Morgunblaðið - 28.01.1998, Page 48

Morgunblaðið - 28.01.1998, Page 48
48 MIÐVIKUDAGUR 28. JANÚAR 1998 MORGUNBLAÐIÐ í för með leikstjórum Alien-myndanna FÓLK í FRÉTTUM Upprisa og endurfæðing Geimskrímslamyndir komust fyrst fyrir alvöru á kortið yfir Hollywood með Alien-þríleiknum og nú er fjórða geimskrímslið komið til sögunnar. Móð- irin er skrímslabaninn Ribley. Guð- mundur Asgeirsson fór í ferðalag með leikstjórum Alien-myndanna. FÖSTUDAGINN 23. janúar var frumsýnd fjórða myndin í ,Alien“-seríunni og eru lið- in tæp átján ár síðan filma upphafsmyndarinnar litaði hvíta tjaldið í fyrsta sinn. í sögunni hafa liðið hátt á fjórða hundrað ára síðan lítið geimskrímslaafkvæmi braut sér leið út um kvið Kanes (John Hurt) eftir stutta meðgöngu og sporaði sóðalega út blöð kvikmyndasögunn- ar. Enn situr Ripley (Sigourney Weaver) uppi með það hvimleiða starf, að kljást við þrautseigan ógn- vald frá stjörnukerfi í órafjarlægð, að vonum orðin langþrejrtt á öllu saman. Alien Önnur kvikmynd breska leikstjór- ans Ridley Scott, ,AIien“, hlaut gríð- arlega athygli, misjafna dóma og fá- dæma aðsókn þegar hún var frum- sýnd í árið 1979. Hún skaut leikstjór- 'anum og aðalleikkonunni Sigourney Weaver upp á stjörnuhimin Hollywood og er ein af vinsælustu myndum sögunnar. Söguþráðurinn er hægur, hrollvekjandi og stórfeng- legur og fjallar um baráttu áhafnar á geimflutningaskipi við óþekkta líf- veru sem laumaði sér inn í skipið. Að lokum var enginn eftir á lífí nema kvenhetjan og skipskötturinn sem svifu saman á geimbjörgunarbát út í tómið. Myndin hlaut tvær tilnefning- ar til verðlauna bandarísku kvik- myndaakademíunnar og einn Óskar. Scott sendi síðast frá sér herþjálf- unarmyndina „G.I. Jane“ sem var ein af jólamyndum Laugarás- og Stjörnubíós síðasta ár. Hann hefur þótt snjall en mistækur á ferli sínum, en auk „Ahen“ liggja eftir hann meistarastykki á borð við „Blade Runner“ og „Thelma and Louise“. Þótt Scott hafi ekki skrifað handrit „Alien“ má segja að hann hafí skap- að aðalpersónuna, því hann ákvað einhverra hluta vegna að breyta kyni Ripleys sem átti að vera ósköp venjuleg karlhetja. Með þessu uppá- tæki réðist hann á fastmótaða hefð í stórmyndum Hollywood sem sagði, og segir reyndar enn, þó vonandi með hásum rómi, að hetjur séu karl- kyns. Scott hélt áfram að umturna kyn- bundnum kvikmyndahefðum í „Thelma and Louise" þar sem Susan Sharandon og Geena Davis yfírtóku ‘ gamalkunn karlhlutverk útlaga- og vegamynda. Myndin var af mörgum talin markvisst framlag til kvenna- baráttu, þótt hún hlyti misjafnar móttökur, jafnvel meðal femínískra gagmýnenda og fræðimanna. I „G.I. Jane“ endurtekur Scott leikinn enn á ný með því að láta glæsikvendið Demi Moore leika hefðbundinn harð- jaxl. Aliens Sjö ár liðu þar til framhaldsmynd- in kom út. Enn var við stjórnvölinn lítt þekktur leikstjóri sem átti efth' að klifra hátt og skín nú öðrum Hollywoodstjörnum skærar. James Cameron átti að baki þrjár misgóðar myndir þegar hann tók við skrímsl- inu og lét það fjölga sér á kostnað landnema í geimstöð á afskekktri plánetu. Ripley, send sem ráðgjafi harðjaxlahóps sem átti að eyða óvættinni, reyndist að vanda harð- Ripley tekur ástfóstri við Newt sem leikin er af Carrie Henn. asti