Morgunblaðið - 27.06.1998, Page 39

Morgunblaðið - 27.06.1998, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. JÚNÍ 1998 394 MARGMIÐLUN Frábær slags- málaleikur —nsaiii— Dead or Alive Dead or Alive, leikur fyrir PlatStation frá Temco. Leikurinn styður Analog- stýripinna og Dual Shock og hægt er að komast í tæri við falda aðalkarla með minniskorti. SLAGSMÁLALEIKIR hafa lengi verið ein vinsælasta leikjategundin í leikjatölvum og hef- ur engin breyting orðið á því til þessa. Nú hef- ur Temco gefíð út nýjan slagsmálaleik sem nefnist Dead or Alive. Dead or Alive er leikur sem minnir afar mik- ið á hinn sívinsæla Virtual Fighter sem flestir muna líklegast eftir, enda hafa margir Virtual Fighter „klónar" komið fram til þessa en þessi tekur flestum fram í gæðum. I Dead or Alive sést ekkert blóð, engin nekt og engin morð eru framin en þó má ekki af- skrifa leikinn strax vegna þess. Mörg mismun- andi bardagaumhverfí eru í leiknum, eitt fyrir hverja persónu. Persónurnar ena níu, þar af sex karlar og þrjár konur og fyrir þá sem eru femínistar í eðli sínu eða stelpur er hægt að velja hvort brjóstin skoppa eða ekki. í Virtual Fighter kom það fyrir að keppandinn datt út úr hringnum og var þá leikurinn búinn og sá sem datt út tapaði. í Dead or Alive missir sá sem dettur út úr hringnum örlitla orku, ann- að ekki. Hægt er að keppa við alla níu keppendurna og svo við endakarlinn, spila við annan kepp- anda og fara í tíma- og útsláttarkeppni, einnig ' er að hægt að búa til lið og keppa við önnur lið. Ef spilendum líkar ekki föt keppendanna er hæj*t að velja um þrenns konar klæðnað. I Virtual Fighter eitt var einungis hægt að beita örfáum brögðum, í númer tvö batnaði það til muna en í þessum leik er frekar erfitt að muna öll brögðin og allar samsetningarnar. Ef spilandi hefur tímt að kaupa sér minniskort getur hann farið aftur í leikinn á sama stað og hann hætti. Dead or Alive er frábær slagsmálaleikur en því miður bara enn einn „klón“ af Virtual Fighter og hver hefur ekki fengið nóg af þeim. Ingvi M. Árnason Liðsstiórinn á netinu HEIMSMEISTARAKEPPNIN í Frakklandi stendur sem hæst og fækkar óðum liðunum sem enn eru eftir í keppninni. Á netinu fjölgar aft- ur á móti liðunum því þar keppa menn með eigin lið með aðstoð tölv- unnar og netsins. HM-leikir eru aðgengilegir víða um heim, þar á meðal hér á landi hjá Margmiðlun, sem opnaði vefínn „Liðsstjórann". Á þeim vef eru tveir leikir sem byggjast annars vegar á Landssímadeildinni, og mikið eftir af honum því keppni stendur sem hæst, og svo hins vegar á Heimsmeistara- kegpninni í Frakklandi. Á slóðunum http://www.mmedia- .is/lidsstjorinn og http://www.rn; media.is/hm er leikina að fínna. I upphafi er liðsstjórum úthlutað spila- peningum eða einingum sem þeir nota til að kaupa og setja saman lið úr leikmannahópi ‘Landssímadeildar- innar eða Heimsmeistarakeppninnar, en leikmenn eru mismunandi verð- mætir og hægt að selja þá og kaupa að vild. Leikmenn fá síðan stig og hækka og lækka í verði eftir frammi- stöðu í deildinni eða heimsmeistara- keppninni og skora þannig stig fyrir lið þátttakandans. Stigagjöfín er nán- l iðsiítiótirm ♦ File gdd View fio £ommunica«Of Help Back Forwáíd Rdoad Home Search Gtndc Pfint Secuiy Stop ” BookrAAfks Jfc, Localion j hltp: //www mmeda ts/feds s (jonnn/ Skra þátttOku RcqIuí Fréttir Vorölaun Si aóa Loíkdagar Hjálp Pó$tUf orinn salnaðu liði og sigraðul Landssímadeildin Velkominn á heimaslóöir Liðsstjórans! Hér stofnar þú þitt lið, færð úthlutað spilaeiningum og kaupir leikmenn úr leikmannahópi Landssímadeildarinnar, Leikmenn fá stig og hækka og lækka í verði eftir frammistöðu sinni f deildinni og skora þannig stig fyrir þitt lið. Bolíiiiri <%. i Forrítunj Tokhj þótl Gott er að byrja á að lesa reglurnar sem útskýra leikinn nánar en síðan er ekki eftir neínu að bíða........spilaðu með! Ef þú hefur einhverjar spurningar eða athugasemdir sem þú vilt koma á framfæri þá hikaðu ekki við það þvf með því ert þú eflaust að hjálpa til við að gera Liðsstjóraleikinn sem bestan, Skráðu