Morgunblaðið - 28.01.1998, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 28.01.1998, Qupperneq 16
16 MIÐVIKUDAGUR 28. JANÚAR 1998 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI Króknes sameinast Hraðfrystihúsinu hf. Morgunblaðið/Kristinn Viðskiptanefnd frá Halifax á Islandi STJÓRNIR Hraðfrystihússins hf. í Hnífsdal og Krókness ehf. á ísafirði hafa samþykkt að sameinast undir nafni Hraðfrystihússins hf. Munu eigendur Krókness eignast hlut í Hraðfrystihúsinu við sameining- una. Króknes á og gerir út rækjubát- inn Örn ÍS með samtals um 200 tonna kvóta í þorskígildum. Þar af eru um 70 tonn af þorskkvóta auk þess sem félagið á tvo rækjukvóta í Isafjarðardjúpi sem í ár nema lið- lega 70 tonnum. Eftir sameininguna á Hraðfrystihúsið hf. liðlega 8 þús- und tonna kvóta í þorskígildum. REYKJAVÍKURBORG tók í gær formlega í notkun nýtt upplýsinga- og bókhaldskerfi. Kerfið sem bygg- ist á viðskiptahugbúnaðinum Agressu er eitt stærsta og um- fangsmesta sinnar tegundar hér á landi. Búast má við að notendur kerfísins verði allt að 300 þegar það er komið í fulla notkun. I fyrsta áfanga, sem gangsettur var í gær er fjárhagsbókhald, viðskiptamanna- bókhald, fjárhagsáætlunarkerfi og sölukerfi. Agresso felur í sér heildarlausn vegna allrar fjármálaumsýslu borg- arinnar, þannig að nú munu borgar- starfsmenn nota eitt kerfi þar sem upplýsingar eru samnýttar og flæða milli einstakra kerfishluta. Hingað til hefur Reykjavíkurborg notast við mörg kerfi, að því er fram kemur í frétt frá Skýrr hf., umboðsaðila Agresso. í Agresso eru fjölmargar nýjung- ar sem verða nýttar hjá Reykavík- urborg. Sem dæmi má nefna að nú verður mögulegt að skrá alla reikn- Einar Valur Kristjánsson, stjórn- arformaður Hraðfrystihússins hf., segir að markmiðið með þessari sameiningu sé að styrkja stoðir fé- lagsins, efla hráefnisöflun fyrir rækjuvinnslu þess í Súðavík og auka þorskkvóta félagsins. „Það er alltaf jákvætt þegar menn vilja sameinast fyrirtækinu. Það sýnir okkur að fleiri hafi trú á framtíð þess en við,“ segir Einar. Stefnt að skráningu á hlutabréfamarkaði Hann segir rekstur félagsins hafa gengið ágætlega og horfurnar séu inga sem berast Reykjavíkurborg við móttöku og áður en þeir eru sendir áfram til frekari vinnslu og samþykktar. Þegar reikningur hef- ur verið samþykktur er bókun lokið. Þannig er unnt að sjá strax hvaða reikningar óafgreiddir á hverjum tíma. Stóraukinn aðgangur að upplýsingum Síðustu mánuði hafa starfsmenn Skýrr hf. og Reykjavíkurborgar unnið að endurskipulagningu bók- haldslykla og nýju reikningslíkani íyrir Reykjavíkurborg, sem verður grundvöllurinn í hinu nýja upplýs- ingakerfi. Þessi vinna miðar að því að hagnýta þá fjölbreyttu mögu- leika sem Agresso býður upp á við úrvinnslu upplýsinga. Forráðamenn stofnana fá nú aukna möguleika til að skoða tekjur og gjöld og gera samanburð við áætlanir. Fyrir- spurnir eru unnar í sérstökum íyr- irspurnamyndum þannig að nú get- ur notandi sjálfur gert fyrirspurn góðar, ef frá sé talið yfirvofandi sjó- mannaverkfall sem valdi talsverð- um áhyggjum. Stefnt sé að því að skrá fyrirtækið á hlutabréfamark- aði á næstu misserum en ekki hafi þó verið afráðið hvernig að skrán- ingunni verði staðið. Hraðfrystihúsið veltir