Morgunblaðið - 27.06.1998, Side 24
24 LAUGARDAGUR 27. JÚNÍ 1998
MORGUNB LAÐIÐ
ERLENT
Kosningar á Norður-Irlandi
Margir þing-
manna eiga
óvenjulega
fortíð
Loft var lævi blandið í þinghúsi Belfast-
borgar í gær þegar talning atkvæða fyrir
fjögur kjördæmi borgarinnar stóð sem
hæst. Davíð Logi Sigurðsson var
viðstaddur talninguna.
Belfast. Morgunblaðið.
ÞAÐ var ekld hlaupið að því að fá
aðgang að þinghúsinu, sem er afar
glæsileg bygging frá tímum Viktor-
íu Bretlandsdrottningar og markar
miðjupunkt borgarinnar, enda
næsta víst að innandyra væri að
finna ýmsa umdeilda stjómmála-
menn. Að vísu kemur í ljós að Gerry
Adams, leiðtogi Sinn Féin, er sá eini
sem beinlínis hefur lífverði í
stöðugri návist sinni en það kemur
kannski ekki á óvart. Þessi maður
er varla dæmigerður stjómmála-
maður.
Adams er í framboði í Vestur-
Belfast og enginn vafi lék á því að
hann ynni þar sæti. Vestur-Belfast
er sennilega það kjördæma N-ír-
lands sem dyggast styður Sinn
Féin, stjómmálarm írska lýðveldis-
hersins (IRA). En Adams er ekki
eini flokksleiðtoginn sem er á þön-
um um ganga þinghússins í dag.
Bæði John Alderdice, leiðtogi
miðjuflokksins Alliance sem kennir
sig hvorki við sambandssinna né
þjóðemissinna, og David Ervine,
leiðtogi Framsækinna sambands-
sinna (PUP), era í framboði í einu af
fjóram kjördæmum Belfast-borgar.
David Trimble, leiðtogi Sambands-
flokks Ulster (UUP), og Ian Pa-
isley, leiðtogi sambandsflokksins
DUP, era hins vegar fjarri góðu
gamni, enda báðir í framboði í
landsbyggðarkjördæmum.
Stemmningin er samt sem áður
rafmögnuð og hingað eru sannar-
lega mættir allir frægustu frétta-
menn fjölmiðlanna sem um þessar
kosningar fjalla. Heimamenn ræða
kumpánlega hver við annan, spek-
úlera og spá í þær upplýsingar sem
leka út úr talningarherbergjunum.
Erlendir fjölmiðlamenn era afskipt-
ari, en taka þó með reglulegu milli-
bili tali helstu fulltrúa stjómmála-
flokkanna.
Nóg að gera fyrir Gerry Adams
Það er ekld laust við að frambjóð-
endur annarra flokka horfi með öf-
und á þegar Gerry Adams gengur
inn í salinn því fréttamenn þyrpast
umsvifalaust að honum. Halda
mætti að kvikmyndastjama væri
viðstödd, slíkt er aðdráttarafl
mannsins. Samt lætur hann ekki
mikið yfir sér. Hann er að vísu
nokkuð hávaxinn og grásprengt al-
skeggið ljær andliti hans karakter,
auk þess sem það hylur einhvem
veginn hugsanir hans. Það er erfitt
að ráða í þetta tilkomumikla andlit
en fas hans er annars látlaust, fótin
nálægt því að vera snjáð og hann er
fremur ankannalegur þar sem hann
stendur og svarar spumingum sjón-
varpsspyrlanna.
Þetta verður augljóslega langur
dagur fyrir Adams, því enn er langt
þar til öll úrslit era kunn. Hann
gengur frá fréttamanni BBC-sjón-
varpsins yfir til Sky-sjónvarps-
stöðvarinnar og þaðan leggur hann
leið sína í stutt viðtal við fréttamann
UTV áður en hann kannar stöðu
talningarinnar í sínu kjördæmi. Þá
er kominn tími til að hefja hringinn
á nýjan leik og ræða enn á ný við
Reuters
GERRY Adams, leiðtogi Sinn Fein, brá á leik eftir að hafa kosið í Vestur-Belfast á fímmtudag.
fréttamenn BBC. Einhvers staðar
inn á milli tekst einum aðstoðar-
manna hans þó að rétta honum
kaffibolla en þetta er ekki rétti tím-
inn til að slaka á. Barist verður þar
til yfir lýkur. Allir hafa jú stjóm-
málamennimir ítrekað mikilvægi
þessara kosninga.
