Morgunblaðið - 28.01.1998, Qupperneq 38

Morgunblaðið - 28.01.1998, Qupperneq 38
38 MIÐVIKUDAGUR 28. JANÚAR 1998 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ t Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir og afi, GUNNAR GUNNARSSON húsasmíðameistari, Miðvangi 115, verður jarðsunginn frá Víðistaðakirkju föstu- daginn 30. janúar kl. 13.30. Bergþóra Jónsdóttir, Kristín Gunnarsdóttir, Þórhallur Geir Arngrímsson, Jón Þór Gunnarsson, Erna Gísladóttir, Gunnar Már Gunnarsson, Erla Margrét Gunnarsdóttir, Álfheiður Dögg Gunnarsdóttir, Jónas Ingi Pétursson og barnabörn. t Ástkær sonur okkar og bróðir, BJÖRN INGVAR PÉTURSSON, lést af slysförum þriðjudaginn 20. janúar sl. Jarðarförin fer fram frá Blönduóskirkju laugar- daginn 31. janúar kl. 13.30. Rútuferð frá BSÍ kl. 8.00. Ragna Árný Björnsdóttir, Birgir Ingólfsson, Pétur Gunnar Sigurðsson, Steingerður Hermannsdóttir, Ingibjörg Ása Pétursdóttir, Sigurlaug Erla Pétursdóttir. t Elskulegur bróðir okkar og mágur, SIGURFINNUR KLEMENZSON, Vestri-Skógtjöm, Álftanesi, verður jarösunginn frá Bessastaðakirkju fimmtu- daginn 29. janúar kl. 13.30. Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á líknar- félög. Guðlaug Klemenzdóttir, Sveinn Klemenzson, Sigurður Klemenzson, Sigurrós Grímsdóttir. t Sonur minn, OLGEIR ELÍASSON, sem lést mánudaginn 19. þessa mánaðar, verður jarðsettur frá Víðistaðakirkju í Hafnar- firði fimmtudaginn 29. janúar kl. 13.30. Fyrir mína hönd, unnustu hans, systkina og annarra vandamanna, Aðalheiður Sigtryggsdóttir. t Útför ástkærs bróður okkar, HAUKS GUÐJÓNSSONAR frá Litla-Fljót, fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 29. janúar kl. 15.00. Systkini hins látna. t Faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og langa- langafi, ÞORLÁKUR JÓN JÓNSSON, rafverktaki, Lönguhlíð 3, verður jarðsunginn frá Hallgrímskirkju fimmtu- daginn 29. janúar kl. 15.00. Gunnar Þorláksson, Kolbrún Hauksdóttir, Ríkey Einarsdóttir, Magnús Gunnlaugsson, Gunnar Már Torfason, Margot Holdt Þorláksson, Björgvin Pálsson, Margrét Pálsdóttir, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn. JÓNÍNA HUGBORG KJARTANSDÓTTIR + Jónína Hug- borg Kjartans- dóttir fæddist í Vestmannaeyjum 15. desember 1963. Hún lést hinn 16. janúar síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Selfoss- kirkju 24. janúar. Égvilgefaþér aðeins eitt blóm svo þú sjáir hve fagurt það er. Égvilgefaþér aðeins eitt tár til þess þú fmnir hve tregi minn er djúpur. Égvilgefaþér aðeins einn vin svo að þú vitir hve auðugur þú ert. (Þuriður Guðmundsdóttir) Kæra Jóný. Þakka þér fyrir allt. Kæri Njáll, Kjartan, Skarphéðinn, Sibbi, Jói, Iris og Skarphéðinn. Megi ykkur öllum veitast styrkur á erfið- um stundum. Megi minningarnar um Jónínu veita ykkur birtu og yl um ókomna tíð. Kær kveðja. Anna. Mín kæra frænka er dáin. Ég á erfitt með að trúa því, vil ekki trúa því. Svona getur maður verið eigin- gjarn. Maður vill alltaf hafa þá sem manni þykir vænt um hjá sér lengi. En Jónína var búin að berjast sterku stríði undanfarin ár. Berjast við sjúkdóm sem mæður okkar beggja hafa líka barist við og allar urðu þær að beygja sig að iokum, allar svo alltof snemma, svo ungar. Mitt samband við Jónínu var ekki svo mjög mikið í gegnum árin, alltof lítið. En mikið var ég stolt af að vera frænka hennar. Ailtaf þegar ég hitti hana var eins og við hittumst oft, hún var alltaf svo hlý. Hún gaf svo mikið af sér, alveg fram á síðustu stundu. Henni var alltaf svo umhug- að um alla í kringum sig. Núna um jólin fékk ég senda ákaf- lega fallega gjöf frá henni, þar á meðal voru fallegar myndir af drengjunum hennar. Allt of stutt fengu þeir að hafa mömmu sína hjá sér og það var nú einmitt sárast fyrir Jónínu, það að þurfa að yfirgefa drengina sína og Njál, sem hefur staðið eins og klettur við hlið hennar. Þau voru samhuga og sköpuðu sér og drengjunum fallegt heimili þar sem öllum þótti gott að koma. Jónínu var líka umhugað um bræður sína sem hún og Njáll tóku að sér þegar