Morgunblaðið - 27.06.1998, Síða 26
26 LAUGARDAGUR 27. JÚNÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Þriðja til-
raunin til
líffæra-
flutninga
New York. Daily Telegraph.
DANIEL Canal, 13 ára banda-
rískur drengur, gekkst í þriðja
skipti í vikunni undir uppskurð
þar sem grædd voru í hann
magi, lifur, bris og smágarnir.
Daniel, sem beið í fímm ár
eftir fyrstu líffærunum, gekkst
fyrst undir uppskurð í maí. Þá
hafnaði hins vegar líkami hans
líffærunum og því þurfti
drengurinn að gangast undir
aðra aðgerð hinn 2. júní síðast-
liðinn. Að henni lokinni
skemmdust svo líffærin eftir að
lifrin gaf sig.
Daniel þjáist af sjúkdómi
sem gerir það að verkum að
gamir hans snúast ósjálfrátt
og loka þannig fyrir blóð-
streymi til annarra líffæra.
Læknar telja að hefði hann
fengið nýjar smágamir fyrir
fimm ámm hefði hann ekki
þurft á öðmm líffæraflutning-
um að halda.
Susan McDougal flutt í stofu-
fangelsi af heilsufarsástæðum
Little Rock. Reuters.
SUSAN McDougal, einn aðalþátt-
takandinn í Whitewater-málinu svo-
kallaða, var látin laus úr fangelsi á
fimmtudag vegna veikinda.
McDougal neitar að veita Kenneth
Starr, sérstökum saksóknara, upp-
lýsingai- um fjármál Bills Clintons
forseta.
George Howard, umdæmisdóm-
ari í Bandaríkjunum, varð við beiðni
verjenda McDougal um að milda
refsingu hennar í þann tíma sem
hún hefur þegar setið inni. Hann
gaf henni þó fyrirmæli um að dvelja
í þrjá mánuði í stofufangelsi á heim-
ili foreldra hennar í Ai-kansas.
McDougal var dæmd í tveggja
ára fangelsi fyrir fjársvik í tengsl-
um við Whitewater. Hún hafði áður
verið dæmd í eins og hálfs árs varð-
hald fyrir að neita Starr um upplýs-
ingar. Hún og fyrrverandi eigin-
maður hennar, James, voru sam-
starfsfólk Bills og Hillary Clinton í
Whitewater-byggingarfyrirtækinu,
sem var upphaflega aðalatriðið í
rannsókn Starrs.
Reuters
SUSAN McDougal yppti öxlum er hún var spurð að því hvað hún
hygðist fyrir eftir að hún losnaði úr fangelsinu.
Clinton, sem nú er í heimsókn í
Kína, sagði í gær að hann hefði
áhyggjur af heilsufari McDougal og
vonaði að þessi niðurstaða dómar-
ans kæmi henni vel.
Starr gaf á fimmtudag Lindu
Tripp, vinkonu Monicu Lewinsky,
fyrinnæli um að mæta fyrir rann-
sóknarkviðdóm á þriðjudag og gera
grein fyrir segulbandsupptökum
sem hún gerði á laun. Upptökumar
em af samtölum Tripp við Lewin-
sky, sem segir frá meintu ástaræv-
intýri sínu með Clinton. Starr hóf
rannsókn á meintu misferli forset-
ans í tengslum við samskipti hans
við Lewinsky þegar Tripp gaf sig
fram við hann og lagði fram um 20
klukkustunda langar segulbands-
upptökur. Lewinsky hefur borið að
hún hafi ekki átt í kynferðislegu
sambandi við Clinton. Starr á nú í
samningaviðræðum við lögmenn
Lewinsky um að hún beri vitni gegn
því að verða ekki sótt til saka fyrir
meinsæri.
mmm*
Reuters
UNGMENNI kveiktu í eftirlitsstöð lögreglu í borginni Tizi Ouzou í Alsír í gær.
fjölgar frístundum
• -'mmokf'
• Verb frá 14.900 kr.
• Afí 0,8 til 2,5 hestöfí
Eigum hörkutæki fyrir
erfiðustu aðstæðurnar
Atök í Alsír í kjölfar
morðs á söngvara
Tizi Ouzou, Algeirsborg. Reutcrs
MIKIL reiði ríkir í Alsír eftir að
söngvarinn Lounes Matoub var
myrtur þar í landi á fimmtudag.
