Morgunblaðið - 27.06.1998, Page 16

Morgunblaðið - 27.06.1998, Page 16
16 LAUGARDAGUR 27. JÚNÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI LANDIÐ Búgarður opnaður á Svalbarðsströnd Húsdýra- og fjöl- skyldugarð- ur í sveit BÚGARÐUR verður opnaður á Þórisstöðum á Svalbarðsströnd í dag, laugardaginn 27. júní. Bú- garður er nokkurs konar sam- heiti yfir húsdýra- og fjöld- skyldugarð í sveit en auk hefð- bundins kúabús er starfrækt veitingastofa á Þórisstöðum. Islensku húsdýrin eru flest í sínu náttúrulega umhverfi í fal- legum skógarlundi, sem stendur í lækjargili milli íbúðarhúss og útihúsa. Gestum gefst kostur á að borða sitt eigið nesti kjósi þeir svo en einnig geta þeir keypt ýmsar veitingar í veit- ingastofunni sem er áfóst fjós- inu og sést þaðan inn í fjós og niður í húsdýragarðinn. Útsýni út Eyjafjörðinn og fjallasýn yfir vesturfjöllin er einnig mjög fal- leg. A Þórisstöðum búa hjónin Inga Arnadóttir og Stefán Tryggvason ásamt fjórum son- um sínum. Bærinn stendur rétt við þjóðveg númer 1, skammt norðan Svalbarðseyrar og er rækilega merktur. Afgreiðslutími er daglega milli kl. 13 og 18 út ágústmánuð og er aðgangseyrir kr. 250 fyrir fullorðna en 150 krónur fyrir böm og ellilífeyrisþega. Hátíðarhöld í tilefni 1000 ára afmælis kristnitöku Starfshópur skipaður BÆJARSTJÓRN Akureyrar hefur að tillögu bæjarráðs skip- að þriggja manna starfshóp til undirbúnings hátíðarhalda í bænum í tilefni 1000 ára afmælis kristnitöku og landafundanna í Norður Ameríku. Starfshópinn skipa: Sunna Borg, Þröstur Ásmundsson og Ólafur Ásgeirsson. Menningar- málanefnd fjallaði um málið á fundi sínum nýlega og lagði til að starfshópurinn kanni m.a. möguleika á samkeppni um minnismerki sem staðsett yrði á Akureyri, hátíðardagskrá árið 2000 og hugsanlegt samstarf við vinabæi Akureyrar á Grænlandi og í Kanada. Einnig lagði menningarmála- nefnd til að starfshópurinn hafi samráð við stofnanir í bænum sem gætu tengst verkefninu og kanni einnig áhuga annarra sveitarfélaga við Eyjafjörð á samstarfi um málið. Sýningu lýkur SÝNINGU á málverkum Þóru Jónsdóttur í Gallerí Svartfugli lýkur um helgina. Þóra sýnir 16 málverk og fylgir ljóð hverri mynd, en hún hefur gefið út 8 ljóðabækur með eigin ljóðum. Þóra sækir efni málverkanna til náttúrunnar, einkum heimahag- anna í Þingeyjarsýslu. Sýningin er opin frá kl. 14 til 18. Djass á Pollinum DJASSTRÍÓ Ómars Einars leikur á Poilinum á Akureyri sunnudagskvöldið 28. júní og hefjast tónleikamir kl. 21.00. Með Ómari leika Stefán Ing- ólfsson bassaleikari og Ole Pull- ar Saxe trommuleikari. Ómar er ekki ókunnur norðlensku djassá- hugafólki því hann hefur margoft leikið á Akureyri. Stef- án Ingólfsson hefur starfað með hljómsveitunum Súld og JJ Soul band og spilað djass til margra ára. Ole Pullar Saxe er danskur trommuleikari sem búsettur er í Svíþjóð, en hann hefur spilað með þekktum tónlistarmönnum þar í landi. Á efnisskránni verður hefð- bundinn djass, þekktir „stand- ardar“. Aðgangur er ókeypis. Fjölskyldu- dagar á kútter Jóhönnu FJÖLSKYLDUDAGAR verða á kútter Jóhönnu um helgina, laugardag og sunnudag. Boðið verður upp á tveggja og hálfrar klukkustundar siglingu með sjóstangaveiði, en hver fjöl- skylda greiðir eitt gjald, 4.000 krónur. Fólk fær að spreyta sig á sjóstöng og nota gamaldags handfæri, en veiðarfæri verða um borð. Aflahæsta fjölskylda helgarinnar verður verðlaunuð auk þess sem verðlaun verða veitt fyrir stærsta fiskinn, flesta fiska og flestar tegundir. Famar verða fjórar ferðir á dag frá Tor- funefsbryggju, kl. 10, 13, 16 og 19, en