Morgunblaðið - 22.02.1998, Page 4
4 SUNNUDAGUR 22. FEBRÚAR 1998
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
VIKAN 15/2 - 21/2
► NÝTT flugfélag, MK-Avi-
ation sem er í eigu íslend-
inga, hefur byijað fraktflug
en það verður einkum í
flutningum milli Afríku,
Evrópu og Asíu. Er einnig
stefnt að því að hefja frakt-
flug frá íslandi.
► FRANSKA lögreglan
handtók íslending á ferð í
Frakklandi með 5 kg af
hassi. Situr hann nú í fang-
elsi f Nice en maðurinn er
búsettur á Spáni. Hann hef-
ur áður komið við sögu af-
brota hérlendis og erlendis.
► ÓSKAÐ hefur verið eftir
tilboðum í 7,12% hlut Ný-
sköpunarsjóðs atvinnuh'fsins
f íslandsbanka. Er hann að
nafnvirði 276 milljdnir króna
og er óskað eftir tiiboðum í
allan hlutinn. Framkvæmda-
sljóri Nýsköpunarsjóðsins
segir ástæðu sölunnar þá að
um 25% af stofnsjóðnum, um
einn milljarður króna, sé
bundinn og vilji menn lækka
það hlutfall.
► TUTTUGU skólastjórar
nokkurra grunnskóla í
Reykjavík fara í næsta mán-
uði til Singapore til að
kynna sér skólamál, ekki síst
stærðfræðikennslu, sem hef-
ur þótt skara fram úr þar.
► IÐNAÐARRÁÐHERRA
sagði á iðnþingi að banka-
kerfið hér væri of dýrt í
rekstri. Vaxtamunur sem
hlutfall af heildareignum sé
hér um 4% en 2% í öðrum
Evrópulöndum. Hljóti mark-
mið endurskipulagningar og
einkavæðingar á fslenskum
Qármagnsmarkaði að hafa
það að leiðarljósi að Iækka
vaxtamun og kostnað.
Loðnuvertíðin hafín
LOÐNAN tók að veiðast í vikunni og
fengu nokkur loðnuveiðiskipin fyrsta
sæmilega aflann í vikubyrjun. Sjó-
mönnum fannst þó vertíðin ekki hefj-
ast fyrir alvöru fyrr en fóstudaginn 20.
en þá fengu mörg skipin stóra og fal-
lega loðnu suðaustur af Papey. Tals-
verð áta var ennþá í loðnunni.
Þörf á 800 málm-
iðnaðarmönnum
NÝ áætlun iðnaðarráðuneytisins um
líklegar stóriðju- og virkjanafram-
kvæmdir næstu sjö árin gerir ráð fyrir
að magnesíumverksmiðja verði reist
hérlendis á árunum 1999-2001 og að
hafm verði bygging stórs álvers árið
2003. Talin er þörf á rúmlega 300
málmiðnaðarmönnum vegna þessara
og annarra framkvæmda og að hún
fari upp í um 800 manns þegar mest
verður um að vera, t.d. verði af bygg-
ingu álversins.
Síldarvinnslan
færir út kvíamar
GENGIÐ var frá kaupum Síldar-
vinnslunnar hf. í Neskaupstað á 22%
hlut í Skagstrendingi hf. á Skaga-
strönd fyrir um 420 milljónir króna og
er fyrirtækið þar með stærsti hluthafi
fyrirtækisins. Forráðamenn Síldar-
vinnslunnar segja ástæðu kaupanna þá
að tímabært sé að skoða samstarfs-
möguleika við önnur fyrirtæki í sjávar-
útvegi.
Spáð góðu veiðisumri
HORFUR eru á góðu laxveiðisumri og
telur dr. Sigurður Guðjónsson,
framkvæmdastjóri Veiðimálastoftiun-
ar, ýmsar forsendur fyrir því að
vertíðin verði gjöfulli en sú síðasta.
Segir hann rökin gott ástand á seiðum
og í sjónum.
