Morgunblaðið - 28.01.1998, Síða 44
44 MIÐVIKUDAGUR 28. JANÚAR 1998
MORGUNBLAÐIÐ
KIRKJUSTARF
í DAG
Safnaðarstarf
Áskirkja. Opið hús íyrir foreldra
ungra barna kl. 10-12. Starf fyrir
10-12 ára kl. 17.
Bústaðakirkja. Félagsstarf aldr-
aðra: Opið hús í dag kl. 13.30-17.
Dómkirkjan. Hádegisbænir kl.
12.10. Orgelleikur á undan. Léttur
málsverður á kirkjuloftinu á eftir.
Grensáskirkja. Opið hús fyrir eldri
borgara kl. 14. Biblíulestur og bæna-
stund. Starf fyrir 10-12 ára kl. 17.
Hallgrímskirkja. Opið hús fyrir for-
eldra ungra bama kl. 10-12.
Fræðsla: Herdís Storgaard frá
Slysavamafélagi Islands. Opið hús
fyrir aldraða í dag kl. 12-16. Bílferð
fyrir bá sem óska í síma 510 1034 og
510 1000.
Háteigskirkja. Mömmumorgunn kl.
10. Foreldrar og börn þeirra hjart-
anlega velkomin. Sr. María Agústs-
dóttir. Kvöldbænir og fyrirbænir kl.
18.
Langholtskirkja. Starf fyrir aldr-
aða I dag kl. 13-17.
Laugarneskirkja. Fundur í æsku-
lýðsfélaginu í kvöld. Húsið opnað kl.
19.30.
Neskirkja. Litli kórinn (kór eldri
borgara) æfir kl. 11.30-13. Umsjón
Inga J. Backman. Fótsnyrting kl.
13-16. Bænamessa kl. 18.05. Sr.
Frank M. Halldórsson.
Seltjarnarneskirkja. Kyrrðarstund
kl. 12. Söngur, altarisganga, fyrir-
bænir. Léttur hádegisverður í safn-
aðarheimilinu.
Árbæjarkirkja. Félagsstarf aldr-
aðra, opið hús kl. 13.30-16. Handa-
vinna og spil. Fyrirbænaguðsþjón-
usta kl. 16. Bænarefnum er hægt að
koma til presta safnaðarins.
Breiðholtskirkja. Kyrrðarstund kl.
12.10. Tónlist, altarisganga, fyrir-
bænir. Léttur málsverður í safnað-
arheimilinu á eftir. TTT starf fyrir
10-12 ára í dag k. 17.15. Æskulýðs-
fundur kl. 20.
Digraneskirkja. TTT starf fyrir 10-
12 ára kl. 16.30. Æskulýðsstarf í sam-
starfi við KFUM og K kl. 20 fyrir 13
ára og eldri.
Fella- og Ilólakirkja. Helgistund í
Gerðubergi á fimmtudögum kl. 10.30.
Grafarvogskirkja. KFUK kl. 17.30
fyrir 9-12 ára stúlkur.
Hjallakirkja. Mömmumorgunn kl.
10-12. Starf fyrir 10-12 ára kl. 16.
Kópavogskirkja. Starf með 8-9 ára
bömum kl. 16.30-17.30 í safnaðar-
heimilinu Borgum. Starf á sama
stað með 10-12 (TTT) ára börnum
kl. 17.30-18.30.
Seljakirkja. Fyrirbænir og íhugun
kl. 18. Beðið fyrir sjúkum, allir vel-
komnir. Tekið á móti fyrirbænaefn-
um í kirkjunni og í síma 567 0110.
Léttur kvöldverður að bænastund
lokinni. Fundur Æskulýðsfélagsins
Sela kl. 20.
Ilafnarljaröarkirkja. Kyrrðarstund
kl. 12. Orgelleikur, fyrirbænir og
altarisganga. Léttur hádegisverður
á eftir. Opið hús kl.20-22 æskulýðs-
fél. 13-15 ára.
Víðistaðakirkja. Opið hús fyrir
eldri borgara kl. 14-16.30. Helgi-
stund, spil og kaffi.
Landakirkja, Vestmannaeyjum. Kl.
10 mömmumorgnar hefja göngu
sínu að nýju. Kl. 12.10 kyrrðarstund
í hádegi. Orgelleikur í kirkjunni frá
kl. 12. Kl. 15.30 fermingartímar,
Bamaskólinn. Kl. 16.30 fermingar-
tímar, Hamarsskóli. Kl. 20 KFUM
& K heldur fund í safnaðarheimilinu
þar sem Þorgrímur Þráinsson kem-
ur, les úr nýjustu þók sinni og
spjallar við unglingana. Skyldu-
mæting hjá fermingarbörnum. Allir
aðrir velkomnir.
Kletturinn, kristið samfélag.
Bænastund kl. 20. Allir velkomnir.
Hvítasunnukirkjan Ffladelfía. Kl.
