Morgunblaðið - 25.04.1998, Síða 57
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
LAUGARDAGUR 25. APRÍL 1998 57 *
I Sæluvika Skag-
firðinga að hefjast
Morgunblaðið/Árni Sæberg
KVARTETT Eyþórs Gunnarssonar leikur á Múlanum annað kvöld.
Sauðárkrtíkur. Morgunblaðið.
NU Á sunnudaginn hefst Sæluvika
Skagfirðinga. Löng hefð er fyrir
sæluviku og upphaf hennar má rekja
j til sýslufunda þehTa sem haldnir
t voru hér á hverju vori.
Stærstu viðburðirnir eru frumsýn-
I ing Leikfélags Sauðárkróks á ís-
lensku leikrití eftir Jón Ormar
Ormsson og dægurlagakeppni kven-
félagsins. Eftnfremur er bryddað
upp á nýjungum svo sem Safnadegi í
Skagafirði, fyrir unglingana verður
bæði ljósmyndamaraþon og ung-
lingaball.
Dagskrá Sæluviku:
; Sunnudagur 26. apríl; Messa í
Sauðárkrókskirkju. Opnun sæluviku
4 - opnun tréskurðarsýningai- í safna-
húsi kl. 15. Sýningin verður opin alla
vikuna. Leikfélagið frumsýnir nýtt
íslenskt leikrit „Sporið er tangó“ eft-
ir Jón 0. Ormsson kl. 21 og tónleikar
í Bóknámshúsi Fjölbrautaskólans
þar sem Kór Fjölbrautaskólans á
Norðurlandi vestra kemur fram kl.
21.
i Mánudagur 27. apríl; Myndlistar-
sýning barna á leikskólanum Glað-
I heimum frá kl. 9-11 f.h. og kl. 15-17
^ e.h. Sýningin verður opin alla vikuna
á sama tíma. Kirkjukvöld verður í
Sauðárkrókskirkju kl. 20.30 og
Danskir dagar á Kaffi Ki-ók.
Þriðjudagur 28. apríl; ífur, menn-
ingar- og framfarafélag kvenna í
Skagaftrði verða með menningar-
dagskrá í Bóknámshúsi Fjölbrauta-
skólans á Sauðárkróki kl. 20.30.
J Fyrsta kvik-
mynd Níkita
Mikhalkovs sýnd
í biösal MÍR
KVIKMYNDIN með langa nafninu
| „Einn af okkur meðal ókunnugi-a,
. ókunnugur okkar á meðal“ verður
" sýnd sunndudaginn 26. apríl kl. 15 í
4 bíósal MÍR, Vatnsstíg 10. Mynd
þessi er merkileg að því leyti að
hún er fyrsta kvikmyndin fullrar
lengdar sem Nikita Mikhalkov leik-
stýrði en þessi rússneski leikstjóri
og leikari hefur nú um árabil verið
talinn í hópi fremstu kvikmynda-
gerðarmanna í heimi, segir í frétta-
tilkynningu.
{ Myndin var gerð 1974 og segir
á frá atburðum sem gerðust á tímum
| borgarastyi'jaldarínnar í Rússlandi
f eftir októberbyltinguna 1917. Þá
var matarskortur mikill í landinu
og komvörur fengust ekki keyptar
frá útlöndum nema gegn greiðslu í
skíra gulli. Segir frá því í kvik-
myndinni, er vænn sjóður af gulli
er sendur með lest frá Moskvu
vegna kornkaupa en á leiðinni sitja
hvítliðar fyrir lestinni og ræna gull-
j inu.
i Skýi-ingar með myndinni eru á
4ensku. Með aðalhlutverk fara Júrí
Bogatýrev og Anatóli Solonitsin.
Aðgangur að kvikmyndasýning-
unni er ókeypis og öllum heimill.
Vortónleikar
Karlakórs
i Selfoss
( VORTÓNLEIKAR Karlakórs Sel-
4 foss verða haldnir í Þorlákskirkju,
Þorlákshöfn, sunnudaginn 26. apríl
kl. 16.
Söngstjóri er Ólafur Sigurjóns-
son og Helena R. Káradóttir undir-
leikari.
Tónleikar í
Hjallaskóla
4 TVÆR skólahljómsveitir halda tón-
" leika í sal Hjallaskóla í Kópavogi
Miðvikudagur 29. apríl; Djass með
Andreu Gylfadóttur kl. 21 á Kaffi
Krók.
Fimmtudagur 30. apríl; Karlakór-
inn Heimii' með tónleika í Bóknáms-
húsinu kl. 20.30. Ljósmyndamaraþon
í Félagsmiðstöðinni Friður. Hljóm-
sveitin 200.000 naglbítai' á Kaffi Krók
- Félagsmiðstöðin Friður. Hótel
Mælifell verður opið frá kl. 11-01.