mamma þeirra féll frá. Ég vil trúa að Jónínu hafi verið þörf annars staðar, að hún leggi leið sína á ný lífssvið. Að hún sé núna frísk með foreldrum sínum og mömmu minni, þar sem þau fylgjast með okkur, styrkja og vernda. Elsku Njáll, Kjartan, Skarphéð- inn, Sigurbjörn, Jói, íris og Skarp- héðinn, missir ykkar er mikill og ég bið þess af öllu hjarta að Guð veiti ykkur huggun og styrk. Megi minn- ingin um Jónínu veita ykkur birtu og yl um alla framtíð. Kæra frænka, ég kveð þig með orðum Hallgríms Péturssonar: Legg ég nú bæði líf og önd, ljúfi Jesú í þína hönd, síðast þegar ég sofna fer sitji guðs englar yfir mér. Þín frænka, Kristín Gunnarsdóttir. Lífssaga Jónínu lét engan ósnort- inn sem til þekkti. Ung að árum stóð hún uppi foður- og móðurlaus og gekk yngri bræðrum sínum, Sigur- bimi og Jóhanni, í móður- og föður- stað ásamt Njáli eiginmanni sínum. Síðar, eða fyrir rétt um fjórum ár- um, greindist hún með það mein sem slökkti á lífskerti henn- ar hinn 16. janúar sl. Þrátt fyrir allar þess- ar byrðar og raun barð- ist Jónína af miklum krafti fyrir lífi sínu og fékk hún þar mikinn styrk frá Njáli, bræðr- um sínum og tengdafor- eldrum. Kynni okkar Jónínu hófust þegar eldri son- ur hennar og Njáls, Kjartan, og Guðmundur Geir, eldra bam okkar Jóns, byrjuðu í skóla. Þeir urðu fljótlega mestu mátar og fann ég fljótt hvað Guðmundur laðaðist að Jónínu enda gaf hún sonum sínum og þeirra vin- um mikinn tíma og lét sig þeirra líð- an og framgöngu alla miklu varða. Þetta átti líka við um dóttur okkar Ingu, en saman voru bömin okkar fjögur mjög samrýnd og áttu oft góðar stundir í sumarbústaðar- og bíóferðum. Það er sárt til þess að hugsa að eiga ekki eftir að hitta Jónínu oftar og eiga við hana spjall. Hún var ein- staklega æðrulaus í veikindum sín- um og hafði til að bera mikinn þroska enda hafði hún reynt ýmis- legt. Við ræddum oft saman um sam- eiginlegt áhugamál okkar beggja, fjölskylduna. Þar komumst við oft á flug. Við vomm svo sammála um að oft á tíðum em börn í dag ótrúlega afskipt og þeim ekki sýnd nægileg umhyggja. Synir Jónínu og Njáls fengu svo sannarlega mikinn kær- leika og ást, þeir vora allt sem skipti Jónínu máli. Þeir vom „lífsankerið“ hennar, sagði hún. Föstudagurinn 16. janúar verður okkur lengi minnisstæður. Allan daginn logaði á kerti til að minna okkur á Jónínu og verndarenglar, sem Inga og Guðmundur höfðu feng- ið frá Kjartani og Skarphéðni í jóla- gjöf, sátu hjá. Um leið og við kveðjum Jónínu og þökkum af miklum kærleika fyrir alla þann hlýhug og ástúð sem hún sýndi börnum okkar frá fyrstu kynn- um viljum við biðja Guð að gefa Njáli, Kjartani, Skarphéðni og öllum hennar ástvinum styrk og huggun á erfiðum tímum. Megi Jónína Hugborg hvíla í friði. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (V. Briem.) Fjölskyldan Lambhaga 5. Eftir langa og harða viðureign hefur baráttukonan Jónína Hugborg Kjartansdóttir orðið að lúta í lægra haldi fyrir illvígum sjúkdómi aðeins 34 ára að aldri. Ég kynntist fjöl- skyldu hennar í gegnum afskipti mín af knattspymumálum á Selfossi þar sem ég sat í stjórn með eiginmanni hennar og formanni knattspyrnu- deildar Njáli Skarphéðinssyni. Hún studdi eiginmann sinn með ráðum og dáð í erilsömu starfi, margar vora heimsóknirnar og símhringingarnar. Ekki fannst henni tiltökumál að taka á móti stjórn eða jafnvel öllu fót- boltaliðinu enda heimili þeirra hið hlýlegasta og gott heim að sækja. Jónína var ein þriggja systkina þar sem hún var elst en tveir bræður yngri. Ung misstu þau systkini fóður sinn og var það því mikið reiðarslag þegar móðir þeirra dó nokkrum áð- um síðar. Stóðu þau því uppi fyrir aldur fram bæði móður- og fóður- laus, og féll það í hlut Jónínu og Njáls að taka að sér umsjón og upp- eldi Sigurbjöms og Jóhanns. Það er ljóst að þessi mikla lífsreynsla mót- aði öðru fremur viðhorf Jónínu til lífsins. Þetta nýja hlutverk hennar auk þess að byggja upp eigin fjöl- skyldu leysti hún með samstilltu átaki eiginmanns og tengdaforeldra, Það