Morgunblaðið - 27.06.1998, Síða 2

Morgunblaðið - 27.06.1998, Síða 2
2 LAUGARDAGUR 27. JÚNÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Gerðardómur segir riftun verktakasamnings við Guðjón Þórðarson ólögmæta ÍA dæmt til að greiða Guðjóni rúmar þrjár milljónir króna GERÐARDÓMUR hefur komist að þeirri nið- urstöðu að riftun verktakasamnings Knatt- spymufélags IA við Guðjón Þórðarson, þjálfara landsliðs karla í knattspymu, í byrjun desember 1996 hafí verið ólögmæt. Stjóm félagsins rak Guðjón, sem þá var knattspymuþjálfari þess, þar sem hann hefði vanrækt starfsskyldur sínar við félagið en samningur hans átti að koma til endurskoðunar haustið 1997. í niðurstöðu gerð- ardóms segir hins vegar að Guðjón hafi ekki brotið neitt af sér sem réttlætti brottrekstur. Félagið er þar með dæmt til að greiða Guðjóni rúmar 3 milljónir króna í bætur auk málskostn- aðar. Niðurstaða gerðardómsins er endanleg. Guðjón Þórðarson landsliðsþjálfari vildi í samtali við Morgunblaðið í gær ekkert tjá sig um niðurstöðu gerðardómsins að öðru leyti en þvi að hann væri sáttur við hana. Gylfi Þórðar- son, formaður Knattspyrnufélags LA, vildi á hinn bóginn ekkert tjá sig um dóminn. Guðjón Þórðarson, Rnattspymufélag IA og Rnattspymusamband Islands (RSI) komust að samkomulagi um að skipa gerðardóm í byrjun júlí á síðasta ári til að útkljá deilumál Guðjóns og knattspymufélagsins vegna starfsloka hans hjá félaginu. Fyrrgreindur dómur féll síðan í fyrradag. Forseti gerðardóms var Sigurður G. Guðjóns- son hrl., en meðdómendur vom Björgvin Þor- steinsson hrl. og Andri Árnason hrl. Jónas Aðal- steinsson hrl. var lögmaður Rnattspymufélags ÍA og Jón Gunnar Zoéga hrl. var lögmaður Guð- jóns. Landsvirkjun } Staðan metin 1 á ný í lok júlí STJÓRN Landsvirkjunar var upp- lýst í gær um stöðu vatnsbúskapar við virkjanir fyrirtækisins og þær aðgerðir sem hugsanlega þarf að grípa til vegna skömmtunar til | ákveðinna orkukaupenda. Halldór Jónatansson, forstjóri Landsvirkjunar, tjáði Morgunblað- I inu í gær að eftir nýjar mælingar og athuganir á ýmsum þáttum vatns- búskaparins í lok júlí yrði afráðið hvort og að hve miklu leyti gripið yrði til skerðingar. Sagði forstjór- inn að ástandið hefði verið kynnt viðskiptavinum fyrirtækisins og þeir varaðir við. Hann sagði þessar viðvaranir almennt hafa mætt skiln- ) ingi þeirra. . Sigurður Gizurarson hættur sem sýslumaður Hyggst opna lögmannsstofu SIGURÐUR Gizurarson sýslu- maður á Akranesi mun ekki taka við nýju embætti sýslumanns Strandasýslu 1. júlí. Hefur hann ákveðið að þiggja ekki flutning í sýslumannsembættið á Hólmavík og stefnir að opnun eigin lög- mannsskrifstofu í Reykjavík á næstu vikum. „Ég tók þá ákvörðun að þiggja ekki starfið á Hólmavík. Þessi ákvörðun var kannski ekki erfið eftirá en það er viss léttir sem henni fylgdi," sagði Sigurður í samtali við Morgunblaðið í gær. Sigurður tók við bæjarfógeta- embættinu á Akranesi árið 1985 en þvi var breytt í sýslumannsemb- ætti árið 1992. ,Áður en ég hóf sýslumannsferil minn rak ég lög- mannsskrifstofu frá árinu 1969 til 1974. Það gaf mér dýrmæta reynslu sem ég hef alla tíð búið að. Nú þarf maður að taka áhættu og víst að launin verða ekki há í byrj- un. Hins vegar nýt ég minna lög- bundnu starfslokakjara samkvæmt stjómarskránni sem þýðir að ég fæ 85% af sýslumannslaununum til æviloka eða 180.000 krónur. Þá met ég það þannig að ég muni fá næg verkefni í framtíðinni og það skaðar ekki að dómsmálaráðuneyt- ið hefur kynnt nafn mitt vel.