Það era margfalt færri erlendir
fréttamenn nú en fyrir fimm vikum
þegar þjóðaratkvæðagreiðsla um
páskasamninginn fór fram. Samt er
hér að finna Itali, Asíubúa, Frakka
og Þjóðverja auk íslensks blaða-
manns Morgunblaðsins, sem verður
að viðurkenna fyrir sjálfum sér að
það er eitthvað undarlegt við þá til-
hugsun að standa í seilingarfjar-
lægð frá manni eins og Adams sem
öragglega hefur sitthvað misjafnt á
samviskunni. Hann er reyndar ekki
einn um það. David Ervine, leiðtogi
PUP, sem reyndar hefur orð á sér
fyrir að vera greindur og hæfileika-
ríkur stjórnmálamaður, sat inni um
árabil fyrir ódæðisverk. Þar er
einmitt að finna skýringuna á þvi
hvers vegna PUP hlýtur lítið fylgi,
flokkurinn er stjómmálaarmur
öfgasamtaka sambandssinna
(UVF), áður helsti óvinur lýðveldis-
sinna eins og Adams en svo virðist
nú sem þessir menn eigi sér sam-
eiginlegt markmið. Hlýtur það að
vekja talsverða athygli því UVF og
IRA bárast á banaspjót á áttunda
og níunda áratugnum, en kannski
sýnir það best þær breytingar sem
átt hafa sér stað á N-írlandi undan-
farin ár. Stríðinu er að ljúka, hvem-
ig svo sem þessar kosningar fara,
spurningin er bara hversu fljótt og
vel mönnum tekst að binda enda á
það.
Adams fyrstur til að tryggja
sér sæti í Belfast
Kannski er það kaldhæðnislegt
að sá er fyrstur hlýtur kosningu úr
kjördæmum Belfastborgar á þingið
nýja er leiðtogi stjórnmálaarms
IRA, maður sem granaður er um að
hafa blóði drifna fortíð. Gerry Ad-
ams hlýtur yfirburðakosningu í
Vestur-Belfast og allt bendir til að
3-4 félaga hans úr Sinn Féin hljóti
einnig kosningu í þessu kjördæmi.
Adams virðist ánægður á svip þegar
hann mætir fréttamönnunum. Or-
tröðin er engu lík, einn heimamanna
hefur á orði að einhver komi til með
að troðast undir í hamaganginum.
Adams tekur sér stöðu í miðju
hrúgunnar og verður að biðja fyrsta
spyrilinn að endurtaka spumingu
sína, „það er of mikill hávaði
héma“, segir hann og umsvifalaust
er sussað á viðstadda.
I vistarveram BBC má berja aug-
um glænýjar sjónvarpsmyndir frá
Norður-Antrim, kjördæmi Ians Pa-
isleys. Hann hefur náð kjöri á þing-
ið, eins og búast mátti við, og er
harla vígreifur. Túlkar hann niður-
stöðurnar sem sigur fyrir samband-
ið við Bretland og ósigur fyrir Da-
vid Trimble og „lygarann" Tony
Blair, forsætisráðheira Bretlands.
Sjónvarpsfréttamanni BBC gengur
erfiðlega að koma orði að, því gamli
maðurinn bölvar fjölmiðlum í sand
og ösku fyrir hlutdræga umfjöllun.
„Þakka þér kærlega fyrir ekki
neitt,“ hreytir hann í fréttamann
undir lok viðtalsins.
Óvenjulegir þingmenn
Ótrúlegir hlutir gerast í Norður-
Belfast. Þar er því fyrst lýst yfir að
Nigel Dodds, einn frambjóðenda
DUP-flokksins, sem andsnúinn var
páskasamkomulaginu, hafi hlotið
kosningu. En næstu tveir menn inn
era harla óvenjulegir stjórnmála-
menn. Gen-y Kelly sat ekki aðeins
inni fyrir verk sín í þágu IRA held-
ur vann sér það til ævarandi
frægðar árið 1984 að takast að
strjúka úr Maze-fangelsinu í ná-
grenni Belfast. Hann hefur síðan
skapað sér nafn í stjórnmálum. Hið
sama má segja um þriðja manninn
sem er Billy Hutchinson, frambjóð-
andi PUP. Hutchinson er ekki að-
eins fyrrverandi fangi, hann er
dæmdur morðingi. Margir kynlegir
kvistir munu sitja á nýju n-írsku
þingi, svo mikið er víst, og það
verður forvitnilegt að fylgjast með
samskiptum, eða kannski frekar
samskiptaörðugleikum, þing-
manna. N-írsk stjórnmál eru ekki
alveg það sem íslenskur blaðamað-
ur á að venjast.
