar, þar sem hús-
næðinu hafi verið breytt án sam-
þykkis og því geti borgarráð ekki
lagt mat á umsóknina fyi’r en bygg-
inganefnd hefur afgreitt breytta
uppdrætti fyrir sitt leyti.
Beðið viðbragða eigenda
Tekið hefur til starfa settur lög-
reglustjóri í Reykjavík til að taka af-
stöðu til tilmæla borgarráðs um lok-
un skemmtistaðarins Vegasar vegna
þess að burðarveggur hefur verið
fjarlægður. Skemmtistaðurinn hefur
sótt um vínveitingaleyfi til fjögurra
ára og starfar nú á bráðabirgðaleyfi.
Settur lögreglustjóri, Karl Gauti
Hjaltason, segir að leyfishafa sé nú
gefinn kostur á að tjá sig um tilmæl-
in og að staðnum verði ekki lokað á
meðan. Kvaðst hann gera ráð fyrir
að fá svör frá eigendum skemmti-
staðarins og í kjölfarið myndi hann
taka afstöðu í málinu.
FJÓRIR nýir frambjóðendur, sem
eru í efstu sætum á lista Sjálfstæðis-
flokksins við borgarstjórnarkosn-
ingar í Reykjavík í vor, hafa tekið
sæti í nefndum á vegum borgarinn-
ar. Þetta eru þau Guðrún Péturs-
dóttir, sem tekur sæti í fræðsluráði
Reykjavíkur, Júlíus Vífill Ingvars-
son og Eyþór Arnalds, sem taka
sæti í atvinnumálanefnd, og Guð-
laugur Þór Þórðarson, sem tekur
sæti í stjórn Dagvistar barna og
varasæti í menningarmálanefnd.
Árni Sigfússon hefur setið í þess-
um nefndum, en víkur sæti og mun
sinna yfirstjórn stefnu á sviði þess-
ara verkefna sem oddviti flokksins
Lýst eftir
rauðum
Daihatsu
LÖGREGLAN í Hafnarfirði
lýsir eftir bfl sem stolið var á
sunnudagskvöldið frá Mið-
vangi 41 þar í bæ.
Um er að ræða bíl af gerð-
inni Daihatsu Charade, sem
er rauður að lit, með skrá-
setningarnúmerinu LK 479,
árgerð 1991. Þeir sem gætu
gefið upplýsingar um bflinn
eru beðnir að gefa sig fram
við lögregluna í Hafnarfirði.
og borgarstjóraefni. Auk hans víkur
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson einnig
sæti í atvinnumálanefnd, en þeir
áttu þar báðir sæti. „Við teljum
mjög mikilvægt að gefa þessu nýja
fólki tækifæri og gera það strax
þannig að það komi inn í þessi mál
og sé betur undir búið að berjast
með okkur og hafa forystu í hinum
ýmsu málum ef borgarbúar veita
okkur meirihlutafylgi í vor,“ sagði
Arni Sigfússon á blaðamannafundi
sem boðaður var af þessu tilefni.
Fram kom að þeir telja mikilvægt
að tveir forystumenn úr ólíkum at-
vinnugreinum, Júlíus Vífill og Eyþór
Arnalds, setji sig inn í stöðu at-
vinnu- og ferðamála hjá borginni svo
snúa megi strax til öflugrar upp-
byggingar náist meirihluti í vor.
Guðlaugur Þór, sem fari inn í stjórn
Dagvistar barna, sé í þeim aldurs-
hópi sem mest brenni á dagvistar-
þjónusta fyrir yngstu börnin og leik-
skólar og Guðrún Pétursdóttir, for-
stöðumaður Sjávarútvegsstofnunar,
hafi bæði sem fagmaður og foreldri
víðtæka þekkingu og áhuga á betri
menntun grunnskólabarna í Reykja-
vík.
Ný reynsla
„Þetta leggst ágætlega í mig.