tilkynna þarf þátttöku í síma 896 6853. Handverk og hönnun SÝNINGUNNI Handverk og hönnun sem er á skrifstofu Gil- félagsins i Deiglunni lýkur á sunnudag, 28. júní. Hún er opin frá kl. 14 til 16, en þar em sýndir munir sem komu fram í samkeppni um minjagripi sem var átak til atvinnusköpunar á vegum viðskiptaráðuneytisins og Iðntæknistofnunar. Frá Akureyri fara gripirnir til Sel- foss. Messur AKUREYRARKIRKJA: Þjóð- lagamessa kl. 21 á sunnudags- kvöld í tengslum við Þjóðlaga- daga. Sr. Svavar A. Jónsson messar. Flytjendur tónlistar em Kór Akureyrarkirkju, Daníel Þorsteinsson, Jón Rafnsson og Snorri Guðvarðarson. H VITAS UNNUKIRK J AN: Sunnudagaskóli fjölskyldunnar á morgun ki. 11.30, aldursskipt biblíukennsla fyrir alla fjölskyld- una. Samkoma kl. 20 um kvöldið, Valdimar Júlíussson predikar. Bamapössun fyrir 1 til 5 ára böm. Unglingasamkoma kl. 20.30 næsta föstudag. KAÞÓLSKA KIRKJAN: Messa kl. 18 í dag, laugardag og kl. 11 á morgun, sunnudag, í kirkjunni við Eyrarlandsveg 26. Aksjón Laugardagur 27. júní 21.00Þ-Sumarlandið Þáttur ætl- aður ferðafólki á Akureyri og Akureyringum í ferðahug. Sunnudagur 28. júní 21.00Þ-Sumarlandið Þáttur ætl- aður ferðafólki á Akureyri og Akureyringum í ferðahug. Mánudagur 29. júní 21.00ÞSumarlandið Þáttur ætl- aður ferðafólki á Akureyri og Akureyringum í ferðahug. Mat á umhverfísáhrifum í Drangagils- svæði í Neskaupstað Skipulagsstj óri fellst á tillögur um snj óflóðavarnir SKIPULAGSSTJÓRI ríkisins fellst á byggingu snjóflóðavarna á Drangagilssvæði í Neskaupstað skv. tillögum sem kynntar em í fmmmatsskýrslu að uppfylltum nokkmm skilyrðum. Verkfræðistofan Hönnun og ráð- gjöf á Reyðarfirði vann mat á um- hverfisáhrifum byggingar snjóflóða- varna á Drangagilssvæði. Þetta er þáttur í framkvæmdaáætlun Ofan- flóðanefndar um uppbyggingu varna gegn snjóflóðum í Neskaup- stað og er fyrsti áfangi af sex sem fyrirhugaðir eru í Neskaupstað. Varnargarðar og snjóflóðakeilur í frummatsskýrslu era kjmntar tvær tillögur. Tillaga A gerir ráð fyrir 15 m háum og 400 m löngum þvergarði um 100 m ofan gatnanna Víðimýrar og Blómsturvalla. Ofan garðs er gert ráð fyrir 13 snjóflóða- keilum, 10 m háum. Ennfremur er gert ráð fyrir 4-5 m háum stoð- virkjum á upptakasvæðum í Drangagili, samtals 1,2 km að lengd. Tillaga B gerir ráð fyrir 19 m háum og 400 m löngum þvergarði auk 13 snjóflóðakeila, 10 m háum. Ekki er gert ráð fyrir upptakastoð- virkjum. í niðurstöðu skipulagsstjóra segir að varnarvirkin muni verða ráðandi í landslagi hlíðarinnar í framtíðinni. Sjónræn áhrif vegna byggingar 15-19 m hás þvergarðs, 13 snjó- flóðakeila og upptakastoðvirkja verði umtalsverð og útsýni frá bæn- um til fjallsins muni gjörbreytast. „Framkvæmd við byggingu snjó- flóðavama á Drangagilssvæði mun raska stóm svæði í hlíðinni ofan Neskaupstaðar. Allt jarðrask og framkvæmdir við snjóflóðavarnirn- ar verði innan skilgreinds fram- kvæmdasvæðis ofan Blómsturvalla og Víðimýrar, efnistökusvæðis neð- an Klofagils og vegsvæðis námu- vegar milli þeirra,“ segir í niður- stöðunni. Kúahjalla og lyngbúa verði ekki raskað Skilyrðin sem skipulagsstjóri set- ur fyrir samþykld em m.a. þau að áður en framkvæmdir hefjast liggi fyrir afstöðuuppdráttur þar sem framkvæmdasvæði ofan Blómstur- valla og Víðimýrar, vegsvæði námu- vegar og efnistökusvæði neðan Klofagils em afmörkuð þannig að Kúahjalla, búsvæði lyngbúa og fornleifum verði ekki raskað. Kúahjalli er talinn náttúrafars- lega verðmætt svæði vegna fjöl- breytni gróðurlendis og þess að hann setur svip á hlíðina. Þar vex lyngbúi, sem er friðlýst