Morgunblaðið - 27.06.1998, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 27.06.1998, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR LAUGARDAGUR 27. JÚNÍ 1998 47 + Ingibjörg Bene- diktsdóttir var fædd á Ásmundar- nesi í Kaldrananes- hreppi 14. septem- ber 1922. Hún lést á sjúkrahúsi Hólma- víkur 19. júní síð- astliðinn. Foreldrar hennar voru Bene- dikt Benjamínsson, f. 22. apríl 1893, d. 2. júlí 1974, og kona hans Finnfríður Jó- hanna Jóhannsdótt- ir, f. 3. júlí 1888, d. 10. janúar 1964. Systkini Ingibjargar voru Guð- björg, Magnús, Sigurbjörg og Björn, öll látin. Ingibjörg giftist Pétri Áskels- syni, sjómanni, f. 12. jan. 1917 á Bassastöðum, Kaldrananes- hreppi, d. 17. mars 1971. Þau eignuðust 11 börn: Ásdís Guð- ný, f. 18 september 1940. Biísett á Akranesi, maki Björn Árna- son. Börn þeirra eru Birna Dís, Ingibjörg Hulda, Árni Magnús, Pétur og Þuríður. Þau eiga 13 barnabörn og 1 barnabama- barn. Finnfríður Benedikta, f. 15. mars 1942, búsett á Hólma- vík. Maki Jón Kristinsson. Böm Finnfríðar em Ingþór Pétur, Brynja Rós, Jón Trausti, Gunn- ar Freyr, Bjarki Hólm. Bama- börn hennar em 7. Ástvaldur, f. 9. ágúst 1943, búsettur á Hvammstanga, maki Jytta Juul. Böm þeirra era Petra Hlín, Súsanna Björg og Bára. Þau eiga 3 barnabörn. Jón Gunnar, f. 14. desember 1944, d. 6. febr- Mamma, elsku mamma man ég augun þín 1 þeim las ég alla ebkuna til mín. Mamma, elsku mamma man ég þína hönd bar hún mig og benti björt á dýrðarlönd. Mamma, elsku mamma man ég brosið þitt, gengu hlýir geislar gegnum hjartað mitt. Mamma, elsku mamma mér í huga skín bjarmi þinna bæna blessuð versin þín. Mamma, elsku mamma manéglengstogbest hjartað blíða, heita hjarta, er ég sakna mest. (Ók. höf.) Þetta ljóð á svo vel við Lillu, er ég minnist hennar. Lilla var fíngerð, falleg kona með lágværa ómþýða rödd. Ég var á unglingsaldri er ég úar 1965. Birgir Hafstcinn, f. 6. júli 1946, búsettur á Hólmavík. Guðrún Björg, f. 21. septem- ber 1948, búsett á Akureyri, maki Stefán Omar Her- mannsson. Börn þeirra em Jón Gunnar, Harpa, Hlynur og Sigurður Fannar. Þau eiga 3 barnabörn. Svavar Hreinn, f. 20 janúar 1952, búsettur á Hólmavík, maki Að- aiheiður Steinarsdóttir. Börn þeirra eru Jóhanna Kariotta, Pétur Áskell og Svavar Kári. Þau eiga 1 barnabarn. Benedikt Sigurbjöm, f. 31. mars 1954, búsettur á Hólmavík, maki Signý Ólafsdóttir. Börn þeirra em Ingibjörg og Hafþór Rafn. Stúika Pétursdóttir, f. andvana 26. júlí 1956. Ingvar Þór, f. 7. febrúar 1958, búsettur á Hólmavík, maki Bryndís Sig- urðardóttir. Börn þeirra era Ester, Heiðdís Arna og Björk. Þau eiga 1 barnabarn. Linda Dröfn, f. 23. aprfl 1962, búsett á Akranesi, maki Þröstur Vil- hjálmsson. Börn þeirra era Vil- hjáimur Þór, Birgitta Dröfn og Marvin. Ingibjörg bjó með manni sín- um fyrst á Kaldrananesi og Djúpavík og var si'ðan húsmóðir á Hólmavík. Útför Ingibjargar fer fram frá Hólmavíkurkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. kynntist Lillu í gegnum vinskap við bömin hennar. Mér er minnistætt hvemig hún stjómaði bamaskaran- um með hljóðlátri mildi þó fjölgaði í hópinn hennar, ærslafengin ung- menni. Ég dáðist að Lillu hvemig hún tókst á við lífið. Móðurhlutverkið er vandasamt hlutverk og margt sem kallar á í nútímasamfélagi, Lilla kunni svo vel að vera móðir. Ég verð ævinlega þakklát fyrir kynni mín af Lillu, sem er mér dýr- mæt gjöf. Elsku Biggi og aðstand- endur, ég votta ykkur samúð mína. Sigrún Ásgeirsdóttir. Mig langar til að minnast tengda- móður