Morgunblaðið - 27.06.1998, Qupperneq 20
20 LAUGARDAGUR 27. JÚNÍ 1998
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ
Viðskiptafulltrúi ráðinn við íslenska sendiráðið í London
Bretland er stærsti
viðskiptavinur Islendinga
UTANRÍKISRÁÐUNEYTIÐ hef-
ur, í samstarfí við Bresk-íslenska
verslunarráðið og iðnaðar- og við-
skiptaráðuneytið, ráðið viðskipta-
fulltrúa við sendiráð íslands í Bret-
landi. Þetta var kynnt á blaða-
mannafundi í gær.
Helgi Agústsson, ráðuneytis-
stjóri utanríkisráðuneytisins, segir
ástæðu ráðningarinnar vera þá að
viðskipti íslands og Bretlands séu
vaxandi og mikilvæg. „Bretland
hefur undanfarin ár verið talið einn
mikilvægasti markaður fyrir út-
flutningsafurðir okkar, aðallega
hefðbundnar sjávarafurðir, og ekki
síður sem fjánnagnsmarkaður.
Innflutningur frá Bretlandi hefur
að sama skapi verið mjög mikill og
landið hefur verið þriðji stærsti að-
ili í innflutningi til íslands undan-
farin ár.“
Markmið að efla
viðskiptatengsl enn frekar
Helgi segir markmið ráðningar
viðskiptafulltrúans vera að huga að
enn frekari viðskiptatengslum milli
Islands og Bretlands. Þegar hafi
verið gerður samningur við Fagráð
textíliðnaðarins um aðstoð við
aukna sókn á Bretlandsmarkaði.
„Ennfremur hefur verið gerður
verksamningur við Markaðs- og at-
vinnumálaskrifstofu Suðumesja
um kynningu á áhugaverðum fjár-
festingarkostum. Jafnframt hafa
utanríkisráðuneytið og iðnaðar- og
viðskiptaráðuneytið ákveðið að
auka samstarf sín á milli til að afla
erlendra fjárfesta,“ segir Helgi.
Tryggvi Pálsson formaður
Bresk-íslenska verslunarráðsins
segir að samningur um ráðningu
viðskiptafulltrúa við sendiráðið í
London marki tímamót hjá ráðinu,
en aðilar að því eru 202 talsins.
„Eg held að fólk geri sér almennt
ekki grein fyrir þvi að Bretland er
stærsti viðskiptavinur Islendinga.
Þótt Bretland sé aðeins þriðji
stærsti innflytjandi okkar fara alls
19% af útflutningi okkar þangað.
Bretar eru tæplega 12% af ferða-
mönnum hér á landi og ef þjónustu
er bætt við er ljóst að Bretar eru
stærsta viðskiptaþjóð íslendinga,"
segir hann og bætir við að íslend-
ingar séu 44. stærsti viðskiptavinur
Breta. Það sé flestum hulin stað-
reynd.
I stöðu viðskiptafulltrúa við ís-
Morgunblaðið/J6n Svavarsson
GREINT VAR frá ráðningu Söndru Baird í starf viðskiptafulltrúa við
sendiráð Islands í Bretlandi á blaðamannafundi í gær.
lenska sendiráðið í London var meistarapróf í hagfræði og stjóm-
ráðin Sandra Baird, en hún er með un.
Vísitala byggingar-
kostnaðar stöðug
HAGSTOFAN hefur reiknað vísitölu
byggingarkostnaðar eftir verðlagi
um miðjan júní 1998. Samkvæmt
fréttatilkynningu reyndist vísitalan
vera 230,9 stig og lækkaði um 0,1%
frá fyrra mánuði.