Yfirvöld segja Matoub, sem var
42 ára, hafa verið myrtan við
vegatálma sem skæruliðar komu
upp, en ungmenni sem þyrptust
út á götur bæjarins Tizi Ouzou í
gær taka skýringar stjómvalda
ekki trúanlegar. Til átaka kom
er lögregla reyndi að hafa hemil
á allt að tvöþúsund ungmennum
sem hrópuðu slagorð gegn
stjórninni og grýttu opinberar
byggingar.
Matoub, sem var lýðræðissinni
og svarinn andstæðingur ísl-
amskra heittrúarmanna, hafði að
mestu búið í Frakklandi frá því
heittrúarmenn rændu honum og
héldu í gíslingu í tvær vikur árið
1994. Eiginkona hans og tvær
mágkonur særðust í árásinni.
Þá varð öflug sprenging í mið-
borg Algeirsborgar á fimmtu-
dag. Sjónarvottar helda því fram
að sprengingin hafi orðið vegna
gasleka en yfirvöld segja orsakir
hennar enn ókunnar. Einn maður
særðist í sprengingunni, sem
heyrðist um mestalla borgina, og
kaffihús við helstu verslunargöt-
una, Rue Didouche Mourad, ger-
eyðilagðist.
Þijár árásir i vikunni
Sama dag og sprengingin varð
greindu alsirsk yfirvöld frá því
að 17 manns hefðu fallið og fimm
særst í „lítilmannlegri árás
skæruliða" á þorpið Hammar El-
Hes í Saida-héraði. Árásin er að
sögn yfirvalda þriðja árás skæru-
liða á óbreytta borgara á einni
viku. Talið er að rúmlega 260
manns hafi fallið í átökum stjórn-
arhersins og íslamskra heittrúar-
manna undanfarnar vikur en
65.000 manns eru taldir hafa fall-
ið frá því stjórnvöld aflýstu kosn-
ingum árið 1992.
Kreppan í
Rússlandi versnar
Jeltsín af-
lýsir ferð-
um vegna
ástandsins
Moskvu. Reuters.
KREPPAN á rússneska fjármála-
markaðinum tók nýja dýfu í gær og
tilkynnt var úr Kreml, að Borís
Jeltsín forseti hefði aflýst ferðalög-
um sem til hafði staðið að hann færi
í, svo hann gæti einbeitt sér að því að
taka á vandanum.
Kauphallarsérfræðingar sögðu að
lánið frá Alþjóðagjaldeyi’issjóðnum
upp á 670 milljónir dollara, um 48 ma
kr., sem samið var um á fimmtudag
að sjóðurinn léti Rússlandsstjórn í
té, væri einfaldlega of lítið til að geta
dregið á sannfærandi hátt úr þeim
þrýstingi sem er á mörkuðunum á
verð hlutabréfa og gengi rúblunnar.
Sögðu kauphallarmenn að nú væri
þess beðið í ofvæni, hvernig viðræð-
ur gengju um stórt viðbótarlán sem
ríkisstjórnin hefði farið fram á frá
IMF til að styðja við neyðarráðstaf-
anir hennar í efnahagsmálum.
Einnig mun það skipta miklu hvern-
ig rússneska þingið, þar sem stjórn-
arandstaðan ræður mestu, tekur á
ráðstafanaáætlun stjórnarinnar, en
þær umræður eru á dagskrá í næstu
viku.
----------------
Spenna eykst
í Gyuana
Trinidad, Daily Telegraph.
SPENNA hefur farið sívaxandi í Ge-
orgetown, höfuðborg Guyana í Suð-
ur-Ameríku, undanfarna daga og
óttast menn að úlfúð milli kynþátta
eigi enn eftir að vaxa haldi stjórnar-
andstaðan fast við ásakanir sínar um
að rangt hafi verið haft við í forseta-
kosningum í desember síðastliðnum.
Til átaka kom milli lögreglu og
stuðningsamanna stjórnarandstöð-
unnar bæði á fimmtudag og fóstudag
en stjórnarandstaðan, sem studdi
Desmond Hoyte, leiðtoga fólks af
afrískum uppruna, í forsetakosning-
unum, hefur neitað að viðurkenna
kjör Janet Jagan, 77 ára ekkju
Cheddi Jagan, fyrrverandi þjóðhöfð-
ingja, í embætti forseta. Niðurstöður
endurtalningar voru birtar 2. júní
síðastliðinn.
825 þúsund manns búa í Guyana,
sem var bresk nýlenda fram til árs-
ins 1966.