Morgunblaðið - 22.02.1998, Qupperneq 10
10 SUNNUDAGUR 22. FEBRÚAR 1998
MORGUNBLAÐIÐ
ETTANN
Því er nú haldið fram að hvalurinn Keiko
sé reiðubúinn til að fara úr lokaðri laug í
flotkví, sem ætlað er að verði á stærð við
hálfan fótboltavöll. Meðal þeirra staða,
sem koma til greina, er Eskifjörður. Karl
Blöndal heimsótti Keiko í sædýrasafnið í
Newport í Oregon.
ETTANN, Keiko, éttann,"
hrópar lítill snáði um leið
og fimm punda lax syndir
fram hjá honum með fimm
tonna hval á eftir sér við það að
læsa skoltinum í sporðinn á honum.
,^Áfram, Keiko,“ öskrar annar um
leið og hvalurinn bítur í laxinn.
Fyrir framan gluggana á laug há-
hymingsins Keikos í sædýrasafn-
inu í Newport í Oregon standa um
hundrað manns og hrópa upp yfir
sig og stynja þegar háhymingur-
inn leikur sér að fiskinum eins og
köttur að mús; bítur í hann, slepp-
ir, bítur aftur og gleypir hann síðan
í einu vetfangi.
Kennt að veiða
Það er verið að kenna hvalnum
að bjarga sér sjálfur og veiða sér
til matar. I átján ár hefur Keiko
aðeins þurft að opna munninn til að
fá að éta. Hann er smátt og smátt
að komast á bragðið. Þegar 13
kyrrahafslöxum var sleppt í laug-
ina til hans á þriðjudag
réðst hann umsvifalaust
á fyrsta fiskinn. Þegar
komið var á fjórða fisk
var áhuginn orðinn
minni, veiðarnar leikur
en ekki fæðuöflun. Há-
hymingurinn, sem á ensku er kall-
aður „drápshvalur", hefur ekki
gleymt öllu, þótt hann hafi senni-
lega aðeins verið tvö ár í sínu nátt-
úrulega umhverfi áður en hann var
veiddur í net undan Austfjörðum
og settur í Sædýrasafnið í Hafnar-
firði.
Hafist var handa við að kenna
Keiko að veiða í júní. Það hefur
tekið sinn tima, en hann er smátt
og smátt að komast á lagið. Eigi
hann að lifa af í hafinu - í villtri
náttúrunni - verður hann að vera
sjálfbjarga og fmmskilyrði er að
hann geti veitt.
Keiko er nú í sædýrasafninu í
Newport í Oregon. Þar hefst hann
við í stórri laug. Hann er til sýnis,
en nú er hann ekki látinn sýna list-
ir sínar íýrir framan áhorfendur,
heldur fer hann sínu fram. Al-
menningi er ekki hleypt að barmi
laugarinnar og getur aðeins fýlgst
með hvalnum gegnum glugga und-
ir yfirborði laugarinnar.
Áður miðaðist öll þjálfun hvals-
ins við það að láta hann sýna stökk
og hreyfingar eftir pöntun, en nú
er hann farinn að átta sig á því að
hann getur bmgðið á leik. Nolan
Harvey, yfirþjálfari hvalsins, segir
að það hafi verið eitt ánægjuleg-
asta augnablikið á þjálfunarferli
Keikos þegar hann fór að stökkva
og kasta sporðinum að eigin fmm-
kvæði. „Nú er hann meira segja
farinn að læðast að næturvörðun-
um þegar þeir ganga meðfram
lauginni og stökkva upp úr vatninu
alveg við þá til að gera þeim bilt
við,“ segir hann.
Það kemur til greina að flytja
hvalinn á þrjá staði, til íslands,
Hjaltlandseyja eða Irlands. I upp-
hafi mundi hann hafast við í flotkví,
en brátt yrði honum hleypt út úr
henni. I fyrstu mundi hann snúa
aftur í kvína, en þar kæmi, ef allt
gengi eftir, að hann hyrfi í villta
náttúrana íýrir fullt og allt. Gert er
ráð fýrir því að verkefnið kosti um
tvær milljónir dollara (um 140
milljónir króna).
Jeff Foster hefur yfimmsjón
með fyrirhuguðum flutningi. Hann
starfaði áður við að fanga háhym-
inga fyrir sædýrasöfn og skemmti-
garða og var meðal annars tvo vet-
ur á Islandi, á ámnum 1976 til
1978. Hann sagði að áherslu bæri
að leggja á það að vemda kvína
fyrir veðmm þegar þar að kæmi.
Keiko er sennilega um 20 ára
gamall. Hann var fluttur í Sædýra-
safnið 1979. 1982 keypti sædýra-
safnið Marineland í Ontario í
Canada hvalinn. Þar farnaðist hon-
um ekki vel og 1985 var hann seld-
ur skemmtigarðinum
Reino Aventura í Mexík-
óborg fyrir 150 þúsund
dollara (rúmar tíu millj-
ónir króna). Keiko naut
mikillar hylli þar og
höfðaði einloim til barna,
en það var aðeins byrjunin.
Árið 1992 var hafist handa við
gerð kvikmyndarinnar „Frelsið
Willy“ í Reino Aventura. Myndin
fjallar um hval, sem óprúttnir
skemmtigarðseigendur hyggjast
drepa. Hvalurinn hænist að litlum
dreng, sem bjargar honum á síð-
ustu stundu.