Síðastliðna tólf mánuði hefur vísi-
talan hækkað um 3,3%. Undanfarna
þrjá mánuði hefur vísitala bygging-
arkostnaðar hækkað um 0,2% sem
jafngildir 0,9% verðbólgu á ári. Rós-
mundur Guðnason, deildarstjóri vísi-
töludeildar Hagstofunnar, segir
ástandið einkennast af stöðugleika
því litlar sveiflur hafi átt sér stað síð-
ustu mánuði. Hann bendir á að í tólf
mánaða yfirlitinu nemi hækkunin
reyndar rúmlega 3% sem skýrist
fyrst og fremst af þeim launahækk-
unum sem komu tii framkvæmda í
janúar síðastliðnum. I fréttatilkynn-
ingu Hagstofunnar kemur einnig
fram að launavísitala, miðað við með-
allaun í maí, er 169,4 stig og hækkar
um 0,1% frá fyrra mánuði. Samsvar-
andi launavísitala, sem gildir við út-
reikning greiðslumarks fasteigna-
veðlána, er 3705 stig í júlí 1998.
GM lokar
fleiri verk-
smiðjum
Detroit. Reuters.
GENERAL Motors-bílafyrirtækið
hyggst loka verksmiðjum þar sem
enn er starfað, til að draga úr kostn-
aði vegna lamandi verkfalla.
GM ætlar einnig að draga úr aug-
lýsingum til júlfloka. Ekkert fyrir-
tæki í Bandaríkjunum auglýsir eins
mikið og GM.
Akvarðanirnar voru teknar vegna
þess að „engin áþreifanleg viðbrögð"
höfðu komið fram frá félagi bifreiða-
verkamanna, United Auto Workers,
í nokkra daga í tilraunum til að leysa
vinnudeilu í tveimur verksmiðjum í
Flint, Michigan.
í greinargerð frá mönnum úr
stjórn GM segir að fækka verði
ónauðsynlegum starfsmönnum á
tímakaupi og að allir starfsmenn,
sem eru í UAW, skuli flokkaðir „ekki
í virkri þjónustu“.
Vegna verkfallsins eru 157.100
starfsmenn iðjulausir, þar af 9.200
verkfallsmenn. GM hefur neyðzt til
að hætta starfsemi í 26 af 29 sam-
setningarverksmiðjum í Norður-Am-
eríku og rúmlega 100 verksmiðjum
sem framleiða bflaparta. Starfsmenn
GM í Bandaríkjunum eru alls
224.000.
Samkvæmt greinargerðinni er
stefnt að því að hætta allri annarri
starfsemi en framleiðslu nýrra Chevr-
olet Silverado- og GMC Sierra-bfla.
STARFSMENN EJS og Tölvumiðlunar hittast í sundinu á milli húsanna þar sem fyrirtækin hafa aðsetur við
Grensásveg.
H-laun útbreiddasta
launakerfi landsins
TOLVUMIÐLUN ehf. og EJS hf.
hafa gert með sér samning um
samvinnu á sviði launakerfa.
Samvinnan er fólgin í því að þeir
launagreiðendur sem hafa notað
hugbúnaðinn „Laun“ og „Raf-
reiknislaun" frá EJS fá nú upp-
færslu í „H-Laun“ frá Tölvumiðl-
un.
I fréttatilkynningu frá EJS
kemur fram að starfsmenn fyrir-
tækisins vinni nú að uppfærslu á
iaunakerfum en nú noti ríflega
400 launagreiðendur kerfí frá
því. Þá hafi EJS og Tölvumiðlun
sameinast um hugmyndaiega
uppbyggingu kerfísins og þróun
þess í náinni framtið.
H-laun er aiislenskt launakerfi
sem Töivumiðlun hefur haft á al-
mennum markaði í meira en sjö
ár, með góðum árangri að því er
segir í tiikynningunni, og eru
notendur þess nú rúmlega 500.
