Morgunblaðið - 27.06.1998, Qupperneq 10
10 LAUGARDAGUR 27. JÚNÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Rannsókn sjóslysanefndar á Æsuslysinu lokið
Annmarkar á stöðug-
leika og ofhleðsla
86% telja kosn-
ingaumfjöllun
RUV áreiðanlega
Margir nefna dæmi um að
hallað hafi verið á D-lista
RANNSÓKNARNEFND sjóslysa
hefur lokið rannsókn á orsökum
Æsuslyssins. Nefndin telur að slysið
megi rekja til annmarka á stöðug-
leika skipsins, hleðslu umfram þau
mörk sem stöðugleikagögn sögðu
leyfileg og stjómunar á skipinu þeg-
ar veiðum var hætt umræddan dag
og búist var til heimsiglingar.
Fyrir tæpum tveimur árum
hvolfdi kúfiskskipinu Æsu ÍS og það
sökk á Arnarfírði í blíðskaparveðri.
Tveir skipverjar fórust en fjórum
var bjargað.
Rannsókn á orsökum slyssins hef-
ur hún nú staðið í tæp tvö ár. Hún
leiðir í ljós að slysið megi í fyrsta lagi
rekja til þess að stöðugleiki skipsins,
eins og hleðslu þess var almennt
háttað þegar fullfermi var fengið við
lok veiðiferðar, var ófullnægjandi.
Stöðugleikaútreikningar, sem gerðir
voru á skipinu í Hollandi árið 1987,
voru einnig ófullnægjandi heimild
um stöðugleika skipsins. Þeir gerðu
ráð fyrir að mesti farmþungi skips-
ins væri 62,4 tonna þungi í lest, en
raunþungi í lest skipsins við full-
fermi hafi verið um 75 tonn, áður en
sjó var dælt úr lestinni.
SJÚKLINGAR og aðstandendur
þeirra eru þeir sem uppsagnir
hjúkrunarfræðinga munu bitna á,
komi þær til framkvæmda hinn 1.
júlí næstkomandi. Margir sjúkling-
ar geta hreinlega ekki farið heim
öðruvísi en að leggja sig í lífshættu,
en sumir eiga möguleika á öðrum
úrræðum.
Katrín Kristjánsdóttir liggur á
11A, sem er almenn lyflækninga-
deild á Landspítalanum, og þjáist af
slæmri liðagigt. Hún er algjörlega
ósjálfbjarga að eigin sögn. Hún seg-
ist ekki vita hvemig ástandið yrði ef
hún þyrfti að fara heim í næstu
viku. „Það er ekki neitt þægileg til-
hugsun, ekki þegar ég er svona
ósjálfbjarga," sagði Katrín.
Katrín fór í aðgerð á hægri hendi
fyrir stuttu og er að jafna sig eftir
hana. Auk þess á hún erfítt með
hreyfingar og getur ekki staðið upp
úr rúminu án hjálpar. Hún segist
ekki hafa getað fylgst vel með deilu
hjúkrunarfræðinga. „Ég trúi nú
ekki að af þessum uppsögnum verði,
mér finnst þetta svo fáránlegt. Það
er að minnsta kosti ljóst að ég fer
ekki heim í þessu ástandi."
Ágústa Halldórsdóttir, deildar-
stjóri á lyflækningadeild, segir að
verið sé að skoða önnur úrræði fyrir
Katrínu, til dæmis á sjúkrahúsinu í
Keflavík. „Ef það gengur ekki upp
verður einfaldlega ekki hægt að út-
skrifa hana, hún bara verður að
vera hér.“
Hún sagði að á deildinni væru
margir sem eins væri ástatt um,
bæði væri deyjandi fólk á deildinni
og fólk sem er í nýrnavélum og
fleira.
