Morgunblaðið - 15.02.1998, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 15.02.1998, Blaðsíða 12
12 SUNNUDAGUR 15. FEBRÚAR 1998 MORGUNBLAÐIÐ Hækkun sjálf- ræðisaldurs Sjálfræðisaldurinn hækkaði úr 16 í 18 ár frá áramótum um leið og ný lög tóku gildi. Munu þau hafa áhrif á önnur lög, sem snerta börn og unglinga, eða er það kannski réttur ósjálfráða barna að aka bíl? Hildur Friðriksdóttir spurði Þórhildi Lín- dal, umboðsmann barna, þessarar spurn- ingar og annarra viðvíkjandi rétti barna. hvað sM SAMKVÆMT upplýsingum Morgunblaðsins brjóta önnur gildandi lagaákvæði ekki í bága við nýju lögræðislögin. Hins vegar hafa vaknað spumingar eins og hvort eðlilegt teljist að bama- bætur fýlgi sjálfræðisaldrinum. Hvað um endurgreiðslu tannlæknis- kostnaðar eða skattgreiðslur? Eiga ósjálfráða böm að hafa leyfi til að aka bíl? Þykir eðlilegt að stúlka, sem hefur ekki sjálfsforræði, geti sótt um fóstureyðingu án þess að sérstakt samþykki foreldra þurfi til? og þannig mætti lengi spyrja. Fjöldi fyrirspuma Pórhildur Líndal, umboðsmaður barna, segir að töluvert hafi verið hringt til embættisins til að spyrj- ast fyrir um hvort hin ýmsu lög séu óbreytt þrátt fyrir hækkun sjálfræðisaldurs, til dæmis lagaá- kvæðið um greiðslur barnabóta. „Að mínu mati hefði átt að af- greiða ýmis önnur lög samhliða lögunum um sjálfræðisaldurinn vegna samræmingarinnar. Mér finnst skorta á, að menn hafi hugs- að dæmið til enda eins og oft vill verða hér á landi.“ Þegar Þórhildur er spurð út í vangavelturnar í upphafi greinar- innar, segist hún hafa vakið at- hygli á ýmsum þessum þáttum í umsögn sem hún skilaði í tengslum við hækkun sjálfræðisaldursins fyrir um það bil tveimur árum. Hver eru eðlileg réttindi ósjálfráða barns? Hún segir að þrátt fyrir að staða þessa hóps sé að vissu leyti betur tryggð gagnvart foreldrum eftir breytingu, verði því ekki á móti mælt að verið sé að takmarka sjálf- ræði 16-18 ára bama frá því sem áð- ur var. Henni finnst því óeðlilegt að taka allan rétt af ungmennum fram að 18 ára aldri. Hún tekur dæmi um lög sem henni finnst við hæfi að haldi sér í núverandi mynd. „Mér finnst til dæmis að 16 ára böm eigi áfram að geta valið hvort þau ganga Morgunblaðið/Þorkell ÞÓRHILDUR Líndal, umboðsmaður barna, telur að börn eigi að öðl- ast réttindi smám saman eftir þroska og aldri. úr eða í trúfélag. Þau eigi rétt á að fá upplýsingar hjá lækni um veik- indi, ástand, meðferð og horfur og að bílpróf miðist áfram við 17 ára aldur.“ Hins vegar telur hún eðlilegt að réttur til bamabóta, réttur bama til að vera sjúkratryggð og réttindi til endurgreiðslu helmings kostnaðar af almennum tannlækningum verði færð til 18 ára aldurs. Hún nefnir einnig ákvæði í barnavemdar- og réttarfarslögum. „Bam yngra en 18 ára á að mínu mati rétt á því að for- eldri þess sé viðstatt yfirheyrslur nema hagsmunir bamsins mæli gegn því,“ sagði hún. - Hvemig útskýrir þú muninn á skilgreiningunni „barn“ annars veg- ar með tilliti til þess að taka bílpróf 17 ára og hins vegar að það eigi rétt á barnabótum til 18 ára aldurs? „Það er alveg rétt að menn hafa spurt hvort ósjálfráða böm eigi að geta stjórnað bíl. Mér finnst samt óeðlilegt að öll réttindi barna séu bundin við 18 ár. Þau eiga að koma jafnt og þétt eftir því sem aldur og þroski leyfir. Þegar hins vegar er verið að vernda börn og styðja gegnir að mínu áliti öðru máli. Þá er rétt að miða við sjálfræðisaldur." Réttur tU ákvörðunar um fóstureyðingu - í lögum um rétt til fóstureyð- inga segir að stúlkur 16 ára og eldri megi sækja um fóstureyðingu án þess að foreldrar þeirra samþykki slíkt sérstaklega. Hvert er álit þitt á þessum lögum? „Þetta er svolítið sérstakt og vandmeðfarið. Málefnið er svo per- sónulegt og verið er að ræða af- drifaríka ákvörðun um framtíð 16 ára unglings. Ég tel að aldursmörk- SJÁ BLS 14 