Morgunblaðið - 15.02.1998, Page 14
14 SUNNUDAGUR 15. FEBRÚAR 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Menn hafa spurt
hvort ósjálfráða
börn eigi að
geta stjórnað
bíl. Mér finnst
samt óeðlilegt
að öll réttindi
barna séu bund-
in við 18 ár.
in 16 ár eigi að halda sér, en auðvit-
að ættu foreldramir að vita af þess-
ari ákvörðun vegna þess að þeir
fara með forsjána og ráða persónu-
legum högum barns síns fram að 18
ára aldri.“
Þórhildur segir að í umræðunni
um hækkun sjálfræðisaldurs hafi
þeim rökum verið teflt fram, að
nauðsynlegt hafi verið að hækka
aldurinn til að geta vistað böm gegn
vilja sínum á meðferðarheimilum
væra þau sjálfu sér eða öðram
hættuleg. „Þá benti ég á það á móti,
að ekki þýðir eingöngu að hækka
sjálfræðisaldur upp í 18 ár heldur
verður að fínna meðferðarúrræði
fyrir unglinga 16-18 ára. Langtíma-
úrræðj era ekki til fyrir þennan
hóp. Ég tel ekki heldur forsvaran-
legt að ungir vímuefnaneytendur
séu í meðferð innan um fullorðna
neytendur."
Ábyrgðin kemur jafnt og þétt
Eitt af því sem henni þykir mikil-
vægt og hún nefndi í umsögn sinni
er að tryggja bömum rétt til að
vera með í ráðum þegar teknar era
ákvarðanir sem þau varða. „Hlut-
verk foreldra er auðvitað mikilvæg-
ast meðan bamið er ungt en minnk-
ar jafnt og þétt með áranum eftir
því sem bömin þroskast og eldast.
Að mínum dómi eiga þau að vera
með í ákvarðanatöku," segir Þór-
hildur og bætir við að slíkt ákvæði
megi finna í barnalögum, en hún
hafi viljað hnykkja á því í lögræðis-
lögunum. Hún svarar aðspurð að
vissulega sé erfitt að fylgja þessum
rétti eftir, en hægt sé að upplýsa
börnin um rétt þeirra og það sé
einmitt eitt af sínum hlutverkum.
„Það era foreldrarnir sem taka
fyrst og fremst ákvarðanirnar en
þeir verða að skilja, að það þýðir
ekki að ráðskast með börn til 18 ára
aldurs. Það hlýtur að felast í for-
eldrahlutverkinu að kenna börnum
jafnt og þétt að verða nýtir þjóðfé-
lagsþegnar. „
Ósamræmi og óréttlæti
Samkvæmt bamasáttmála Sa-
meinuðu þjóðanna er einstaklingur
talinn barn fram að 18 ára aldri og
sama gildir í lögum um umboðs-
mann barna. Þórhildur segist ekki
bara vilja sjá að tekið verði tillit til
þessa í skráðum lögum heldur
einnig í sambandi við óskráðar regl-
ur þjóðfélagsins. „Hingað til hefur
gjaman verið miðað við 12 ára aldur
þegar boðið hefur verið upp á lægri
gjöld fyrir ýmiss konar þjónustu,
sem börnum stendur til boða. Ég tel
tímabært að hækka þennan aldur í
kjölfar á hækkun sjálfræðisaldurs,"
segir hún.
I þessu sambandi nefnir hún að
börn og unglingar hafi bent á það
ósamræmi og óréttlæti sem ríki í
skilgreiningu á því hvenær einstak-
lingur teljist barn og hvenær full-
orðinn. Þegar það komi fullorðnum
vel séu unglingar taldir börn en
þegar þeir þurfi að greiða fyrir
þjónustu teljist þeir fullorðnir. Hún
segir að í kjölfar nýrra laga um
sjálfræðisaldur sé annað ekki sann-
gjarnt en forsvarsmenn stofnana og
fyrirtækja reyni að samræma regl-
ur sínar. „Það er margt sérkenni-
legt í íslenskri löggjöf og aldur-
mörkin era mjög mismunandi. Mér
finnst löngu orðið tímabært að búin
sé til heildarstefna í málefnum
barna og unglinga."
