Morgunblaðið - 15.02.1998, Blaðsíða 4
MORGUNBLAÐIÐ
4 SUNNUDAGUR 15. FEBRÚAR 1998
VIKAN 8/2 -14/2
►ÍSLENSK erfðagreining
og Tölvunefnd hafa náð
samkomulagi um vinnuferli
við crfðarannsóknir í því
skyni að tryggja nafnleynd
þátttakenda í rannsóknum á
vegum fyrirtækisins.
►LANDSSÍMINN hefur
ákveðið að lækka mfnútu-
gjald í dagtaxta GSM og
NMT farsíma um þijár krón-
ur á mínútu.
►SVO virðist sem slitnað
hafi upp úr viðræðum A-
flokkanna um sameiginlegt
framboð við bæjarstjómar-
kosningamar í Hafnarfirði.
►VEIÐILEYFAGJALD
kynni að reynast hagkvæm-
ari skattlagning en þær að-
ferðir sem ríkissjóður notar
nú til tekjuöflunar, að mati
Jeffrey D. Sachs, víðfrægs
hagfræðiprófessors við Har-
vard-háskóla.
►FRAMARAR hafa kært til
dómstóls HSÍ framkvæmd
bikarúrslitaleiksins þar sem
Valur sigraði Fram eftir
framlengdan ieik.
►SÝSLUMANNINUMÍ
Keflavík hefur verið heimilað
af sjávarútvegsráðuneytinu
að gera út bát til dragnóta-
veiða íyrir innan Garðskaga á
svæði sem lokað er fyrir drag-
nótaveiðum. Tilgangurinn er
að leita að smyglvamingi sem
grunur leikur á að kastað hafi
verið frá borði sldps sem var
að koma frá útlöndum.
Halldór Kiljan
Laxness látinn
HALLDÓR Kiljan Laxness lést að
kvöldi sunnudagsins 8. febrúar, 95 ára
að aldri. Opinber útför þjóðskáldsins
var gerð frá Kristskirkju í Landakoti
laugardaginn 14. febrúar. Að lokinni
bálför verður duft Halldórs jarðsett í
kyrrþey á Mosfelli í Mosfellsdal.
Forseti íslands minntist Nó-
belskáldsins með opinberu ávarpi og
færði ekkjunni, Auði Sveinsdóttur
Laxness og fjölskyldu Halldórs, sam-
úðarkveðjur íslensku þjóðarinnai-.
Forsætisráðherra minntist Halldórs
einnig við upphaf þingfundar á Alþingi
og er það í fyrsta skipti sem annarra
en þingmanna og æðstu stjórnenda
ríkisins er minnst við slíkt tækifæri.
Þjóðin hefur syrgt fráfall Halldórs
Kiljans Laxness og opinberar minn-
ingarstundir voru haldnar víða um
land þar sem listamenn lásu úr verk-
um hans og fluttu tónlist við ljóð hans.
Halldórs Kiljans Laxness hefur
einnig verið minnst víða erlendis þar
sem fjölmiðlar hafa fjallað ítarlega um
ævi hans og ævistarf.
Þá hafa fjölskyldu skáldsins og ís-
lensku þjóðinni borist samúðarkveðjur
víða að, frá þjóðarleiðtogum og sendi-
mönnum erlendra ríkja.
Yerkfalli frestað
VERKFALLINU, sem hófst á fiski-
skipaflotanum 2. febrúar, var frestað á
miðvikudag, og héldu loðnuskip til
veiða aðfaranótt fimmtudags. Á Alþingi
lagði ríkisstjórnin fram á mánudag
frumvarp til laga um stöðvun verkfalls-
aðgerða. Það var dregið til baka þegar
verkfalli var frestað að frumkvæði sjó-
manna.
frakar varaðir við
„blóðsúthellingum“
HOSNI Mubarak, forseti Egyptalands,
varaði íraka við því á miðvikudag að
þeir stæðu frammi fyrir „blóðsúthell-
ingum“ virtu þeir ekki ályktanir örygg-
isráðs Sameinuðu þjóðanna um vopna-
eftirlitið í írak. Anthony Zinni, yfirmað-
ur bandarísku hersveitanna í Miðaust-
urlöndum, sagði á miðvikudag að þær
yrðu tilbúnar að gera árásir á írak inn-
an viku ef þörf krefur.
Sex Persaflóaríki sögðust vonast til
þess að hægt yrði að leysa deiluna með
friðsamiegum hætti en sögðu að írakar
gætu sjálfum sér um kennt ef hervaldi
verður beitt. Stjóm Rússlands ítrekaði
andstöðu sína við árásir á Irak og sagði
að þær gætu haft alvarleg áhrif á sam-
skipti Bandaríkjanna og Rússlands.