nú um 2 milljörðum króna á ári. Fyrirtækið á frystiskipið Bessa IS, Andey IS og ísfísktogarann Pál Pálsson IS og nú rækjubátinn Örn IS. Fyrirtækið rekur bolfiskvinnslu í Hnífsdal, rækjuvinnslu Súðavík og mjölvinnslu með Ishúsfélagi Isfirð- inga. sem áður þurfti sérfræðinga til. Samhliða ákvörðun um kaup á Agresso var ákveðið að endurskipu- leggja vinnuferla við bókhald og fjárreiður borgarsjóðs og nýta þær nýjungar sem Agresso og ný tölvu- tækni býður upp á. í stað þess að færa bókhaldið á einum stað verða nú sex bókunarstaðir og að auki verður kerfið notað hjá Vatnsveitu Reykjavíkur, Rafmagnsveitu Reykjavíkur og Félagsbústöðum hf, auk þeirra fyrirtækja borgarinnar sem nú notfæra sér þjónustu borg- arbókhalds. 50 MANNA viðskiptasendi- nefnd frá Halifax í Nova Scotia fylki í Kanada er nú stödd hér Þess er vænst að notkun á upp- lýsingum úr bókhaldi Reykjavíkur- borgar muni stóraukast nú þegar Agresso kerfið verður tekið í notk- un. Mikil áhersla er lögð á öryggi kerfisins og fær hver notandi að- gangsorð að kerfinu þar sem að- gangi að upplýsingum og kerfis- hlutum er stýrt. Kerfið skráir síðan hver gerir hvað og á hvaða tíma. Þannig er tryggt að öryggi upplýs- inga minnki ekki þótt notendum stórfjölgi. Þegar hafa um 300 starfsmenn fengið þjálfun í Agresso. á landi. í nefndinni eru fulltrú- ar kanadískra fyrirtækja sem eiga nú þegar viðskipti við Is- land eða sem leita eftir við- skiptatengslum. Ferðin er skipulögð af ráðu- neyti efnahagsþróunar Nova Scotia. Guðjón Arngrímsson hjá Athygli, sem aðstoðar Kanadamennina hér á landi, segir að þátttaka í henni hafi verið nokkru meiri en búist var við fyrirfram. „Þennan mikla áhuga má líklega skýra með því hve samgöngur milli Is- lands og Nova Scotia eru nú orðnar greiðar. Eimskip hefur lengi siglt til Halifax og nýlega bættist borgin við í hóp áfanga- staða Flugleiða vestan hafs.“ í gær hélt viðskiptanefndin fundi með ýmsum aðilum úr ís- lensku atvinnulífl þar sem rætt var um hvernig mætti örva við- skipti milli landanna og hvern- ig best væri að koma á við- skiptum við íslensk fyrirtæki. Var meðfylgjandi mynd tekin á Hótel Sögu þar sem Vilhjálmur Egilsson, alþingismaður og for- maður Verslunarráðs íslands, leiddi Kanadamennina í allan sannleika um íslenskt við- skiptalíf. Nefndin skiptist í nokkra hópa eftir starfsgreinum og munu þeir heimsækja íslensk fyrirtæki og stofnanir sem þykja áhugaverð. í hópnum eru m.a. hugbúnaðarfyrirtæki, matvælaframleiðendur, kaup- endur landbúnaðarafurða og stálbitaframleiðendur svo eitt- hvað sé nefnt. Agresso upplýsinga- og bókhaldskerfí tekið í notkun hjá Reykjavíkurborg Eitt stærsta kerfí sinnar teg- undar hérlendis Morgunblaðið/Kristinn Borgarstjórinn í Reykjavík, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, færði fyrstu færsluna í nýja Agresso-kerfínu í Ráðhúsi Reykjavíkur í gærmorgun. Dregur úr olíuhækkun London. Reuters. HELDUR dró úr hækkun á olíu- verði í gær vegna efasemda um lof- orð OPEC um að styrkja verð á ol- íu og þar sem ekkert áþreifanlegt hefur gerzt í deilu Bandaríkja- manna og Iraka. Lítils stuðnings var vænzt frá Samtökum olíusöluríkja eftir fund fámenns hóps ráðherra samtak- anna, þar sem ítrekaðar voru áskoranir til aðildarríkja um að