Fyrir mig er þetta ný reynsla og ég
hlakka til að kynnast þessum mála-
flokkum, setja mig vel inn í þá og
vinna að málum sem náttúrlega
varða hag allra borgarbúa og maður
hefur haft skoðanir á sem einn af
þeim til þessa, en fær nú tækifæri til
að kynnast betur innan frá og frá
þeirri hlið þar sem ákvarðanirnar
eru teknar,“ sagði Guðrún Péturs-
dóttir.
Júlíus Vífill sagði að það legðist
mjög vel í sig að hefja nú störf í at-
vinnumálanefnd. „Það eru mörg mál
sem koma inn á borð atvinnumála-
nefndar. Mér er kannski ekki hvað
síst atvinnuleysið ofarlega í huga.
Sú staðreynd að um götur Reykja-
víkur ganga 1.400 atvinnulausar
konur hlýtur að vera öllum áhyggju-
efni og að atvinnuleysi hefur gengið
lítið niður í Reykjavíkurborg, þrátt
fyrir batnandi efnahag þjóðarinnar.
Þar fyrir utan er auðvitað stórmál
að mörg af öflugum fyrirtækjum
Reykjavíkur hafa verið að sækja í
nærliggjandi bæjarfélög og haslað
sér völl þar. Reykjavíkurborg hefur
orðið á eftir í að bjóða þessum fyrir-
tækjum viðunandi aðstöðu," sagði
Júlís Vífill.
Guðlaugur Þór sagði að sér litist
mjög vel á það að hefja strax störf,
því auðvitað stefndu menn að því,
þegar þeir byðu sig fram í borgar-
stjórn, að starfa í nefndum og láta
gott af sér leiða á þeim vettvangi.
„Maður er spenntur að takast á við
þessi verkefni og það er ekki verra
að geta brett upp ermar strax og
fengið að kynnast þeim áður en bar-
áttan hefst í vor,“ sagði Guðlaugur
Þór.
Sjálfstæðisflokkurinn í Garðabæ
Hætt við prófkjör í vor
FULLTRÚARÁÐ Sjálfstæðisfé-
laganna í Garðabæ hefur samþykkt
að falla frá ákvörðun, sem tekin
var í október sl. um að fram færi
prófkjör vegna sveitarstjórnar-
kosninganna í vor. Sjö höfðu gefið
kost á sér til þátttöku í prófkjörinu.
Þess í stað var ákveðið að uppstill-
inganefnd legði fram tillögu að
framboðslista fyrir fund í fulltrúa-
ráðinu sem boðaður hefur verið 23.
febrúar nk.
Að sögn Jóns Guðmundssonar,
formanns fulltrúaráðsins, kom
fram hjá kjömefndinni á fundi full-
trúaráðsins að henni sýndist ekki
tilefni til prófkjörs í Ijósi þess að
Sjö höfðu
gefíð kost á sér
einungis sjö gáfu kost á sér. „Hins
vegar sögðust þeir hafa talað við
fjölda fólks, sem sagðist vilja starfa
fyrir Sjálfstæðisflokkinn en ekki að
undangengnu prófkjöri," sagði
hann. „Þannig að þeir lögðu til við
stjóm fulltrúaráðsins að hætt yrði
viðj>rófkjörið.“
Á fundi fulltrúaráðsins var sam-
þykkt mótatkvæðalaust að stilla
upp framboðslista fyrir kosning-
amar í vor. „Það er mín skoðun að
prófkjör hafi mnnið sitt skeið og að
samherjar séu ekki tilbúnir að etja
kappi í prófkjöri en þurfa síðan að
snúa bökum saman í kosningabar-
áttunni,“ sagði Jón.
Tveir af fjórum núverandi bæj-
arfulltrúum Sjálfstæðisflokksins,
þau Benedikt Sveinsson og Sigrún
Gísladóttir, hafa ákveðið að gefa
ekki kost á sér við næstu kosning-
ar.