Hæstiréttur í Bandarikjunum úrskurðar í tveim málum
Takmarkað neitunar-
vald forseta ólögmætt
HÆSTIRÉTTUR Bandaríkjanna felldi á
fimmtudag úr gildi lög sem þingið hafði sam-
þykkt um að forsetinn gæti beitt neitunarvaldi á
einstakar greinar í lögum um útgjöld og skatta
án þess að þurfa að hafna lögunum í heild.
Washington Post greindi frá þessu í gær. Komst
meirihluti dómara í réttinum að þeirri niður-
stöðu að lögin væru ekki í samræmi við stjórn-
arskrá. Þrír af níu dómurum voru andvígir nið-
urstöðunni.
Bill Clinton, forseti, er ákafur fylgismaður
laganna, og hafa forsetar barist fyrir þessum
völdum í rúmlega öld. Lögin voru samþykkt
1996 og gengu í gildi í fyrra. I úrskurði Hæsta-
réttar segir, að þau gangi gegn stjómarskrárá-
kvæðum um að lagafrumvarp þurfi að fást sam-
þykkt í báðum deildum og skuli síðan falið for-
seta til undirritunar eða neitunar.
í yfirlýsingu frá Hvíta húsinu sagði að úr-
skurðurinn „svipti forsetann mikilvægum mögu-
leika á að minnka sóun í opinbera kerfinu og á
að ýta undir umræðu um hvemig opinberir fjár-
munir skuli nýttir“. Clinton hafði sagst sann-
færður um að lögin stæðust stjómarskrána.
I meirihlutaáliti Hæstaréttar, sem dómarinn
John Paul Stevens skrifaði, sagði að lögin
gengju gegn þeim ákvæðum sem stjómarskráin
setti fyrir þingið og forsetann um það hvemig
frumvarp yrði að lögum, og fæli forsetanum of
mikið Iöggjafarvald.
Lög um fötlun gildi um alnæmi
John McCain og Dan Coats, öldungadeildar-
þingmenn repúblíkana, kváðust þegar myndu
reyna að finna aðra leið, sem samræmdist stjóm-
arskránni, til þess að forsetinn geti skorið niður
útgjöld. Það væri ákaflega mikilvægt að hann
hefði möguleika á slíku. Samkvæmt nýju fram-
varpi þeirra verður hver og ein grein laga af-
greidd sem sérstök lög og send forsetanum til
undirritunar eða neitunar.
Coats og McCain vora sammála um að ekki
væri ráðlegt að reyna að fá stjómarskránni
breytt. Andstaða við slíkt yrði of mikil.
Hæstiréttur samþykkti á fimmtudag að alnæm-
issjúklingar skuli njóta vemdar gegn misrétti
samkvæmt lögum um réttindi fatlaðra. Gildir
þetta frá þeirri stundu er sýking verður. Fimm af
níu dómuram Hæstaréttar voru samþykkir úr-
skurðinum.
Samkvæmt honum skulu allir sem smitaðir
eru af HlV-veirunni, einnig þeir sem ekki hafa
nein einkenni alnæmis, njóta vemdar laganna.
Þau kveða á um að ekki megi mismuna fötluðum
í atvinnumálum, húsnæðismálum, læknisþjón-
ustu eða með öðrum hætti á sviði opinberrar
þjónustu.
Dómarinn Anthony M. Kennedy sagði í meiri-
hlutaáliti réttarins að í „ljósi þess hversu snar-
lega veiran byrjar að vinna á hvítu blóðkomun-
um í blóði þess sem sýkist og þess hversu alvar-
legur sjúkdómurinn er teljum við hann vera
skerðingu frá þeirri stundu sem sýking verður."
Amnesty International
Meðferð
fanga í Japan
gagnrýnd
Tókýó. Reuters.
ALÞJÓÐLEGU mannréttindasam-
tökin Amnesty International gagn-
rýndu í gær japönsk stjómvöld fyrir
ástandið í fangelsismálum landsins.
Átaldi talsmaður samtakanna sér-
staklega ofbeldisfullar refsingar sem
fangar væra látnir þola og að þeir
væru látnir „matast eins og hundar“,
en þetta væra alvarleg brot á alþjóð-
legum mannréttindareglum.
„Fangar hafa verið fjötraðir í leð-
ur- og málmhandjárn, fangaverðir
ráðist á þá með ofbeldi og þeir
neyddir til að matast eins og hundar
í refsingarskyni fyrir minni háttar
brot á leynilegum hegðunarreglum
innan fangelsismúranna," sagði
Mark Allison, talsmaður Amnesty í
Austur-Asíu, á blaðamannafundi í
Tókýó.
Hann fordæmdi ennfremur aftök-
ur þriggja dauðadæmdra fanga sem
fram fóru í fyrradag, og hvatti til
þess að dauðarefsing yrði afnumin í
Japan.