Morgunblaðið - 28.01.1998, Side 22

Morgunblaðið - 28.01.1998, Side 22
22 MIÐVIKUDAGUR 28. JANÚAR 1998 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR ^^ÍNVERSKA myndin Keep Cool eftir Zhang Yimou verður hátíðarmynd við JL jL. setningu, en frá Kina verða sýndar 11 myndir. Tíu jap- anskar myndir eru á boðstólum m.a. Hana-Bi eftir Takeshi Kitano, sem kosin var besta myndin á Feneyja- hátíðinni í fyrra. Frá arabíska heiminum kemur meðal annars myndin Destiny, gerð í Egyptalandi, eftir hinn vel þekkta leikstjóra Youssef Chahine. Einar átta myndir koma frá Iran og fá samnefnarann persísk mynstur, þar á meðal er síðari mynd Jafars Pana- his með alþjóðlega titilinn The Mirr- or, þar sem hann bregður fyrir sig metamyndatökum. Einnig kemur fyrsta mynd fyrrverandi samstarfs- manns hans Panahis, Traveller from the. South efth- Parviz Shahbazi. Á alþjóðlegu dagskránni er einnig ný mynd Steven Spielbergs, Amistad, byggð á sögulegu drama frá árinu 1939. Þrælar um borð í skipi fyrir utan Kúbu brjótast úr hlekkjum og taka við skipstjóm, en í stað þess að komast til Afríku eins og fyrirhugað er, ber þá að austur- strönd Ameríku. í þeirri mynd fær sænski leikarinn Stellan Skarsgár að spreyta sig við hlið Anthony Hopkins. Mynd Wim Wenders The end of Violence verður einnig á boðstólum, en það er fyrsta myndin sem hann gerir á amerískum vett- vangi síðan Paris-Texas. Hátíðin mun standa yfir í tíu daga. Alls verða sýndar á fímmta hundrað myndir frá 44 þjóðlöndum eða 166 leikmyndir í fullri lengd, 224 stuttmyndir og 40 heimildarmyndir. Hátíðin er að þessu sinni til- einkuð minningunni um Bo Wider- berg (f.8.6.1930, d. 1.5.1997). Tæki- færi býðst til að sjá lífsstarf hans meðan á hátíðinni stendur, eða ár- angur þess eins og hann birtist á hvíta tjaldinu, allt frá Pojken och Draken frá árinu 1961 til Lust och fagring stor frá 1995. Einnig verður frumsýnd mynd sem Stefan Jarl hefur gert að Widerberg látnum, eins konar kvikmyndaævisaga, meðal annars byggð á samtölum við Kristín Bjarnadóttir segir að í ár sé lögð áhersla á austurlenskar myndir. Kínversk mynd verður hátíðarmynd við setningu. Kínverski kvikmyndaleikstjórinn Zhang Yimou (fyrir miðri mynd) við tökur á Keep Cool. Konan á myndmm er kvikmyndaleikkonan Gong Li. Kvikmyndahátíðin í Gautaborg Austurlenskar myndir í brennidepli Alþjóðlega kvikmyndahátíðin í Gautaborg hefst á föstudaginn. samstarfsfólk ásamt gömlum mynd- brotum jafnvel úr verkum sem aldrei var lokið við. Einn aðalleikari Widerbergs gegnum árin, Tommy Berggren, gegnir lykilhlutverki í þessari forvitnilegu heimildarmynd. Islendingar taka þátt Hvað varðar norrænar myndir fá Norðmenn sérstaka athygli í ár, svo og heimamenn, en að vanda verður efnt til samkeppni um titilinn Besta norræna myndin. Tvær íslenskar myndir eru með í keppninni í ár: Perlur og svín eftir Óskar Jónasson sem nú sækir hátíð- ina heim í annað sinn, og Stikkfrí undir stjóm Ara Kristinssonar. Keppinautar þeirra eru sænsku myndirnar Svenska Hjaltar eftir Daniel Bergman sem er Ingmarsson og Tic Tack eftir Daniel Alfredson; finnska myndin Neiperho, sem vakti athygli á Feneyjahátiðinni í fyrra og er frumraun leikstýrunnar Auli Mantila; danska myndin Nonnebom eftir Ceilia