Morgunblaðið - 28.01.1998, Side 17

Morgunblaðið - 28.01.1998, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. JANÚAR 1998 17 VIÐSKIPTI Samkomulag undirritað um breyttar vinnureglur í notkún sjálfskuldarábyrgða Lán veitt á grundvelli greiðslu- getu en ekki ábyrgðarmanna Morgunblaðið/Kristinn ÞEIR Finnur Ingólfsson, viðskiptaráðherra, og Páll Pétursson, félagsmálaráðherra, undirrituðu í gær sam- komulag ráðuneyta sinna, banka, sparisjóða, greiðslukortafyrirtækja og Neytendasamtakann um breyttar vinnureglur við notkun sjálfskuldarábyrgða. í GÆR var undirritað samkomulag milli viðskiptaráðuneytis, félags- málaráðuneytis, Neytendasamtak- anna, greiðslukortafyrirtækjanna og sambanda banka og sparisjóða um ráðstafanir til að draga úr vægi sjálf- skuldarábyrgða við lánveitingar. Þeirra í stað er stefnt að því að greiðslugeta lánþega verði metin og lán veitt á grundvelli hennar og eigin ábyrgða lánþega en ekki á grundvelli þeirra ábyrgðarmanna sem upp á lánin skrifa. Aðgerðii'nar fela í sér að ábyrgð- armenn verði betur upplýstir um fjárhagsstöðu þeirra sem þeir séu að skrifa upp á fyrir. I samkomulaginu er gert ráð fyrir að ábyrgðarmaður geti ávallt óskað eftir því að viðkom- andi lánastofnun meti greiðsluhæfi lánþega. Fari lánsfjárhæð yfir 1 milljón króna er skylt að fram- kvæma greiðslumat og tryggja skal að ábyrgðarmaður geti kynnt sér niðurstöður þess. Samþykki lánþega verður þó að liggja íyrir til að greiðslumat geti farið fram. Auk þessa verður samkvæmt sam- komulaginu tryggt að ábyrgðar- manni sé tilkynnt ef lán sem hann hefur skrifað upp á lendir í vanskil- um. Þá verði honum einnig greint frá því ef lánþegi sé að greiða af fleiri lánum. Tekið fyrir opnar ábyrgðir f samkomulaginu er einnig að finna ýmis ákvæði sem taka sérstak- lega til trygginga vegna greiðslu- korta og yfirdráttarheimilda. Þannig má sjálfskuldarábyrgð á yfirdráttar- láni ekki vera hærri en sem nemur yfirdrætti og hún má ekki gilda leng- ur en í Qögur ár. Að sama skapi skal sjálfskuldarábyrgð vegna greiðslu- korts ekki vera hærri en sem nemur tvöfoldu mánaðarúttektargjaldi og ekki gilda lengur en í fjögur ár. Þá verði tekið fyrir allar opnar ábyrgðir. Finnur Ingólfsson, viðskiptaráð- herra, sagði við undirskrift sam- komulagsins, að þessi leið hefði verið valin í stað þess að setja lög um bann við ábyrgðum einstaklinga. Hann sagði það vera ijóst að hægt væri að ganga lengra í þessum efnum, m.a. með því að fá önnur fyrirtæki á borð við tryggingafélög og verðbréfafyrir- tæki, sem einnig stunduðu útlána- starfsemi, til að taka upp sömu vinnubrögð. „Eg tel hins vegar að við höfum stigið fyrsta og stærsta skrefið í þessu máli og þvi fagna ég,“ sagði Finnur. Aðgengi stofnana að fjárhagsupplýsingum bætt Páll Pétursson, félagsmálaráð- herra, kynnti við þetta tækifæri nið- urstöður nefndar sem fjallað hefur um leiðir til að bæta aðgengi lánveit- enda að upplýsingum um fjárhags- stöðu einstaklinga. I tillögum nefndarinnar kemur fram að með nettengingu milli fjár- málastofnana megi flýta fyrir miðlun upplýsinga um fjárhag lántakenda. Benti Finnur Sveinbjörnsson, fram- kvæmdastjóri Sambands íslenskra viðskiptabanka, sem sæti átti í nefndinni, á að þessar upplýsingar væru vistaðar hjá Reiknistofu bank- anna í dag en upplýsingar einstakra banka og sparisjóða væru hins vegar alveg aðskildar. Með þvi að rjúfa ein- hver göt á þá múra mætti hins vegar koma á slíkri nettengingu. Páll lagði hins vegar áherslu á þá niðurstöðu nefndarinnar að slík upp- lýsingamiðlun yrði að vera háð sam- þykki lántakenda og nauðsynlegt væri að hafa í huga markmið laga um skráningu og meðferð persónu- upplýsinga og sjónarmið um per- sónuvemd. „Þetta er fyrst og fremst hugsað til að auðvelda einstaklingum að sýna fram á greiðsluhæfi sitt þegar þeir sækja um lán,“ sagði Páll. Halldór Guðbjarnarson, formaður Sambands íslenskra viðskiptabanka, sagðist telja að þetta samkomulag myndi ekki leiða til þess að sjálf- skuldarábyrgðir yrðu notaðar í mun minna mæli en til þessa. Ábyrgðir þyrftu alltaf að vera að baki lánum og það væru grundvallarréttindi ein- staklinga að ganga í ábyrgð fyrir þeim lánum sem þeir kysu. „Eg held hins vegar að þetta muni leiða til þess að eitthvað færri einstaklingar muni fá lán en áður.