Annan gerir
úrslitatilraun
KOFI Annan, framkvæmdastjóri Sam-
einuðu þjóðanna, fór til Bagdad í írak á
fóstudag til viðræðna við Saddam
Hussein íraksforseta. Var fórinni lýst
sem síðustu voninni um friðsamlega
lausn á deilu íraka og SÞ en á fimmtu-
dagskvöld gáfu þeir Annan og Jacques
Chirac, forseti Frakklands, út yfirlýs-
ingu þar sem þeir skoruðu á Saddam að
standa við gerða samninga og koma
þannig í veg fyrir loftárásir Bandaríkja-
manna og Breta. Áformað var, að Ann-
an ræddi við ráðamenn í írak um helg-
ina en færi til Parísar á mánudag. Á
þriðjudag gæfi hann síðan öryggisráði
SÞ skýrslu um viðræðumar. Chirac og
Bill Clinton, forseti Bandaríkjanna,
ræddust við á fimmtudag og voru sam-
mála um, að enn mætti leysa deiluna en
Tony Blair, forsætisráðherra Bret-
lands, ítrekaði við Annan, að Saddam
ætti þann eina kost að standa við friðar-
skilmála SÞ. Víktor Posuvaljúk, erind-
reki Rússa í írak, sagði að loknum
fundi með Saddam á fimmtudag, að
hann hefði heitið að sjá til þess, að Ann-
an færi ekki erindisleysu til Bagdad.
Mikið flugslys
á Tævan
TÆVÖNSK farþegaþota af gerðinni
Airbus fórst er hún ætlaði að lenda á al-
þjóðaflugvellinum í Taipei, höfuðborg
Tævans, sl. mánudag og með henni all-
ir, sem voru um borð, 196 manns, og sjö
manns á jörðu niðri. Kom vélin niður á
fjölbýlishús rétt við flugvöllinn en mikil
þoka var er slysið átti sér stað. Þá var
flugstjórinn að reyna að lenda öðru
sinni en áður hafði hann sagt, að hann
sæi ekki flugbrautina. Talið er hugsan-
legt, að hann hafi talið ljós við hrað-
braut vera flugbrautarljósin. Flugritar
þotunnar hafa fundist og er vonast tdl,
að þeh- geti gefið skýringar á slysinu en
flugmálayfirvöld á Tævan kyrrsettu all-
ar níu Airbus-þotur tævanska flugfé-
lagsins. Verða þær skoðaðar og flug-
banni aflétt komi ekkert athugavert í
ljós.
►POUL Nyrup Rasmussen,
forsætisráðherra Danmerk-
ur, boðaði í vikunni til kosn-
inga og verða þær 11. mars.
Kom sú ákvörðun á óvart
þótt Rasmussen Ieggi
áherslu á, að stjórnarsam-
starfið gangi að óskum. Lík-
legt þykir, að Nyrup og jafn-
aðarmenn kæri sig ekki um
langa kosningabaráttu. Hins
vegar er búist við, að hún
verði snörp og óvægin og
snúist einna helst um efna-
hagsmál og innflytjenda,
aukið ofbeldi og velferðar-
mál.
►SINN Fein, stjórnmála-
flokki IRA, írska lýðveldis-
hersins, var formlega vísað
burt úr viðræðunum um frið
á Norður-írlandi á fóstudag.
Þykir sannað, að liðsmenn
IRA hafi myrt tvo mótmæl-
endur í Belfast en áður hefur
einum öfgaflokki mótmæl-
enda verið vfsað burt vegna
morða á kaþólskum mönn-
um. Stendur brottvikningin
til 9. mars en Gerry Adams,
leiðtogi Sinn Fein, kvaðst
ætla að ræða þetta mál við
þá Tony Blair, forsætisráð-
herra Bretlands, og Bertie
Ahern, forsætisráðherra ír-
lands.
►KOMIÐ hefur í fiós galli í
Boeing-737-farþegaþotum að
mati rannsóknarnefndar
flugslysa í Bretlandi og hef-
ur nefndin skorað á Boeing-
verksmiðjurnar og laga hann
strax. Er um að ræða vökva-
leka, sem truflað getur stýr-
isbúnaðinn, og veldur því, að
þotan veltur á bæði borð.
Kom það fyrir í æfingaflugi í
20.000 fetum og fengu flug-
mennirnir ekki við neitt ráð-
ið fyrr en vélin var komin
niður í 7.500 fet.
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
KEPPENDUR í stærðfræðiprófinu spreyta sig við dæmin.
