Morgunblaðið - 28.01.1998, Qupperneq 41

Morgunblaðið - 28.01.1998, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. JANÚAR 1998 41 FRÉTTIR PAUL Jóhannsson, deildarstjóri véladeildar T.I., Gauti Hallsson, Ari Stefánsson, Hlífar S. Rúnarsson, Jón Þór Ólafsson og Jóhannes Benediktsson, formaður TFÍ. 11 tæknifræðingar útskrif- aðir frá Tækniskóla Islands BRAUTSKRÁNING nemenda frá Tækniskóla Islands fór fram laug- ardaginn 17. janúar og var athöfnin að þessu sinni í Árbæjarkirkju. Út- skrifaðir voru sjö byggingartækni- fræðingar og fjórir orkutæknifræð- ingar, sem jafnframt eru fyrstu orkutæknifræðingarnir sem út- skrifast frá vél- og orkutæknifræði- braut Tækniskóla ísalnds. „í ávarpi sem Jóhannes Bene- diktssop, formaður Tæknifræðinga- félags íslands, flutti af þessu tilefni lýsti hann mikilli ánægju með þessa nýju námsbraut við skólann og sagði hana vera í takt við tækniþró- unina í þjóðfélaginu og það frum- kvæði sem Tækniskólinn og Tækni- fræðingafélagið hafa haft í hagnýtu námi. Fram til þessa hafa íslenskir véltæknifræðingar lokið námi sínu í erlendum tækniháskólaum að af- loknu fjrrri hluta námi í Tækniskól- anum. Jóhannes sagði mikla eftir- spurn vera eftir tæknifræðingum á vinnumarkaðinum og að allir þeir sem nú væru að útskrifast sem tæknifræðingar hefðu ráðið sig í vinnu eða væru með atvinnutilboð í vasanum. Þá kom fram í máli Jóhannesar að sífellt fleiri tæknifræðingar starfa við sjávarútveg þar sem at- vinnutækifærin eru mörg og stöðugt meiri kröfur eru gerðar til sérmenntaðra starfsmanna á því sviði. Margir tæknifræðingar starfa við skiparáðgjöf, hönnun véla og lagnakerfa, til dæmis hjá hitaveitum og Landsvirkjun. Auk þess starfa nokkrir sem tækni- stjórar útgerðarfyrirtækja. Lokaverkefni orkutæknifræðing- anna voru á sviði sjávarútvegs: Ari Stefánsson og Jón Þór Olafsson unnu að verkefni sem fjallar um nýtingu glatvai-ma hjá Tanga í Vopnafirði. Gerðar voru tillögur að nýtingu glatvarmans til upphitunar á ski’ifstofu, sláturhúsi og fisk- vinnslu fyrirtækisins. Gauti Halls- son og Hlífar S. Rúnarsson unnu að uppsetningu RSV kælikerfis fyrir sfldar- og loðnuskip ásamt hönnun- arforriti sem reiknar út og viðheld- ur réttu hitastigi kælikerfa skipa meðan skip eru á sjó. Verkefnið var unnið og þróað í samvinnu við Kæl- ismiðjuna Frost. Tæknifræðingafélag íslands veitti þessum fyrstu nemendum í orkutæknifræði sérstaka viður- kenningu og bókargjöf vegna þessa tímamóta. Jóhannes sagði um 1100 íslend- inga hafa lokið prófi í tæknifræði og eru á áttunda hundrað þeirra fé- lagsmenn í Tæknifræðingafélagi ís- lands en félaginu hefur mjög vaxið fiskur um hrygg á síðustu árum,“ segir í fréttatilkynningu frá Tækni- fræðingafélagi íslands. _ Morgunblaðið/Árni Sæberg FRÁ Þórshöll. Á myndinni eru f.v. Ástþór Reynir Guðmundsson og Ingi Þór Jónsson. Á myndina vantar Þóri Björn Ríkharðsson. Þórshöll opnuð í gamla Þórscafé Segja aðgerðir stjórnvalda mótsagna- kenndar MORGUNBLAÐINU hefm’ borist eftirfarandi ályktun: „Æsir, klúbbur ungra Sjálfstæðis- manna af landsbyggðinni með aðset- ur á höfuðborgarsvæðinu, Kjör- dæmasamtök ungra Sjálfstæðis- manna á Austurlandi og Norðurlandi eystra, hvetja ríkisstjóm Davíðs