Morgunblaðið - 27.06.1998, Page 12
12 LAUGARDAGUR 27. JÚNÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
i
Morgunblaðið/Árni Sæberg
EIGENDUR þyrlunnar Schweizer 300C: Arngrímur Jóhannsson,
Walter Hallgríms Ehrat og Halldór Hreinsson.
Ný þyrla til Þyrlu-
þjónustunnar
ÞYRLUÞJÓNUSTAN ehf. hefur
tekið í notkun nýja þyrlu. Þyrlan
er af gerðinni Schweizer 300C,
smíðuð árið 1991 og hefur ein-
ungis verið flogið rúmar 600 klst.
frá upphafi. Þessi þyrla getur
borið þrjá menn og er vel tækjum
búin, segir í fréttatilkynningu.
Nokkur eftirspurn hefur verið
eftir þyrlu af þessari stærð en
hún þykir henta vel til ýmiskonar
verkflugs, s.s. myndatökuflugs og
allskyns mælinga og eftirlitsflugs.
Einnig er hún tilvalin til kennslu-
flugs, þ.á m. er hún útbúin til
blindflugskennslu.
Þyrlan er í eigu Arngríms Jó-
hannssonar, Halldórs Hreinssonar
og Walters Hallgríms Ehrat, sem
einnig er yfirflugkennari Þyrlu-
þjónustunnar.
Þyrluþjónustan starfrækir auk
Schweizer-þyrlunnar Bell Long
Ranger sem er sjö manna þyrla
sem er notuð til ýmiskonar verk-
efna.
FRETTIR
Inga Jóna Þórðardóttir, oddviti Sjálfstæðisflokks
Fundarstjórn borgar-
stjóra í bága við lög
Pétur Jónsson
ekki fyrsti vara-
maður R-listans
INGA Jóna Þórðardóttir, oddviti
Sjálfstæðisflokks í borgarstjórn,
segir að með því að fela borgar-
stjóra fundarstjórn í borgarráði sé
verið að fara á svig við lögin og að
látið verði reyna á réttmæti þess en
Sigrún Magnúsdóttir hefur verið
kjörin formaður borgarráðs til eins
árs. Þar sem ágreiningur varð í
borgarráði mun samþykktin um
fundarstjórn koma til endanlegrar
afgreiðslu í borgarstjórn. Inga
Jóna bendir jafnframt á að það
standist ekki að Pétur Jónsson, R-
lista, taki sæti Hrannars B. Arnars-
sonar, R-lista, í borgarstjórn. Anna
Geirsdóttir sé fyrsti varamaður og
því eigi hún að taka sæti í borgar-
stjóm í forföllum borgarfulltrúa R-
listans.
„Við teljum að þessi ráðstöfun sé
ólögleg," sagði Inga Jóna. Benti
hún á að lögum hafi ver-
ið breytt á síðasta þingi
á þann veg að formaður
byggðarráðs eða borg-
arráðs yrði að koma úr
hópi kjörinna fulltrúa.
„Það hefur ekki verið
gert en þess í stað er
gengið á svig við lagaá-
kvæðið og fundarstjóri
skipaður sem raunveru-
lega á að gegna hlut-
verki formanns borgar-
ráðs,“ sagði Inga Jóna.
„Þetta teljum við brjóta
í bága við lagaákvæðið.
Það verður að kjósa
borgarstjóra inn í borg-
arráð til þess að hann
geti gegnt formennsku."
Sagði hún að á fundi borgarráðs
hafi komið fram að Sigrún Magnús-
dóttir hafi litlu sem engu hlutverki
að gegna sem formaður borgarráðs
ef borgarstjóra yrði falin fundar-
stjórn, þar sem í formennskunni
fælist fundarstjórn. „Það er aug-
ljóst að deilur um sætaskipan í
nefndum og ráðum inn-
an R-listans felast
meðal annars í því að
ekki er rúm fyrir Ingi-
björgu Sólrúnu sem
kjörinn fulltrúa í borg-
arráði og því freistast
borgarfulltrúar R-lista
til að ganga á svig við
lögin með þessum
hætti og við gagnrýn-
um þessi vinnubrögð,"
sagði Inga Jóna. „í
eldri lögum var gert
ráð fyrir þessum
möguleika en þeim lög-
um hefur verið breytt.
