Morgunblaðið - 22.02.1998, Side 49
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 22. FEBRÚAR 1998
49
Frá Ástþóri Magnússyni:
UPPLÝSINGAFULLTRÚI banda-
ríska sendiráðsins skrifaði stríðs-
áróðursgrein í Morgunblaðið 17.
febrúar sl., þar sem hann reynir að
réttlæta glæpaverk ríkisstjórnar
sinnar með einhliða og villandi
áróðri. Hann spyr hver eigi að axla
ábyrgðina og biður um leiðbeining-
ar um hvað beri að gera varðandi
gereyðingarvopn íraka.
I fyrsta lagi er alls óvíst hvort
Irakar eigi slík vopn. í öðru lagi er
svarið mjög einfalt. Bandaríkja-
mönnum voru gefnar þessar leið-
beiningar fyrir rúmum fimmtíu ár-
um. Við höfum vitað það í áratugi
hvað beri að gera varðandi gereyð-
ingarvopn. Sú eina raunhæfa lausn í
því að losa mannkynið undan ógn
slíkra vopna kom fram í stofnsátt-
mála Sameinuðu þjóðanna um sam-
eiginlegt varnarkerfi þjóðríkjanna.
Hinsvegar voru það Bandaríkja-
menn sem hindruðu framgang um
þetta rétt eins og þeir hafa nú, eitt
fárra ríkja, neitað að skrifa undir
bann við jarðsprengjum.
Bandaríkjamenn héldu því
leyndu þar til stofnsáttmálinn var
undirritaður að þeir væru að þróa
kjarnorkuvopn. Þegar hundruð þús-
unda manna höfðu verið myrtar
með Hiroshima- og Nakasaki-
sprengjunum, eftir að vitað var að
Japanir voru að gefast upp og engin
þörf á þessum hryðjuverkum, lýsti
Truman forseti Bandaríkjanna því
yfir að þetta væri „mesta afrek sög-
unnar“. Til að skilja þessa yfirlýs-
ingu þarf að átta sig á því að hinn
raunverulegi tilgangur var ekki að
binda enda á stríðið heldur að koma
ótvíræðum yfirburðum Bandaríkj-
anna á kortið, gefa nýlenduþjóðun-
um viðvörun og setja Rússa, Breta
og Frakka á sinn stall sem annars-
flokks heimsveldi.
A sama hátt efndu Bandaríkja-
menn til Persaflóastríðsins eftir að
hafa í meira en tuttugu ár stundað
það að etja aröbum saman og selja
þeim vopn á víxl. Tilgangurinn var
að koma í veg fýrir að nokkur fylk-
ing gæti myndast sem ógnaði olíu-
hagsmunum Breta og Bandaríkj-
anna á svæðinu. Það voru Banda-
ríkjamenn sem ýttu Saddam út í
| stríðið við íran eftir að þjóðin þar í
landi gerði uppreisn gegn arðráni
I bandarískra fyrirtækja á auðlindum
| landsins. Bandaríkin lögðu Saddam
til vopn fyrir milljarða dollara á
meðan á stríðinu stóð, þar á meðal
tól og tæki til framleiðslu efna og
sýklavopna. Þegar írak var að
verða of sterkt á svellinu og Banda-
ríkin sáu fram á minnkandi áhrif sín
á svæðinu, gáfu þeir Saddam
„grænt ljós“ á innrásina í Kúveit,
m.a. með fundi sendiherra þeirra i
Kúveit með Saddam nokkrum dög-
um fyrir innrásina og eftir að mikið
| herlið var komið að landamærun-
um. Árið áður höfðu Bandaríkin
gert innrás í Panama og þar með
brotið nákvæmlega sömu alþjóðlegu
lög og Saddam gerði. Bandarískir
hermenn eru taldir hafa myrt allt
að 4.000 manns í Panama og dysjað
í fjöldagröfum. Þetta eru sögulegar
staðreyndir sem blasa við hverjum
| þeim sem kynnir sér þessi mál, m.a.
| með lestri ævisögu Colins Powell,
sem á þessum tíma var einn helsti
| samstarfsmaður Bush Bandaríkja-
forseta.
Daginn eftir innrásina í Kúveit
hófst mikill darraðardans þegar for-
seti Bandaríkjanna hóf undirbúning
eigin hernaðaraðgerða gegn Irak.
3
I
I sambandi við neytendur
frá morgni til kvölds!
- kjarni málsins!
BREF TIL BLAÐSINS
Bandarfkin vilja hengja
bakara fyrir smið
Með ýmsum mútum og hótunum
gegn öðrum ríkjum tókst að ná
„samstöðu" um aðgerðir. Ég skora
á fólk að kynna sér 140 milljarða
dollara fyrirgreiðslu til Kína frá Al-
þjóðabankanum, 7 milljarða dollara
til Rússlands, afskriftir lána Saír og
Egyptalands, breytta afstöðu um
yfirráð Sýrlands yfir Líbanon,
vopnasölu upp á 12 milljarða dollara
til Saudi Arabíu, afturköllun fyrir-
greiðslu til Jemen sem greiddi at-
kvæði gegn árásinni og greiðslu 187
milljóna dollara til Sameinuðu þjóð-
anna daginn eftir að málið var af-
greitt í öryggisráðinu.
Bandarískir hermenn notuðu
ólögleg efnavopn í Kóreu og
Víetnam. Bandaríska leyniþjónust-
an notaði sýklavopn gegn húsdýr-
um með þeim afleiðingum að
500.000 svín drápust á Kúbu árið
1971. Þetta var gert í þeim tilgangi
að grafa undan efnahag þjóðarinn-
ar. Álíka tilfelli kom upp í írak nú í
janúar af völdum stökkbreyttrar
flugu sem hvergi hefur fundist
nema allt í einu í írak, en fluga
þessi er sögð af tegund sem upp-
runnin er í Mexíkó.
Ég vil ítreka það sem ég hef áður
sagt við Bandaríkjamenn, lesið
skýrslurnar sem alþjóðanefndir
hafa gert hvað varðar öryggi mann-
kyns, þ.á m. skýrslu Palme-nefnd-
arinnar. Þar er skýrt varað við
áframhaldandi hernaðarstefnu eins
og Bandaríkin stunda, og það full-
yrt að verði ekki öllum gereyðingar-
vopnum komið undir alþjóðlega
stjóm verður mannkynið í útrým-
ingarhættu. Byrjið þið, Bandaríkja-
menn, hættið vopnasölu og leggið
ykkar vopn í sameiginlegan sjóð
undir stjóm Sameinuðu þjóðanna.
Þá fyrst eigið þið kröfu á aðrar
þjóðir til að gera slíkt hið sama. Ef
þið, hið vestræna stórveldi, ætlið
áfram að fótum troða alþjóðleg lög
og mannréttindi, þá hljótið þið að
axla ábyrgðina á þeim hryðjuverk-
um og manndrápum sem verða af-
leiðing þess að lögmál villta vesturs-
ins fái aukið gildi í heiminum.
ÁSTÞÓR MAGNÚSSON,
stofnandi Friðar 2000.
ISLENSKT
Þuntayddaö
HRASALAT
Ljúffenat .
með lambasieikinm
AUSTURSTRÆTI • BAR0NSST1G
GLÆSIBÆ • LAUGALÆK
LÁGMÚLA • SP0RHÖMRUIVI
LANGARIMA • ENGIHJALLA
SETBERGSHVERFI0G FIRÐIHAFNARFIRÐI