Morgunblaðið - 10.05.1998, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 10.05.1998, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10. MAÍ 1998 17 ÍÞRÓTTIR standa andspænis þrítugum hamri! Hafi aðdáendui- Arsenal verið ef- ins, hvað var þá enska pressan? Of- an í þann hákarlskjaft fékk Frakk- inn fljótt að stara! Öll spjót stóðu á honum. Það var engu líkara en pressan og Gróa á Leiti hefðu tekið höndum saman um að flæma hann á brott. Ótrúlegustu hlutum var varp- að fram og aurnum óspart slett yfir aumingja manninn. Mannorð Wen- gers var í húfi er einkalíf hans, sem hann hafði til þessa átt í friði, opnað upp á gátt. En leikurinn gekk of langt. Asakanirnar reyndust ekki á rökum reistar og smám saman náði Wenger áttum - og sneri vöm í sókn. Þeirri sókn lauk skjótt með yfirburða sigri Frakkans. Enskir fjölmiðlar bera Wenger nú á höndum sér - hann er einn eft- irlætis viðmælenda þeirra. „Þakka þér fyrir samstarfið í vetur, þú hef- ur verið einstaklega viðmótsþýður og greiðvikinn. Þegar allt kemur til alls finnst okkur þú vera frábær ná- ungi,“ sagði blaðamaður nokkur eft- ir einn af síðustu leikjum Arsenal í deildinni á dögunum. Wenger var augljóslega upp með sér en áréttaði að hann liti á það sem hluta af starfi sínu að greiða götu fjölmiðla. Wenger var ekki jafn blíður á manninn í nóvember 1996 þegar tröllasögurnar um meinta skugga- hlið hans gengu sem hæst. „Eg hafði verið varaður við ensku press- unni en átti ekki von á neinu í lík- ingu við þetta,“ sagði hann í viðtali við Gunners Magazine, þáverandi málgagn Arsenal. „Þetta er fárán- legt. Eg er í opinberu starfi, þannig að menn geta dæmt störf mín opin- berlega, en hafa enga heimild til að skipta sér af lífi mínu með þessum hætti.“ í viðtalinu skellti Wenger skuld- inni að stórum hluta á gulu press- una og svokallaða „rannsóknar- blaðamenn", sem voru, þegar upp var staðið, ekki meiri bógar en svo, að þeir höfðu engar sannanir í höndunum. Þeir urðu því að éta orð sín ofan í sig og biðjast afsökunar opinberlega. Meðan á blæstrinum stóð bifaðist Wenger hvergi - vann sína vinnu eins og ekkert hefði í skorist. „Mér þykir leitt að valda þessu fólki von- brigðum, en ég er afskaplega venju- legur maður,“ sagði hann í um- ræddu viðtali. „Þegar ég lít í spegil- inn að kveldi, þekki ég mig. Eg er ekki haldinn óeðh, hef ekki komist í kast við lögin og á ekki í fjárhags- vanda. Eg er bara hugfanginn af knattspymu - í því, og aðeins því, er sekt mín fólgin!“ Orðheppni Frakkans, yfirvegun og umburðarlyndi öfluðu honum margra aðdáenda, ásamt auðvitað góðu gengi Arsenal, sem þótti leika skemmtilega knattspyrnu og var lengst af í toppbaráttu úrvalsdeild- arinnar. Leikmenn báru honum vel söguna, ungir sem aldnir. Hæfni hans var öllum ljós. Sömu aðferðir og áður Það sést ekki síst á hinni gamal- reyndu varnarh'nu Arsenal, sem sjaldan hefur leikið betur en í vetur, þótt hún sé öll komin á fertugsald- urinn. Tony Adams, Steve Bould, Martin Keown, Lee Dixon og Nigel Winterburn hafa öðlast nýtt líf - eru sem unglingar. Þetta þakka þeir Wenger og þjálfunaraðferðum