“ Þrátt fyrir að Sigurður muni láta af sýslumannsembætti er deilum hans við dómsmálaráðuneytið ekki lokið. Hann hefur stefnt dóms- málaráðherra vegna ólöglegrar ákvörðunar hans um nauðungar- flutning til Hólmavíkur og vegna rangrar áminningar hans í sinn garð vegna ÞÞÞ málsins. Að auki mun hann stefna ráðherra fyrir „stimpilklukkuaðfórina" árið 1994. Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson MIKLA vinnu er nú að fá f Vestmannaeyjum en þar var meðal annars unnið að samsetningu sjókvíar Keikós í gær og þykir verkið sækjast vel. Leiðari um Sigurðarmáiið í Stavanger Aftenblad Komum ekki svona fram við góða granna STAVANGER Aftenblad í Noregi birti í vikunni forystugrein um sýknu skipstjóra og útgerðar Sig- urðar VE fyrir áftýjunarrétti á Hálogalandi. I leiðaranum, sem ber fyrirsögnina „Sett ofan í við Nor- eg“ er sýknudómnum fagnað, enda hafi viðbrögð norskra stjómvalda við mistökum áhafnarinnar á Sig- ui'ði verið alltof hörð. í greininni er rakið hvemig skip- verjar á Sigurði hafi gert þau mis- tök, er þeir vora að löglegum veið- um í lögsögu Jan Mayen, að slá ekki inn landsnúmer Noregs er þeir sendu frá sér veiðitilkynningar um bréfsíma. „Þetta þótti norskum stjómvöldum svo alvarlegt að þau lögðu allháar sektir á bæði skip- stjórann og útgérðina, sem síðar vom staðfestar í héraðsdómi," skrifar leiðarahöfundur blaðsins. Hann segir að sem betur fer hafi íslendingamir verið sýknaðir í áfrýjunarrétti. „Burtséð frá því hvort þeir hefðu átt að læra betur á gervihnattakerfið áður en þeir sigldu inn í lögsöguna var málið svo lítilfjörlegt að það réttlætti ekki svo hörð viðbrögð af hálfu Norð- manna. Vonandi hafa norsk stjórn- völd lært af málinu. Svona kemur maður ekki fram við góða granna!" Vinnuafl vantar: AÐ SÖGN Guðjóns Hjörleifsson- ar, bæjarsfjóra í Vestmannaeyj- um, er nú skortur á vinnuafli í bænum. „Siðan ég byijaði sem bæjarstjóri fyrir átta árum hefur aðstoð bæjarins við ráðningu skólafóiks aldrei verið minni. Hingað til höfum við verið að grípa til aðgerða fyrir þá sem ekki fengu vinnu á hinum al- menna vinnumarkaði en nú eru aðrir tímar. Það er ljóst að það er mikið um að vera hjá fyrirtækj- unum í bænum og ég held að at- vinnuleysisdagar hafí aldrei verið Eyjumj færri. Ef fram fer sem horfir þurfum við að auglýsa eftir vinnuafli „ofan“ af landi.“ Aðspurður segir hann hið góða atvinnuástand ekki tengjast komu háhyrningsins Keikós nema þá óbeint. „Vissulega var ákvörð- unin um komu hvalsins góð við- bót fyrir bæjarlífið og mörg handtökin sem tengjast því. T.d. mun dýpkun víkurinnar hefjast á , morgun og þá verður ráðinn mannskapur til að vinna að upp- setningu kvíarinnar á næstu vik- um. Sérblöð í dag HM '98 á Netinu www.mbl.is Anderton og Beckham tryggðu enskan sigur/B1 Markvörðurinn og markakóngurinn efstir/B4 ÁLAUGARDÖGUM I "C1 LljaDl>n

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.