Morgunblaðið - 27.06.1998, Síða 58
58 LAUGARDAGUR 27. JÚNÍ1998
MORGUNBLAÐIÐ
/
Eg skapa mín
eigin tækifæri
Kvikmynd Jóhanns Sigmarssonar „Ein
stór fjölskylda“ fékk misjafna dóma áhorf-
enda og gagnrýnenda. Leikstjórinn hefur
nú tekið aðra bíómynd og sagði Hildi
Loftsdóttur að hann hefði enga ástæðu til
að láta neitt aftra sér.
FÉLAGARNIR Jóhann
Sigmarsson og Júlíus
Kemp í Kvikmyndafé-
lagi Islands vinna sam-
an að nýjustu kvik-
mynd Jóhanns „Oskabörn þjóðar-
innar“ sem hefur verið styrkt bæði
af Kvikmyndasjóði Islands og
handritasjóðnum „European
Script Fund“.
Blaðamaður heimsótti leikstjór-
ann og handritshöfundinn Jóhann
heim í íbúðina sem var einn af
stærri upptökustöðum myndarinn-
ar.
Sjónarhorn smákrimmans
- Um hvað fjalla „Óskaböm
þjóðarinnar"?
„Þetta er mynd um smákrimma,
og þetta er sjónarhom þeirra á þá
sjálfa og aðra smákrimma. Annars
er þetta raunsæ kómedía. Flest
sem ég skrifa er raunsætt. Ég hef
gaman af því að taka eftir því sem
fólk tekur annars ekki eftir í fari
fólks. Þess vegna skrifa ég um lífið
eins og það er, en þessi mynd er
um líf mjög þröngs hóps af fólki.
Upphaflega fékk ég þó hugmynd-
ina 1993 og hún hefur verið að
gerjast í kollinum á mér síðan.
Eitt sinn var ég að ganga á milli
tökustaða með starfsliðið mitt á
hælunum. Allir voru berandi tæki
og tól og þegar ég leit yfir hópinn
fannst mér þau eins og smákrimm-
ar.
Fyrst ætlaði ég að gera myndina
nú í sumar en þá hefði hún ekki
verið frumsýnd fyrr en árið 1999.
Ég var reyndar ekki búinn að fjár-
magna hana að fullu þegar ég hóf
tökumar. En þar sem ég var í stuði
til þess að gera mynd, og hafði enn
metnað fyrir þessa mynd þá dreif
ég í henni í fyrrasumar. Nú er ég
búinn að grófldippa myndina, Júlli
fer yfir það, síðan fínpússar Stein-
grímur Karlsson verkið. Ég á gíf-
urlega mikið efni því nýtingin á
í kvöld kl. 20 sunnudag 28. júní föstudag 3. júlí
örfá sæti laus laus sæti laugardag 4 júli
( kvöld kl. 23 fimmtudag 2. júli
örfá sæti laus örfá sæti laus
Sýningar hefjast kl. 20.00. Ósóttar pantanir seldar daglega.
Miðasala sfmi 551 1475.
Opin alla daga kl. 15-19. Símapantanir frá kl. 10 virka daga og frá kl. 13 um helgar.
Sumartónleikar
„Konu sína enginn kyssti betur né
kvað um hana líkt og ég“
Ragnheiður Olafsdórtir og Þórarinn
Hjartarson með dagskrá og tónleika
helgaða Páli Ólafssyni
fim. 2/7 kl. 21.00 laus sæti
„Örtónleikar“
með Möggu Stínu
lau. 4/7 kl. 22—2 laus sæti
Matseðill sumartónleika
Indverskur grænmetisréttur að hætti
Lindu, borinn fram með fersku salati og
ristuðum furuhnetum.
„ Eftirréttur: „Óvænt endalok"
Miðasalan opin alla virka daga
kl. 1S-18. Miðap. allan sólarhringinn
í s. 551 9055.
Netfang: kaffileik@isholf.is
MÚSÍKBASAR
Spiluð lög eftir
Leif Þórarinsson kl. 14.
Ókeypis aðgangur
Miðasalan opin 12—18.
