Morgunblaðið - 28.01.1998, Blaðsíða 20
20 MIÐVIKUDAGUR 28. JANÚAR 1998
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Forsætisráðherra Danmerkur styrkir stöðu sína þrátt fyrir Færeyjamálið
Þingið gagnrýnir stjórnina
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
POUL Nyrup Rasmussen, forsæt-
isráðherra Dana, virðist ekki hafa
tapað vinsældum vegna Færeyja-
málsins, sem nú er að verða gamalt
mál í dönskum stjómmálum. Sam-
kvæmt skoðanakönnun sem gerð
var dagana eftir að danska skýrsl-
an um Færeyjabankamálið var birt
hefur Nyrup styrkt stöðu sína og
staða Uffe Ellemann-Jensen held-
ur versnað. Með stuðningi vinstri-
flokkanna varðist forsætisráðherra
í gær vantrausti vegna málsins er
skýrslan var rædd og vítur þings-
ins urðu mildari en búist var við.
Nú á fimm ára afmæli stjórnar
jafnaðarmanna stendur efnahagur
Dana traustum fótum og Nyrup
getur glaðst yfir að rúmur þriðj-
ungur kjósenda álítur hann betri
forsætisráðherra nú en þegar hann
tók við embættinu.
Þar sem minnihlutastjóm Nyr-
ups var búin að tryggja sér stuðn-
ing flokkanna á vinstrivængnum í
umræðunum í gær var fyrirfram
ljóst að stjómin yrði ekki felld,
þótt hún hafi verið harðlega gagn-
rýnd úr öllum áttum. Nyrup og
fleiri stjómarliðar höfðu uppi hörð
orð í garð stjómarandstöðunnar,
einkum Venstre og Uffe Ellemann-
Jensens, sem sat í salnum, en hafði
enn ekki tekið til máls þegar kom
fram á kvöld. En þegar í ljós kom
að Venstre og Ihaldsflokkurinn
höfðu engu við gagnrýni sína að
bæta og vom ekki mjög herskáir
dofnaði yfir umræðunum, þótt þær
stæðu fram á kvöld. Umræðumar
líktust fremur vamar- og sóknar-
ræðum fyrir dómi og það var
lengstum fámennt í salnum og lít-
il stemmning. Þingfréttaritari
danska útvarpsins ályktaði því sem
svo að málið væri á leið í glatkist-
una.
Mildari vítur
en búist var við
Alveg síðan skýrslan var birt
hefur þingsályktun, sem vitað var
að samþykkt yrði eftir umræður
þingsins, verið rædd, samin og
endursamin, því þótt stjóminni
væri ljóst að hún kæmist ekki hjá
gagnrýni var hún ósátt við of harða
gagnrýni, til dæmis í samanburði
við ýmsar fyrri vítur. Danir tala
um langt nef í þessu sambandi og
Nyrup var umhugað um að hann
og stjómin fengju ekki of langt nef
Færeyska landstjórnm gagnrýnd
Sögð fyrirhyggju-
laus í fjármálum
Þórshöfn. Morgunblaðið.
FÆREYSKA efnahagsráðið gagn-
rýnir stjórn efnahagsmála í
Færeyjum mjög harðlega og bendir
á, að ekkert sé lagt til hliðar til að
mæta hugsanlegum áföllum og ekk-
ert hugsað fyrir afborgunum af
skuldinni við Dani, 55 milljörðum
ísl. kr.
„Við ráðum litlu um aflabrögðin
og það hefur sín áhrif á efnahagslíf-
ið og afkomuna en í fjárlögum
landstjómarinnar er ekkert tillit
tekið til þessara sveiflna," segir
Bjami Olsen, formaður efnahags-
ráðsins. Segir hann, að fjárlögin frá
í desember hefði átt að afgreiða
með tveggja til þriggja milljarða fsl.
kr. afgangi en það hefði ekki verið
gert. Ekki væri heldur gert ráð fyr-
ir afborgunum af skuldinni við
Dani, 55 milljörðum ísl. kr.
Af þessari skuld hafa Færeyingar
aðeins greitt vexti enn sem komið
er en eftir nokkra mánuði munu
fulltrúar landstjómarinnar og
dönsku ríkisstjórnarinnar setjast að
samningum um afborganir. A þessu
ári gjaldfellur raunar fyrsta greiðsl-
an, um 1,7 milljarðar ísl. kr., og fyr-
ir henni eru til peningar.
Sama fiskgengdin
í fjárlögunum
„Skýringin á því er sú, að á fjár-
lögum síðasta árs var afgangur, á
annan milljarð ísl. kr., og hann var
færður yfir á þetta ár. Þessi afgang-
ur stafar svo aftur af því, að veiðin
var góð á síðasta ári og verðið hátt
en fiskifræðingar spá minnkandi
fiskgengd á þessu ári. Þess sér þó
engan stað í fjárlögunum fyrir þetta
ár. í þeim er gert ráð fyrir sömu út-
gjöldum og sömu tekjum og í fyrra
og ekki reynt að hafa borð fyrir
báru,“ segir Bjarni Olsen og bendir
á, að með þessu sé verið að gera
sveiflurnar í efnahagslífinu enn
meiri og alvarlegri.