Var heppinn
Guðbjörg Bjömsdóttir var á leið
heim af hjartadeild Landspítalans
eftir vikulegu þar þegar blaðamað-
ur hitti hana í setustofunni. Guð-
björg hefur dvalið áður á deildinni
í öðru lagi hafi breytingar, sem
gerðar hafi verið á veiðarfærabúnaði
skipsins eftir að stöðugleikamatið
var framkvæmt árið 1987, haft þau
áhrif að stöðugleiki Æsu væri enn
lakari en útreikningamir gáfu til
kynna. Ekki hafi verið fengið leyfi
fyrir breytingunum og hafi sumar
þeirra haft ótvíræð áhrif í atburða-
rásinni. I þriðja lagi kemst rann-
sóknarnefndin að því að tómt stafn-
hylki og hálftómir olíutankar skips-
ins á slysdegi hafi rýrt stöðugleika
þess umfram þá almennu annmarka
sem á þeim voru.
í fjórða lagi var þyngd skipsins
um 80 tonn, sem er tæpum 20 tonn-
um þyngra en leyfilegt var, þegar
hafist var handa við að taka inn sjó-
barka og heimsigling undirbúin.
Skelafli í lest nam 38 tonnum, í sílói
nam hann 3 tonnum og í skelplógi
skipsins, sem einnig hafði verið
hífður upp í það mikla hæð að hún
hafði áhrif á stöðugleikann, 1,5
tonn. Plógurinn var þar að auki
tæpum 1,7 tonnum þyngri en gert
var ráð fyrir í stöðugleikaútreikn-
ingum. Auk þess voru í lest skipsins
u.þ.b. 37 tonn af sjó sem ekki hafði
og henni finnst yfirvofandi ástand
langt frá því að vera nógu gott.
„Þetta er svo fínt og gott fólk að það
á skilið gott kaup,“ sagði Guðbjörg.
Þórhallur Heimisson var að jafna
sig eftir svæfingu þegar blaðamað-
ur hitti hann í rúmi úti á gangi
hjartadeildar. Þórhallur, sem er 36
ára, fékk verk fyrir hjartað í síðustu
viku og var lagður inn í skyndi með
hjartabilun. „Ég var heppinn að
þetta gerðist ekki fyrsta júlí,“ sagði
Þórhallur og brosti. Hann átti von á
að fara heim í gær. Aðspurður um
ástandið sem skapast gæti fyrir fólk
sem lenti í því sama og hann vildi
hann ekki trúa að menn yrðu látnir
deyja drottni sínum. „Mér finnst
það nú hálfótrúlegt. Ég verð bara
að vona að mér batni og ekkert
komi upp á. Ég fer heim í rólegheit-
unum og reyni að jafna mig á
þessu," sagði Þórhallur.
Hann sagði að sér fyndist að
ráðamenn ættu að skammast sín
fyrir að borga hjúkrunarfræðingum
jafnlág laun og þeim eru borguð í
dag. „Þessar konur hér á deildinni
komu mér aftur í gang og eru alltaf
tilbúnar að hjálpa. Ég bjó úti í Sví-
þjóð og Danmörku um tíma og þar
er hjúkrunarfræðingum greitt
miklu hærra kaup. Ég skil vel að ís-
lenskir hjúkrunarfræðingar skuli
segja upp.“
Margir eru einstæðingar
Á dagdeild öldrunarsviðs Sjúkra-
húss Reykjavíkur fengust þær upp-
lýsingar að almennur ótti væri í
fólki, enda verður deildinni lokað ef
hjúkrunarfræðingar hætta störfum
um mánaðamótin. „Það iiggur við
að það sé bara í þunglyndi yfir
þessu. Gamalt fólk er svo viðkvæmt
fyrir breytingum og margir héma
þurfa mikla hjálp,“ sagði Esther
Gunnarsson, hjúkrunarfræðingur á
dagdeild.
