Morgunblaðið - 28.01.1998, Side 27

Morgunblaðið - 28.01.1998, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. JANÚAR 1998 27 innganga. Vindlingastubbar lágu víða og varð að hreinsa þá upp á hverjum morgni. Reykingamenn, sem vart höfðu þrek til gönguferða, fóru út í hálku og slæmu færi, og hlutust af því slys. Varð þá fljótlega ljóst, að til nýrra ráða þurfti að grípa. Stjórnendur töldu sig ekki hafa stoð í lögum til að neita sjúklingum um innlögn, þótt þeir reyktu. Bnn- fremur voru áhöld um það hvort stofnunin gæti úthýst einstökum sjúklingum vegna tiltekins lífsstíls, án þess að sjá þeim fyrir einhverju þaki yfir höfuðið. Pess skal getið að um 2.500 sjúkl- ingar koma í Heilsustofnun NLFÍ á ári hverju og eru dvalardagar um 50 þúsund. Ef ákveðið hefði verið að taka alls ekki við sjúklingum sem reykja, og reiknað með að fjórði hver sjúklingur reyki, þá hefði Heilsu- stofnun orðið að hafna innlagnar- beiðnum fyrir liðlega 600 sjúklinga á ári. Slík ákvörðun hefði vart staðist lagalega, hvað þá siðferðilega. Nú voru góð ráð dýr og enginn kostur góður. Eftir miklar umræður og bollaleggingar varð sú gleðilausa niðurstaða, að reisa lítið hús nokki'a tugi metra frá aðalbyggingu Heilsu- stofnunar. Þangað var gerð upphituð gönguleið til að draga úr slysahættu. I þetta hús geta allir leitað, sem enn lúta valdi hins harða húsbónda, herra Nikótíns. I þessari lausn felst raunsætt mat á núverandi ástandi, lagafyrirmælum og skilningur á þeirri staðreynd, að þrátt fyrir allt er okkur skylt að virða ákvörðunar- rétt hvers og eins til að ráðstafa eig- in lífí. Því er þessi saga sögð, að engar einfaldar lausnir eru til þegar úthýsa skal reykingum úr heilbrigðisstofn- unum og raunar hvarvetna. Það er því veigamikið að herða enn sóknina gegn þessum vágesti, og þá fyrst og fremst með það fyrir augum að koma í veg fyrir að börn og unglingar byrji að reykja. Hann herra Nikótín er nefnilega ótrúlega harður húsbóndi og rænir einstaklingana valdi yfir eigin lífi. Hann er í hópi margra slíkra, en hefur það fram yfir flesta, að hann hefur verið löggiltur og nýt- ur verndar laganna. Höfundur er framkvæmdastjóri Heilsustofmmar NLFÍ. Tvær ályktanir komu til lands- fundarins frá undirbúningshópi um utanríkismál. Þær voru að miklu leyti samhljóða en voru ólíkar hvað snerti m.a. ESB og NATO. í báðum drögunum var að finna þá meiningu að EES-samningurinn hafi haft já- kvæð áhrif á íslenskan vinnumarkað og réttindi íslensks launafólks. Þessi skoðun komst ekki til skila í stjórnmálaályktun flokksins, ekki hvað síst fýrir tilstilli Svavars Gestssonar. A vegum ASI hefur miklum kröftum verið varið í það á síðustu árum að slást við stjórnvöld og atvinnurekendur um að fá ýmsar EES-reglur í gildi. Hjá ASÍ vitum við vel að félagsmálalöggjöfin sem við fáum frá ESB í gegnum EES- samninginn verður fyrst og fremst til fyrir þi-ýsting evrópskrar verka- lýðshreyfingar og evrópskra jafnað- armanna. Atvinnurekendur hér á landi vita þetta líka vel og þeir vita líka að þær vinnumarkaðsreglur sem fylgja EES-samningnum kosta þá mikla peninga og því berjast þeir á móti þeim. íslensk stjórnvöld hafa dregið taum atvinnurekenda í þess- um málum. Alþýðubandalagið kýs í þessum efnum að segja að þessar reglur séu vondar af því að þær séu frá Brussel. Alþýðubandalagið neit- ar að viðurkenna að þessar reglur hafi haft jákvæð áhrif á íslenskan vinnumarkað og skilað íslensku launafólki kjara- og réttarbótum. Þetta kalla ég að neita að viður- kenna staðreyndir. Mér finnst af- staða eins og þessi vera afskaplega vitlaus og^ grafa undan ímynd flokksins. Ég er hins vegar sann- færður um að þessi afstaða breytist með aukinni