jaxl hópsins og útrýmdi tegund- inni, að því hún hélt, í einni mestu hasarmynd sem gerð hafði verið. ,Aliens“ hlaut nær einróma iof gagnrýnenda sem áhorfenda. Hún var tilnefnd til sjö Óskai’sverðlauna og hlaut tvenn. Þetta galopnaði fyrir Cameron öll gullnu hlið konungsrík- isins Hollywood, og afrekaði hann í kjölfarið að eyða stærstu upphæð sem sögur fara af í kvikmyndaheim- inum með því að sökkva Titanic í annað sinn, sællar og nýlegrar minn- ingar. I gegnum tíðina hefur Cameron malað gull með eðalhasarmyndum eins og „Terminator 2“ og „True Lies“. Líkt og Scott er Cameron hrifínn af kvenhetjum sem hann hef- ur haft í öllum sínum myndum eftir ,Aliens“. Linda Hamilton, barns- móðir og unnusta Camerons, fór með aðalhlutverk í báðum „Term- inator“-myndunum. Mismunur hlut- verka hennar milli myndanna lýsir vel þróun kvenhetjunnar síðustu áratugi. Árið 1984 var Sarah Connor veikluleg og uppburðariítil stúlku- kind sem, án aðstoðai’ karlhetju, átti sér ekki viðreisnar von gegn slátrara framtíðarinnar. Sjö árum síðar birt- ist hún á ný, gallharður harðjaxl, til- búin að mæta hverju sem er, nema e.t.v. fljótandi málmmenninu sem sent var til höfuðs henni. Á sama EKKI er geimskrímslið í frýnilegt. RIPLEY er ein af eftirminnilegri kvenhetjum hvíta tjaldsins. tíma breytti Arnold Schwarzenegger vítisvél fyrri myndai’innar í ljúflynda föðurmynd, holdgert mjúkmenni tí- unda áratugarins. Cameron vinnur nú að nýrri mynd sem gríðarleg leynd hvílir yfn-. Hún hefur hlotið titilinn „Avatar“ og sag- an segir að Cameron bíði þess að brellutæknin þróist til að geta fram- kaiiað þessa nýjustu hugsýn sína. Alien 3 Þrátt fyrir að ,Alien 3“ þætti lakasta mynd seríunnar reyndist hún leikstjóranum, eins og fyrh’- rennurum hans, stökkpallur til frama í draumasmiðjunni. David Fincher, lærisveinn brellukóngsins George Lucas, stýrði útgáfunni frá árinu 1992. Enn þarf Ripley að taka á honum stóra sínum til að losa mannkynið við óvættirnar. Ripley vaknar eftir harkalega lendingu í fanganýlendu á kunnuglega af- skekktri plánetu. Ferðafélagar hennar, sem Cameron sleppti náðar- samlega lifandi úr ,Aliens“, eru allir að mestu leyti dauðir, þar á meðal Newt litla sem Ripley lagði allt í söl- urnar fyrir í síðustu mynd. Þessi svarta kímni má segja að sé einkenni leikstjórans og höfundar- verks hans. Fincher var m.a. þekkt- ur fyrir að leggja baráttunni gegn tóbaksreykingum lið með auglýsingu maðurinn að baki „The Game“, þai’ sem svört kímni leikstjórans naut sín vel í annars miðlungs mynd. Fincher vinnur nú að myndinni „A Rendezvous with Rama“ sem lítið er vitað um nema að Morgan Freeman leikur í henni, eins og í „Seven“. Alien: Resurrection Alln- þeir leikstjórar sem hingað til hafa ráðist í gerð „Alien“-myndar eiga það sameiginlegt að leggja al- mennt mikið upp úr sjónrænum þáttum, bæði hvað varðar tækni- brellur og sviðsmyndir. Leikstjóri fjórðu myndarinnar er engin undan- tekning hvað þetta varðar, en að öðru leyti á hann fátt sameiginlegt með fyrirrennurunum. Frakkinn Jean Pierre Jeunet er þekktastur fyrir afurðir samstarfs síns við Marc Caro, „Delicatessen“ og „La cité des enfants perdu“. Myndirnar eru báðar ákaflega evr- ópskar og stílfærðar fantasíur. Þær eru rammaðar