18.30 er fjölskyldusamvera sem
hefst með léttu borðhaldi á vægu
verði. Kl. 19.30 er fræðsla og bæn.
Allir hjartanlega velkomnir.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
Evrópumót í parakeppni
í Þýskalandi
EVRÓPUMÓT í parakeppni
verður haldið í Achen í Þýska-
landi 28. mars-3. apríl. 28.-30.
mars er tvímenningurinn, síðan
tekur sveitakeppnin við.
Tekið er við skráningu á skrifstofu
BSÍ, s. 587 9360. Síðasti skráningar-
dagur er 6. febrúar.
Félag eldri borgara í Reykjavík
Mánudaginn 19. janúar spilaði 21 par Mitchell tvímenning. N/S Sæmundur Bjömsson -
Magnús Halldórsson Oliver Kristófersson - 254
Sigurleifur Guðjónsson Ásta Erlendsdóttir - 247
Jóhanna Gunnlaugsdóttir Jón Magnússon - 224
Júlíus Guðmundsson A/V Láms Hermannsson - 224
Eysteinn Einarsson Bernharð Guðmundsson - 261
Torfi Ásgeirsson Þorsteinn Erlingsson - 252
Sæbjörg Jónsdóttir 236
Meðalskor 216
Fimmtudaginn 22. janúar spiluðu 14 pör tvímenning. Þórólfur Meyvantsson -
Eyjólfur Halldórsson Bernharð Guðmundsson - 195
Torfi Ásgeirsson Ingibjörg Stefánsdóttir - 185
Þorsteinn Davíðsson Þórarinn Ámason - 184
Bergur Þorvaldsson 171
Meðalskor 156
Bridsfélag SÁÁ
Sunnudagskvöldið 25.janúar 1998
var spilaður eins kvölds Mitcell-tví-
menningur. 12 pör spiluðu 5 umferð-
ir, 5 spil á milli para. Meðalskor var
100 og röð efstu para varð eftirfar-
andi:
NS
Óskar Kristinsson -
Kristinn Óskarsson 113
Valdimar Sveinsson -
Loftur Þór Pétursson 108
Þorsteinn Karlsson -
Cecil Haraldsson 102
AV
Páll Þór Bergsson -
Sveinn Sigurgeirsson 110
Skúli ísleifsson -
Sigurður Skúlason 109
Þorsteinn Joensen -
Erlingur Einarsson 105
Haldið verður áfram með eins
kvölds tvímenningskeppnir. Keppt
er um verðlaunagripi sem fást af-
hentir að lokinni spilamennsku.
Næst verður spilað sunnudagskvöld-
ið 1. febrúar hjá Bridsfélagi SÁÁ.
Félagið vill hvetja sem fiesta til að
mæta, spilað er í húsnæði Úlfaldans,
Armúla 40 og hefst spilamennska
klukkan 19.30.
Bridsfélag Kópavogs
FIMMTUDAGINN 22. janúar var
spilað síðara kvöldið í Board A
Match-sveitakeppninni. Sveit Birgis
Arnar vann með 69 impum. Með
Birgi voru Þórður Bjömsson, Þórir
Sigursteinsson, Júlíus Snorrason og
Hrólfur Hjaltason.
Lokastaðan:
Birgir Örn Steingrímsson 69
Armann J. Lárusson 64
Ragnar Jónsson 60
Næsta fimmtudag hefst aðalsveita-
keppni félagsins, skráning er hjá
Hermanni Lárussyni í 5541507
Bridsfélagið Muninn, Sandgerði
Lokið er tveggja kvölda einmenn-
ingi hjá félaginu og urðu úrslit eftir-
farandi:
Valur Símonarson 385
Guðjón Svavar Jensen 373
Karl G. Karlsson 362
Bjöm Dúason 359
Vignir Sigursveinsson 353
Alls spiluðu 24 spilarar í þessu móti.
I kvöld hefst fjögurra kvölda meist-
aratvímenningur þai- sem spilaður
verður Barometer undir stjórn Is-
leifs Gíslasonar reiknimeistara.
Mæting ki. 19.50.
VELVAKAIVDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Draga af lífeyri
SÆMUNDUR hafði
samband við Velvakanda
og vildi hann benda
skattayfirvöldum á að
draga af örorkulífeyri
fyrir greiðslur í fram-
kvæmdasjóð aldraðra í
stað þess að senda sér-
staka rukkun.
„Söngenglar“
KONA hafði samband
við Velvakanda og vildi
hún endilega ná sam-
bandi við konuna sem
var að selja „Söngengl-
ana“ á Garðatorgi fyrir
jólin. Hún er í síma 555
2161.
Þankar skyttunnar
SIGURSTEINN hafði
samband við Velvakanda
og hafði hann áhuga á að
komast að því hver er
höfundur þessa ljóðs:
Að búast með byssu til veiða
betri skemmtun ei kaus.
Dæmalaust gaman að deyða
dýrin svo vamarlaus.