Kosið verður til færeyska lög-
þingsins á sumri komanda og kosn-
ingabaráttan og aðdragandi hennar
hafa hingað til ekki þótt hentugur
tíni til að spara.
frá þinginu. Niðurstaðan varð á
endanum mildari vítur en búist var
við, svo tíu daga hrossakaup um
vítumar urðu því Nyrup í hag.
I ályktuninni var bæði fyrri og
núverandi stjóm gagnrýnd. Þar
með má búast við að pólitískum
kafla málsins sé lokið, en eftirleik-
ur vegna ábyrgðar embættismanna
og hugsanleg ákæra á hendur Den
Danske Bank er enn óljós. Fram
eftir kvöldi var orðrómur á sveimi í
þinghúsinu um að Nyrup hygðist
nota tækifærið og lýsa yfir kosning-
um, þótt hann neitaði því sjálfur.
Danskir fjölmiðlar hafa um helg-
ina beint sjónum að fimm ára
stjómarafmælinu. Eftir kröftugar
vinsældadýfur jafnaðarmanna
meðal kjósenda, þar sem Venstre
hefur eflst og dafnað, hefur fylgi
hinna síðamefndu minnkað undan-
farna mánuði en fylgi jafnaðar-
manna aukist. Sú uppsveifla og
góðiu- hagur Dana almennt hefur
aukið bjartsýni jafnaðarmanna og
um leið sjálfstraust forsætisráð-
herrans.
Reuters
RÚSSNESK Sojus-eldflaug reiðubúin á skotpalli í Baikonur í
Kazakhstan í gær, en henni á að skjóta á loft á morgun. Flaugin mun
flyfja franskan geimfara, Leopold Eyharts og tvo rússneska, Talgat
Musabajev og Nikolaíj Búdarin, til Mír-geimstöðvarinnar.
Geimfarinn komst
Canaveraihöfða. Reuters.
í búninginn
VEL heppnaður geimsaumaskap-
ur kom í veg fyrir að bandaríski
geimfarinn Andy Thomas þyrfti
að snúa til jarðar áður en vera
hans í rússnesku geimstöðinni Mír
gat hafíst. í félagi við Anatohj
Solovjev, stöðvarsfjóra í Mír,
tókst Thomas á mánudag að laga
geimbúninginn sem hann þarf að
klæðast komi til þess að áhöfnin
neyðist til að fara úr stöðinni í
neyð.
Á sunnudag kom í Ijós að
Thomas gat ekki komið búningn-
um nægilega vel yfír axlirnar á
sér. Þá reyndi hann að fara í bún-
ing Daves Wolfs, sem dvalið hefúr
í Mír í fjóra mánuði og Thomas er
kominn til að leysa af, en sá bún-
ingur reyndist of stór. Búningur-
inn þurfti að passa nákvæmlega á
Thomas, líkt og skórinn á Ösku-
busku, ella hefði hami neyðst til
að hverfa aftur til jarðar með
geimflauginni Endeavour, sem
flutti hann til Mír.
Með því að laga reimar í hand-
arkrikum og búk búningsins tókst
Thomas og Solovjev að gera hann
mátulegan fyrir Thomas. Hann
hafði prófað búninginn er hann
var í æfingabúðum í Rússlandi í
desember, en þyngdarleysi úti í
geimnum getur haft áhrif á
mannslíkamann og breytt honum.
Vökvi sem jafnan safnast í neðri
útlimi dreifist jafnar og menn
geta lengst vegna þess að hrygg-
súlan er ekki eins samþjöppuð og
á jörðu niðri.
Nýir tímar í samskiptum Dana og Evrópusambandsins
Greiða nú meira en þeir fá til baka
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
NÝIR tímar í samskiptum Evrópu-
sambandsins og Danmerkur eru
gengnir í garð. Uppgjör síðasta árs
frá danska Seðlabankanum sýnir að
Danir fá ekki lengur meira frá ESB
en þeir leggja því til. Árið 1996
fengu þeir rúmlega hálfum milljarði
danskra króna meira en þeir
greiddu til ESB, en 1997 greiddu
þeir hálfum milljarði meira en þeir
fengu. Búist er við að þessi mismun-
ur muni vaxa næstu árin og enn
aukast, þegar ný ríki bætast við í
ESB. Þessa nýju stöðu mun vísast
bera á góma fýrir þjóðaratkvæða-
greiðsluna um Amsterdam-sáttmál-
ann 28. maí næstkomandi.
I fyrra greiddu Danir 11,5 millj-
arða danskra króna til ESB, en
framlagið þaðan nam um ellefu
milljörðum. Á
þessu ári er búist
við að Danir muni
greiða um 2,2
milljörðum meira
til ESB en þeir fá
þaðan. Sam-
kvæmt útreikn-
ingum efnahagsráðuneytisins
danska má búast við að stækkun
ESB kosti Dani 3,5-5,5 milljarða
króna árlega umfram það sem þeir
greiða þegar í aðildargjald.
