Morgunblaðið - 15.02.1998, Síða 27

Morgunblaðið - 15.02.1998, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15. FEBRÚAR 1998 27 Morgunblaðið/Golli VINNSLA auglýsingamynda er staersti hluti starfsemi Saga film. Hér er starfsfólk fyrirtækisins við upptökur við Bláa lónið. En hvað má segja að aukin áhersla verði lögð á á næstu miss- erum? Hvar eru vaxtarbroddarnir? „Við stefnum að því að vera eftir sem áður sterkir á innlenda mark- aðnum og á sama tíma vel færir um að sinna öllu sem kann að berast að utan. En þetta er ekki í eðli sínu stöðug atvinnugrein þar sem hún höndlar svo mikið með hugverk. í fljótu bragði sýnist mér þó að við munum í vaxandi mæli snúa okkur að dagskrárgerð fyrir er- lendan markað. Þar eru miklir möguleikar. Slík vinna byrjar með hugmyndavinnu. Við höfum verið með mikla dagskrárgerð og selt efni, sérstaklega innanlands. En tökum dæmi um það sem ég er að tala um. Segjum að hugmynd kom- ist á kreik hjá okkur, við náum að fjármagna hana hér heima og selj- um efnið kannski til danska sjón- varpsins fyrir 2-300.000 krónur. Hin leiðin er að fá danska sjónvarp- ið í þessu tilviki til að framleiða með okkur efnið og þá kemur kannski hálf önnur milljón frá þeim í framleiðsluna. Þama værum við að stórauka veltu okkar. En þetta er strembinn markaður og erfiður, en við erum byrjaðir að skoða hann vandlega. Lykillinn liggur í góðum hugmyndum. Þá sýnist mér ljóst, að innlend dagskrárgerð muni aukast á næstu misserum. Að allt nema fréttir og fréttalestur verði boðið út. Þannig á það líka að vera. Þá er eitt ónefnt og það er þró- unarvinna af okkar hálfu sem kannski mætti orða á þann hátt að við stýrum uppákomum og höldum utan um þær frá byrjun til enda. Nýleg dæmi um þetta eru sýning sem Toyota stóð fyrir í Borgarleik- húsinu og hin gríðarlega mikla tískusýning sem Joe Boxer stóð fyrir á Reykjavíkurflugvelli á síð- asta ári. Reynslan sem hefur náðst á þessu sviði hefur verið dýrmæt, þetta hefur lukkast vel og við sjáum ýmsa möguleika á líkum nótum. Þá erum við famir að dreifa eggjunum í enn fleiri körfur.“ Þú ert titlaður kvikmyndagerð- armaður í símaskránni, Jón, hvað segirðu um kvikmyndagerð? „Saga film hefur fengist við kvik- myndagerð. Við komum t.d. að gerð Óðals feðranna með Krumma og fyrirtækið stóð alfarið að gerð kvik- myndarinnar Húsið árið 1983. Við hefðum ekkert á móti því að fram- leiða fleiri kvikmyndir og erum með nokkur handrit í þróun þessa stundina sem eiga það sameiginlegt að okkar mati að hafa burði til að verða góðar íslenskar kvikmyndir. Kvikmyndagerð á íslandi byggist hins vegar á því að fá styrk úr Kvikmyndasjóði og sá sjóður hefur ekki verið feitur undanfarin ár, þrátt fyrir að oft sé búið að sýna fram á að fjárframlög úr honum skili sér margfalt til ríkisins. Þess vegna höfum við ekki lagt ofurá- herslu á þennan þátt framleiðslunn- ar undanfarin ár, en við höfum aug- un opin fyrir réttu tækifæri þar eins og á öðrum sviðum, en eins og sakir standa þá höfum við í alveg nógu mörg horn að líta,“ eru loka- orð Jóns Þórs Hannessonar. Mónudö i hverfinu a 1 ■'“S*8 Alþingismenn og borgarfulltnxar Sjálfstæðis- flokksins auk frambjóðenda sjálfstæðismanna í borgarstjórnarkosningunum verða með viðtalstíma í hverfúm borgarinnar næstu mánudaga. Á morgun verða Inga Jóna Þórðardóttir borgarfulltrúi °g Guðmundur Hallvarðsson alþingismaður á Hótel Borg, ld. 17-19. Þetta er kjörið tækifæri fyrir alla Reykvíkinga til að ræða málin og skiptast á skoðunum við fulltrúa Sjálfstæðisflokksins. Hafðu áhrif og láttu þínar skoðanir heyrast. VÖRÐUR - FULLTRÚARÁÐ SJÁLFSTÆÐISFÉLAGANNA í REYKJAVÍK. Kr. 19.800. 14" Black Matrix myndlampi Textavarp með ísl. stöfum 50 stöðva minni Allar aðgerðir á skjá Scart-tengi Fullkomin fjarstýring • 20" Black Matrix myndlampi • Textavarp með ísl. stöfum • 50 stöðva minni • Allar aðgerðir á skjá • Scart-tengi • Fullkomin fjarstýring Kr. 26. . stgr. . stgr. Sjónvarpsmiostöoin ®iiJi Q ^ • wM !> Umboðsmenn um land allt: m iri (JNITED Bjóðum betur! VESTDRLAND: Hljómsýn. Akranesi. Kaupfélag Boiglirðinga, Borgarnesi. Blómstunrellir. Hellissandi. Guðni Hallgrímsson. Grundarfirði. VESTFIHÐIH: Rafbúð Jónasar Þórs, Patrekslirði. Póllinn, Isafiröi. NORÐURLAND: KF Sieingrímsfjaröar, Hólmavík. KF V-Húnvetninga, Hvammstanga. Kf Húnvetninga, Blðnduósi. Skagfirðingabúð, Sauðátkróki. KIA, Dalvík. BókvaL Akureyri. Ljósgjafinn, Akureyri. KF Þingeyinga, Húsavik. Urð, Raufarhöln.AUSTURLAND: Kf Héraðsbúa, Egilsstöðum.VersluninVik, Neskaupsstað. Kauptún. Vopnatirði. Kf Vopnfirðinga.Vopnafirði. KF Héraðsbúa, Sevðisfirði.Tumbræður, SeyðisfiröLKF Fáskrúðsfjarðar, Fáskrúðsfirði. KASK. Djúpavogi. KASK, Höfn Homafirði. SUÐURLAND: Rafmagnsverkstæði KB, Hvolsvelli. Mosfell, Hellu. Heimstækni, Selfossi. KÁ. Selfossi. Rás, Þorlákshöfn. Brimnes, Vestmannaeyjum. REYKJANES: Raíborg, Grindavík. Raflagnavinnust. Sig. Ingvarssonar, Garði. Rafmætti, Hafnadirði. 28" Black Matrix myndlampi 2x20W Nicam Stereo magnari Textavarp með ísl. stöfum 100 stöðva minni Allar aðgerðir á skjá Scart-tengi Aukatengi fyrir hátalara Fullkomin fjarstýring

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.