Morgunblaðið - 22.02.1998, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 22. FEBRÚAR 1998 13
JjMargt fólk í Afríku fer
allra sinna ferða
fótgangandi og gervifætur
geta veitt þvi mikinn hluta
glataðrar starfsgetu aftur.W
Pálfna Ásgeirsdóttir,
yfirhjúkrunarfræðingur
á spítala Alþjóða
Hjálparsjóður Rauða kross íslands
hlúir að fórnarlömbum jarðsprengna
Á tuttugu mínútna fresti springur jarðsprengja og deyðir eða limlestir
þann sem fyrir henni verður. Flestir eru almennir borgarar, konur og
börn eru þriðjungur fórnarlambanna. Alþjóða Rauöi krossinn
veitir þeim aðhlynningu og endurhæfingu, starfrækir
gervilimaverkstæði, fræðir fólk um hættuna af þessu
voðavopni og berst fyrir banni á framleiðslu og notkun þess.
Rauði kross fslands tekur þátt í þessu starfi.
Rauða krossins f Kenía.
Örkuml á borð við það að missa fót eða handlegg dæma marga tit að lifa
fátækt. Flestir þeirra sem örkumlast hafa í mesta lagi
efni á ódýrum hækjum. Alþjóða Rauði krossinn sér
fólki fyrir gervifótum því að kostnaðarlausu.
Alþjóða Rauði
krossinn hefur
séð 70 þúsund
fórnarlömbum
jarðsprengna fyrir gervifótum og
endurhæfingu á síðustu árum, framleitt
140 þúsund pör af hækjum og sjö
þúsund hjólastóla. Það kostar um níu
þúsund krónur að sjá manni fyrir
gervifót sem dugir honum í fimm ár.
Gervifótur sem kostar um níu þúsund krðnur gerir manni kteift að
standa á eigin fótum á ný í fimm ár. Barn sem missir fót þarf á
nýjum gervifæti að halda á sex mánaða fresti á meðan það er að
vaxa úr grasi.
jjStundum finnst mér ég hafa
glatað öllu. Ég get ekki
unnið lengur og ég á tveggja
ára gamlan son. En brátt mun
ég fá gervifót og verð að
halda í vonina. W
Rauði kross fslands leitar nú til íslendinga og býður þeim að gerast
styrktarfélagar Hjálparsjóðs. Framlög þeirra á þessu ári munu renna
óskipt til aðhlynningar og endurhæfingar fórnarlamba jarðsprengna.
Rabha Hassa Assad Suydan,
21 árs, steig á jarðsprengju
og missti hægri fótinn.
Við getum gefið þeim nýja von!
RAUÐI KROSS ISLANDS
www.redcross.is