Morgunblaðið - 27.06.1998, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 27.06.1998, Blaðsíða 38
38 LAUGARDAGUR 27. JÚNÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ MARGMIÐLUN MYNDDISKASPILARAR eru komnir á almennan markað og salan góð að sögn. Hér gefur að líta spilara frá Sony og Panasonic. Sá fyrrnefndi kostar um 70.000 krónur en sá síðarnefndi heldur minna. Spilararnir nýtast einnig sem venjulegir geislaspilarar, en hægt er að fá mun dýrari spilara sem eru þá betri geislaspilarar um leið. Mynddisk- arnir koma Myndbandstæki eru til á flestum heimilum þrátt fyrir heldur lítil mynd- og hljómgæði VHS-tækninnar. Árni Matthíasson spáir því að önnur bylting sé framundan eftir að hafa kynnt sér DVD-spilara. DVD, sem kvikmyndaútefendur kalla mynddiska, eru geisladiskar sem byggjast á nýrri tækni. Við lesturinn er notaður leysigeisli af annarri bylgjulengd en á hefð- bundnu geisladrifi, þ.e.a.s. mjórri geisli, og því er hægt að hafa dæld- imar í disknum sem geyma gögnin minni og þéttar saman. A DVD disk eru dældimar 0,74 míkron á móti 1,16 míkronum á hefðbundnum diskum. í hefðbundnum geislaspil- ara er leysigeislinn innrauður með 780 nanómetra bylgjulengd, en í DVD-lesara rauður með 635 til 650 nanómetra bylgjulengd. Með þessu móti má sjöfalda geymslurýmið, upp í 4,7 gígabæti, eða GB, en sú tækni að hafa diskana tveggja laga er lík- lega merkilegasta tækniframfórin. Á geisladiskum er lag sem endur- kastar leysigeislanum, en á tveggja laga DVD-diskum er annað hálf- gegnsætt lag ofan á því. Vegna þess að það er hálfgegnsætt komast ekki fyrir á því nema 3,8 GB og því sam- anlagt á slíkum disk 9,8 GB á hvorri hlið. Þetta gefur ýmsa möguleika, bæði lengri bíómyndir eða fleiri en eina á sama diski, en þegar löng kvikmynd er sett á slíkan disk verð- ur áhorfandinn aðeins var við flökt brot úr sekúndu á meðan leshausinn er að stilla sig af fyrir ytra byrðið. Einnig mætti hugsa sér að á slíkum disk væri geisladiskur með tónlist á innra laginu, en þar fyrir ofan hálf- gagnsætt lag með tölvugögnum. Tölvur og geislaspilarar gætu lesið innra lagið, en DVD-lesara þyrfti til að lesa ytra lagið. Með þessu móti mætti til að mynda brúa bilið á milli nýrrar tækni og þeirrar sem er al- mennt notuð. Ogetið er að hægt er að hafa gögn beggja vegna á DVD- diskum, en þá þarf vitanlega að snúa þeim við. Á slíkan disk mætti setja 9,4 GB, en tvöfaldan tveggja laga disk 19,6 GB, eða innihald 13.600 tölvudiska eða 30 geisladiska. Helst stóð DVD-tækninni fyrir þrifum framan af að menn deildu um staðla sem notaðir yrðu til að vista gögnin. Þó nokkuð er síðan greitt var úr því eins og sést best á því að á annað þúsund kvikmyndir hafa þegar verið gefnar úr á DVD diskum og þúsund til væntanlegt á næstu tveimur árum svo ekki er lík- legt að skipta verði um staðal úr þessu. Mynddiskaspilarar streyma á markað Mynddiskaspilarar eru þegar teknir að streyma á markað frá öll- um helstu framleiðendum, og einnig eru til fjölmargar gerðir slíkra spil- ara fyrir tölvur, sem þá geta vitan- lega einnig lesið DVD diska með tölvugögnum. Ýmislegt efni er og að koma út á slíkum diskum, til að mynda er til sérstök DVD útgáfa af Encarta alfræðiriti Microsoft, ýmsir tölvuleikir eru til á DVD diskum og svo má telja. Ekki getur síðan verið langt í iand að útgefendur tónlistar taki við sér, því DVD-diskar henta afskaplega vel fyrir slíka útgáfu sem mætti þá hafa vandaðri, með víðara tíðnisvið og meiri hljómgæð- um. Á næstu mánuðum eru væntanleg á almennan markað fyrstu svonefndu DVD-RAM drifin, þ.e. drif sem skrif- að geta á DVD-diska. Margir hafa reyndar sett það fyrir sig að geta ekki notað DVD spilarann til að taka upp kvikmyndir eða annað efni úr sjónvarpi, en þó DVD-RAM komi á markað er það fyrst og fremst fyrir tölvugögn; það þarf meira til ef snúa á sjónvarpsefni yfir í MPG-2 þjappað form og brenna síðan á diskinn. Enn er því nokkuð í land með að geta tek- ið upp á slíka diska beint úr sjón- varpi, hvað þá aftur og aftur líkt og með myndband, en ekki er heldur ástæða til að setja það fyrir sig. Ef menn á annað borð hafa gaman af kvikmyndum, eiga þeir eftir að falla fyrir DVD tækninni sem skilar miklu betri myndum en gamla VHS-dótið og ekki skemmir að fá aukaefnið sem fylgir flestum myndum, auldnheldur sem hægt er að horfa á margar myndanna í breiðtjaldsuppsetningu, en ekki tálgaðar niður í sjónvarp. Kvikmyndaframleiðendur