af með furðulegum sviðsmyndum, segja frá undarlegu fólki og enn undarlegri örlögum þess og virðast eiga lítið sameiginlegt með bandarískum formúlumyndum. Hinsvegar er löng hefð fyrir inn- flutningi evi’ópskra furðufugla til Hollywood. Það er auðvitað ekkert ,Alien“ án Ripley og, vegna dálætis Finchers á vetna í útliti myndarinnar, kímni og persónusköpun. Hann notar tvo af leikurum síðustu myndar sinnar og eru sögupersónurnar blanda af „Star Wai-s“-hetjum og „Delicatessen“- furðufuglum. Það gæti verið erfitt að njóta ,AUen: Resurrection" án þess að þekkja fyrri myndir leikstjórans, sérstaklega fyi’ir fastheldna ,AUen“- aðdáendur sem eru ekki vanir að hlæja mikið þegar þeh’ horfa á eftir- lætis myndirnar sínar. Viðtökm- myndarinnar meðal gagnrýnenda í Bandaríkjunum sýndu greinilega að þeh’ kunnu ekld að meta þessa frönsku viðbót seríunnar. Þeir sem kunna að meta fantasíur, furðulegt út- lit og sérviskulegar frásagnir, sem kannski standast ekki ýtrustu raun- sæiskröfur, verða þó örugglega ekki sviknir af þessari nýjustu viðbót við hina óvenju fjölþættu ,Alien“-trílógíu. Ef Jeunet skýst upp á stjörnuhimin Hollywood, eins og leikstjórar hinna ,Alien“-myndanna, verður það í heimasmíðaðri blikk-eldflaug knúinni reiðhjólabúnaði sem hann situr sjálf- ur við, sveittur í síðum skítugum frakka með undarlegan höfuðbúnað. Þar mun hann svo sitja á hárri fest> ingunni við hlið snillinga eins og Terry Gilliam, sem ef til vill er eini kvikmyndaleikstjórinn á lífi sem hægt er að líkja við franska meistar- UPPHAFLEGA átti karlmaður að fara með hlutverk Ripleys. Ryder S1 þar sem fóstur í móðurkviði lá og reykti sígarettu í mestu andstyggð- ai-makindum. í þetta sinn neyðist Ripley til að fórna lífi sínu í barátt- unni fyi’ir óverðugt mannkynið þar sem hún hefur fengið í sig skrímslis- fóstur. Myndin virðist hafa verið leik- stjóra sínum góður skóli því næsta mynd hans, sem kom út þremur ár- um síðar, var afburðagóð. „Seven" er ein magnþrungnasta kvikmynd sög- unnar. Kolsvört og köld borgarsýn boðai’ óhjákvæmilega hai’mrænan endi óvæginnar frásagnarinnar. Fincher teymir stjarfa áhorfendur til nýstárlegra, ógnvekjandi og and- Hollywoodlegra endaloka eins og lömb til slátrunar. Eins og báðir fyrirrennarar hans í ,AUen“-gerð átti Fincher mynd í reykvísku bíóunum í vetui’. Hann var í Besurrection" harmrænum endalokum, þurfti Jeu- net að vekja hetjuna upp frá dauðum þegar hann tók við sögunni. Hann fer hliðstæða leið og Spielberg þegar hann lífgaði útdauðar verur í fram- haldi Júragarðsins. Blóð úr Ripley heitinni, frá því hún ,gekk með“ í ,Alien 3“, varðveittist á fanganý- lendunni og er notað til að útbúa nýja hetju og skrímsli. Það eru ef til vill merki þess að ár- in líða og Weaver eldist að bætt er við nýrri, yngri kvenhetju sem laðar markhóp myndarinnar frekar í bíóin en hin fjögurhundruð ára gamla Ripley. Engu að síður ber Weaver af Winonu Ryder í þessari mynd. Ripley er gjörbreytt, enda aðeins óskýrt ljósrit af sjálfri sér. Klónið nr. 8, eins og vísindamennirnir, skapar- ar hennar, kalla hana, ber ýmis ein- kenni síns forna fjanda og það geisl- ar af Weaver í hlutverkinu. Handbragð Jeunets sést hvar-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.