Herferð í
kjölfar bíómyndar
Myndin var fmmsýnd 1993 og
sló í gegn um allan heim. I lok
myndarinnar birtist á tjaldinu
símanúmmer, sem hægt var að
hringja í endurgjaldslaust til að fá
upplýsingar um sjávarspendýr.
Fjöldi manns hringdi, en fæstir
vildu almennar upplýsingar. Afdrif
Keikos vom fólki efst í huga og þá
sérstaklega börnum. Boltinn fór
hins vegar fyrst að rúlla þegar
grein birtist í tímaritinu Life um að
hvalurinn væri sársjúkur þrátt íýr-
ir góða umönnun i Reino Áventura.
Eftir að greinin birtist tók bréfum
að rigna yfir Wamer Brothers-
kvikmyndaverið, sem hafði rakað
inn fé á myndinni. Skorað var á
kvikmyndaverið að skerast í leik-
inn og hjálpa Keiko.
Akveðið var að hefja leit að nýj-
um heimkynnum fyrir hvalinn.
Wamer Brothers fengu Earth Is-
land-stofnunina í Kalifomíu til
samstarfs árið 1994 og brátt hófust
viðræður við Oregon-sædýi-asafnið
í Newport, sem er á vesturströnd
Bandaríkjanna. Safnið uppfyllti
fjögur skilyrði. Þar var lögð
áhersla á fræðslu, nóg af ferskum,
köldum sjó, pláss fyrir stóra laug
f villtri
náttúrunni er
frumskilyrði
að geta veitt
Morgunblaðið/Karl
HÁHYRNINGURINN Keiko horfir inn um gluggann á laug sinni og
fylgist með vísindamönnum Keiko-stofnunarinnar að störfum.
Vildu
breyta
handritinu
ÞEGAR gera átti kvikmyndina
Frelsið Willy leituðu framleið-
endur myndarinnar hjá kvik-
myndaverinu Warner Brothers
víða að háhyrningi í hlutverk
Willys. Meðal annars ræddu þeir
við sædýrasafnið Seaworld í
Bandaríkjunum. Þar var erind-
inu vel tekið og buðu stjórnendur
safnsins þeim að kvikmynda að
kostnaðarlausu. Það var aðeins
eitt skilyrði: þeir vildu breyta
sögunni.
I handritinu var gert ráð fyrir
því að hvalnum Willy yrði bjarg-
að úr sædýrasafni í höndum
óþokka og sleppt út í villta nátt-
úruna. Sá endir var stjórnendum
Seaworld ekki að skapi og báðu
þeir um að handritinu yrði breytt
þannig að Willy stykki úr sæ-
dýrasafni óþokkanna í góða sæ-
dýrasafnið. Þar með var útilokað
að myndin yrði gerð í Seaworld
og framleiðendur myndarinnar
enduðu í Mexíkóborg þar sem
hvalurinn Keiko var fyrir.
Eigendur Seaworld hafa senni-
lega haft hugboð um það hvaða
áhrif myndin gæti haft og óttast
að yrði hvalur úr garðinum not-
aður í kvikmynd þar sem hann
slyppi út í náttúruna kynni að
koma upp krafa um að slíkt hið
sama yrði gert í raun og veru.
Og sú varð raunin eins og stjórn-
endur Reino Aventura-skemmti-
garðsins í Mexíkó komust að.
AUSTFIRSKUR háhyrningur fær sfld að heiman.
KEIKO gæðir sér á bráð sinni, fimm punda Kyrrahafslaxi.
og dýr ekki látin æfa sýningarat-
riði.
Enn var hins vegar langt í land.
Nú hófust miklar samningaviðræð-
ur við safnið. Umstangið í kringum
Keiko var að verða Earth Island-
stofnuninni ofviða og því var Frels-
ið Willy Keiko-stofnuninni komið á
fót. Stofnféð var fjórar milljónir
dollara (tæplega 30 milljónir
króna). Hluti fjárins kom úr vösum
Warner Brothers og fyrirtækisins
New Regency Productions, en
einnig kom tveggja milljóna doll-
ara framlag frá ónafngreindum
velunnara, sem reyndist vera
Craig O. McCaw, milljarðamær-
ingur frá Seattle, sem hyggst
skjóta upp 288 gervihnöttum til að
auðvelda símasamskipti um allan
hnöttinn fyrir árslok 2002. McCaw
hefur gefið rúmlega þrjár milljónir
dollara (rúmlega 21 milljón ki-óna)
í allt til að styðja málstað Keikos
og hefur synt í lauginni með Keiko.
„Það var andlegur hápunktur lífs
míns að vera með Keiko í lauginni,“
sagði McCaw eftir þá reynslu.
Létu hvalinn
endurgjaldslaust
I upphafi árs 1995 var tilkynnt
að Reino Aventura myndi láta
hvalinn af hendi endurgjaldslaust.
Um leið var greint frá því að reist
yrði stöð til að endurhæfa hvalinn í
sædýrasafninu í Newport. Kostn-
aður við stöðina: 7,3 milljónir doll-
I
s
í
>
\
>
i
i
i
I
i
í
i
\