Oddssonar að taka til endurskoðunar nýsamþykkt lög um fjárveitingar til stjórnmálaflokkanna. Teljum við að það sé óásættanlegt að á meðan dreifa þarf á þrjú ár 166 milljóna króna niðurskurði á sjúkra- hús á landsbyggðinni, sökum þess að annað yrði þeim ofviða, að þá geti stjórnmálaflokkar landsins skammt- að sér á hverju ári um 180 millj. kr. Kemur það spánskt fyrir sjónir að sjá manneskju eins og Jóhönnu Sig- urðardóttur sem reglulega stígur fram í sviðsljósið og gagnrýnir pen- ingaóreiðu og sjóðasukk, koma fram í fjölmiðlum og réttlæta það að henn- ar stjórnmálaflokkur, hin sameinaða breiðfylking vinstrimanna, fái sinn skerf af þessum 180 milljónum. Það sannar sig að hver er sjálfum sér næstur. Það er ekki almennings að borga fyrir gamlar útgáfuskuldir af blöðum sem aldrei bái’u sig né forsíðuauglýs- ingai’ flokkanna. Ríkisstjóm sem hvetur fólk til að sníða sér stakk eftir vexti ætti að ganga fram fyrir skjöldu og sýna gott fordæmi, þó sér- staklega Sjálfstæðisflokkurinn, þar sem við teljum það stríða gegn grundvallarhugmyndafræði flokksins að þiggja slíkar fjárveitingar." ÞÓRSHÖLL Veislusalir ehf. hafa hafíð rekstur í Brautar- holti 20 í Reykjavík þar sem Þórscafé var áður til húsa. Gerðar hafa verið endurbæt- ur innandyra án þess þó að raska upprunalegu útliti. Um er að ræða glæsilega veislusali á 3. og 4. hæð hússins og er gengið inn á horni Brautar- holts og Nóatúns. ÞórshöII býð- ur veislusali fyrir 40-350 manns og er öll þjónusta á staðnum. Veislusalirnir eru vel búnir fyrir hvers kyns sam- kvæmi, árshátíðir, brúðkaup, fermingar, kokkteilveislur, af- mæli, fundi og önnur einkasam- kvæmi. Á næstu mánuðum verður tekin í notkun koníaksstofa sem tengist 4. hæð hússins og verð- ur hún innréttuð í anda gamla Þórscafé með myndum og mun- um frá gullaldartíma staðarins. Þeir sem standa að rekstri Þórshallar eru Ingi Þór Jóns- son, Þórir Björn Ríkharðsson og Ástþór Reynir Guðmunds- son. Koma fram á kristileg- um sam- komum LISTAMENN frá Litháen eru staddir hér á landi og munu koma fram á kristilegum samkomum. Gintautas Abarius er þekktur tónlistarmaður sem hefur hlotið fjöldann allan af viðurkenningum. Hann hefur haldið tónleika víðs vegar, svo sem víða í Evrópu, Bandaríkjunum og í mörgum löndum fyrrum Sovétríkjanna. Judita Zdanaviciute starfaði um árabil með Kaunas Musical Thea- ter ballethópnum. 1993 stofnaði hún sinn eigin danshóp sem ferð- ast og kemur fram í kirkjum og samkomuhúsum. Þau munu koma fram á Hótel íslandi miðvikudaginn 28. janúar kl. 20 þar sem ABC líknarfélag heldur upp á 10 ára afmæli sitt. Kvöldið eftir koma þau fram í Fríkirkjunni Veginum, Smiðju- vegi 5, Kópavogi, kl. 20. Síðan heimsækja þau Vestmannaeyjar og Ijúka síðan heimsókninni sunnudagskvöldið 1. febrúar kl. 20 í Fríkirkjunni Veginum. Vilja hætta viðskipta- banni MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi áskonm: „Menningar- og friðarsamtök íslenskra kvenna skora á Alþingi og ríkisstjórn að binda þegar í stað enda á aðild íslands að refsi- aðgerðum í formi viðskiptabanns gegn almenningi í Irak og á Kúbu og að beita sér fyrir því á alþjóða- vettvangi að þessum aðgerðum verði tafarlaust hætt svo þessar þjóðir