Föstudagur 1. maí; Sýning og
verðlaunaafhending í ljósmynda-
mai-aþoni félagsmiðstöðvar. Dægur-
lagakeppni Kvenfélags Sauðárkróks
í íþróttahúsinu kl. 21, barnasýning
kl. 16. Skagfii'skt matarkvöld og
dansleikur með hljómsveitinni
Spútnik á Kaffi Krók. Hótel Mælifell
opið frá kl. 11-03 og þar verður
diskótek. Itölsk helgi á Pollinum,
gestakokkur frá La Primavera,
Hilmar Sverrisson og Eva Ásrún
skemmta.
Laugardagur 2. maí; Kórakvöld
með Karlakórnum Heimi, Rökkur-
kórnum, Samkór Suðurfjarða og
Karlakór Rangæinga verður í Mið-
garði, dansleikur með Geirmundi að
lokinni skemmtun. Dansleikur með
Hunangi á Kaffi Krók, „drag-
keppni" á Hótel Mælifelli, ítölsk
helgi á Pollinum og Safnadagur í
söfnum Skagafjarðar.
Sunnudagur 3. maí; Sýning í
Safnahúsi - kvikmyndasýningar.
Auk þessa eru kvikmyndasýning-
ar í Bifröst alla vikuna þar sem
sýndar verða m.a. Titanic, Herkúles,
Spice World og Good Will Hunting.
laugardaginn 25. apríl. Þar leiða
saman tóna sína Skólahljómsveit
Selfoss og Skólahljómsveit Kópa-
vogs.
Á tónleikunum flytja nemendur á
aldrinum 9-16 ára fjölbreytta tónlist
í þremur hópum og sameinast síðan
í lok tónleikanna í nokkrum lögum.
Tónleikarnir hefjast kl. 16 og er að-
gangur ókeypis. Stjórnendur hljóm-
sveitanna eru Bragi Vilhjálmsson
og Össur Geirsson.
1. umferð Is-
landsmeistara-
mótsins í smá-
bílakeppni
1. UMFERÐ Aðalskoðunar hf. árið
1998 hefst á sunnudag. Keppt er á
planinu fyrir framan Aðalskoðun á
Helluhrauni í Hafnarfirði og er öll-
um heimilt að fylgjast með keppn-
inni sem hefst kl. 11 um morguninn
og stendui' fram eftir degi.
Smábílarnir eru fjarðstýrðir
módelbílar sem ganga annaðhvort
fyrir rafmagni eða bensíni. Keppt
er í þremur flokkum í smábílaakstri
allt eftir stærð og gerð bílanna, raf-
magnsbflaflokki, bensínbílaflokki og
Scale Touring 4WD flokki. Þetta er
fyrsta keppnin af þremur sem verð-
ur í sumar á Helluhrauni hjá Aðal-
skoðun, sem heldur keppnina í sam-
vinnu við Smábílaklúbb Islands og
gildir hver þeirra til stiga vegna Is-
landsmeistaratitils.
Áhorfendur eru beðnir um að
sýna sérstaka aðgæslu við Hellu-
hraunið þennan dag, segir í frétttil-
kynningu.
Fyrirlestri
frestað
FYRIRLESTRAR á vegum Holl-
vinafélags læknadeildar og Holl-
vinafélags heimspekideildar á liðn-
um vetri hafa notið mikilla vin-
sælda, segh' í fréttatilkynningu.
Framhald verður á þessari starf-
semi, en ákveðið hefur verið að
fresta fyrirlestri Önnu Agnarsdótt-
ur dósents og málþingi um stöðu
læknisfræðinnar sem halda átti
laugardaginn 25. apríl til haustsins.
Djass i Múlanum
Kvartett
Eyþórs
Gunnars-
sonar leikur
KVARTETT Eyþórs Gunnarsson-
ar leikur djass í Múlanum á 2.
hæð Sólon Islandus annað kvöld,
sunnudaginn klukkan 21.
Kvartettinn skipa auk Eyþórs,
sem leikur á píanó, Þórður
Högnason, kontrabassa, Matthías
Hemstock trommuleikari og
Hilmar Jensson, saxófónleikari.
Á efnisskránni verður hefð-
bundinn djass, einkum þekkt
djasslög með hefðbundnu kvart-
ettsniði.
Opið hús Við-
skiptaháskólans
VIÐSKIPTAHÁSKÓLINN í
Reykjavík mun kynna starfsemi
sína á „Opnu húsi“ laugardaginn 25.
apríl 1998. Kynningin fer fram í
Verzlunarskóla Islands, Ofanleiti 1,
kl. 14-17.