BUl Clinton Bandaríkjaforseti ítrek-
aði að hann myndi ekki hika við að beita
hervaldi. Robin Cook, utanríkisráð-
herra Bretlands, sagði á fóstudag að
það væri góðs viti að Saddam Hussein
Iraksforseti væri farinn að tala um leið-
ir tU að heimila leit í svokölluðum „for-
setahöllum" í írak, þar sem eftirlits-
nefnd Sameinuðu þjóðanna telur að
gereyðingarvopn séu falin.
IRA grunað um morð
á Norður-írlandi
BRESKIR
embættismenn
sögðu á föstu-
dag að lögreglan
á Norður-ír-
landi teldi að
Irski lýðveldis-
herinn (IRA)
væri viðriðinn
tvö morð sem
framin voru þar
á mánudag og
þriðjudag. Morðin gætu orðið til þess
að Sinn Fein, stjómmálaflokki IRA,
yrði meinað að taka þátt í viðræðum
um varanlegan frið á Norður-írlandi.
Mo Mowlam, N-írlandsmálaráðherra
Bretlands, sagði að bresk og írsk
stjórnvöld þyrftu að ræða það við
norður-írsku flokkanna hvernig
bregðast ætti við niðurstöðu lögregl-
unnar. Talið er að ekki verði hægt að
semja um varanlegan frið á Norður-
írlandi án þátttöku Sinn Fein.
► HUNGURSNEYÐ vofir yf-
ir í norðurhluta Afganistans
vegna jarðskjálfta. Fyrsta
þyrlan með hjálpargögn kom
til bæjarins Rustaqs á mið-
vikudag, viku eftir að fyrsti
skjálftinn reið yfir. Á mánu-
dag kom fyrsta bílalestin til
bæjarins með um 20 tonn af
matvælum og lyfjum. Talið
er að um 4.200 manns hafi
týnt lífi í skjálftunum.
► TALIÐ er að 60 manns
hafi beðið bana í aurskriðum
sem fóllu á afskekktar gull-
námubúðir í Bólivíu á mið-
vikudag. 21 lík hafði fúndist
á fóstudag.
► EDUARD Shevardnadze,
forseta Georgíu, var sýnt
banatilræði í annað sinn á
mánudagskvöld. Tveir líf-
varða hans biðu bana í árás á
bílalest forsetans og einn til-
ræðismannanna féll. Á hon-
um fannst vegabréf sem
sýndi að hann var Tsjetsjeni
og búsettur í Dagestan.
Shevardnadze sagði að „al-
þjóðleg hryðjuverkasamtök"
kynnu að hafa staðið fyrir
tilræðinu.
►FRANSKA þingið sam-
þykkti á þriðjudag tímamóta-
löggjöf um að stytta vinnu-
vikuna í 35 stundir úr 39 í
því augnamiði að draga úr
atvinnuleysi.
► STJÓRNVÖLD á Kúbu til-
kynntu á fimmtudag að
meira en 200 föngum yrði
gefið frelsi, þeirra á meðal
nokkrum pólitiskum föngum,
í framhaldi af heimsókn Jó-
hannesar Páls páfa til lands-
ins.
► HUNDRUÐ manna efndu
til óeirða í bænum Jatiwangi
i Indónesíu á fimmtudag til
að mótmæla verðhækkun á
matvælum. Suharto forseti
fór þess á leit við herinn að
bæla óeirðirnar niður og tal-
aði um samsæri ákveðinna
hópa um að grafa undan
stjómvöldum.
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Jónas
Vetur í
VETURINN hófst ekki fyrr en
um miðjan þorra í Mýrdal og er
daiurinn nú hulinn siyó. Torfhús-
HORFUR eru á góðu lax-
veiðisumri og ýmsar forsendur
fyrir því að vertíðin verði gjöfulli
en síðasta sumar að sögn dr. Sig-
urðar Guðjónssonar, fram-
kvæmdastjóra Veiðimálastofnun-
ar. Fiskifræðingar reikna ekki
með miklum stórlaxagöngum, það
er að segja laxi sem hefur verið tvö
ár í sjó, og gæti það dregið úr afla-
brögðum. Árgangurinn reyndist
ekki eins sterkur og vonast hafði
verið til eftir síðasta sumar.
„Ástandið var einfaldlega gott,
góður fjöldi seiða af góðri stærð
fór út á góðum tíma og ástand
sjávar var á sama tíma gott. Sam-
kvæmt því ættu horfur að vera
nokkuð góðar og viljum við leyfa
okkur að vera fremur bjartsýnir,“
sagði Sigurður. Á þessum svoköll-
uðu spádómum eru þó alltaf fyrir-
varar. Þannig vorum við frekar
brattir íyrir síðasta sumar enda
hafði mikið af seiðum farið til sjáv-
ar vorið og sumarið 1996. Hinn
mikli fjöldi var m.a. tilkominn af
því að bæði fóru til sjávar réttir ár-
gangar og einnig talsvert af eldri
seiðum sem höfðu þroskast hægar
vegna kuldaársins 1995. En eins
og veiðimenn vita vantaði nokkuð
upp á að smálaxinn úr 1996 göng-
Mýrdal
ið á myndinni er á Norður-Götum
í Mýrdal. Húsið er gamalt hlóða-
eldhús, sennilega frá aldamótum.
unni skilaði sér sem skyldi í fyrra
og lítið var af stærri laxi eins og
við höfðum raunar spáð,“ sagði
Sigurður.