“ Þór Gunnarsson, formaður Sam- bands íslenskra sparisjóða, sagði að með þessum hætti væri auðveldara fyrir lánastofnanir að fá heildar- mynd af fjárhag viðkomandi lán- þega. Hann sagðist hins vegar telja nauðsynlegt að afskriftaskrá bank- anna yrði tekin inn í slíka upplýs- ingamiðlun til að kerfið gæti virkað sem skyldi. Verslunar- ráð hvetur til sölu Lands- símans VERSLUNARRÁÐ íslands hefur sent bréf til nefndar um framtíðar- skipulag fjarskiptamála þar sem hvatt er til sölu Landssímans hf. Innan Verslunarráðs starfar sér- stakur hópur tuttugu fyrirtækja er nefnist Samtök fyrirtækja á fjar- skiptamarkaði. Á fundum hópsins hefur komið fram eindreginn vilji til þess að selja hlutabréf ríkisins í Landssímanum hf. og að selt verði sem mest og sem fyrst að því er kemur fram í umræddu bréfi. Innan nefndarinnar hefur mest umræða orðið um hvernig mætti tryggja samkeppni á fjarskipta- markaði en margir fundarmenn töldu að það yrði ekki eingöngu gert með reglum heldur yrði að skipta Landssímanum upp í fleiri fyrirtæki svo það yrði gerlegt. Hefur einkum verið minnst á að skipta Landssím- anum í tvennt, þ.e. grunnkerfi og samkeppnisþjónustu. Rökin eru þau að þó svo að Landssíminn sé lítið fyrirtæki á alþjóðavettvangi þá hafi það slíka yfirburðastöðu innan lands að skipting sé nauðsynleg ef raun- hæft á að vera fyrir önnur fyrirtæki að keppa á þeim markaði. Tæknival selur „gamlárs- dagsbréfin“ TÆKNIVAL hf. hefur selt þau hlutabréf sem fyrirtækið keypti í sjálfu sér á gamlársdag á genginu 6,0. í tilkynningu sem Tæknival sendi Verðbréfaþingi kemur fram að umrædd hlutabréf hafi verið not- uð sem greiðsla á hlutabréfum sem fyrirtækið keypti í Rafhönnun VHB hinn 17. janúar. Um var að ræða hlutabréf fyrir 616.210 krónur að nafnvirði og voru bréfin því seld fyrir tæpar 3,7 milljónir króna. Kaup Tæknivals á umræddum hlutabréfum vöktu nokkra athygli á gamlársdag, en þau áttu sér stað skömmu fyrir lokun Verðbréfa- þings. Verð hlutabréfa fyrirtækisins hækkaði þá um tæp 20% kl. 11:58 í samtals tíu viðskiptum. * Heildarsýn í skipulagsmálum * Einhæft og fátækiegt líf er afleiðing staðlaðra félagslegra lausna * * Virk þátttaka almennings eflir samkennd og sátt í samféiaginu. Við setjum MENNINGAR- SKIPULAGS- OG UMHVERFISMÁL á oddinn og leggjumst á eitt að tryggja Guðrúnu Jónsdóttur arkitekt og formanni Menningarmálnefndar Reykjavíkur öruggt sæti í borgarstjórn. Jón Óskar myndlistarmaður Óskar Dýrmundur Ólafsson, í skipulagsnefnd borgarinnar Helga Thorberg verslunarstjóri Huld Goethe veitingastjóri Bryndís Jónsdóttir formaður SÍM Kirsten Hendriksen dýralæknir Kjartan Thors jarðfræðingur Sif Sigurðardóttir kennari Geir Ragnarsson verkfræðingur Auður Sveinsdóttir landslagsarkitekt Snjólaug Sigurjónsdóttir kennari Helga Þórarinsdóttir þýðandi Snorri Örn Snorrason tónlistarmaður Rósa Ingólfsdóttir grafískur hönnuður Aðalsteinn Magnússon framkvæmdastjóri Ragnheiður Ragnarsdóttir arkitekt Finnur Guðsteinsson Málfríður Kristjánsdóttir arkitekt Ragna Sigrún Sveinsdóttir lektor Elísabet Berta Bjarnadóttir félagsráðgjafi Ragnheiður Sverrisdóttir innanhúshönnuður Lena Bergmann meinatæknir Ásrún Kristjánsdóttir formaður FORM ISLAND Sveinbjörn Egilson símsmiður Sólveig Eggertsdóttir myndlistarmaður Skúli Norðdal arkitekt Mjöll Snæsdóttir fornleifafræðingur Valdís Bjarnadóttir arkitekt Elín Bára Njálsdóttir tækniteiknari Kolfinna Baldvinsdóttir blaðamaður FELUM HENNI FORYSTU!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.