þekkingu og umræð- um. Sama gildir um gamla og rót- gróna stefnu flokksins í utanríkis- málum. Höíundur er fulltrúi í fram- kvæmdastjórn Alþýðubandalagsins. AÐSENDAR GREINAR Hálendið á að vera sameign þjóðarinnar INNAN fán-a vikna mun Al- þingi setja lög um það hver verður framtíðarskipan stjórnsýslu á mið- hálendi Islands. Hér er um miklu stærra mál að ræða en margir hafa í fljótu bragði gert sér ljóst. Miðhá- lendið tekur yfir 40% landsins. Þar er að finna jökla, fjöll og firnindi sem geyma margar mestu nátt- úruperlur landsins - svæði sem gera Island einstakt land í veröld- inni bæði í okkar augum og þeirra sem landið sækja heim. í dag er málum svo háttað að mikill hluti miðhálendisins er einskis manns land, ef svo má að orði kveða. Hvorki ríkið, sveitarfé- lög né einstaklingar fara þar með eignarrétt eða stjórnsýsluvald. Það hefur verið staðfest í fleiri en einum Hæstaréttardómi þar sem deilt hefur verið um þessi víðlendu land- svæði. Það er því deginum ljósara að tímabært er að löggjafinn ákvarði hver skuli fara með eignarréttinn á miðhálendinu og þá ekki síður hver skuli fara þar með stjómsýsluvaldið. í bráðabirgða- ákvæði sveitarstjórn- arlagafrumvarpsins segir svo um þetta at- ríði: „Gengið skal út frá að staðarmök sveitar- félaga, sem liggja að miðhálendi Islands, verði framlengd inn til landsins. Sama gildir um staðarmörk sveít- arfélaga á jöklum.“ í grein hér í blaðinu fyrir skömmu hélt einn formælandi þess ákvæðis því fram að sveitarfélögin færu í dag með stjórnsýslu á afréttum samkvæmt gildandi lög- um og því væri með frumvarpinu aðeins verið að leggja um 10% há- Þar sem réttarstaða hálendisins er nú orðin að deilumáli með þjóð- aðrir íbúar landsins munu ekki sætta sig við og raunar furða að gerð sé tilraun til slíkra landvinna í þágu svo fá- menns hóps. Þá er það líka út í hött sem segir í sömu grein að 12. grein skipulags- og bygging- arlaga tryggi hagsmuni þeirra sem á þéttbýlis- svæðum, m.a. sunnan- og vestanlands, búa. Þar segir einungis að umhverfisráðherra geti ákveðið að skipa sér- staka nefnd til að gera tillögu að svæðisskipu- lagi þar sem stefnumörkun í land- notkun varðar verulega hagsmuni þeirra sem búa utan viðkomandi svæðis. Augljóst er að slík nefndar- skipan tryggir á engan hátt jafnan rétt allra landsmanna til miðhá- lendisins, en um það snýst málið. Þjóðlendufrumvarpið vísar leiðina Gunnar G. Schram Fá 5% 40% alls landsins? Nú hefur brugðið svo við að í frumvarpi til nýrra sveitarstjórnar- laga, lagt fram af félagsmálaráð- herra, hefur allt í einu verið bætt við ákvæði til bráðabirgða sem færa á 4-5% þjóðarinnar fullt óskorað stjórnsýsluvald yfir há- lendissvæðunum - 40% alls Is- lands! Slík fyrirætlan er með öllu óásættanleg. I henni felst að um 95% landsmanna eru útilokuð frá því að hafa nokkur áhrif á það hvernig háttað verður nýtingu og verndun hálendissvæðanna, en í þeim hópi eru einmitt íbúar þétt- býlissvæðanna sem mest nota þetta land í dag til útivistar og náttúru- skoðunar. inni telur Gunnar G. Scram æskilegt að setja skýrari ákvæði í þjóðlendufrumvarpið. lendisins undir þ_au en ekki 40%. Þetta er rangt. f réttinum til að nýta afréttir felst enginn stjórn- sýsluréttur, heldur er hann ein- göngu takmarkaður við upprekstr- ar- og beitarrétt. Bændur myndu auðvitað halda þeim rétti. Fráleitt er hins vegar það, sem er kjarni til- vitnaðra ummæla, að afhenda um 40 hreppum, þar sem um 16.000 manns búa, óskoruð og full yfirráð yfir hálendinu sem þeir fara ekki með í dag. Það er óréttlæti sem Á síðasta þingi bar forsætisráð- herra fram stjórnarfrumvarp um þjóðlendur. Þar er gert ráð fyrir því að allt land utan eignarlanda, m.a. afréttir