FJÖLBRAUTASKÓLINN í
Garðabæ hélt stærðfræðikeppni
fyrir grunnskóla í gær. Þátttak-
endur voru alls 58, allir úr
Garðaskóla, sem er eini grunn-
skólinn á unglingastigi í Garða-
bæ. Af þessum hópi voru 18 á
efra stigi úr 9. og 10. bekk
Garðaskóla og 25 af neðra stigi
úr 7. og 8. bekk.
Mikill hugur er í báðum skól-
unum í Garðabæ að efla stærð-
fræðikennslu og auka veg
stærðfræðinnar f skólunum.
Gunnlaugur Sigurðsson, skóla-
stjóri Garðaskóla, var aðal-
hvatamaður keppninnar en
stærðfræðikennarar í Fjöl-
brautaskólanum í Garðabæ, þau
Bjarni Pálsson, Hrafnhildur
Sigurgeirsson, Sigurður Freyr
Stærð-
fræði-
keppni í
Garðabæ
Jónatansson og Þorbjörn Guð-
jónsson höfðu veg og vanda af
undirbúningi hennar undir for-
ystu Stefáns Árnasonar deildar-
stjóra og Kristínar Bjarnadótt-
ur aðstoðarskólameistara.
Búnaðarbankinn í Garðabæ
styrkir keppnina með því að
gefa hveijum keppanda bol til
minningar um hana og Mál og
menning veitir þremur bestu
keppendunum í hvorum flokki
bókaverðlaun.
Dæmi um viðfangsefni í próf-
inu:
1. Melóna, sem er 4 kg að
þyng, er 99% vatn. Þegar hún
hefur verið geymd í sólinni eru
aðeins 98% hennar vatn. Hve
þung er melónan þá?
2. í fjölskyldu minni eru for-
eldrar mínir, bróðir minn, syst-
ir mín og ég. Við heitum Jón,
Jóhanna, Davíð, Marfa og
Katrín en ekki í aldursröð. Jó-
hanna er yngri en María. Ég er
eldri en Katrfn. Jón er yngri en
ég. Hver er pabbi minn? Hver
er mamma mín? Hver er ég?
Frummat umhverfisáhrifa við Laugarvatnsveg hafið
Laugarvatns-
vegur-| /
3' Laugarvatn/—\ y—
lUllfOSS
Selfoss
Múíatjamir
NU KOSTAR
m AÐEINS
40.50 Á ÍWÍN.
AÐ HRINGIA TIL
B ANDARÍKIANNA
EFTIR KL.23
► ÁKVÖLDIN
Kostur
gefínn á
athuga-
semdum
ATHUGUN Skipulagsstofnunar á
frummati á umhverfisáhrifum
Laugarvatnsvegar í Biskupstung-
um, frá Úthlíð að Múla, er hafin. AJ-
menningi gefst kostur á næstu
fimm vikur að kynna sér fram-
kvæmdina og leggja fram athuga-
semdir til Skipulagsstofnunar.
Um er að ræða 4 km langan veg-
arkafla og er áætlað að fram-
kvæmdir hefjist um miðjan maí og
ljúki í október 1998. Krappar beygj-
ur verða lagðar af og er reiknað
með því að nýi vegurinn verði snjó-
léttari en sá sem fyrir er. Efnistöku
vegna fyllinga, burðarlaga og slit-
lags verður þannig háttað að um
það bil 104 þúsund rúmmetrar
verða teknir úr námum við Stekk-
holt, Andalæk og úr landi Múla.
í frétt Skipulagsstofnunar kemur
fram að samkvæmt gróðurkorti
muni vegurinn liggja um fjölbreyti-
legt gróðurlendi. Hvorki eru þó
friðlýstar háplöntur né tegundir á
válista á vegstæðinu. Vegurinn mun
bggja I jaðri mýra sunnan við Múla,
en vatnasvið Múla er sagt athyglis-
vert hvað varðar gróður og dýralíf;
m.a. eitt fárra varpsvæða flórgoða á
Suðurlandi auk þess sem blesgæsir
hafa þar viðkomu sína.
Matsskýrsla liggur frammi frá
18. febrúar til 25. mars hjá oddvita
Biskupstungnahrepps, í Þjóðarbók-
hlöðunni og hjá Skipulagsstofnun.
Athugasemdir skulu berast Skipu-
lagsstofnun eigi síðar en 25. mars.