Holbæck Trier sem er ekki Larsdóttir heldur fyrrverandi eiginkona hins þekkta leikstjóra og skapar eigin stíl með mynd sem seg- ir frá lítilli stúlku í nunnuskóla á sjötta áratugnum; norska myndin Budbringeren, um hinn eilífa „lúser“ sem hér er bréfberi og lendir í ástar- trylli, undir stjóm Pál Sletuane. Honum hefur verið líkt við bræðum- ar Kaurismaki og er sagður skapa svolítið „kaurismáktiska" sjötta ára- tugs Óslóarlýsingu, þótt skopið sé á óvéfengjanlegri nótum en í Atós og Mikas ást á því ósagða. Önnur norsk mynd tekur þátt í keppnini, Bemt av frost, eins konar tilvistardrama með heimildarívafí, en stjómandinn er Knut Erik Jensen sem einnig leik- stýrði myndinni Stella Polaris. Keppnin er ætluð nýliðum í kvik- myndagerð, leikstjórum með ektó fleiri en tvær bíómyndir að baki. Tvær ólíkar dómnefndir velja „bestu myndina", og er því um tvenns konar viðurkenningar að ræða, annars vegar Norrænu áhorf- endaverðlaunin og hins vegar Nor- ræn kvikmyndaverðlaun dagblaðs- ins Gautaborgarpóstsins. i i I ! $ \ l I i 1 I í i Tímabær mynd KVIKIVIYNDIH Laugarás- og Stjörnubfó IN & OUT +++ Leikstjóri: Frank Oz. Handrit: Paul Rudnick. Aðalhlutverk: Kevin Kline, Joan Cusack, Matt Dillon, Debbie Reynolds og Wilford Brimby. Spell- ing Films. 1997. ÞAÐ kom mörgum á óvart þeg- ar gamanmyndin In & Out sló í gegn í Bandaríkjunum. Það er nú reyndar ekkert skrýtið því myndin er bráðskemmtileg, en vinsældir hennar sanna að Bandaríkjamenn hafa meiri húmor fyrir sjálfum sér en kannski margir hafa álitið hing- að til, því í myndinni er óspart gert grín að öllu því sem umrædd þjóð er og kannski enn frekar það sem þeir vilja gefa sig út fyrir að vera. Við fylgjumst með ástfangna parinu Emily og Howard (Kline og Cusaek) sem brátt ætla að rugla reytum saman eftir þriggja ára kynlífslausa trúlofun. Þau eru bæði kennarar við menntaskóla smábæj- arins Greenleaf, og einn fym'er- andi nemandi þeirra Cameron Drake (Dillon) er tilnefndur til Óskarsverðlauna svo eftirvænting- in er mikil. Drake kemur síðan til- Pétur Jónsson áfram í borgar- stjórn fyrir Alþýðuflokkinn STUÐNINGSMENN Frambjóðanda okkar krata frækinn fram er fyrsta sæti prýða kann, Pétur Jónsson heitir hann. vonandi brúðgumanum í mitól vandræði með því að lýsa því yfír við afhendinguna að Howard íýrr- verandi enskukennarinn sinn sé hommi. Bandarískar kvikmyndir verða fyrir barðinu á höfundi, sem not- færir sér klisjumar óspart til að vekja hlátur áhorfenda. Púritan- isminn, væmnin og hetjudýrkun Ví- etnam hermannanna eru tetón í karphúsið án nokkurrar miskunn- ar. Myndin endar þó ektó illa og er þá spuming hvort handritshöfund- ur sé farinn að gera grín að sjálfum sér, þótt það gangi vel upp. Kevin Kline hefur löngu sannað sig sem skemmtilegur og hæfileika- ríkur gamanleikari og bregst hann ektó aðdáendum í hlutvertó góðlát- legs snyrtimennis. Matt Dillon fær að leika misheppnaðan töffara, og það ekki í fyrsta stópti, en hér gerir hann grín að töffaraímyndinni og grunnhyggnum Hollywoodstjörn- um, og tekst honum bara vel til. Svei mér ef hún Joan Cusack ber ektó bara af. Hún er yndisleg og sérlega fyndin sem sjálfsóömgg og heft kennslukona sem dýrkar heit- mann sinn. Debbie Reynolds hefur engu gleymt frá því í