og almenningar, skuli teljast þjóðlendur og verða eign ríkisins. Gert er einnig ráð íyrii' því að forsætisráðherra fari með mál- efni þjóðlendnanna, en undii- þær fellur miðhálendið. Hér er gengið út frá því að há- lendissvæðin séu „sameiginleg auð- lind þjóðarinnar“ eins og segir í greinargerð frumvarpsins. Hér er tekin rétt og skynsamleg stefna sem sættir þau ólíku sjónarmið sem uppi eru í málum hálendisins og því brýnt að verði að lögum. í greinar- gerðinni segir svo: „Við val á orðimi þjóðlenda var sérstaklega horft til sérstöðu þess- ara landsvæða og orðinu er ætlað að undirstrika að þarna er um aó ræða landsvæði sem þjóðin fer með sem heild, þó svo að einstakir aðilai kunni vegna sérstakra nytja að hafa öðlast þar réttindi. Hálendis- svæði þessi eru sameiginleg auðlinó þjóðarinnar og frumvarpið gerii ráð fyrir að forsætisráðherra fan meðþessigæðisem vörslumaður." Hér er tekinn af allur vafi um það að hálendissvæðin skuli vera sameiginleg auðlind þjóðarinnar undir forræði forsætisráðherra en ekki fengin fáeinum hreppum til fullkominnar stjórnsýslu. Sú miðlunarleið er einnig farin í frumvarpi forsætisráðherra að lagt er til að forræði á ráðstöfun lands og landsgæða innan þjóðlendna verði skipt milli forsætisráðherra og sveitarfélaganna. Leyfi sveitar- stjórnar þarf til landnýtingar en sé slík nýting til lengri tíma en eins árs þarf jafnframt samþykki for- sætisráðherra. Slíkt fyrirkomulag ætti tvímæla- laust að vera ásættanlegt fyrir þá hreppa sem eiga land að hálendinu, í stað kröfunnar um full yfirráð. Þörf skýrari ákvæða Þar sem réttarstaða hálendisins er nú orðin að deilumáli með þjóð- inni væri æskilegt að setja skýrari ákvæði í þjóðlendufrumvarpið í samræmi við ummælin í greinar- gerð þess að hálendissvæðin séu sameiginleg auðlind þjóðarinnar. Þar þyrfti að bæta við ákvæði um að öll þau hálendissvæði sem í dag liggja utan staðarmarka sveitarfé- laga, eða um 40% landsins, skuli falla undir stjðrnsýsluforræði for- sætisi-áðuneytisins. Er það rökrétt og eðlileg tilhögun þar sem frum- varpið gerir ráð fyrir að allt þetta svæði verði eign hins íslenska ríkis frá og með lögfestingu þess. Slíkt ákvæði myndi tryggja sam- eiginlegt foiTæði þjóðarinnar allrar á hálendissvæðunum og útiloka að fáeinir hreppar færu þar með allt skipulagsvald, byggingarmál og umhverfisvernd sem ella yrði nið- urstaðan. Höfundur er prófessor í unihverfís- rétti við Háskóla íslands. Sátt þarf að nást um fyrir- komulag atvinnuleysisbóta BSRB, BHM, Kenn- arasamband Islands, Samband íslenskra bankamanna og Far- manna- og fiskimanna- samband Islands hafa mótmælt því fyrir- komulagi sem tekið var upp um áramót á út- hlutun atvinnuleysis- bóta í Reykjavík. Innan vébanda þessara sam- taka eru um 30.000 manns og um þriðjung- ur atvinnulausra á höf- uðborgarsvæðinu eru í þessum samtökum. í Morgunblaðinu þriðjudaginn 27. janúar er greint frá mótmælum þessara samtaka undir fyrirsögninni „Nokkur stéttarfélög óánægð". í greininni er ekki rætt við neinn fulltrúa þessara samtaka né vitnað í mótmæli þeirra heldur einvörð- ungu talað við Gissur Pétursson forstjóra Vinnumálaskrifstofu fé- lagsmálaráðuneytisins þar sem hann hleypur í vörn fyrir þá breyt- ingu sem gerð var á úthlutun at- vinnuleysisbóta um áramótin. Ekki veit ég hvernig Morgun- blaðið, blað allra landsmanna, skil- greinir hugtakið „nokkur stéttarfé- lög“. I mínum huga er það engin breiðfylking allra stéttarsamtaka opinberra starfsmanna í landinu auk bankamanna og farmanna og fiskimanna og kom mér því fyrir- sögnin verulega á óvart, því Morg- unblaðið leggur yfirleitt metnað sinn í að greina satt og rétt frá málum af þessum