Morgunblaðið - 15.02.1998, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 15.02.1998, Blaðsíða 37
 MÖRGUNBLAÐÍÍ) SUNNUDAGUR 15. PEBRÚAR 1998 37 I B J * I ! i I I I I 3 I I I I I i B I I ar hreinskilin, heiðarleg og réttsýn, hún var dagfarsprúð og hæglynd en ákveðin ef þess þurfti með, sagði um- búðalaust það sem segja þurfti, fals og yfirdrepsskapur var henni andsnúinn. Hún fylgdi sannfæringu sinni og hún átti sinn fasta grundvöll. Umburðarlyndi var sterkur þáttur í lífí hennar. Réttlætiskennd var henni í blóð borin og tók hún jafnan mál- stað lítilmagnans. Þannig kom hún mér fyrir sjónir. Þannig þekkti ég hana. Þannig var hún. Auður starfaði á annan tug ára við Fellaskóla í Breiðholtinu, naut hún sín þar vel í vandasömu starfí, gegndi hún því að alúð og nærgætni. Auður vann störf sín af miklum dugnaði. Það var sama á hverju gekk, ætíð sá hún björtu hliðarnar á hveiju máli. Vafalítið hef- ur hárfín kímnigáfan hjálpað henni að leysa flóknustu deilumál svo flest- ir mættu sáttir vera. Auður var vel liðin af samstarfsfólki og nemendum Fellaskóla og er hennar þar sárt saknað. Ævilok Auðar komu alltof fljótt, sjúkdómurinn hræðilegi, krabbameinið, sigraði lífið. Hún steig af lestinni á undan okkur, of fljótt - en hvað er of fljótt í ferð sem enginn veit hvern endi muni hafa? Við vorum minnt á það sem við munum ekki alltaf eftir að skrefíð er stutt og við öllu má búast. Þá er gott að eiga þá trú að þrátt fyrir allt er líf- ið í hendi Guðs. Við trúum því að dauðinn sé ekki það síðasta heldur megi horfa fram á við og búast við miskunn Guðs. Þó að aðskilnaður verði um sinn þá er það ekki það síð- asta. Ég er þakklátur fyrir að hafa kynnst Auði H. Welding. Ég bið Guð að blessa minningu hennar og vera eiginmanni og börnum þeirra styrkur í þessari erfiðu raun, þeirra er miss- irinn mestur. Votta ég þeim mína dýpstu samúð. Valgeir Matthíasson. Kveðja frá Fellaskóla í Reykjavík Sérhver stofnun stendur og fellur með því starfsfólki sem hún hefur á að skipa því góðir starfsmenn eru gulls ígildi. Mánudaginn 2. febrúar lést Auður Welding eftir tiltölulega stutta en erfíða sjúkdómslegu. Auður hafði starfað á annan áratug við Fellaskóla í Reykjavík, lengst af sem gangavörður. Starf gangavarðar í skóla kallar á mikla samskiptahæfi- leika. Að stjórna, leiðbeina og lið- sinna börnum og unglingum er ekki sjálfgefinn hæfiieiki og mikið vanda- verk. Auður Welding hafði þennan hæfileika í ríkum mæli. Hún var einnig bóngóð, en hafði ekki mörg orð um hlutina. Væri hún beðin um að taka eitthvað að sér var svarið gjarnan „allt í lagi, góði“ og svo ekki meir um það. Á hana mátti treysta. Hún var því vel liðin af samstarfs- fólki sínu og vinmörg. Við sem höfum haft þann heiður að fá að kynnast henni og starfa með henni þessi ár sjáum á bak góðum félaga. Skarð er fyrir skildi í skólanum, bæði hjá starfsfólki og nemendum. Fellaskóli þakkar góðum starfsmanni óeigin- gjörn störf um leið og við starfsfólkið vottum fjöskyldu Auðar okkar dýpstu samúð. Örlygur Richter skólasijóri. EIŒAMIÐtUMN _____________ Slarismenn: Sverrir Kristinsson iögg. fasteignasali, sölustióri, Þorleifur St.Guömundsson.B.Sc., sðlum , Guömundur Sigurjónsson lögfr. og lögg.fasteígnasali. skjalagerö. qÍx Stefán Hrafn Stefánsson lögfr., sölum., Magnea S. Svemsdóttir. lögg. fasteignasali, sölumaður, - Stefán Ami Auöólfsson, sölumaöur, Jóhanna Valdimarsdóttir, auglysmgar, gjaldkeri, Inga Hannesdóttir, ÉZ, símavarsla og ritari, Ólöf Steinarsdóttir, öflun skjala og gagna, Ragnheiður D. Agnarsdóttir.skrifstofustört. ■ Sími A8H 9090 • Fax ■>}{}{ 9095 • SÍOmmlla 2 I Vallengi 4-6 Mjög stutt er í alla þjónustu, s.s. búðir, skóla o.fl. Til sölu glæsilegar 2ja herbergja 68,4 m2 íbúðir sem eru nú til afhendingar nú þegar með vönduðum innréttingum og tækjum. fbúðirnar skiptast í forstofu, geymslu/þvottahús, hol, stórt hjónaherbergi, baðherbergi með glugga, stóra stofu og eldhús. Sérinngangur er í allar íbúðirnar og sér lóð fylgir íbúðum á 1. hæð. Öll sameign og lóð er fullbúin m.a. með hita í gangstéttum, tröppum o.fl. Fallegt útsýni m.a. til Esjunnar og víða. Mjög stutt er í alla þjónustu, s.s. búðir, skóla o.fl. Hagstætt verð: 6,4 millj. íbúðirnar eru til sýnis í dag frá kl. 13.00 — 16.00. EIGNAMÐLUMN Sími 588 9090 ix 588 9095 • SÍAimiúla 2 Grensásvegur Vorum að fá í einkasölu glæsilega og fullinnréttaða u.