minnar með þessum orðum, en hún lést á Sjúkrahúsi Hólmavík- ur 19. júní síðastliðinn, eftir erfiða sjúkdómslegu. Ingibjörg Benediktsdóttir eða Lilla eins og hún var oftast kölluð í daglegu tali fæddist á Ásmundar- nesi í Bjamarfirði á Ströndum og ólst þar upp. Ung að ámm giftist hún eiginmanni sínum Pétri Áskels- syni frá Bassastöðum á Selströnd og byrjuðu þau að búa á Brúará, en fóm síðan að Kaldrananesi og vom þar í eitt ár en síðan lá leiðin í Djúpuvík á Ströndum í síld. Frá Djúpuvík fóm þau hjónin síð- an aftur árið 1945 að Kaldrananesi í Bjarnarfirði, þar sem þau reistu ný- býlið Bjarg, og bjuggu þau þar til haustsins 1954 er þau fluttu til Hólmavíkur og áttu þar heima upp frá því. Lilla og Pétur eignuðust ellefu börn, níu þeirra em enn á lífi, ein stúlka fæddist andvana og soninn Jón Gunnar misstu þau af slysfór- um árið 1965. Árið 1971 varð Lilla aftur fyrir miklum missi er Pétur maður hennar fórst á báti sínum, mb. Víkingi. Stóð þá Lilla ein uppi með börn sín og var henni þá styrk- ur að þeim sem voru komin til full- orðinsára. Sá tími þessarar aldar sem Lilla eignaðist bömin sín ellefu var um margt mjög erfiður fýrir konur, þetta var tími mikilla breyt- inga í íslensku þjóðfélagi, það lagð- ist að mestu leyti af að hafa vinnu- konur og nútíma heimilistæki vora ekki komin til skjalanna, og er það okkar kynslóð lítt skiljanlegt hvern- ig þessar konur komust af við hinar erfiðu aðstæður, þegar við fáum nóg með 2-3 börn og öll nútíma þæg- indi. Það gefur augaleið að þessi harða lífsbarátta kostaði sitt og voru kon- ur oft slitnar um aldur fram og fór ekki hjá því að hún tæki sinn toll hjá Lillu og átti hún við heilsuleysi að stríða á efri ámm. Lilla mín var ein af þessum hetjum hversdagslífs- ins sem ber ekki mikið á, það hefur verið mikil vinna að ala upp tíu böm og mörg handtökin við að prjóna, sauma og gera við, og þegar ég kynntist Lillu á efri áram vora þeir ófáir sokkarnir sem hún skaut að syni sínum, að ekki sé talað um fal- legu útprjónuðu peysurnar sem birtust í jólapökkunum til barna okkar. Oft var það að maður sá á eftir þeim bræðmm skjóta sér inn til mömmu sinnar til að fá sér kaffi- sopa og vom þá oftar en ekki pönnukökur eða hinir einu sönnu snúðar með kaffinu, sem ég held að okkur tengdadætmnum takist aldrei að baka þrátt fyrir góða við- leitni. Eftir að Pétur fórst hélt Lilla heimili í Bræðraborg með þeim bömum sínum sem enn voru í for- eldrahúsum og síðan með syni sín- um Birgi og flutti hún til hans í ann- að húsnæði þegar aldurinn færðist yfir og hugsaði hann vel og af um- hyggju um móður sína í ellinni. Það kom síðan að því að veikindi Lillu ágerðust og var hún seinustu tvö æviár sín á Sjúkrahúsinu á Hólmavík. Elsku Lilla mín, nú þegar komið er að leiðarlokum er það trú mín að algóður guð hafi tekið þig í faðm sér og að þú hafir nú hitt aftur horfna ástvini. Aðstandendum sendi ég mínar innilegustu samúðarkveðjur. Aðalheiður Steinarsdóttir. INGIBJÖRG BENEDIKTSDÓTTIR SÆMUNDUR BREIÐFJÖRÐ HELGASON áttum við saman góða kveðjustund ásamt ömmu, við kvöddumst svo en mér datt samt einhvem veginn aldrei í hug að ég væri að kveðja þig að eilífu. Þú kenndir mér svo ótrú- lega margt í ssambandi við lífið og aðra hluti og varst alltaf svo skiln- ingsríkur og stoltur af öllu sem ég gerði og þú hjálpaðir mér með allt sem þú gast. Það er svo skrítið að vera annars staðar í heiminum og geta ekki kvatt þig hinstu kveðju. Og að hugsa um að koma heim og geta ekki komið til þín í heimsókn til að spjalla um daginn og veginn, farið í bíltúr niður á bryggju, því að þeim stað í Hafnarfirði unnir þú mest, + Sæmundur Breiðfjörð Helgason fæddist í Kvígindisfirði, A.