toga og að hafa hugtökin á hreinu. Þá kemur það verulega á óvart að þegar þetta mál kem- ur upp á yfirborðið skuli blaðið ekki sjá ástæðu til þess að ræða við fulltrúa þess- ara samtaka heldur einungis viðra sjónar- mið félagsmálaráðu- neytisins í málinu. Þetta minnir á þá gömlu daga þegar Morgunblaðið og Þjóð- viljinn skiptu íslensku þjóðfélagsumræðunni á milli sín skv. skilgreiningu kalda stríðsins og viðruðu einungis skoðanir sem ákveðnum öflum í samfélaginu voru þóknanlegar. Ég hélt að nú væru breyttir tímar. Þjóðviljinn dauður og Morgunblaðið metnaðarfullt í þeirri viðleitni sinni að fjalla um þjóðfélagsmál á hlutlægan hátt þar sem fréttamatið ræður för. Og ég vil trúa að svo sé enn og að þessi fréttaflutningur hafi verið mistök. Því er nauðsynlegt að skýra sjónarmið þeirra samtaka sem mótmælt hafa því að atvinnu- lausum félagsmönnum þeirra í Reykjavík sé gert að sækja þjón- ustu á skrifstofur tveggja stéttarfé- laga innan ASI, Dagsbrúnar/Fram- sóknar og Verslunarmannafélags Reykjavíkur. Um síðustu áramót var lögum Aðalatriðið er, segir Sigurður Friðþjófsson, að þeir sem eru svo ógæfusamir að vera atvinnulausir fái sem besta þjónustu og aðstoð við að komast aftur út á vinnumark- aðinn. um atvinnuleysistryggingar breytt og var markmið þeirra breytinga m.a. að einfalda kerfið og fækka þeim nefndum sem sáu um að út- hluta bótum til atvinnulauss fólks og þeim stöðum sem sjá um að ann- ast umsýslu og greiðslu atvinnu- leysisbóta. Upphaflega þegai- um þessi mál var fjallað var gert ráð fyrir einni úthlutunarnefnd á hverju svæði og að opinber stofnun annaðist alla af- greiðslu. BSRB hefði fyrir sitt leyti getað sætt sig við slíkt fyrirkomu- lag en vildi hins vegar virða þau sjónamið _sem komu frá félögum innan ASI að halda afgreiðslu hjá stéttarfélögum að hluta og studdu fulltrúar samtakanna tillögur þessa efnis í stjórn Atvinnuleysistrygg- ingasjóðs. Hins vegar teljum við ekki koma til greina að öllum at- vinnulausum félagsmönnum banda- lagsins sé stefnt á skrifstofur Sigurður Á. Friðþjófsson tveggja verkalýðsfélaga og að sú þjónusta sem veitt hefur verið hjá Atvinnuleysistryggingasjóði sé lögð niður. Um þessa niðurstöðu næst aldrei nein sátt og hefur verið þrýst á, m.a. með mótmælum, að þessi ákvörðun verði endurskoðuð og að í stað tveggja úthlutunarstaða verði þeir þrír þannig að félagar í þeim samtökum, sem ekki sætta sig við það fyrirkomulag sem nú er gert ráð fyrir, geti sótt þjónustu á hlut- lausan stað, þ.e. skrifstofu Atvinnu- leysistryggingasjóðs, en ekki á skrifstofur annaiTa stéttarfélaga. Fram að áramótum annaðist At- vinnuleysistryggingasjóður þessa þjónustu við atvinnulausa félags- menn BSRB og er með öllu óásætt- anlegt að þeim skuli nú vísað á dyr þar og gert að leita eftir þjónustu hjá stéttarfélögum sem eru þeim óviðkomandi. Þótt afgreiðslustað- irnir verði þrír í stað tveggja þarí ekki að fjölga úthlutunarnefndun- um. Mjög mikilvægt er að sátt náist í þessu máli, því hér er um viðkvæm- an málaflokk að ræða sem á að vera hafinn yfir dægurþras. Aðalatriðið er að þeir sem eru svo ógæfusamir að vera atvinnulausir fái sem besta þjónustu og aðstoð við að komast aftur út á vinnumarkaðinn. Það er hins vegar ljóst að þau samtök sem mótmælt hafa því fyrirkomulagi sem tekið var upp á höfuðborgar- svæðinu um áramót munu aldrei sætta sig við það, enda þjóni það ekki hagsmunum atvinnulausra fé- lagsmanna þeirra, og því brýnt fyr- ir alla málsaðila að það fyrirkomu- lag sem verður á þessu til frambúð- ar hafi það eina markmið að bæta þjónustu við atvinnulaust fólk Höfundur er upplýsingafulltrúi BSRB.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.