Af þeim sjö sem höfðu gefið kost
á sér í prófkjör voru tveir sitjandi
bæjarfulltrúar, þau Erling Ás-
geirsson og Laufey Jóhannsdóttir,
og fyrsti varafulltrúi, Andrés Sig-
urðsson, en hann skipaði fimmta
sæti listans.
H
2\
rij FASTEIGNA
MARKAÐURINN
OÐINSGOTU 4, SIMAR 551 1540, 552 1700, FAX 562 0540
Atvinnuhúsnæði
Verslunarhúsnæði við Bankastræti.
Góð 80 fm verslunarhæð ásamt 80 fm kjallara. Kjallarinn er vel
samtengdur hæðinni og getur jafnframt nýst sem verslunarhúsnæði.
Húsnæðið er laust til afhendingar nú þegar.
Hafnarbraut Kópavogi.
1.067 fm atvinnuhúsnæði sem skiptist i 458 fm iðnaðarhúsnæði með 8
metra lofthæð, góðum innkeyrsludyrum og góðri aðkomu. 307 fm
iðnaðarhúsnæði með 5 metra lofthæð og góðum innkeyrsludyrum ásamt
30 fm millilofti. 265 fm skrifstofurými sem skiptist í 3 einingar og er allt
endurnýjað. Eignin getur selst í hlutum.
Laugavegur.
Gott 125 fm verslunarhúsnæði á götuhæð í mikið endurnýjuðu timburhúsi.
Góðir útstillingargluggar. Verð 18,9 millj.
Kringlan.
Verslunarhúsnæði sem er 114 fm og er á neðri hæð aðal-Kringlunnar.
Húsnæðið er í leigu til 5 ára. Góðar leigutekjur.
Vesturhraun Garðabæ.
2.500 fm iðnaðarhúsnæði á einni hæð með allt að 8 metra iofthæð, 5
innkeyrsludyr. Húsnæðið getur selst í hlutum.
Skúlatún.
774 fm skrifstofu- og lagerhúsnæði sem skiptist í 420 fm lagerhúsnæði og
tvær skrifstofuhæðir sem eru 131 fm og 123 fm auk þess er 220 fm
yfirbyggt port sem nýtist sem lagerhúsnæði.
Bolholt.
170 fm verslunarhúsnæði á götuhæð til afhendingar fljótlega.
Eldshöfði.
194 fm iðnaðarhúsnæði með stórum innkeyrsludyrum, hiti í plani.
Húsnæðið getur verið til afh. fljótlega. Stór hluti kaupverðs áhvílandi.
Laugavegur.
Heil húseign sem er 315 fm á 3 hæðum og skiptist í 105 fm
verslunarhúsnæði á götuhæð, 105 fm kjailara og 105 fm íbúð á 2. hæð.
Húsið er timburhús byggt á steyptum kjallara. Baklóð með góðum
bllastæðum. Möguleiki á byggingarrétti.
Bíldshöfði/bílaþvottastöð.
Hér er um að ræða fyrirtæki og húsnæði sem selst saman, er í
langtímaleigu og skilar háum leigutekjum.
Miðbær - góð fjárfesting.
Heil húseign sem leigð er út í nokkrum einingum. Traustir leigutakar.
Langtímaleigusamningar með góðum leigutekjum.
Laugavegurnýbygging.
Heil húseign sem er 1.170 fm verslunar- og skrifstofuhúsnæði auk þess
eru tvær íbúðir í húsinu. Getur selst ( hlutum.
Kvenfataverslun í miðbænum til sölu.
Af sérstökum ástæðum er kvenfataverslun á góðum stað í miðbænum til
sölu. Gott tækifæri fyrir samhentar konur. Fallegar innréttingar, eigin
innflutningur. Enginn gamall lager. Gott verð. Upplýsingar aðeins á
skrifstofu.
Snyrtivöruverslun Kringlunni
Snyrtivöruverslun í Kringlunni í góðu leiguhúsnæði.
V-
Jón Guðmundsson, lögg. fasteignasali
Ólafur Stefánsson lögg. fasteignasali
J