Fólk á dagdeild er heima hjá sér
verið dælt frá borði. Loks hafði
stýrisblað Æsu verið stækkað árið
1993 án samþykkis lögskipaðra eft-
irlitsaðila. I nefndaráliti segir:
„Eftir þá breytingu hafi virkni
stýrsins verið áberandi miklu meiri
en hún hafði áður verið, sem m.a.
lýsti sér í því að þegar verið var að
taka inn sjóbarka til plógs í lok
veiða og snúa þurfti skipinu ýmist á
stjórnborða eða bakborða til að
auðvelda inntöku barkans, þá hafi
skipinu hallað nokkuð í snúningn-
um, einkum þegar aðalvél var beitt
af nokkru afli.“
Stöðugleiki Æsu þegar veiðum
var hætt á slysdag var orðinn mjög
slakur af framangreindum ástæð-
um. Stjórntök á skipinu þegar verið
var að taka inn sjóbarkann urðu
þess valdandi að skipið fékk á sig
stjórnborðshalla í bakborðssnúningi
umfram það sem venjulegt var
vegna áhrifa miðflóttaafls. Þegar
slegið var af vélarafli skipsins jókst
halli þess enn meira þar til sjór
flæddi inn um opna lúgu á aðalþil-
fari. Við það jókst hallinn enn frek-
ar, þar til því hvolfdi og það sökk
skömmu síðar.
á næturnar en kemur á deildina og
dvelur þar yfir daginn. Margir fá
þar einnig úthlutað lyfjum fyrir vik-
una. „Heimahjúkrun getur ekki
bætt þessu fólki á sig. Við erum
með 45 sjúklinga og til dæmis fær
fólkið bað hér og það verður vand-
ræðaástand með það til dæmis.“
Lára Einarsdóttir, 80 ára, og
Ólafía Gróa Jónsdóttir, 94 ára,
koma á dagdeild annan hvern dag.
Lára er ekki ánægð með yfirvof-
andi lokun. „Það er illa farið með
gamalt fólk sem getur ekki bjargað
sér sjálft. Ég skil ekki í nokkrum
manni að semja ekki við fólk sem
vinnur við svona,“ sagði Lára og
kvað þjónustuna á deildinni yndis-
lega. „Lokunin lítur mjög illa út fyr-
ir mig. Ég get ekki bjargað mér
ÁTTATÍU og sex prósent þeirra
sem afstöðu tóku í skoðanakönnun
Coopers & Lybrand-Hagvangs hf.
finnst fréttaflutningur fréttastofu
Ríkisútvarpsins, þ.e. Hljóðvarps og
Sjónvarps, af kosningamálum og
kosningaundirbúningi sveitarstjórn;
arkosninganna í heild ái-eiðanlegur. I
ítarlegum viðtölum Coopers & Ly-
brand-Hagvangs hf. við 55 kosninga-
stjóra, fréttamenn og aðra sérfræð-
inga víða um land var hins vegar al-
gengt að viðmælendur nefndu dæmi
um að hallað hefði verið á eitthvert
framboðanna.
Viðmælendur nefndu t.d. að þegar
sjálfstæðismenn kynntu stefnumál
sín fyrir kosningarnar hefði frétt um
það komið í lok fréttatímans, en þeg-
ar R-listinn kynnti sín stefnumál
hefði fréttin verið í upphafi frétta.
„Samkvæmt gögnum Miðlunar hf.
reyndist þetta rétt,“ segir í tilkynn-
ingu frá Coopers & Lybrand-Hag-
vangi hf.
Þá kemur fram í fyrrnefndri skoð-
anakönnun að af ljósvakamiðlum
njóti fréttastofa Rásai' 1 og Rásar 2
sjálf og maður getur ekki lagst upp
á börnin sín, enda þarf ég mikla um-
önnun.“
Ólafía Gróa segist bara verða að
hugsa um sig sjálf ef deildinni verð-
ur lokað. „Eg get ekki farið inn á
einhverja fjölskyldu og beðið hana
að sjá aumur á mér.“
Hún sagðist ekki vita hvort hún
væri í stakk búin til að sjá um sig
sjálf. „Ég er nú orðin nokkuð gömul
til þeirra hluta. Maður verður að
vera þurfalingur á kunningjunum
og fá þá til að fara út í búð fyrir sig
og annað,“ sagði Ólafía.