var því ekki hægt að finna það á landakorti sanngiminnar að fleira gæti dunið yfir þessa fjölskyldu, en það var öðra nær. Fyrir fjóram ár- um greindist Jónína með þann sjúk- dóm sem hún barðist gegn með að- dáunarverðum krafti allt til hinstu stundar og sýndi aldrei neina upp- gjöf. Þau hjónin og fjölskyldan öll stóðu saman í þessari bai'áttu og vora hefðbundnar lækningaleiðir ekki eingöngu látnar duga, heldur var leitað leiða í gegnum Internet þegar tækifæri gafst og fóru þau hjón til útlanda eftir ábendingum þar um og hittu íyrir lækna og fengu lyf. Þessi vinna hefur fyrir víst skilað Jónínu lengra fram á veginn í bai'átt- unni við krabbameinið. Leiðir sona okkar, Skarphéðins og Viðars, lágu saman, bekkjarbræður era þeir og í fótboltanum saman, það grunaði engan að á árlegu jólamóti milli jóla og nýárs þar sem þeir kepptu yrði síðasta mótið sem Jónína fylgdi syninum til keppni. Er okkur fjölskyldunni minnisstæðar skemmtilegar knattspyrnuferðir á Akranes sl. tvö ár með strákana og krakkana alla, þar sem setið var og spjallað um lífið og tilverana langt fram eftir nóttu. Jónína var fóst fyrir og hafði mót- aðar skoðanir og voru þjóðmál þar ekki undantekning, og átti Sjálf- stæðisflokkurinn þar dyggan tals- mann. Jónína mætti á kjördag í starf auk þess að baka o.fl. og eru henni hér þökkuð störf fyrir Sjálfstæðisfé- lagið Óðinn. Einnig var ég beðinn að koma á framfæri samúðarkveðju frá stjórn knattspyrnudeildar U.M.F. Selfoss. Ég hitti Jónínu síðast rétt fyrir jólin og leit hún bráðvel út eins og ávallt, enda var hún glæsileg kona og alltaf vel til höfð, eftir stutt spjall við hana gekk ég fullur bjartsýni til vinnu minnar því hún hafði þá góðu eiginleika að vera ávallt bjartsýn á lífið og tilveruna og smitaði út frá sér. Ég veit að styrkur hennar verð- ur styrkur ykkar um ókomna tíð. Ég vil fyrir hönd fjölskyldu minn- ar færa ykkur innilegustu samúðar- kveðjur, elsku Njáli, Kjartan og Skarphéðinn, Sigurbjörn, Jóhann, Iris og Skarphéðinn, guð blessi ykk- ur öll. Minning Jónínu lifir. Kjartan Björnsson. Elsku hjartans vinkona okkar. Okkur langar að kveðja þig í hinsta sinn. Þótt þú værir búin að segja okkur hvert stefndi með þenn- an hræðilega sjúkdóm er þetta samt svo erfitt þegar stundin er komin. Þú varst engri lík í þessari baráttu, svo dugleg og reyndir allt sem nokkur von væri að gæti hjálpað, enda fyrir miklu að berjast að eiga tvo yndis- lega syni og eiginmann. í þessi fjög- ur ár sem veikindin stóðu var mikið um vonbrigði, aftur og aftur, en ailtaf sáuð þið vonina, svo jákvæð, sem kenndi okkur hinum að meta líf- ið miklu betur, njóta vel og vera góð hvert við annað. Þegar ég hugsa til baka er svo margt sem kemur upp í huga mér um kynni okkar og vináttu. Elsku Jónína mín, þú varst svo yndisleg manneskja og hafðir einstaklega mikla útgeislun. Og alltaf varstu til- búin að ráðleggja og gefa manni all- an þann styrk er þú áttir, hugsaðir fyrst um aðra og síðan um sjálfa þig. Eitt skipti af mörgum leitaði ég til þín til að fá hughreystingu á erfiðum tímum en það var daginn áður en mamma þín dó. Samt gafstu mér svo mikinn stuðning. Þú varst búin að reyna svo margt í lífinu, búin að missa pabba þinn mjög ung og tókst að þér tvo yngri bræður þína, Sibba, 13 ára, og Jóa, sjö ára, og hefur reynst þeim eins og öðrum, yndis- lega. Árið sem mamma þín dó fórum við fjögur ungmennin til Benidorm sam- an, frábær tími, þar sem við vinkon- urnar ákváðum að opna hár- og snyrtistofuna Mensý, sem var opnuð 29. mars 1986. Þetta var viðburða- ríkur tími og mikið að snúast og við fjögur alveg óaðskiljanleg. Alltaf saman. Seinna á því ári varðst þú ófrísk af eldri syninum, honum Kjartani Hreini, og ákvaðst þú að hægja á í snyrtingunni og vera heima með hann næsta árið. Þegar ég kom í heimsókn þá var alltaf verið að dúlla eitthvað heima, þú varst svo mikil heimilismann- eskja, húsmóðir og frábær mamma, sérlega mikill fargurkeri og smekk-

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.