inn notandanafn þitt og lykilorð til að skoða eöa breyta liði þínu. Ef hefur ekki spilað Not*n<<il I fyrr, þá skaltu skrá þátttöku þína í leikinn. ,--------- ______ j Lykllorði | \m Skra þátltðku | Spila leik | Ueikurinn virkar best I Explorer 4.0 og Netscape 4.0. Ef notandi er rneð eldri gerð af vefr/ni eru leiðbeiníngar um hvað skal gera eftír að skráninu er lokið og leikurinn hefst. ar útskýrð á Liðsstjóravefnum. Fréttir og stigagjöf eru uppfærðar vikulega af starfsmönnum Margmiði- unar og gerist það einum til tveimur dögum eftir lok hverrar umferðar. Engin takmörk eru á fjölda liða og þátttakendur geta verið með fleiri en eitt lið í gangi, aukinheldur sem liðs- stjórar velja nöfn liðanna sjálfir. Fyr- ir vikið eru þau sum sérkennileg, til að mynda eru fímm efstu lið í Liðs- stjóraleiknum Karlsruhe, Bafana, LOG Utd., Golden State og KINGS- 2. Verðiaun eru í boði í báðum leikj- unum fyrir þau lið sem safnað hafa flestum stigum og tilkynnt sérstak- lega. í Landssímadeildarleiknum eru veitt verðlaun því liði sem stendur sig best í hverri umferð og í lok móts því liði sem hefur bestan samanlagðan árangur. Fyrir þátttöku í Heims- meistaraleiknum eru veitt verðlaun fyrir bestan árangur í riðlakeppninni og síðan fyrir bestan árangur í hverri umferð útsláttarkeppninnar. Hægt er að hætta leik og byrja hvenær sem er fyrir síðustu leikviku, en síðasti möguleiki á skráningu og/eða breytingu á uppstillingu er þremur tímum fyir ásettan leiktíma. Verndaðu húsið SIBA þakrennu- vörurnar eru búnar til úr Plastisol vörðu stáli og eru til í mörgum litum. Einfalt fyrir þig sem vinnur verkið sjálfur. ÍSSBA ($1 BLIKKÁS hf Símar 557 2000 og 557 7100 Skemmuvegi 36 Bleik gata Kópavogi Nýtt örgjörvasett SLAGURINN liarðnar enn í þrívíddargrafíkinni og nýj- ustu fregnir herma að enn eigi eftir að skerpast línur. Þannig hafa IBM, Rendition og Fujitsu tekið höndum sam- an uin nýtt þrívíddarör- gjörvasett. Bestu lausnir í þrívíddar- grafík hafa til þessa byggst á því að láta sérstakt skjákort sinna þrívíddinni, en annað kort, oft innbyggt, annast tví- víddina. Margir hafa reynt að setja saman kort sem sameini hvort tveggja, góða þrívídd og tvívídd, en ekki tekist ýkja vel upp; slík kort hafa þótt ósannnfærandi samsuða. Nú hyggjast IBM, Rendition og Fujitsu setja saman kort sem annist alla grafíkvinnslu og taki að auki álag af ör- gjörvanum. Þrívíddarkort hafa náð svo langt, til að mynda Voodoo 2 örgjörvasettið frá 3Dfx, að þau eyða talsverðum tíma í að bíða eftir örgjörvanum. Nýtt örgjörvasett frá áður- nefndum samstarfsaðilum byggist aftur á móti á því að færa grafíkvinnsluna nánast alla út úr örgjörvanum og Iáta skjákortið annast hana að öllu leyti. Ekki er ljóst hvaða þrívídd- arforritunaskil, API, ör- gjörvasettið styður, en þó að OpenGl sé í náðinni. Það þýð- ir að Quake-vinir til að mynda geti glaðst, en aftur á móti eru þeir ekki eins kátir sem nota Microsoft DirectX leiki, sem eru reyndar vel flestir. Hercules er með þeim fyrstu sem framleiða munu kort með nýja settinu og eru fyrstu slík Hercules-kort væntanleg í næsta mánuði. Örgjörvasettið byggist á V2200 þrívíddarhraðlinum frá Rendition og FGX-1 tækni Fujitsu. Innlausnarverð vaxtamiða verðtryggðra spariskírteina ríkissjóðs Hinn 10. júlí 1998 er 25. fasti gjalddagi vaxtamiða verðtryggðra spariskírteina ríkissjóðs í l.fl.B 1986. Gegn framvísun vaxtamiða nr. 25 verður frá og með 10. júlí nk. greitt sem hér segir: Vaxtamiði með 50.000 kr. skírteini = kr. 5.327,00 Ofangreind fjárhæð er vextir af höfuðstól spariskírteinanna fyrir tímabilið 10. janúar 1998 til 10. júlí 1998 að viðbættum verðbótum sem fylgja hækkun sem orðið hefur á lánskjaravísitölu frá grunnvísitölu skírteinanna. Athygli skal vakin á því að innlausnarfjárhæð vaxtamiða breytist aldrei eftir gjalddaga. Innlausn vaxtamiða fer fram gegn framvísun þeirra í afgreiðslu Seðlabanka íslands, Kalkofnsvegi 1, Reykjavík, og hefst hinn 10. júlí 1998. Reykjavík, 21. júní 1998 SEÐLABANKIÍSLANDS

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.