Sími í miðasölu 530 30 30
LEIKSKÓLINN sýnlr ÞÆTTI ÚR
SUMARGESTUM
e. Maxím Gorkí
FYRIRHUGAÐAR
SÝNINGAR:
27. júní.6. sýning
30. júní.7. sýning
2. júlí..8. sýning
Sýnlngar hefjast kl. 20:00
Sýnter í LEIKHÚSINU Ægisgötu 7.
Mlflaverðkr. 500,-
Mi&pantanir í síma: 561-6677 & 898-0207
milli kl. 16-19.
LEIKSKÓLINN
FÓLK í FRÉTTUM
- v'; <-i
’t
r'-t- ,
PlllílF
Morgunblaðið/Amaldur
JÓHANN er ánægður með nýju myndina sína, „Óskabörn þjóðarinnar'
filmunni var mjög góð.
Handritið er líka langt,
þannig að ég verð að
sleppa einhvetjum at-
riðum, en frumsýning er
áætluð í september eða
október.“
Allir eru jafnir
- Hverjir leika í
myndinni?
„Ottarr Proppé og
Grímur Hjartarson
leika aðalpersónurnar,
félagana Simma og Óla.
Svo eru það Ragnheiður
Axel, Davíð Þór Jóns-
son, Jón Sæmundur,
Þröstur Leó Gunnars-
son, Arni Tryggvason
og Friðrik Þór Friðriks-
son.
- Er Friðrik Þór góð-
ur leikari?
„Ef maður er góður
leikstjóri er maður yfir-
leitt góður leikari. Hann
var svolítið feiminn en
ég braut hann niður.
Friðrik er bara svo mik-
il rúsína.“
- Hvernig valdir þú
aðalleikarana?
„Óttarr er skemmti-
kraftur og hefur góða
áru yfir sér. Svo er hann
líka svo sætur. Grím hef
ég þekkt í 25 ár og mér
finnst hann hæfileika-
ríkur, en ég þurfti að
móta hann í hlutverkið.
Sumir óreyndir leikarar
gáfust upp á því stigi.
Hjá mér eru allir jafnir
við vinnuna og ég vil að
leikarar séu skapandi
með mér. Þetta er ekki
bara mín mynd heldur
LjósmyncÞStefán Karlsson
GRÍMUR Hjartarson er Öli.
ÓTTARR Proppé er Simmi.
hópverkefni, og þess vegna
vil ég að allir séu ánægðir.
Leikstjóm gengur mikið út
á sálfi’æði. Það kvörtuðu
sumir yfir því að ég væri
alltaf að ljúga í leikarana,
en það er bara ein af mínum
brellum til að fá það besta
út úr leikaranum. Að reita
þá svolítið til reiði. Það er
samt mikil þrautseigja í
þessum blessuðu leikurum."
Frábær lærdómur
„Ein stór fjölskylda"
kostaði bara 5 milljónir og
er það ódýrasta mynd sem
gerð hefur verið á íslandi.
Við höfðum engan bíl til
umráða, og við urðum
stundum að bera kvik-
myndatækin á milli húsa
þegar við vorum að fá þau
lánuð frá ýmsum iyrirtækj-
um úti í bæ.
Ég sá ekki eftir að hafa
gert þá mynd, því hún var
mjög góð reynsla fyrir mig.
Jafnvel þótt ykkar menn
hafi gagnrýnt hana alveg í
svaðið og kallað mig versta
leikstjóra samtímans, held
ég að það sé ekki rétt. Ég
er ekki að segja sögur til að
ganga í augun á gagn-
rýnendum eða stelpum. Ég
er eingöngu að segja þær
til að æfa mig að segja sögu
og æfa mig með miðilinn.
Ef ég fæ svo leið á því að
segja sögur hætti ég því.
Ég skapa mér mitt eigið
tækifæri og hef alltaf gert.
Og nú verður gaman að sjá
hvernig fólk á eftir að taka
„Óskabörnum þjóðarinn-
ar“, segir Jóhann og skelli-
hlær.
Nýtt
Picasso-
safn
► SPÆNSKI konungur-
inn Juan Carlos og Sofía
drottning opnuðu
Picasso-safn í húsi því
sem meistarinn fæddist
í. Húsið var gert upp af
þessu tilefni og nam
kostnaður við það um
112 milljónum íslenskra
króna.