- Barðastrandasýslu 23. október 1916. Hann lést á Lands- spítalanum þann 3. júní síðastliðinn og fór útför hans fram frá Hafnarfjarðar- kirkju ll.júní. Elsku afi minn. Núna ertu farinn og kemur aldrei aftur, nema auð- vitað í draumum mínum og hugsun- um, eins og þú ert búinn að vera svo mikið síðustu daga. Síðast þegar ég sá þig varstu svo hress og svo ánægður fyrir mína hönd að vera að fara til Þýskalands. Áður en ég fór enda gamall sjómaður. Ég elska þig og hef alltaf gert og minningin um þig mun lifa í hjarta mínu um aldur og ævi. Þegar ég eignast börn mun ég segja þeim frá þér og kenna þeim að búa til „bréfbáta". Það er óhugn- anlega sárt að missa þig en ég vona að þér líði betur þar sem þú ert núna. Elsku pabbi, amma, Helgi og aðrir ástvinir. Megi Guð vera meðykkur í sorginni og ég votta ykkur mína dýpstu samúð. „Þótt ég sé látinn, harmið mig ekki með tárum, hugsið ekki um dauðann með harmi eða ótta. Ég er svo nærri, að hvert eitt tár ykkar snertir mig og kvelur, þótt látinn mig haldið. En þegar þið hlæið og syngið með glöðum hug, lyftist sál mín upp í mót til ljóssins. Verið glöð og þakklát fyrir allt sem lífið gefur og ég, þótt látinn sé, tek þátt í gleði ykkar yfir lífinu." (Kahlil Gibran.) Elsku afi minn, þú varst fullkomin fyrirmynd, takk fyrir allt, við sjá- umst aftur seinna. Ástar og saknaðarkveðjur, Þín, Halfa Eyberg Þorgeirsdóttir. + Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir og afi, GUÐMUNDUR HANSSON fyrrverandi vörubifreiðastjóri, Skúlagötu 40, lést miðvikudaginn 24. júní á hjartadeild Sjúkrahúss Reykjavíkur, Fossvogi. Elsa D. Helgadóttir, Halla Guðmundsdóttir, Gunnlaugur H. Gíslason, Hans B. Guðmundsson, Steinunn Njálsdóttir, Friðjón Guðmundsson, Karen Emilsdóttir, Snorri Guðmundsson, Lilja Jónsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg móðir mín og tengdamóðir, SIGURBJÖRG (SILLA) E. LEVY, áður til heimilis á Sólvallagötu 60, Reykjavík, lést að Seljahlíð fimmtudaginn 18. júní. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey, að ósk hinnar látnu. Edda Levy, Heiga María Stefánsdóttir. + Faðir okkar og tengdafaðir, ALFREÐ BJÖRNSSON frá Útkoti á Kjalarnesi, lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur. Útförin auglýst síðar. Björn Alfreðsson, Hafsteinn Alfreðsson, Óskar Alfreðsson, Sæmundur Alfreðsson, Erla Jósefsdóttir, Guðrún Jóhannesdóttir, Helga Valdimarsdóttir, Dagbjört Flórentsdóttir. + Faðir okkar, bróðir og sonur, KONRÁÐ RAGNAR BJARNASON fyrrv. framkvæmdastjóri, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni mánudaginn 29. júní kl. 15.00. Ragnhildur B. Konráðsdóttir, Kristín S. Konráðsdóttir, Konráð R. Konráðsson, Sigríður Bjarnadóttir, Bjarni Konráðsson. + Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma og systir, SOFFÍA G. JÓNSDÓTTIR frá Deildartungu, Kaplaskjólsvegi 65, Reykjavík, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju mánu- daginn 29. júní kl. 13.30. Þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á Heimahlynningu Krabba- meinsfélagsins. Sigurbjörg Þorsteinsdóttir, Sigurður Kári Árnason, Arnbjörg Sofffa Árnadóttir, Ragnar Auðun Árnason, Vigdfs Jónsdóttir, Ragnheiður Jónsdóttir, Hannes Jónsson, Árni Þór Sigurðsson, Guðrún Jónsdóttir, Andrés M. Jónsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.