„Frá því að Windows útgáfa
kerfisins var kynnt í október
1996, hafa yfir 130 launagreið-
endur tekið upp H-laun með góð-
um árangri. Eftir sameiningu
kerfanna verða notendur H-
launa um eitt þúsund talsins og
H-laun því útbreiddasta launa-
kerfi landsins. í náinni framtíð er
að vænta nýrra kerfa frá Tölvu-
miðlun, en það eru Starfsmanna-
kerfi H-Launa og Urvinnslu- og
áætlanakerfi H-launa sem eru
hliðarkerfi við H-Launa kerfið,“
segir í fréttinni.
Tvær njgar
lúxusgerðir
frá BMW
Mtinchen. Reuters.
BMW AG bílaframleiðandinn í
Múnchen hyggst smíða tvo
lúxusbíla, þar sem tilboð hans í
Rolls-Royce Motor Cars beið
lægri hlut fyrir tilboði
Volkswagen AG, að sögn þýzks
vikublaðs.
BMW ætlar að framleiða
lúxusbifreiðina Prineess og
lúxussportbílinn Z 07. Búizt er
við að BMW Princess muni
hafa meira til áð bera en nú-
verandi 7-lína, að sögn blaðs-
ins Wirtschaftswoche.
Z 07 verður tveggja sæta
sportbíll, búinn 500 PC-V8-
Biturbo vél, og gert er ráð fyr-
ir að hann keppi við Jaguar,
Ferrari og Bentley. Hann á að
fara á markað fyrir september
1999 samkvæmt fréttinni.
BMW ætlar að framleiða
500 bíla af gerðinni Z 07 á ári.
Bfllinn mun kosta 250.000
mörk. BMW kynnti áætlun um
Z 07 sportbíla í Tókýó í árslok
í fýrra samkvæmt fréttinni.
Blaðið sagði sagði að nær
öruggt væri að Z 07 bílar yrðu
framleiddir, en að framleiðsla
Princess væri í meiri óvissu.
Lægsta verð
á olíu
vestra í 14 ár
London. Reuters.
OLÍUVERÐ á heimsmarkaði
heldur áfram að falla þrátt fyr-
ir tilraunir framleiðenda til að
stemma stigu við því.
I London heldur hráolía
áfram að falla í verði, nú síðast
um 15 sent, í 12,26 dollara
tunnan.
Verðið er svipað og í marz
þegar það hafði ekki verið
lægra í 10 ár. Það varð til þess
að framleiðendur hófu tilraun-
ir til að ná samkomulagi um að
draga úr framleiðslu.
Hráolíuverð í Bandaríkjun-
um hefur ekki verið lægra síð-
an 1986. Umframbirgðir í New
York valda því að verð í fram-
virkum viðskiptum hefur ekki
verið lægra í 14 ár, eða 12,10
dollarar tunnan.
I raun og veru er hráolía
eins ódýr og hún var fyrir olíu-
kreppuna fyrir 25 árum.
Verðið hefur haldið áfram að
lækka þrátt fyrir skyndifundi
olíuráðherra Irana, Bijans
Zanganeh, mað ráðamönnum í
Arabíska furstasambandinu,
Oman, Kuwait og Qatar. Við-
ræðumar bera vott um vax-
andi kvíða vegna áhrifa olíu-
verðlækkana í framleiðslulönd-
unum.
Ný miðstöð
Virgin Ex-
press í Róm
Torino. Reutcrs.
VIRGIN Express, flugfélag
brezka framkvæmdamannsins
Richards Bransons með að-
setri í Brussel, hyggst opna
aðra Evrópumiðstöð í Róm.
Þetta verður 10 milljóna
punda fjárfesting, sem dreifíst
á tvö ár, að sögn Bransons.
Virgin Express hyggst taka
upp áætlunarferðir til Aþenu í
marz frá Róm. Þaðan er einnig
ráðgert áætlunarflug til París-
ar og Berlínar, auk þess sem
flogið verður á ítölskum innan-
landsleiðum.
„Ítalía er orðin mjög mikil-
vægur markaður fyrir okkur,“
sagði Branson. Virgin tók upp
viðræður við ítölsk flugvallayf-
irvöld um málið fyrir níu mán-
uðum.