Borgarfulltrúar R-lista
hafa bent á að í grein-
argerð með lagafrumvarpinu hafi
þessi möguleiki verið nefndur í
skýringunum en okkar viðbrögð
eru þau að þessi skýring standist
ekki lögin. Ef löggjafinn hefði viljað
hafa þetta afdráttarlaust hefði það
komið fram í lagagreininni. Við
munum því láta reyna á hvort þetta
stenst."
Inga Jóna
Þórðardóttir
I
1
James D. Wolfensohn forseti Alþjóðabankans ræðir alþjóðlegt þróunarsamstarf í Islandsheimsókn
ísland á mikíð
undir þátttöku
í þróunarstarfi
James D. Wolfensohn, forseti Alþjóðabankans,
segir að Island eigi mikið undir þátttöku í þróunar-
starfí vegna þess hve landið sé háð útflutnings-
mörkuðum og stöðugleika í öðrum heimshlutum.
jj ■ ——------------------
Olafur Þ. Stephensen sat blaðamannafund
Wolfensohns og Halldórs Asgrímssonar.
Morgunblaðið/Jim Smart
JAMES D. Wolfensohn og Halldór Ásgrímsson á blaðaniannafundi í gær.
JAMES D. Wolfensohn, forseti Alþjóðabank-
ans, kom hingað til lands í gærmorgun og sat
fund ráðherra frá Norðurlöndunum og
Eystrasaltsríkjunum, sem fara með málefni
bankans í ríkisstjórnum sínum. Þar var fjallað
um hvernig hægt væri að auka samvinnu milli
ríkjanna, á milli þeirra og Alþjóðabankans og
á milli annarra alþjóðlegra stofnana. Meðal
annars var rætt um stöðu mála í Asíu og
Rússlandi. Jafnframt átti Wolfensohn fund
með Halldóri Asgrímssyni utanríkisráðheiTa
um samstarf Islands við Alþjóðabankann.
Þakklátur fyrir samstarf
og stuðning Islands
„Mér fundust umræðurnar í morgun afar
gagnlegar og þær staðfestu enn hið afar nána
samband Alþjóðabankans og Norðurland-
anna. Ég er einkum þakklátur fyrir það sam-
starf, sem við eigum við ísland í ýmsum mál-
um, eipkum á sviði fiskveiða og nýtingar jarð-
hita. Ég ey enn þakklátari fvrii' þann stuðn-
ing, sem Island hefur veitt mér í stjórn al-
þjóþabankans, en þar hafa setið góðir fulltrú-
ar íslands,“ sagði Wolfensohn.
Höldum áfram stuðningi
við Eystrasaltsríkin
Á fundi forsetans með ráðherrunum var
fjallað um aðstoð Alþjóðabankans við Eystra-
saltsríkin. Af hálfu stjórnvalda í ríkjunum
hefur það sjónarmið komið fram að undan-
förnu að lán bankans séu ekki þau hagstæð-
ustu, sem völ sé á; efnahagslíf landanna sé
komið á það stig að ódýrari lán séu fáanleg frá
einkabönkum og fjármálafyi-irtækjum.
„Ég vona að ég hafi fullvissað Éystrasalts-
ríkin um að til viðbótar við þær 700 milljónir
dollara, sem bankinn hefur þegar lánað þeim,
muni bankinn bæði veita þeim tæknilega að-
stoð og hjálp við umbætur á efnahagskerf-
inu,“ sagði Wolfensohn. „Við ræddum um eðli
lána okkar og kostnað við þau og ég hvatti þá
til að þiggja allt það fé, sem þeir gætu fengið
með ódýrum hætti, og koma síðan til bankans
ef þá vantaði eitthvað fieira."
Wolfensohn sagði að aðstoð Norðurland-
anna við Eystrasaltsríkin væri mun meiri en
framlag Álþjóðabankans. „Aðstoðin við
Eystrasaltsríkin er gott dæmi um samstarf
Norðurlandanna og Alþjóðabankans," sagði
hann.