Fmyrirsjáanleg breyting
Fyrir þá sem hafa augun á hag-
tölum hefur þessi breyting verið
fyrirsjáanleg lengi. Ástæðan fyrir
henni er í fyrsta lagi að samkvæmt
breytingum ESB á fjármögnun
sambandsins 1992
er nú meira mið
tekið en áður af
þjóðartekjum,
þegar aðildar-
gjald landanna er
ákvarðað. Þar
sem Danmörk er
vel stætt land hefur þetta gjald far-
ið hækkandi á umþóttunartímanum,
sem fylgdi í kjölfar breytinganna. I
öðru lagi hafa verið gerðar breyt-
ingar á landbúnaðarstyrkjum ESB,
sem miðast nú síður við verð land-
búnaðarvara en áður og fremur við
tekjur bænda. Þetta hefur einnig
dregið úr fjárstreymi til Danmerk-
ur. Samhliða þessu er almennt verið
að draga úr styrkjum til landbúnað-
ar, meðal annars til undirbúnings
stækkunar ESB, og það hefur eðli-
lega bitnað á landbúnaðarþjóðum
eins og Dönum. í þriðja lagi fer nú
meira af fjárveitingum ESB um
byggðasjóði sambandsins en þeir
styrkja einkum svæði er standa
höllum fæti og þaðan hafa Danir
aldrei fengið mikið.
Vart fer hjá því að þessi nýja
staða Dana muni blandast inn í
ESB-umræðumar fyrir þjóðarat-
kvæðagreiðsluna. Stuðningsmenn
Amsterdam-sáttmálans benda á að
aðild Dana miðist við að hafa áhrif
innan ESB, en ekki að þiggja fé
þaðan. Þó stækkun ESB muni kosta
Dani eitthvað muni þeir líka hafa
mikinn ávinning af henni í formi
aukinnar verslunar við hin nýju að-
ildarlönd.
ESB við-
urkennir
uppgjöf !
EVRÓPUSAMBANDIÐ
(ESB) viðurkenndi í gær að
það væri ófært um að binda
enda á blóðbaðið í Alsír, eftir
misheppnaða tilraun þriggja
ráðherra til að hlutast til um
þróun mála í landinu iyrir
skemmstu. Utanríkisráðherr-
ar ESB hafa samþykkt yfir- .
lýsingu þar sem hvatt er til
frekari viðræðna við alsírsk
yfirvöld, en viðurkennt að j
ESB geti sjálft lítið gert til
þess að stöðva borgarastríð
sem staðið hefur í sex ár og er
talið hafa kostað 60 þúsund
mannslíf.
Sjómanna
saknað
TUTTUGU og þriggja filipp- |
eyskra sjómanna var saknað '
og vitað var að tveir höfðu
orðið hákörlum að bráð eftir
að bát þeirra hvolfdi í illviðri
norður af Filippseyjum á
laugardag, að því er filipp-
eyski herinn greindi frá f gær.
Fjórir komust lífs af. Mikið er
um hákarla á því svæði sem
báturinn fórst og sögðu þeir '
sem sluppu lifandi frá því að j
hákarlar hefðu banað og étið |
tvo félaga þeirra.
Drottningar-
móður batnar
MÓÐIR Elísabetar Breta-
drottningar var á góðum bata-
vegi á sjúkrahúsi í gær eftir |
að skipta varð um mjaðmarlið
í henni á sunnudag, er hún
hafði dottið. Skipt var um I
hinn mjaðmarliðinn í henni
1995. Hún er 97 ára og í til-
kynningu frá Buckinghamhöll
í gær sagði að hún væri þreytt,
en vonaðist til að komast á
fætur á næstu dögum.
14 fórust >
í Búrma i
FJÓRTÁN manns fórust er ^
Fokker F-27-skrúfuþota í eigu
ríkisflugfélagsins Myanma
fórst við bæinn Thandwe,
rúmlega 300 km norðvestur af
höfuðborg Búrma, Rangoon.
45 farþegar og áhöfn voru um
borð og var vélin í flugtaki er
annar hreyfill hennar bilaði og .
hún sveigði á hlaðinn garð við
flugbrautina. I
Koffín tengt
vöggudauða
BARNSHAFANDI konur
sem drekka fjóra bolla eða
meira af kaffi á dag eiga á
hættu að auka líkur á að barn-
ið muni deyja svonefndum )
vöggudauða, að því er nýsjá- )
lenskir vísindamenn greindu .
frá í gær. Umræddur sjúk- "
dómur, sem einnig kallast
skyndidauði ungbarna (SIDS),
er algengasta dánarorsök ung-
barna i þróuðum löndum.
Rannsókn á hegðun foreldra
rúmlega 2.000 ungbama á
Nýja-Sjálandi leiddi í ljós að
bömum mæðra sem dmkku
mikið kaffi, te eða kóladiykki »
var mun hættara við skyndi- )
dauða en öðram. k