Morgunblaðið/Kristinn BÖRN og unglingar hafa vakið athygli umboðsmanns á ýmsu dsamræmi og óréttlæti sem snýr að þessum aldursflokki. Þau segja að komi það fullorðnum vel séu unglingar taldir börn en þegar þeir þurfi að greiða fyrir þjónustu teljist þeir fullorðnir. Vilja þau gjarnan sjá aukna samræmingu með nýjum lögum. Tillögur lagaskoðunarnefndar Lagt til að breytingar tækju gildi fyrir síðustu áramót NEFND, sem skipuð var um mitt ár í fyrra og var ætlað að skoða ýmis lög er varða börn og unglinga, hefur sent frá sér skýrslu. Var hún kynnt í ríkis- stjórn í nóvember og hefur ver- ið þar til umfjöllunar síðan. Síðastliðinn þriðjudag var sam- þykkt á ríkissijórnarfundi að hvert ráðuneyti fyrir sig kæmi með lagabreytingar í samræmi við þær ábendingar sem eru í skýrslunni. Að sögn Þorsteins Pálssonar dómsmálaráðherra voru ráðuneytunum engin tíma- mörk sett um lagabreytingarn- ar. í athugasemdum, sem Skúli Guðmundsson skrifstofustjóri á Hagstofu íslands setti fram í skýrslunni, telur hann að þær tillögur sem séu lagðar fram, gangi of skammt. Fyrir hækkun sjálfræðisaldurs hafi í fiestum greinum gætt samræmis við lagasetningu og leggur hann áherslu á að þessara sjónarmiða þurfi að gæta áfram. Hann telur því óhjákvæmi- legt að breyta aldursmörkum í lögum um Iögheimili og skrán- ingu í þjóðskrá. Einnig að breyta þurfi skattalöggjöfinni, meðal annars til að koma í veg fyrir misræmi í löggjöf og hins vegar misræmi milli skráning- ar í þjóðskrá og skattalöggjaf- ar, sem hann segir að valdi erfíðleikum í framkvæmd. Þá telur hann orka tvímælis að ósjálfráða unglingar geti eftir áramót notið atvinnuleysisbóta á sama tíma sem foreldrar geti hugsanlega notið einhverra bóta eða réttinda vegna barn- anna. Tillögur nefndarinnar Nefndinni var einungis ætlað að fjalla um lög en ekki reglu- gerðir, sbr. reglur um styrk til tannlæknishjálpar, né um greiðslur fyrir almenna læknis- hjálp, sérfræðilæknishjálp og röntgenþjónustu. Þau lög sem nefndin taldi að æskilegt væri að breyta fyrir 1. janúar 1998 fjalla meðal annars um lögheimili, tilkynningar um aðsetursskipti, mannanöfn og hjúskap. Lagt er til í hjúskapar- lögum, að orðunum „að sam- þykki forsjárforeldra til hjú- skaparstofnunarinnar“ verði bætt aftan við ákvæði, þar sem segir að dóms- og kirkjumála- ráðuneyti geti veitt yngra fólki en 18 ára leyfi til að ganga í hjúskap. í löguuum um vernd barna og ungmenna er talið rétt að fellt verði út orðið ungmenni og í staðinn komi alls staðar barn. Með börnum sé þá átt við ein- stakling innan 18 ára aldurs. Þó er bent á að e.t.v. sé ástæða til að íhuga nýjar hugmyndir í orðavali, því orkað geti tvímæl- is að það falli að eðlilegri mál- vitund að nota hugtakið barn yfír ungling allt að 18 ára aldri. Einnig er bent á, að með því að fella á brott orðið ungmenni geti orðið erfíðara í lagatextan- um að bregðast við vaxandi þroska barna með aldri. Þá kemur fram að félagsmálaráðu- neyti hafi til heildarendurskoð- unar lög um vernd barna og unglinga. Nokkuð er rætt um breyt- ingar á almannatryggingalög- um og Iagt til að í stað 16 ára komi 18 ára, s.s. í köflum um örorkulífeyri, slysatryggingar og sjúkratryggingar. Þá eru lagðar til breytingar á lögum um félagslega aðstoð, um rétt- indi sjúklinga og á læknalög- um. f skýrslunni eru ennfremur tilgreind ýmis lög sem hafa að geyma ákvæði, sem miða til- greind réttindi og skyldur við 16 og 17 ára aldursmörk. Nefndin tók ekki beint afstöðu til þessara laga en vísaði þeim til hvers fagráðuneytis fyrir sig. Þetta eru meðal annars lög um skotvopn, umferðarlög, lög um söfnunarkassa, lög um atvinnu- leysistryggingar, lög um tekju- og eignaskatt, staðgreiðslu op- inberra gjalda og lög um skoð- un kvikmynda og bann við of- beldiskvikmyndum, svo dæmi séu nefnd.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.