Kennsla hefst í nýju húsi Við-
skiptaháskólans í Reykjavík í sept-
ember í haust. Kennt verður í
tveimur deiidum; Tölvufræðideild
og Viðskiptadeild. Tölvufræðideild-
in er framhald af Tölvuháskóla
Verzlunarskóla íslands sem hefur
verið starfræktur í 10 ár. Kennsla í
Viðskiptadeild er nýmæli, segir
fréttatilkynningu.
Getraun Borg-
arskjalasafns
DREGIÐ hefur verið í getraun sem
Borgarskjalasafn Reykjavíkur
gekkst fyi'ir á Kynningardegi
skjalasafna 28. mars sl. Vinnings-
hafar eru: Birna Dís Birgisdóttir,
Halldór Jónsson og Selma Frið-
geirsdóttir.
Almennur borg-
arafundur hjá
Samtökum um
þjóðareign
SAMTÖK um þjóðareign boða til al-
menns borgarafundar á Grand
Hótel Reykjavík sunnudaginn 26.
apríl kl. 16 til 18. Fundarefni er:
Siðblindan, Landsbankinn og sam-
eignir þjóðarinnar.
Fi-ummælendur eru m.a. Jó-
hanna Sigurðardóttir, alþingismað-
ur og Bárður Halldórsson, mennta-
skólakennari og fræðimenn á sviði
siðfræði og stjómmála. Bubbi
Morthens frumflytur á fundinum
nýtt lag um sameign þjóðarinnar.
Fundarstjóri er Ágúst Einarsson,
alþingismaður.
I fréttatilkynningu segir: „Á
fundinum verða 10-15 mínútna
framsögur og síðan almennar fyrir-
spurnir og svör. Bárður Halldórs-
son er einn af upphafsmönnum
Samtaka um þjóðareign. Hann mun
m.a. fjalla um hvort sambærilegt
siðferði ríki í bankarekstri, úthlutun
aflaheimilda og nýtingu miðhálend-
isins. Jóhanna leysti umræðuna um
siðblinduna úr læðingi og hún mun
m.a. taka fyrir spurninguna um
næstu skref í siðvæðingu."
Steinunn Helga-
dóttir sýnir í
Haukshúsum
STEINUNN Helgadótth' myndlist-
armaður sýnir í dag og á morgun í
Haukshúsum á Álftanesi. Sýningin
er opin kl. 14-18 báða dagana en það
er Lista- og menningarfélagið
Dægradvöl sem stendur fyrir sýn-
ingunni.
Steinunn nam við Myndlista- og
handíðaskóla Islands 1985-1986 og í
Gautaborg 1986-1990. Auk sýninga á
ýmsum stöðum hér á landi hefur hún -
hadið einkasýningar í Gautaborg,
Stokkhólmi og London og tekið þátt
í mörgum samsýningum.
Hún hefur hlotið margvíslegar
viðurkenningar, m.a. starfslaun lista-
manna í Svíþjóð, og verk hennar eru
í eigu ýmsissa opinberra og einkaað-
ila þar í landi.
Steinunn er nú búsett á Álftanesi
og er þetta fyrsta sýning hennar á
heimaslóð.
Merkjasala
Björgunar-
sveitar Ingólfs
ÁRLEG merkjasala Björgunarsveit-
ai' Ingólfs í Reykjavík stendur til 26.
aprfl. Sölubörn ganga í hús og bjóða
merki Björgunarsveitarinnar til sölu
og mun það kosta 200 kr.
Merkjasalan er ein af helstu fjár-
öflun Björgunarsveitar Ingólfs sem
er ein af 90 björgunarsveitum Slysa-
varnafélags Islands.
Björgunarsveitin Ingólfur er eina
björgunarsveitin í Reykjavík sem
sinnii' bæði sjó- og landbjörgun og
sinnti hún u.þ.b. 40 útköllum á síð-
asta ári. Einnig starfrækir hún einn
af fjói-um undanfarahópum sem
starfræktir eru innan björgunar-
sveita á höfuðborgarsvæðinu, segir í
fréttatilkynningu.
Fyrirlestur
um jarðfræði
Melrakkaslóttu
FRÆÐSLUFUNDUR HIN verður
haldinn mánudaginn 27. apríl kl.
20.30. Fundurinn verður haldinn í
stofu 101 í Odda, Hugvísindahúsi
Háskólans. Á fundinum flytur Hall-
dór Pétursson, jarðfræðingur á
Náttúrufræðistofnun íslands, Akur-
eyrarsetri, erindi sem hann nefnir:
Jarðfræði Melrakkasléttu.