hans, breyttu mataræði, sem Frakkinn innleiddi, og hungrinu sem hann hefur blásið þeim í brjóst. Hjá Arsenal hefur Wenger haldið sig við sömu aðferðir og áður. Stöpl- ar hans eru ástundun og nostur við smáatriði. „Eg reyni að leggja meira á mig en allir aðrir. Kem helst ekki upp á yfirborðið til að anda. Ég er alltaf í vinnunni,“ segir Wenger og Laurent Viaud, leikmað- ur Rennes, sem í eina tíð lék undir stjórn hans, tekur upp þráðinn: „Hann gefur öllu gaum, jafnvel minnstu smáatriðum. Hvað menn borða og drekka fyrir leik, hvíld og jafnvel hollustuháttum hvers og eins. Höfum við haldið að við vær- um atvinnumenn í íþróttinni, kom hann okkur í skhning um merkingu orðsins!" Gamli áhugamaðurinn er orðinn holdgervingur atvinnumennskunn- ar! „Starf þjálfarans er ætíð hið sama, bara með ólíku fólki,“ segir Wenger sjálfur um starf sitt. „Vandinn er að koma og fara á rétt- um tíma. Það má líkja þessu við ást- arsamband - fólk er misánægt með- an á því stendur og mislengi að jafna sig þegar því er lokið.“ Ekkert bendir til þess að ástar- sambandi Wengers og Arsenal ljúki í bráð. „Ég er sannfærður um að þetta er aðeins fyrsti meistaratitill- inn af mörgum undir stjórn Wen- gers og hvað mig varðar má hann vera hér eins lengi og hann vill,“ sagði stjómarformaður félagsins, Peter Hill-Wood, þegar titillinn var í höfn. „Hann er ekki aðeins ffábær þjálfari og knattspyrnustjóri, held- ur jafnframt slægur í viðskiptum. Stjórn félagsins tekur tillit til hans álits.“ Það er meira en sagt verður um forvera Wengers í starfi, Bruce Rioch, sem lenti í öngstræti vegna samskiptaörðugleika við stjómina. Núgildandi samningur Wengers rennur út á næsta ári en heyrst hef- ur að nýr samningur sé tilbúinn til undirritunar eftir bikarúrslitaleik- inn við Newcastle United um næstu helgi. Ku hann gilda til ársins 2003 og vera Wenger afar hagstæður. Það er að bera í bakkafullan læk- inn að hæla meistaraliði Arsenal. Félagið hefur ekki í annan tíma ver- ið hlaðið slíku lofi, nema ef vera skyldi á fjórða áratugnum þegar það var svo til einrátt í ensku knatt- spymunni. Ljóst er að Wenger hef- ur unnið mikið afrek. Hann er ekki aðeins fyrsti erlendi knattspyrnu- stjórinn til að lyfta enska meistara- bikarnum, heldur hefur hann jafn- framt, í skjóli Bosman-reglunnar, sett saman fyrsta meistaraliðið, sem að hálfu leyti er byggt á útlending- um. Draumurinn var að setja saman lið sem skartaði því besta úr báðum heimum, festu og leikgleði Englend- inganna, og mýkt og sköpunarhæfni meginlandsins. Svo virðist sem það hafi tekist. Vömin, sem fyrr var skjölluð, vann þegar í stað hug og hjarta Wengers - hún og markvörðurinn David Seaman era grunnurinn. Við af henni tekur miðjan, sem margir segja athyglisverðustu blöndu sem sést hafi um árabil í ensku knatt- spyrnunni. Englendingurinn og vinnsluhesturinn Ray Parlour, enn eitt dæmið um kænsku Wengers, er hægra megin. Leikmaður sem virt- ist staðnaður en hefur sprangið út í vetur, jafnvígur í vöm og sókn. Á miðri miðjunni vinna þeir sem einn maður, Frakkamir Patrick Vieira og Emmanuel Petit. Era