virða samþykktir um framleiðslu- kvóta. Verð á Norðursjávarolíu lækkaði um 12 sent í 15,65 dollara kl. 11 eft- ir 1,03 dollara hækkun á lokaverði á mánudag í 15,77 dollara. Olíuráðherra írans, Bijan Zanganeh, spáði góðum fréttum á olíumarkaði eftir fund markaðseft- irlitsnefndar OPEC, en orð hans voru varla talin marktæk. Aukafundurinn var haldinn fyrr en ætlað var til að ræða 30% lækk- un á heimsmarkaðsverði á oh'u frá því í síðari hluta október. Lækkunin stafaði sumpart af ákvörðun ráðherrafundar ÖPEC í nóvemberlok um að auka fram- leiðslukvóta um 10% í 27,50 millj- ónir tunna á dag. Olíuverð á Rotterdam-markaði frá 1. október 1997 House of Fraser lokar verzlun í Eastbourne London. Reuters. BREZKA verzlanakeðjan Hou- se of Fraser Plc hyggst loka stórverzlun sinni í Eastbourne á suðurströnd Englands í marz- lok og 70 munu missa atvinn- una. Sala verzlunarinnar er liður í hagræðingaráætlun, sem gerir ráð fyrir sölu tveggja verzlana á Norður-Englandi, Binns í Scunthorpe og House of Fraser verzlun í Sheffíeld. Binns var seld Upton & Southern Holdings Plc í sept- ember, en Sheffield verzlunin er enn til sölu. Útflutningsráð undirbýr fjárfestingarþing Markmiðið að afla erlends áhættufjár UTFLUTNINGSRAÐ Islands hefur í undirbúningi að setja á fót nýtt verkefni fyrir íslensk þekkingarfyr- irtæki, einkum í upplýsingatækni og hugbúnaðargerð, með það að mark- miði að afla fyrirtækjum áhættufjár frá erlendum fjárfestum. Ráðið stóð fyrir samskonar verkefni á síðasta ári í samvinnu við Fjárfestingar- skrifstofu Islands og Iðnþróunarsjóð sem þótti takast afar vel. Verkefninu lauk með fjárfestingarþingi, þar sem fyrirtækin kynntu verkefni sín fyrir erlendum og innlendum fjárfestum. Nýja verkefnið miðar einnig að því að auka þekkingu erlendra fjárfesta á íslandi og íslenskum fyrirtækjum sem vænlegum fjárfestingarkostum. Gert er ráð fyrir að a.m.k. fjögur fyr- irtæki fái fulla fjármögnun áforma sinna. í verkefninu á síðasta ári náðu öll fyrirtækin nokkrum árangri. Þannig hafa t.d. Netverk og Gula lín- an þegar fengið áhættufé frá inn- lendum og erlendum aðilum.. Guðný Káradóttir, verkefnisstjóri hjá Ut- flutningsráði, segir að leitað sé að áhugasömum fyrirtækjum með afurð sem hafi sannað sig og eigi mögu- leika á útflutningi. Viðkomandi aðil- ar þurfi að sama skapi að vera reiðu- búnir að leggja á sig mikla vinnu við gerð viðskiptaáætlunar. 12-15 fyrirtæki taka þátt Stefnt er að því að gefa um 12-15 fyrirtækjum kost á þátttöku í verk- efninu. Haldin verða námskeið um gerð viðskiptaáætlana og áhættu- fjármögnun á tímabilinu febrúar til maí. Hvert og eitt þátttökufyrirtæki fær jafnframt ráðgjöf erlends ráð- gjafa í einn dag. I framhaldi af því verður haldið fjárfestingarþing hér á landi fyrir erlenda sem innlenda fjárfesta, þar sem fyrirtækin kynna starfsemi sína. Fyrirtækin sem taka þátt í verk- efninu eiga möguleika á þátttöku í fjárfestingarþingi sem haldið verður 1 Vín í Austurríki á vegum Evrópu- sambandsins um mánaðamótin nóv- ember/desember í tengslum við upp- lýsingaráðstefnu sambandsins. Fyrirtækin þurfa að gi-eiða þátt- tökugjald, en samtals greiða þau ein- ungis um 30-40% kostnaðar við verk- efnið.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.