þ.b. 365 fm skrifstofu- hæð á áberandi stað á mótum Grensásvegar og Skeifunnar. Hæðin er mjög vel innréttuð og skiptist í nokkur skrifstofuherb., vinnusal, kaffistofu, snyrting- ar o. fl. Gott verð og kjör í boði fyrir trausta aðila. 5437 Þverholt 17 og Þverholt 19-21 Hér er um að ræða verksmiðju- og skrifstofubyggingar, samtals um 8000 fm. Eignirnar henta fyrir ýmiss konar starfsemi svo sem fyrir margskonar iðnað, sem lagerhúsnæði, verksmiðjupláss, fyrir teiknistofur, skrifstofur og ýmiss konar þjónustustarfsemi. Húsin seljast I einu lagi eða hlutum. Góð greiðslu- kjör í boði. Allar nánari uppl. veita Stefán Hrafn og Sverrir. 5392 Blað allra landsmanna! fðforgpssiMitMfr - kjarni málsins! Helgi Magnús Hermannsson - sölustjóri, gsm: 896 5085. Einar Ólafur Matthíasson - sölumaður. gsm: 899 5017. Björk Baldursdóttir - ritari. Svava I.oftsdóuir - iðnr.fr., skjalafrágangur. Sigurður Örn Sigurðarson - viðskiptafr. og liiggiltur fasteigna- og skipasali, v-tr-. GÓÐ HÚSNÆÐI FYRSTUR KEMUR FYRSTUR FÆR Hulduland - Fossvogur. 87 fm falleg 3ja. - 4ra herb. íbúð á 1. hæð í vönduðu fjölbýli. Parket á gólfum. Alno eldhús. Fallegur sér suður garður með nýjum sólpalli. Áhv. 3,5m. Byggsj. Verð 8,5m. Reynimelur - Laus. 85 fm falleg íbúð á 1 .hæð í vönduðu húsi á þessum eftirsótta stað. 2-3 herbergi og rúmgóðar stofur. Suður svalir. Endurn. eldhús, rafmagn, þakkantur ofl. Áhv. 3,4 m. húsbr. Verð 8,3 m. Stakkhamrar. 204 fm vandaö hús í pessu vinsæla hverfi. 3-4 svefnherb. og rúmgóðar stofur. Vandað parket á gólfum. Fallegar innréttingar. Sólpallur. Hiti í stéttum. Mögul. á aukaiými ca. 75 fm, 39 fm. bílskúr. Áhv. 3,5 m. Verð 15,4 m. Opið í dag £rá kl. 12—15 Fjöldi eigna á skrá Sími 533 4040 Fax 588 8366 Ármúla 21 DAN V.S. WIIUM, hdl. lögg. fasteignasali. Hvassaberg Hf. — einbýli Nýkomin í einkasölu þessi stórglæsilega húseign, einbýli á einni hæð með innb. tvöföldum bílskúr, samtals 220 fm. Arinn. Parket. Vandaðar innréttingar. Fullbúin eign í sérflokki. Góð staðsetning í hinu vinsæla Setbergshverfi. Teikning á skrifstofu. Naustahlein 17, Garðabæ - eldri borgarar - nýtt parhús Nýkomið í einkasölu glæsilegt nýtt 85 fm parhús með sólskála á þessum vinsæla stað í Garðabæ fyrir eldri borgara. Húsið er nú í smíðum og verður afhent algjörlega fullbúið á vandaðan máta fljótlega. Verð 9,8 millj. Nánari uppiýsingar um ofangreindar eignir gefur Fasteignasalan Hraunhamar, Bæjarhrauni 22, Hafnarfirði, sími 565 4511. Dofraborgir 4-8 Sölusýning í dag frá kl. 13-15 Glæsileg 170 fm ein- býli/tengihús (tengjast ekkert, 2,5 metrar á milli húsa) á frábærum útsýnisstað í Grafar- vogi. Skemmtilegt skipulag og vandaður frágangur. Útsýni yfir Sundin, Snæfellsnes, Esjuna o.fl. Til afhendingar strax fullbúið utan, fokhelt innan á mjög hagstæðu verði, 8,8 millj. Möguleiki að fá keypt tilbúið til innréttinga. Byggingaraðili og sölumaður Valhallar verða á staðnum í dag milli kl. 13-15. Komið og sjáið falleg hús á frábæru verði. Grafarvogur — glæsieign Stórglæsileg 200 fm efri hæð ásamt 27 fm bílskúr í glæsil. húsi sem stendur á ein- stökum útsýnisstað. Frábært skipulag, glæsilegur sérgarður. 4 stór svefnherbergi. Sérsmíðaðar innréttingar á eldhús og bað. Áhv. húsbréf 6,2 millj (5% vextir). Eign í sérflokki. Staðgreiðsla í boði Fjársterkir kaupendur að: * Einbýlishúsi í Reykjavík-Garðabæ. Staðgreiðsla. Verð 14-20 millj. * Sérhæð/litlu raðhúsi í Reykjavík-Kópavogi. Verðhugm. 8-12 millj. * 3ja—4ra herb. í Reykjavík-Kópavogi. Verðhugm. 6-9 millj. * 4ra-5 herb. í Vesturbæ-Þingholtum. Um er að ræða kaupendur sem þegar hafa selt sínar eignir. Nánari upplýsingar veita sölumenn okkar í síma 588 4477 eða í símum 896 5221 (Bárður), 896 5222 (Ingólfur) eða 899 1882 (Þórarinn). Valhöll, sími 588 4477.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.