Sérþekkingu á sjávarútvegi og jarðhita
miðlað um gervihnött til þróunarlanda
Er Morgunblaðið spurði Wolfensohn út í
fund hans með Halldóri Ásgrímssyni sagðist
Wolfensohn hafa lagt áherzlu á að þótt Island
væri lítið og fámennt ríki væri athyglisvert
hversu reiðubúnir Islendingar væru að taka
þátt í alþjóðlegu þróunarstarfi. „Þátttaka Is-
lands er mikilvæg, vegna þess að þið eruð
mjög háð útflutningsmörkuðum og þess
vegna stöðugleika í öðrum heimshlutum, rétt
eins og við öll.“
Forsetinn sagði að sérþekking Islendinga
væri greinilega á sviði fiskveiða og nýtingar
jarðhita. Jafnframt hefði ísland reynslu af
lýðræðislegu stjórnarfari, sem gæti reynzt
öðrum ríkjum dýrmæt. „Ég ræddi við ráð-
herrann þann möguleika að ísland legði ekki
aðeins fram fjármuni og aðstoð á vettvangi,
heldur yrði nútímatækni nýtt þannig að hægt
yrði að koma á fjarnámi; að fyrirlestrum og
námskeiðum á sviði íslenzkrar sérþekkingar
yrði sjónvarpað um gervihnött til Afríku og
annarra heimshiuta," sagði Wolfensohn.
Hann sagðist jafnframt hafa rætt við Haildór
um að Island tengdist WorLD-verkefni AI-
þjóðabankans, en í því felst að komið er á
samskiptum milli skólabarna í iðnríkjunum
annars vegar og í þróunarlöndum hins vegar
fyrir tilstilli netsins.
„Ég hef vanið komur mínar til Islands allt
frá 1970. Ég tel að tæknibyltingin veiti íslandi
tækifæri til að færast mun nær öðrum heims-
hlutum hvað varðar upplýsingar og þátttöku,
án þess að kostnaðurinn sé yfirþyrmandi. Ég
vona að í áranna rás getum við átt gott sam-
starf við íslenzk stjómvöld um verkefni, sem
bæði Island og þróunarlöndin hafi gagn af.
Ég held að ráðherrann hafi áhuga á hug-
myndinni," sagði Wolfensohn.
Island ekki of lítið til
að leggja þróun heimsins Iið
Wolfensohn flutti síðdegis í gær fýrirlestur
um þróunarmál í Háskóla Islands. í lok erind-
is síns beindi hann orðum sínum til Islend-
inga. „Island er staður, þar sem mjög auðvelt
er að leiða hjá sér það sem gerist annars stað-
ar í heiminum. En næsta kynslóð Islendinga
mun ömgglega ekki hafa það eins gott og þið,
nema þið axlið ykkar hluta ábyrgðarinnar á
þróun heimsbyggðarinnar og látið ykkur hinn
ytri heim varða,“ sagði Wolfensohn. Enginn
skortur væri á góðum og gildum ástæðum
fyrir því að okkur beri að láta okkur vanda-
mál umheimsins varða, siðferðilegar og fé-
lagslegar, en hann vildi vekja athygli á því að
það væri ekki sízt 1 þágu okkar eigin hags-
muna, að við leggjum okkar af rnörkum til
þróunarhjálpar. „Ekki halda að ísland sé of
lítið. Það er það ekki.“
Borgar laxveiðileyfíð sjálfur
Húsfyllir var á fyrirlestrinum, sem fundar-
stjórinn, Steingrímur Hermannsson seðla-
bankastjóri, túlkaði sem greinilegt merki þess
að íslendingar teldu heimsókn Wolfensohns
hafa mikið vægi, því fyrirlestur þarf að vera
mjög áhugaverður til að slíkur fjöldi fólks
mæti á föstudagssíðdegi í sumarblíðviðri.
Enda sagði Wolfensohn: „Þið eruð jú öll á
leiðinni út úr bænum að veiða," en strax að
loknum fyrirlestrinum hélt hann sjáifur, í
fylgd utanríkisráðherra, til Þingvalla, en heig-
inni ver hann í laxveiðar. „Þetta eru einkalax-
veiðar,“ sagði Wolfensohn brosandi. „Ég
borga sjálfur."
Steingrímur Hermannsson sagðist verða að
sitja heima; fyrir hann sem seðalbankastjóra
væri ekki á það hættandi að fara í laxveiðar.
Þá bauðst Wolfensohn strax tii að borga fyrir
hann. Þetta boð afþakkaði Steingrímur, en
bætti við að eftir nokkra daga færi hann á eft-
irlaun, og þá gæti hann óhræddur farið eins
oft í lax og hann lysti.