þeir, að öðram ólöstuðum, helsta forsenda skeiðsins mikla sem Arsenal tók eft- ir áramót. Á vinstri vængnum koma menn, ef heppnin er með þeim, síð- an auga á Hollendinginn Marc Overmars. Hraði hans, leikni og snerpa hafa skilið ófáar varnirnar eftir í sáram í vetur. Og hann er enn að finna fjölina sína! Landi hans, framherjinn Dennis Bergkamp, var valinn leikmaður ársins í Englandi, bæði af blaðamönnum og knatt- spymumönnum. Um hann þarf ekki að fjölyrða, hann hefur hreinlega boðið lögmálum knattspyrnunnar birginn! Við hlið hans hafa ýmist verið Ian Wright, markahæsti leik- maður Arsenal frá upphafi vega, eða franski unglingurinn Nicolas Anelka, belgfullur af snilld, sem á vísast eftir að njóta sín enn betur síðar. Af varaskeifum má nefna Líber- íumanninn Christopher Wreh, Frakkann Gilles Grimandi, Eng- lendingana Stephen Hughes, David Platt og Matthew Upson, Austur- ríkismanninn Alex Manninger og Portúgalann Luis Boa Morte. Sann- arlega fjölþjóðlegt lið, sem í fram- tíðinni á hugsanlega eftir að verða minnisvarði um það þegar veggur- inn féll í ensku knattspymunni - þegar mæri landa vora máð út! Hugljómun! Kannski era orð Wengers, sem gerir ekki mikið úr því að hann sé útlendingur í ensku knattspym- unni, í tíma töluð: „Það er alltaf erfitt að gera sér í hugarlund hvaða augum fólk lítur mann en persónu- lega finnst mér ég frekar vera knattspymustjóri sem ann knatt- spyrnu, heldur en knattspyrnustjóri af öðra þjóðemi. Þjóðemi mitt er knattspyma!“ Það sætir ekki furðu að fjölmiðlar hafi vegsamað Arsenal og stuðn- ingsmenn ótrúlegustu liða snúist á sveif með þeim í baráttunni við Manchester United. Þannig klöpp- uðu fylgismenn Bamsley leikmönn- um Ársenal lof í lófa eftir leik lið- anna á Oakwell á dögunum, jafnvel þótt tap þýddi að þeirra menn væru dæmdir til að falla í 1. deild. Stjóm- arformaðurinn, John Dennis, hafði orð fyrir þeim: „Arsenal er knatt- spymunni til sóma. Leikmennimir bera knattspyrnustjóranum og fé- laginu í heild fagurt vitni. Það var hugljómun að horfa á þá leika!“ Hvort þessi orð era sem töluð út úr ensku þjóðarsálinni, skal ósagt látið. Það lætur þó nærri. Orð eins og „boring" og „lucky“ era ekki lengur til í orðabók Arsenal-aðdá- enda. Þess í stað eru ummæli á borð við það sem Dennis lét eftir sér hafa orðin einkunnarorð hins „nýja Ar- senal“ og þau vilja stuðningsmenn liðsins heyra aftur og aftur... Vor íhöí VISÁ i Kaupmannahöfn Helgarferð 21. - 24. Far- og Gullkorthöfum VISA gefst nú tækifæri til aö heim- sækja gömlu höfuðborgina okkar, Kaupmannahöfn, og upp- lifa danska vorið í sinni fegurstu mynd. Helgarferð til Kaup- mannahafnar er upplögö tilbreyting frá amstri dagsins og hagkvæm leið til að heimsækja ættingja og vini. Ekki þarf að taka mikiö af sumarleyfinu, því brottför er á fimmtu- dagsmorgni (Uppstigningardagur) og heimkoma á sunnu- dagskvöldi. Samvinnuferðir-Landsýn aðstoöa viö að bóka gistingu og bílaleigubíl. Verð aðeins 15.900kr fyrir Far- og Gullkorthafa VISA Innifaliö: Flug báöar leiöir, skattar og gjöld. maí 8i o
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.