hafa skipt heiminum niður í svæði, meðal annars til að halda betur utan um markaðssetningu á myndum sínum á myndböndum, og þannig geta mynddiskaspilarar aðeins spilað myndir með viðeigandi svæð- iskóða. Sama á við um tölvumar og þegar drif er sett upp í tölvu þarf að svara spurningu um hvaða svæði tölvan er á. Hægt er að skipta um svæði sex sinn- um og síðan ekki söguna meir. Þetta hefur framleiðendum þótt gott á pappímum, en ekki tók langan tíma að komast fram hjá því, því að flestir eigendur DVD drifa í tölvur hafa eflaust nálgast lít- inn rekil sem fáanlegur er á Netinu og sér til þess að svæðiskóðinn skiptir engu máli. Líklega verður besta svæðisvörnin sú þegar upp er staðið að kvikmyndir sem gefnar em út fyrir svæðið sem Island er á verða með íslenskum textum og jafnvel valmyndum. Reyndar gefst fágætt tækifæri með nýrri tækni að leggja af gamaldags viðskiptahöml- ur á kvikmyndum á myndböndum eða diskum og taka upp samtímaút- gáfu vestan hafs og austan. Útgáfa á íslensku Morgunblaðið/Kristinn HALLGRÍMUR Kristinsson og Eyþór Guðjónsson umkringdir mynddiskum. SAM MYNDBÖND riðu á vaðið í útgáfu á mynddiskum, kvikmyndum á DVD sniði hér á landi, því í lok apríl síðastliðins komu út 10 myndir frá Waraer með ís- lenskum texta. Hallgrímur Kristinsson hjá SAM myndböndum segir að frekari út- gáfa sé í burðarliðnum og þannig komi 25 myndir í ágúst og síðan verði nokkrar myndir gefnar út í hveijum mánuði fram- vegis. Hallgrímur segir að Warner í Banda- ríkjunum annist um þessa útgáfu og fyrstu myndirnar hafi verið á svæði 2, en fyrir næsta skammt verði búið að breyta svæðisskipan meðal annars vegna breskra laga um merkingar slíkra diska og Bretar og írar verða því nánast einir á svæði. Is- land mun afur á móti tilheyra svæði 19 tungumála. Eins og getið er komu 10 myndir fyrir tveimur mánuðum en síðan ekki söguna meir og kvað Hallgrímur skýringuna þá að verið var að flytja framleiðsluna til Evrópu. „í næstu útgáfu verður blanda af nýjum myndum og eldri og þannig verða nokkrar myndir gefnar út á myndabandi samtímis og DVD, sem verður væntanlega reglan í framtíðinni," segir Hall- grímur og bætir við að útgefendur reyni gjarnan að hafa með eitthvað aukreitis og þannig fylgi kvikmyndinni Mich- ael Collins á mynddisk, sem væntanleg er í haust, rúmlega 50 mínútna sjónvarpsþáttur um Collins. Hallgrímur segir að SAM myndbönd hafi sent Warner texta við alimargar myndir, en einnig hafi menn þar á bæ sagst mundu ráða fslenska þýðendur eftir því sem þörf kref- ur til að tryggja að útgáfan verði sem jöfnust og mest. Nú hafa allmargar kvikmyndir verið talsettar hér á landi, þá sérstaklega myndir frá Disney, en Hallgrímur segist ekk- ert geta sagt um hvort unnt verði að tal- setja myndir fyrir íslenskan markað og reyndar hafi Disney ekkert gefið út um hugsanlega útgáfu á DVD. „Það eru þó alltaf einhver fyrirtæki að bætast við og þannig hafa flest þerra sem sögðust ekki myndu gefa út á DVD í bráð breytt um stefnu og taka þátt í úgáfunni af sama krafti og aðrir. Það er þegar búið að gefa út 1.000 titla í Bandaríkjunum og því er spáð að þeir verði orðnir 2.000 efir tvö ár, enda er íjórfaldur söluhraði á DVD mynd- um miðað við það sem var þegar geisla- diskarnir komu á markað eða fyrstu VHS myndböndin. Hér á iandi eiga eftir að koma 120 titlar fyrir jól á okkar vegum.“ Hallgrímur segist telja að mynddisk- arnir muni með tímanum breyta markaðs- setningu á myndböndum og þannig verði meira um samtímaútgáfu í Bandaríkjun- um og Evrópu. Áhersla er og lögð á að hafa verð í Evrópu áþekkt og í Bandaríkj- unum og reyndar segir Hallgrímur að verð hér á landi sé nánast það sama og annars staðar í Evrópu sem geri það ekki eins eftirsóknarvert að kaupa myndir ytra, en myndir innan fslenska svæðisins, þar sem eru meðal annars önnur Norður- lönd og þorri Evrópu, verða eðlilega allar með íslenskum texta líka. „Það tekur vitanlega tíma að vinna upp það rúma ár sem Bandaríkjamarkaður hefur í forskot, en það á eftir að komast á meira jafnvægi þegar fram líður.“ Það sem telur... Gríðarlegur afkastamunur er á Pentium og Pentium II örgjörvum. Þess vegna er Pll framtíðin. Fifa “98, Nightmare Creatures, Terricade, Tomb v Raider, Mech Warrior II, Ultimate Race ATHOGIÐ pni Pentium II266 IVlhz BT • SKEIFAN 11 • SÍMI 550-4444 • POSTKROFUSIMINN 550-4400
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.