Sjórinn númer
eitt, tvö og þrjú
Sigurður bætti við þetta að sjór-
inn skipti sköpum í þessum efnum.
Hann væri „númer eitt, tvö og
þrjú,“ eins og Sigurður komst að
orði. „Besti mælipunktur okkar er
hitinn í sjónum við Siglunes á vor-
in, sérstaklega þar fyrir austan.
Ástandið þar var gott í fyrra og
hefur verið síðan. Erfiðara er að
ráða í Vesturlandið en sveiflan þar
er hvort eð er mun minni þar,“
bætti Sigurður við.
Varðandi tveggja ára laxinn
endurtók Sigurður að trúlega yrði
sá aldurshópur ekki sérlega stór,
sérstaklega norðan- og norðaust-
anlands, en á móti kæmi að von
væri til þess að meðalþyngdin yrði
meiri en oft áður. „Þótt minna hafi
gengið af smálaxi í fyrra en við
væntum var fiskurinn afar vænn.
Þetta er sami árgangur og kemur
tveggja ára úr sjó næsta sumar og
því gæti meðalvigt stærri laxins
verið í mesta lagi,“ sagði Sigurður
að lokum.
Þingmenn
Alþýðubandalags
Tillaga um
auðlinda-
gjald
ALLIR þingmenn Alþýðu-
bandalags og óháðra standa að
tillögu til þingsályktunar um
skipan níu manna nefndar um
auðlindagjald sem lögð var
fram á Alþingi á fostudag. Til-
lagan er í samræmi við niður-
stöðu miðstjórnar Alþýðu-
bandalagsins hinn 6. febrúar sl.
og er fyrsti flutningsmaður
hennar Margrét Frímanns-
dóttir, formaður flokksins.
Meginefni tillögunnar er
m.a. að Alþingi álykti að kjósa
níu manna nefnd sem hafi það
hlutverk að fjalla um auðlindir
sem eru eða kunna að verða
þjóðareign. Nefndin skilgreini
þessar auðlindir á skýran hátt
og hvemig skuh með þær farið.
Nefndin kanni einnig hvernig
staðið skuli að gjaldtöku fyrir
afnot af auðlindum í sameign
þjóðarinnar, með hliðsjón af
þeim gjöldum sem fyrir eru.
Um verði að ræða hóflegt gjáld
sem varið verði til að standa
■undir rannsóknum og til að
stuðla að vemd og sjálfbærri
nýtingu auðlindanna og rétt-
látri skiptingu afrakstursins
m.a. til að styrkja byggð í land-
inu.
Forráðamenn Atlanta
Óttast ekki
truflanir á flug-
rekstrinum
Laxveiði-
vertíðin 1998
lofar góðu
^ M
NU KOSTAR
AÐEINS
28.50Á MÍisr.
AD HRING7A TIL
BRETLANDS
EFTIR KL.19
ÁKVÖLDIN
LANDS SIMINN
FORRÁÐAMENN flugfélagsins
Atlanta telja ekki ástæðu til að ótt-
ast truflanir á starfsemi félagsins í
Saudi-Arabíu vegna hugsanlegra
stríðsátaka í írak. Telja þeir ekki
heldur að hugsanlegur flutningur
vegna undirbúnings loftárása, sem
fari um Keflavíkurflugvöll, myndi
tmfla starfsemi félagsins.
Guðmundur Hafsteinsson, skrif-
stofustjóri Atlanta, tjáði Morgun-
blaðinu í gær að starfsmenn Atlanta
fylgdust vel með þróuninni við
Persaflóa og segir fulltrúa Saudia
Airlines munu upplýsa þá ef einhver
slík hætta yrði á ferðum að hún
gæti ógnað starfseminni. Hann
sagði flugið vera á vegum Saudia og
taldi ólíklegt að umferð um Kefla-
víkurflugvöll gæti truflað flug Atl-
anta þar suður frá. Kvaðst hann að
öðra leyti ekki vilja fara út í slíkar
vangaveltur.
Hann sagði flug Atlanta vera
langt frá hugsanlegum átakasvæð-
um og hvergi væri farið um lofthelgi
Iraka. Gefnar væru út viðvaranir í
flugheiminum um þau svæði sem
hætta væri talin á stríðsátökum og
sagði Atlanta sem aðra flugrekend-
ur virða slíkar viðvaranir.