Morgunblaðið - 27.06.1998, Síða 4
4 LAUGARDAGUR 27. JÚNÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Nefnd samgöngnráðherra leggur fram tillögur í
tengslum við tónlistarhús
Ráðstefnumiðstöð í
miðbæ Reykjavíkur
HALLDÓR Blöndal samgönguráðherra kynnir niðurstöður nefhdarinnar.
HAGKVÆMT er að byggja ráð-
stefnumiðstöð í tengslum við bygg-
ingu tónlistarhúss. Æskilegast er
að þessi miðstöð verði staðsett í eða
við miðbæinn, við byggt eða óbyggt
hótel. Þetta er niðurstaða nefndar
sem samgönguráðherra skipaði í
júlí 1997 til að kanna hvort hag-
kvæmt sé að byggja upp ráðstefnu-
miðstöð í tengslum við byggingu
tónlistarhúss og hugsanlega stað-
setningu slíkrar miðstöðvar. Niður-
stöður nefndarinnar voru kynntar í
gær.
Nefndin telur nauðsynlegt að
tveir aðalsalir verði í húsinu. Sá
stærri fyrir rúmlega þúsund manns
og yrði hann fyrst og fremst ætlað-
ur til tónleikahalds og til æfinga
fyrir Sinfóníuhljómsveitina. Minni
salurinn yrði fyrir rúmlega 500
manns og yrði hann ætlaður til ráð-
stefnuhalds. I niðurstöðum nefnd-
arinnar er tekið fram að fjármögn-
un yrði að vera samstarfsverkefni
ríkis, Reykjavíkurborgar og ann-
arra hagsmunaaðila.
Þeir staðir sem þykja heppileg-
astir nú eru Faxaskáli og þar fyrir
norðan og austan ef tryggja megi
að þar yrði jafnframt reist hótel.
Annar kostur sem kemur til greina
er svæðið austan við Hótel Sögu.
Nefndin telur að Islendingar
ættu í auknum mæli að einbeita sér
að því að sinna ráðstefnum sem eru
með írá 300 til 600 ráðstefnugest-
um. Bent er á að fyrir hverja 600
erlenda ráðstefnugesti sem komi
hingað á þriggja daga ráðstefnu
aukist heildamýting gistirýmis í
Reykjavík um 2-3%. Brúttótekjur
af einni 600 manna ráðstefnu gætu
því numið um 30 milljónum króna
og ef ráðstefnan sé af erlendum
uppruna megi reikna með að 2/3
hlutar þeirrar upphæðar verði eftir
hérlendis.
í niðurstöðunum kemur fram að
erlendir og innlendir fjárfestar
myndu hafa meiri áhuga á að stað-
setja hótel í Reykjavík ef mögulegt
væri að tengja það menningar- og
ráðstefnumiðstöð. Jafnframt er
talið að gisting sé mikilvægasta við-
bótarþjónustan fyrir ráðstefnu-
gesti, hér þurfi að byggja upp
fyrsta flokks hótel til að mæta
auknum kröfum ef markmið um
aukna ferðaþjónustu og ráðstefnu-
hald eigi að nást.
Ámi M. Mathiesen, formaður
nefndarinnar, segir ekki búið að
áætla hve stórt húsnæðið þurfi að
vera né hver kostnaður við bygg-
ingu þess gæti orðið. Nefndin mun
starfa áfram og skila ítarlegri nið-
urstöðu í haust eftir að nákvæman
þarfagreining hefur farið fram. A
þeim niðurstöðum mun rfldsstjóm-
in svo taka ákvörðun um hvort ráð-
ist verður í byggingu ráðstefnumið-
stöðvar.
Morgunblaðið/Arnaldur
ÖLL aðstaða í flugturainum er ný og breytt. Standandi er Kári
Guðbjömsson, þá ísak Jónsson og fremstur Karl Alvarsson.
Lokið endurnýjun í flugturninum í Reykjavík
Aðstaðan allt
önnur og betri
„AÐSTAÐAN er allt önnur og
hér er allt nýtt nema vind- og
loftþrýstingsmælar,“ sagði Kári
Guðbjömsson, eftirlitsmaður
verklagsdeildar hjá Flugmála-
stjóm, aðspurður um þá endur-
nýjun sem fram fór nýverið á
efstu hæðinni í flugtuminum.
Þaðan er stjómað flugumferð um
Reykjavíkurflugvöll og nágrenni.
Kári Guðbjömsson, sem er
bæði flugumferðarstgóri og flug-
maður hjá Flugmálastjóm, segir
að allur tækjabúnaður, innrétt-
ingar og gólf séu ný í flugtumin-
um. Breytt var einnig nokkuð til-
högun innréttinganna. Meðal
nýrra tælqa era tölvur og skjáir
en flugtuminn á bæði samskipti
við flugstjómarmiðstöðina, sem
flutt var í nýja byggingu fyrir
tveimur áram, og aðflugsstjóm-
ina á Keflavíkurflugvelli sem sér
bæði um blindflug við Reykjavík-
urflugvöll og í Keflavík.