Og síðasta erindið
hljóðar svo:
Áður en byssuna brýt ég,
er best að ég segi þér:
Með síðasta skotinu skýt ég
skepnuna í sjálfum mér.
Hægt er að hafa sam-
band við Sigurstein á
netfanginu: shhir.is
Tapað/fundið
Gullnæla týnist í
Hamraborginni
GULLNÆLA, með
steini sem er útskorið
kvenmannshöfuð, týndist
sl. laugardagskvöld í eða
við Hamraborg 1 í Kópa-
vogi. Skilvís finnandi vin-
samlega hafi samband í
síma 564 1416 eftir kl.
16.
Dýrahald
Kettlingar
fást gefins
KETTLINGAR fást gef-
ins, kassavanir og vel
upp aldir. Uppl. í síma
557 5918 eftir kl. 18.
Saknar einhver
þessarar ungu
fallegu læðu?
HÚN fannst ómerkt við
Engihjalla í Kópavogi í
kuldakastinu um daginn
og var þá tekin þar í
fóstur um stund. Nú
dvelur hún hinsvegar á
heimili í Reykjavík. Hún
er mjög loðin með hvíta
bringu og hvítar loppur.
Annars er feldur hennar
yrjóttur, svartur og
rauðbrúnn. Þeim sem
kunna að sakna læðunn-
ar er bent á að hafa sam-
band í síma 551 3865 eft-
ir kl. 18.
FUGLUNUM gefið á tjörninni í Hafnarfirði.
Með morgunkaffinu
Víkveiji skrifar...
ÝSKÖPUNARSJÓÐUR at-
vinnulífsins hóf starfsemi í síð-
ustu viku með því að opna skrif-
stofur sínar að Suðurlandsbraut 4.
Við það tækifæri buðu forsvars-
menn sjóðsins til morgunverðar á
opnunardaginn, þar sem þeir
kynntu það helsta sem kemur til
með að felast í starfsemi sjóðsins.
Víkverja fannst þetta vera vel til
fundið hjá Nýsköpunarsjóðnum.
Með því að bjóða gestum til sín í
léttan morgunverð kl. 8.30 að
morgni er sjóðurinn ekki að setja
starfsdag annarra úr skorðum. Það
virðist blessunarlega vera að fara
úr tísku, að boðið sé til eftirmið-
dagsmóttöku af hvaða litla tilefni
sem er. í slíkum móttökum hefur
það tíðkast í gengum árin að veita
áfengi. Fyrir allmörgum árum var
iðulega veitt sterkt áfengi í síðdeg-
ismóttökunum. Víkverji telur að
síðdegismóttökumar hafi tekið
stakkaskiptum til hins betra, þegar
horfið var fi-á því að veita sterkt
áfengi í sí og æ og þess í stað boðið
upp á bjór eða léttvín. Hins vegar
telur hann að hátturinn sem Ný-
sköpunarsjóður atvinnulífsins hafði
á frumkynningu á starfsemi sinni,
að bjóða til létts morgunverðar,
eigi eftir að ryðja sér frekar til
ráms hér á landi og draga þannig
enn frekar úr síðdegisteitum.
XXX
PRAH Winfrey, sjónvarps-
stjarnan fræga, sem að sögn
hefur hærri mánaðarlaun en nokk-
ur annar sjónvarpsmaður í Banda-
ríkjunum, er nú komin í stríð við
nautgripabændur í Bandaríkjunum
sem kenna henni og ummælum
hennar í sjónvarpsþætti hennar
um verðfall á nautakjöti og minnk-
andi neyslu Bandaríkjamanna. Það
er er harla ótrúlegt, a.m.k. fyrir
okkur Frónbúa, að trúa því að
samtök nautgripabænda vestra,
hafi eitthvað í höndunum gegn
Oprah og að þeir fái dæmdar ein-
hverjar skaðabætur, en þeir hafa
krafist 850 milljóna íslenskra
króna í skaðabætur.
XXX
ARI svo að bændurnir vinni
málið, og að ummæli Oprah
verði túlkuð sem þau varði við
meiðyrðalöggjöfina í Bandaríkjun-
um, þá er Víkverji þeirrar skoðun-
ar, að tjáningarfrelsi í hinni frjálsu
Ameríku sé í stórkostlegri hættu.
Ummælin sem Oprah lét falla, ein-
hvem tíma á árinu 1996, vörðuðu
umræðuna um kúariðu og hættur
henni samfara. Lýsti sjónvarps-
konan því yfír í útsendingunni að
hún væri hætt að borða hamborg-
ara. Þetta var nóg til þess að næsta
dag féll nautakjöt í verði í Banda-
ríkjunum og núna, a.m.k. hálfu
öðru ári síðar, vilja nautakjöts-
framleiðendur fá skaðabætur
vegna verðfallsins og minnkandi
neyslu nautakjöts í Bandaríkjunum
og skýra hvoru tveggja með um-
mælum Oprah. Mikill er áhrifa-
máttur hennar, ekki satt!