geti lifað eðlilegu mannlífi, menntað börn sín, hjúkrað sjúk- um og stundað atvinnu." Rangárvallasýsla Opinn fundur um samein- ingarmál FRAMSÓKNARFÉ LAG Rang- æinga boðar til opins fundar um hugsanlega sameiningu sveitarfé- laga í Rangárvallasýslu í Hellu- bíói miðvikudaginn 4. febrúar kl. 20.30. Frummælendur verða Páll Pétursson, félagsmálaráðherra, Óli Már Antonsson, oddviti Rang- árvallahrepps, Sveinbjöm Jóns- son, oddviti Vestur-Eyjafjalla- hrepps, og Guðmundur Svavars- son, hreppsnefndarmaður, Hvols- velli. Fundurinn er öllum opinn. Námskeið fyrir börn og* foreldra þeirra GYÐA Stefánsdóttir sérkennari heldur námskeið dagana 31. janú- ar til 1. febrúar kl. 13-17 á vegum íslenska dyslexíufélagsins. Námskeiðið er fyrir börn í 7. og 8. bekk og foreldra þeirra og fjall- að verður um hvernig foreldrar geta aðstoðað börn með dyslexíu við að ná tökum á náminu. Fjallað verður um stafsetningar-, stærð- fræði- og tungumálanám. Þátttökugjald er 4.000 kr. á barn fyrir skuldlausa félagsmenn en 6.000 kr. fyrir aðra. Foreldrar með bai’ni borga ekki þátttöku- gjald. HALLI rakari í hinum nýju liúsakynnum. Hársnyrting og myndlist hjá Halla rakara HALLBERG Guðmundsson hár- skeri hefur opnað hársnyrti- stofu og gallerí uhdir nafninu Halli rakari, Hár og list, í nýjum húsakynnum við Strandgötu í Hafnarfírði þar sem efnt verður til myndlistarsýninga. „Halli flutti sig aðeins um set undir sama þaki og er nú með rakarastofuna þar sem fimmtán listamenn ráku áður gallerí. Það var Gísli Gunnarsson, bygg- ingafræðingur hjá teiknistof- unni Kvarða, sem hannaði inn- réttingar en BK-innréttingar önnuðust snu'ðina. Á stofunni starfa auk Ilalla sonur hans Arnar, sem er hár- skeranemi, Þórkatla Svein- björnsdóttir hárskeri og Sigrún Eiríksdóttir hárgreiðsludama. Innan tíðar tekur þar einnig til starfa snyrtifræðingurinn Guð- finna Jónsdóttir, eiginkona Halla. Pétur Friðrik myndlistarmað- ur er sá fyrsti til að sýna í gall- erfinu. Hann bjó nær aldarfjórð- ung í Hafnarfirði og hefur oft- lega sýnt í bænuin og þá gjarn- an myndir sem hann hefur mál- að þar, en Hafnarfjörður er í miklu uppáhaldi hjá málaran- um. Síðasta einkasýning Péturs Friðriks var einmitt í Hafnar- borg árið 1991 en árið áður var hann með einkasýningar í Köln og Lúxemborg sem og í New York, þar sem hann sýndi 40 málverk og seldi vel,“ segir í fréttatilkynningu. Sýningin verður opin fram yf- ir þorra. Reykja- ganga í kvöld I miðvikudagskvöldgöngu Hafn- argönguhópsins verður farið frá Hafnarhúsinu austanmegin kl. 20 og gengið upp Grófina og um Ingólfstorg og Víkurgarð með Tjöminni, um Hljómskálagarð- inn og Vatnsmýrina suður í Öskjuhlíð og þaðan niður í Naut- hólsvík. Þar verður tekið upp nesti og kveikt lítið fjörubál. Val um að ganga til baka eða fara með SVR. Á leiðinni verður rifjað upp að fyrr á öldum var gufuhver á strönd Örfiriseyjar út af svo- nefndu Reykjanesi. I dag leikur gufa um öndvegissúlurnar á Ing- ólfstorgi og í Öskjuhlíð hefur verið gerður gufuhver. Segir sagan að á beinni línu á milli þessara staða hafi Ingólfur Am- arson og fjölskylda byggt sér bæ, þann fyrsta til fastrar bú- setu á Islandi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.