„Umhverfið er allt annað og
betra að vinna í,“ sagði Karl Al-
varsson, flugumferðarstjóri og
vaktstjóri, er blaðamaður Morgun-
blaðsins leit þar inn, en ásamt hon-
um vora á vakt flugumferðarstjór-
amir Helga Jensdóttir og Isak
Jónsson. Þrír eru á vakt á daginn,
tveir á kvöldin og einn á nóttunni,
en þá er flugvöllurinn lokaður
nema fyrir lendingar og sjúkra-
flug. Meðan á breytingunum stóð
var starfseminni stjómað úr bíl
Flugbjörgunarsveitarinnar sem
komið var fyrir á þar tál gerðum
hól á flugvallasvæðinu. Var um-
ferðinni þá stjómað frá „hrakhól"
sögðu flugumferðarstjóramir.
Kváðu þeir það líklega einsdæmi
að nokkur flugtum gætí bæði stát-
að af rúðuþurrkum og flautu!
Stjórn Landsvirkjunar ræðir
ráðningu forstjóra
Hugsanlega afráð-
ið í næstu viku
einungis væri rætt um Friðrik
Sophusson alþingismann sem
hugsanlegan eftirmann Halldórs
Jónatanssonar eða hvort fleiri
kæmu til greina. „Ég hef talið
mikilvægt vegna eðlis málsins að
ná fullri samstöðu meðal stjóm-
arinnar og allra eignaraðila um
nýjan forstjóra til viðbótar því að
ráða hæfan mann,“ sagði Jó-
hannes Geir.
STJÓRN Landsvirkjunar geng-
ur að lflrindum frá ráðningu nýs
forstjóra á næsta fundi sínum,
hugsanlega í næstu viku. A
fundi stjórnarinnar í gær var
farið yfir málið en reyna á að ná
samstöðu í stjórninni um ráðn-
inguna.
Jóhannes Geir Sigurgeirsson,
formaður stjómar Landsvirkj-
unar, vildi ekM staðfesta hvort
Laugavegi 18 • Simi 515 2500 • Síðumúla 7 • Simi 510 2500
Agiísl H
„wrt Péturvott
BÓKU%
HÖília 2.780.-
Lærðu að
þekkja íslenskar
Með bókinni fylgir stór
veggmynd með myndum af
íslenskum plöntum
«>
FORLAGIÐ
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
SLÖKKVILIÐSMENN glúna við eldinn á æfingunni í gær.
Slökkvilið æfír notkun
háþrýstis
SLÖKKVILIÐ Reykjavíkur var
við æfingar og myndbandsupp-
tökur í Mánahlíð, upp með Hafra-
vatnsafleggjaranum við Suður-
landsveg, í gærdag. Að sögn Jóns
Viðars Matthíassonar vara-
slökkviliðsstjóra hefur Iiðið æft
stíft að undanfömu og á þessari
æfingu var lögð áhersla á mis-
munandi slökkviaðferðir og rann-
sakað hve mikið vatn fer til spillis
við slökkvistarf. Einnig var æf-
ingin tekin upp á myndband.
„Þetta myndband á að nota í
kennslumyndband sem við emm
að búa til um hvernig nota á há-
þrýsti við slökkvistarf. Með há-
þrýsti náum við miklu fínni og
betri úða, sem er lykilatriði í að
slökkvistarf gangi vel og vatns-
skemmdir verði sem minnstar,“
sagði Jón Viðar.
Kosið um
sameiningu
fímm hreppa
í Arnessýslu
KOSIÐ verður um sameiningu fimm
hreppa í uppsveitum Ámessýslu í
dag. Verða kjörstaðir opnaðir ýmist
Mukkan 10 eða 12 og verða opnir til
Mukkan 18,20 eða 22.
Hreppamir fimm era Þingvalla-
hreppur, Skeiðahreppur, Laugar-
dalshreppur, Hranamannahreppur
og Biskupstungnahreppur. í Laug-
ardalshreppi er kjörstaðurinn skrif-
stofa hreppsins og er opið milli
Mukkan 10 og 18. I Þingvallahreppi
er kosið í Þingvallabænum frá M. 12
til 18. í Skeiðahreppi er kosið í
Brautarholtsskóla frá 12 til 20, í
Hrunamannahreppi milli 10 og 22 í
Félagsheimili Hranamanna og í
Biskupstungnahreppi verður kosið í
Bergholti frá Mukkan 12 til 22.
Páll M. Skúlason, ritari fram-
kvæmdanefndar, vildi minna á að
gleyma ekM kosningunum þótt mik-
ið væri um að vera. Talið verður á
hverjum stað þegar kjörfundi lýkur
en úrslit tilkynnt sameiginlega seint
á laugardagskvöld.
---------------
Muruvet til
Þýskalands
MURUVET Basaran er á leið ásamt
syni sínum Martin aftur til Þýska-
lands. Mæðginin komu hingaðá veg-
um utanríkisráðuneytisins í apríl eft-
ir að vegabréfsáritun hennar rann út
í Þýskalandi. Muravet, sem er af
tyrkneskum ættum, hafði þá átt í
erfiðleikum í heimalandi sínu þar
sem hún hafði eignast bam utan
hjónabands. Á móti henni í Þýska-
landi tekur eiginmaður hennar, Þrá-
inn Mayer, og munu þau setjast að í
nágrenni Frankfurt, en þau giftust á
íslandi fyrr á þessu ári.
I
}
I
I
I
I