tegund, skv. lögum um náttúmvemd og á válista Náttúrufræðistofnunar íslands. Jafnframt er gert að skilyrði að við endanlega afmörkun svæðanna verði tekið mið af því að raska skóg- ræktarsvæðinu í Hjallaskógi sem minnst og að neðri mörk svæðisins séu eins fjarri byggðinni og kostur er. Reist verði há öryggisgirðing á bai-mi þvergarðsins til að draga úr hættu á slysum. Endanlegur frá- gangur raskaðra svæða, landmótun, uppgræðsla og síðari not verði ákveðin og bundin í deiliskipulagi. Samráð verði haft við Náttúmvernd ríkisins um endanlega tilhögun efn- istöku og frágang svæða. Kærufrestur til 29. júlí Úrskurð skipulagsstjóra má kæra til umhverfisráðherra og er kærufrestur til 29. júlí 1998. Úr- skurðurinn liggur í heild frammi hjá Skipulagi rfldsins og er einnig að finna á heimasíðu þess http://www.islag.is. Morgunblaðið/Sig. Fannar. INGIMUNDUR Sigurmundsson bankastjórí Búnaðarbankans og Ingólfúr Snorrason karatemaður. Berst í þágu forvarna Selfossi - Fyi-ir skömmu var undir- ritaður samningpir milli Ingólfs Snorrasonar íþróttamanns Selfoss og Búnaðarbankans á Selfossi. Bún- aðarbankinn mun styrkja Ingólf í íþrótt sinm jafnfrarnt því sem styrk- urínn mun nýtast Ingólfi í barátt- unni gegn vúnuefnum. Ingólfur er íbúum á Suðurlandi kunnur en hann er Islandsmeistari í karate og einnig algjör bindindis- maður á vímuefni. Hann hefur að undanfomu verið virkur í forvama- starfi á Selfossi og í nærsveitum en hann átti einnig sæti í forvama- nefnd Selfossbæjar. „Vímuvandamál okkar Islendinga em orðin mjög alvarleg og íþrótta- menn gegna lykilhlutverki í barátt- unni gegn fikniefnum," segir Ingólf- ur. „Ef góður íþróttamaður mark- aðssetur ekki heilbrigt lífemi í gegnum starf sitt þá getur íþrótta- hreyfmgin tapað fyrir þeim sem markaðssetja fíkniefni í t.d. skóla- kerfinu. Við megum ekki missa unga fólkið út á hálar brautir áfeng- is og fíkniefna því að í unga fólkinu liggur framtíðin," segir þessi geð- þekki íþrótfamaður að lokum. Arsenal- aðdáendur fagna Neskaupstað - Um svipað leyti og Danadrottning og aðrir gestir Lista- hátíðar í Reykjavík máttu búa við haglél og vind við setningu Listahá- tíðarinnar komu Arsenalaðdáendur á Neskaupstað saman í blíðunni og grilluðu sér pylsur og héldu upp á gott gengi liðs síns sl. vetur. Margt var um manninn en mest bar þó á ungu kynslóðinni og var ekki laust Það vom Arsenalaðdáendurnir fyrir uppákomunni og veittu gest- við að pylsumar freistuðu aðdáenda og hjónin Magni Kristjánsson og um og gangandi grillaðar pylsur og annarra liða líka. Sigríður Guðbjartsdóttir sem stóðu gos. Morgunblaðið/Ágúst ARSENALAÐDÁENDUR á Neskaupstað grilla pylsur í blíðskaparveðri. Morgunblaðið/Gunnlaugur NIU einkaflugvélar á fhigvellinum við Stykkishólm er óvenjuleg sjón. Níu flugvél- ar á Stykk- ishólmsvelli Stykkishólmi - Hólmarar Iitu til lofts að kvöldi 16. júní er 9 eins- hreyfils flugvélar flugu í röð nokkra hringi yfír Stykkishólmi og lentu siðan á flugvellinum við bæinn. Er betur var að gáð kom í ljós að hér voru á ferðinni áhuga- flugmenn úr Reykjavík. Þeir fiugu hingað ásamt mökum og vinum, rúmlega tuttugu manns, til að borða kvöldamat á veit- ingastaðnum Knudsen. Þar er kokkur og eigandi félagi þeirra, Gunnar Sigvaldason. Hann flutti hingað fyrir nokkrum mánuðum og fannst félögum hans tilvalið að heimsækja hann og láta hann elda góðan mat fyrir sig. Eftir tveggja tíma dvöl var haldið aft- ur í loftið og komið heim fyrir miðnætti. Kvöldið áður komu áhugaflugmenn frá Selfossi í sama tilgangi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.