Þær sögðust vera hræddar við
ástandið sem er í vændum, enda sé
margt ósjálfbjarga fólk á deildinni
og sumt af því einstæðingar sem
geti ekki leitað neitt annað.
mests trausts almennings eða 38,1%
þeirra sem tóku afstöðu. En spurt
var: „Hvaða fjölmiðli eða fréttastofu
treystii- þú best varðandi fréttir af
málefnum líðandi stundar?" Næst-
flestir sögðust treysta fréttastofu
Sjónvarps best eða 32,5% þeirra sem
tóku afstöðu og 16,4% sögðust
treysta fréttastofu Stöðvar tvö og
Bylgjunnar best.
Ekki var sérstaklega spurt um
dagblöð, heldur fjölmiðla og frétta-
stofur, en af dagblöðum sögðust
flestir treysta Morgunblaðinu best
varðandi fréttir af málefnum líðandi
stundar eða 8,1% af þeim sem tóku
afstöðu, 1,2% þeirra sem tóku af-
stöðu sögðust treysta DV best og
1,9% nefndu aðra fjölmiðla.
Könnun Coopers & Lybrand-Hag-
vangs hf. var gerð fyrir Mai'kús Öm
Antonsson, útvarpsstjóra RÚV, eftir
sveitarstjórnarkosningarnar dagana
27. maí til 5. júní sl. Tekið var
slembiúrtak úr þjóðskrá og valdir
1.200 einstaklingar á aldrinum 15-75
ára. 808 manns svöruðu, sem er 70%
nettósvarhlutfall.
Skurð- og svæf-
ingahjúkrunar-
fræðingar á SHR
Áhyggjur
af alvar-
legu
ástandi
„VIÐ skurð- og svæfinga-
hjúkrunarfræðingar á skurð-
stofum Sjúkrahúss Reykjavík-
ur lýsum þungum áhyggjum
yfir því ástandi, sem skapast
mun þann 1. júlí þegar meiri-
hluti hjúkrunarfræðinga hætt-
ir störfum,“ segir í upphafi yf-
irlýsingar frá skurð- og svæf-
ingahjúkrunarfræðingum hjá
SHR sem borist hefur blaðinu.
Síðan segir:
„Sjúkrahús Reykjavíkur
ásamt Landspítala sinnir allri
bráðaþjónustu fjrir landið og
miðin. Á skurðstofum er veitt
þjónusta allan sólarhringinn,
365 daga ársins. Alvarlegt
ástand mun því skapast, þrátt
íyrir að stjórnendur setji fram
neyðaráætlun til að vinna eftir.
Störf skurð- og svæfinga-
hjúkrunarfræðinga eru mjög
sérhæfð. Krafist er tveggja
ára viðbótarnáms að loknu
fjögurra ára háskólanámi í
hjúkrun. Ljóst er að útilokað
er fyrir aðra hjúkrunarfræð-
inga og/eða aðrar starfsstéttir
að ganga inn í störf okkar án
tiltekinnar menntunar og
starfsþjálfunar.
Margra ára reynsla hefur
sýnt okkur að fyrsta helgin í
júlí er mikil ferðahelgi. Ótt-
umst við mjög það ástand, sem
skapast kann, ef ekkert er að-
hafst.
Hjúkrunarfræðingar á
skurð- og svæfingadeild
Sjúkrahúss Reykjavíkur skora
á ráðamenn þjóðarinnar ásamt
stjórnendum sjúkrahúsanna
að semja við okkur fyrir 1.
júlí.“
F.h. skurð- og svæfingahjúkrunar-
fræðinga, Sjúkrahúsi Reykjavíkur.
Rikka Mýrdal, deiidarstjóri svæf-
ingadeildar, Svanhildur Jónsdótt-
ir, aðstoðardeildarstjóri skurð-
deildar.
Sjúklingar um yfírvofandi starfslok hjúkrunarfræðinga
Yrði mörgum
erfitt en aðrir
eiga úrræði
Morgunblaðið/Arnaldur
ÓLAFÍA Jónsdóttir og Lára Einarsdóttir.
Þórhallur
Heimisson
Guðbjörg
Björnsdóttir
Katrín
Kristjánsdóttir