gamla daga og Wilford karlinn Brimsby er alltaf sannfærandi sem ættfaðirinn. Leikaraval er með eindæmum skemmtilegt, og ektó síst í minni hlutverkunum. Rektor menntaskól- ans og þybbni nemandi Howards sýndu frábæra kómíska takta og gerðu mitóð fyrir myndina. Tom Selleck leikur sjónvarpsstjömu, og hann er kannstó sá eini sem ektó er gert grín að. Sem grínmynd virkar In & Out vel, þótt fyrri helmingur sé ekki jafn skemmtilegur og sá seinni. Fram að miðju er grínið nokkuð einsleitt en myndin fer hratt upp á við þegar á myndina líður og er óborganleg þegar hápunkti er náð. Hildur Loftsdóttir Kall sat [ undir kletti TdNBOKMEIVIVTIR IVótnabækur SÖNGLAGABÓK Jómnn Viðar: 16 sönglög. Isalög, Reykjavík 1997. 57 síður. Verð (Tóna- miðstöðin): 2.200 kr. SUMARIÐ 1996 komu út á veg- um ísalaga Þulu- og kvæðalög í út- setningum Jórunnar Viðar, og nú stuttu fyrir síð- ustu jól gaf for- lagið út 16 fmm- samin sönglög eftir tónskáldið sem að ofan greinir. Undirritaður ætlar sér ektó þá dul að gera upp á milli tónskálda eða einstakra laga þeirra hvað gæði varðar á vettvangi sem þess- um, enda þyrfti þá tíl ærið pláss. En það gefur augaleið, að það er mikið fagnaðarefni þegar loks em saman komin á einum stað helztu sönglög jafnvinsælla og virtra höfunda á við Jómnni og (sem nýlega var getið) Jóns Þórarinssonar í vandaðasta frágangi sem nútíma nótnaprent- tækni gefur kost á, og ektó nema eðlilegt og skynsamlegt af útgáf- unni að hefjast handa við eldri kyn- slóð tónskálda fremur en við yngri. Aðeins verður að vona, að höfundar hafí ekki farið offari í sjálfsgagnrýni eins og hætt virðist við þegar aldur færist yfir (meðal ah’æmdari dæma er Sibelius), en alltjent verður þó að reikna með, að hér fari rjóminn af sönglögum beggja, a.m.k. að mati tónskáldanna sjálfra. Meðal vinsælustu laga Jómnnar má nefna hið óslítandi Kall sat und- ir tóetti, sem í lagferli er litað af k þjóðlagaáhuga höfundar, að ekki sé j' minnzt á Það á að gefa börnum w brauð, sem margir hafa flaskað á að halda að væri íslenzkt þjóðlag. En Jómnn á sér líka impressjóníska, allt að því súrrealíska, hlið, sem finna má ávæning af í lögum eins og Unglingurinn í skóginum (Laxness) eða Vort líf; hinu síðartalda við Ijóð eftir líklega tónsettasta ljóðskáld landsins, Stein Steinarr, og eru þá vísnasöngur og popp ektó undan- !. stólin. Þá má einnig finna fágæti j' eins og Glugginn (Laxness; hvorki W meira né minna en 7 bls. á lengd) og Þjóðvísa (Tómas Guðmundsson) sem að ósekju mættu heyrast oftar. Um frágang útgáfunnar hefur oftar en einu sinni verið fjallað í þessum umsögnum og óþarft að orðlengja frekar að hann er bæði höfundum og neytendum til sóma. Aðeins skal lætt fram einni hug- mynd í lokin, nú þegar samanlagður k sönglagafjöldi útgáfunnar - að með- r töldum Einsöngslögum I-VI - fer að P nálgast þriðja hundraðið: Mætti ektó senn hvað líður fara að hugsa um að gefa út broddmjólkina af ís- lenzkum sönglagasjóði á norrænum vettvangi með skandinavískum textaþýðingum, t.d. í samvinnu við eitt eða £1604 nótnaforlög á Norður- löndum? Ekkert virðist í fljótu bragði auðveldara en að nefna | nokkra tugi laga sem stæðu vel undir því. Ríkarður Ö. Pálsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.