Jón Baldursson yfírlæknir
Tilkynning til
foreldra er
ekki alltaf í
þágu barna
JÓN BALDURSSON yfir-
læknir á slysadeild Borgar-
spítala segir að þar hafi ekld
verið tekið upp breytt vinnu-
lag vegna hækkaðs sjálfræð-
isaldurs. Hins vegar hafi
breytingar orðið í kjölfar laga
um vemd bama og ungmenna
frá 1992. Komi eitthvað fyrir
böm og unglinga að 18 ára
aldri, segir hann að lögin séu
mjög ótvíræð gagnvart
skyldu lækna og hjúkranar-
fólks um að tilkynna það
bamaverndaryfirvöldum. Þau
vinni síðan áfram í málinu.
Hann segir að því miður sé
ekki alltaf hagur barns að til-
kynna foreldrum þess að
eitthvað hafi komið fyrir. Stundum snúist máÚð um að
halda trausti barnsins. Jafnvel komi börn á slysavarð-
stofuna eftir vonda meðferð foreldranna og þá viti þeir
að sjálfsögðu af áverkunum. í öðra lagi vilji barnið
hugsanlega ekki að læknir ræði þetta vandamál við
foreldrana, því það geri illt verra. „í hlut eiga jafnvel
börn, sem eru býsna fær um að gera sér grein fyrir
ýmsu í eigin lífi og taka að vissu leyti eigin ákvarðanir,
þótt lögin heimili þeim ekki að vera sjálfráða," segir
hann.
Aðspurður hvemig spítalinn hafi bragðist við gagn-
vart aðstandendum barna undir sjálfræðisaldri fram til
þessa, segir hann að yfirleitt hafi ekki þurft að taka á
því sérstaklega. Aðstandendur hafi sjálíkrafa blandast í
málið. „Það hefur þó komið fyrir að við höfum þurft að
tilkynna aðstandendum um börn sem hafa lent í ein-
hverju, jafnvel þótt þau vildu það ekki sjálf. í einstaka
málum tilkynnum við það einnig lögreglu eða félags-
málayfirvöldum," segir hann.“
Jón
Margrét Friðriksdóttir
skólameistari
Auknir mögu-
leikar á upplýs-
ingastreymi til
heimila
MARGRÉT Friðriksdóttir
formaður Skólameistarafé-
lags íslands segir að aukið
samstarf heimila og skóla í
kjölfar hækkaðs sjálfræðis-
aldurs hafi einungis verið lít-
illega rætt innan félagsins.
Leitað hafi verið eftir frekari
kynningu frá menntamála-
ráðuneytinu fyrir áramótin
en hún ekki fengist. „Ég
reikna með að þessi kynning
verði á vorönninni, enda
reynir ekki á þessi lög fyrr en
með nemendum sem hefja
nám á næsta skólaári."
Margrét segir að skóla-
meistarar fagni almennt
þessari breytingu. Með
hækkun sjálfræðisaldurs aukist möguleikar skólanna á
upplýsingastreymi til heimila og auðveldi í raun öll sam-
skipti við yngstu nemendur framhaldsskólans. „Þar er
þörfin brýnust á að vera í samstarfi við foreldrana. Auk
þess auðveldar þetta störf námsráðgjafa, þótt þeir muni
auðvitað virða áfram ákveðið trúnaðartraust við nem-
endur.“
Margrét segir að skólamenn hafi að sjálfsögðu heyrt
þær raddir frá nemendum að verið sé að skerða frelsi
þeirra. Hins vegar hafi sýnt sig í þeim tilfellum, þar sem
upp hafa komið alvarleg vandamál og haft hefur verið
samband við heimilin, að nemendur séu þegar upp er
staðið afskaplega fegnir að tekið sé á þeirra málum.
.Auðvitað vilja þau fá aðstoð til að leysa vandann.
Stundum finnst þeim betra að fá stuðning skólameist-
ara eða námsráðgjafa við að vekja máls á vandanum á
heimilinu," sagði Margrét Friðriksdóttir .
iUnJBVsA'
Pétur Blöndal flettir myndaalbúmi Ragnars Axelssonar
Fólk í fréttum í blaðinu á þriðjudaginn.
-Viíf'SíVft
eitthvad eftir hand
ímyhdunaraflinu