í erindi sínu mun Halldór fjalla
um jarðfræði Melrakkasléttu en
hann hóf rannsóknir sínar í kjölfar
Kópaskersskjálftanna árið 1976. Við
jarðskjálftann hreyfðust brotalínur
sprungukerfisins sem liggur eftir
endilangri vesturströnd Melrakka-
sléttu en á þessu sprungukerfi var
töluverð eldvirkni á seinni hluta síð-
(
asta jökuskeiðs. Þá gaus ekki aðeins
undir jökli heldur runnu þar hraun
þegar jöklar voru litlh'. Eru þessi
ungu en jökulnúðu hraun víða að
finna nyrst á Melrakkasléttu.
Þá verður einnig fjallað um set-
lagsmyndir frá lokum síðasta jökul-
skeiðs en þær eru mjög algengar á
vestursti’önd Melrakkasléttu. Flest
mynduðust þessi setlög við samspil
hárrar sjávarstöðu og jökulframrás-
ar fyrir u.þ.b. 13-12000 árum (B.P.)
en á Melrakkasléttu fmnast merki
um hvað hæstu og elstu sjávarstöðu
hérlendis í ísaldarlok. Auk þess verð-
ur nokkuð fjallað um hopunarsögu
ísaldarjökulsins á Melrakkasléttu og
eldvirkni og brotahreyfingar í byrj-
un nútíma.
Fræðslufundir félagsins eru öllum
opnir og aðgangur ókeypis.
Styrktarfélag
vangefínna
40 ára afmæli
- Opin hús
í TILEFNI af 40 ára afmæli Styrkt-
arfélags vangefinna verða eftirtalin
heimili félagsins opin sem hér segir:
Bjarkarás, Stjörnugróf 9, laugar-
daginn 25. aprfl kl. 14-17, Lækjarás,
Stjörnugróf 7, laugardaginn 16. maí
kl. 14-17 og Lyngás, Safamýri 5,
laugardaginn 23. maí kl. 14-17.
Fólk er boðið velkomið að kynna
sér starfsemi og aðstæður þessara
heimila félagsins og þiggja veitingar.
Burtfararpróf
í Fella- og
Hólakirkju
TÓNLEIKAR verða haldnir á veg-
um Tónlistarskólans í Reykjavík í
Fella- og Hólakirkju í dag, laugar-
daginn 25. apríl, kl. 17. Tónleikarnir*
eru burtfararpróf Áka Ásgeirssonar
trompetleikara frá skólanum.
Kreistinn Örn Kristinsson leikur
með á píanó.
Auk þeirra koma fram Helga A.
Jónsdóttir, blokkflauta, Kristín Lár-
usdóttir, selló, Hallveig Rúnarsdótt-
ir, sópran, og Steingrímur Þórhalls-
son, orgel.
Námskeið í gerð
brúðarvanda
GARÐYRKJUSKÓLI ríkisins,
Reykjum í Ölfusi, býður upp á
tveggja daga námskeið í gerð brúð-
arvanda þriðudaginn 5. og miðviku- ^
daginn 6. maí nk.
Námskeiðið er ætlað starsfólki í
blómabúðum. Uffe Balselv, blóma-
skreytingameistari og leiðbeinandi á
námskeiðinu, mun kenna mismun-
andi gerð brúðarvanda, bæði í oasis
og handbundna. Hann mun einnig
leggja sérstaka áherslu á tækni.
Námskeiðið stendur frá kl. 9-17 báða
dagana. Skráning og nánari upplýs-
ingar fást á skrifstofu Garðyrkju-
skólans.
LEIÐRÉTT
Nafn féll niður
í MYNDARTEXTA með frásögn
Morgunblaðsins í gær af opnun sýn-
ingar á íslenskri málaralist 20. aldar
í Nútímalistasafninu í Hong Kong
féll niður nafn Ólafs Egilssonar
sendiherra. Beðist er afsökunar á
þeim mistökum.
Vantaði nafn
í FRÉTT á bls. 6 sl. laugardag, um
samninga Samskipa og Islenska
járnblendifélagsins, féll niður nafn
Helga Þórs Ingasonar, verkfræð-
ings hjá íslenska járnblendifélag-
inu, sem á myndinni sést á milli for-
stjóra félaganna. Beðist er velvirð-
ingar á mistökunum.
Nafn féll niður
í MYNDARTEXTA í blaðinu í
fyrradag með frásögn af byggingu
bæjar Eiríks rauða á Grænlandi féll
niður nafn Páls Sigurjónssonar, for-
stjóra Istaks, annars þeirra sem
undirrituðu samninginn. Er beðist „
afsökunar á þessum mistökum.