Morgunblaðið - 27.06.1998, Page 60
60 LAUGARDAGUR 27. JÚNÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
KVIKMYNDIR/Laugarásbíó hefur tekið til sýninga nýjustu mynd kínversku slagsmálahetjunnar Jackie Chans, sem nú er
sennilega vinsælasti slagsmálahundur kvikmyndanna. Myndin heitir „Mr. Nice Guy.“
Góði gæinn
tekur af sér
svuntuna
Frumsýning
JACKIE Chan leikur vinsælan sjón-
varpskokk, sem er með miskunnar-
lausa eiturlyfjasala á hælunum. Þeir
halda að hann hafi í fórum sínum
myndbandsspólu sem var tekin af
þeim og gæti komið þeim í fangelsi.
Glæpamennirnir, eiturlyfjasalinn
Giancarlo (Richard Norton) og fé-
lagar hans, voru upphaflega að elt-
ast við fallega sjónvarpskonu (Ga-
brielle Pitzpatrick). Það var hún
sem tók af þeim myndbandið og
komst undan á flótta. En Jackie,
var nærstaddur, kom henni til
hjálpar og tók þannig hetjuhlut-
verkið að sér nauðugur viljugur,
eins og yfirleitt í myndunum með
Jackie Chan. Fyrir mistök rugluð-
ust svo saman myndbönd sjón-
varpskonunnar og myndband sem
Jackie var með á sér og sýndi hann
sjálfan matreiða pastarétt.
Það gerir svo illt ástand verra að
verstu óvinir eiturlyfjasalanna vilja
líka komast yfir myndbandið. Þess
vegna ræna þeir kærustu Jaddes og
ætla að kúga hann til að skipta á
. henni og myndbandinu. Lögreglan
fæst ekki til þess að gera neitt af viti
í málinu og þess vegna þarf Jackie
að taka af sér svuntuna, koma út úr
eldhúsinu og fara að taka til hend-
inni og lúskra á þessum glæpalýð.
I þessari hasarmynd, sem er gerð
í klassískum Hong Kong stíl, eru öll
helstu aðalsmerki Jackie Chan
myndanna. Níu stórkostlega útfærð
slagsmálaatriði og ævintýralegur
eltingaleikur á hestvagni í gegnum
mannþröng í stórborg.
Mr. Nice Guy er fyrsta mynd
Jackie Chans sem er nær algjörlega
tekin á enskri tungu, og ástæða
þess er einfaldlega sú að hann er
orðin stórstjarna á Vesturlöndum
eftir myndir eins og Rumble in the
Bronx, First Strike, Supercop og
fleiri. Næsta mynd hans beitir Burn
Hollywood Burn og þar leikur hann
á móti Sylvester Stallone og
Whoopi Goldberg.
Velgengni Jackies hefur byggst á
því að aðdáendur hans vita sem er
að hann gefur sig allan í myndir sín-
ar. Hann notar ekki áhættuleikara;
hann gerir sjálfur hluti sem engum
öðrum leikara dettur í hug að gera,
leggur sig í lífshættu við myndatök-
una. Saman við lífshættuleg
áhættu- og slagsmálaatriðin bland-
ar hann svo fyndni sem er oft í anda
átrúnaðargoðanna Buster Keatons
og Haolds Lloyds, tveggja af meist-
urum þöglu myndanna.
Jaekie Chan er langstærsta
stjarnan í Hong Kong kvikmynda-
heiminum um þessar mundir. Hann
hefur aldrei unnið með stærri hóp
vestrænna leikara en í myndinni
Mr. Nice Guy. Hong Kong aðferð-
irnar eru þó enn notaðar við kvik-
myndagerðina. Til dæmis nota
Jackie og félagar hans ekki handrit
heldur fá leikararnir að vita hvað
þeir eiga að segja meðan verið er að
farða þá íyrir tökur.
Leikstjóri myndarinnar er æsku-
JACKIE Chan er allt í öllu í myndinni um „Mr. Nice Guy.
félagi Jackies, Samo Hung. Þeir
kynntust þegar þeir voru saman í
óperuskólanum í Peking, þar sem
þeir voru nemendur frá 7 til 17 ára
aldurs og unnu 19 klukkustundir á
sólarhring við það að læra leik,
söng, dans, látbragðsleik, loftfim-
leika og sjálfsvarnaríþróttir. Eftir
að skólanum lauk lá leið beggja í
kvikmyndaiðnaðinn í Hong Kong,
þar sem þeir urðu áhættuleikarar.
Eftir mikla velgengni á því sviði
hlaut Jackie tækifæri til þess að
byggja upp feril sem nú heíúr gert
hann að mestu stórstjörnu og
áhrifamanni á sviði kvikmyndagerð-
ar í Hong Kong. Jackie leikstýrir
mörgum mynda sinna sjálfur og er
m.a. formaður samtaka leikstjóra í
Hong Kong.
Samo Hung fékkst einnig við að
leika. Hann barðist meðal annars
við Bruce Lee í Enter The Dragon
og saman léku þeir Jackie undir
leikstjórn John Woo í einni fyrstu
mynd þess nafntogaða stórleik-
stjóra frá Hong Kong. Samo Hung
fór síðan að leikstýra og hefur verið
einn nánasti samstarfsmaður vinar
síns og fóstbróður, Jaekie Chans,
ýmist sem leikari, leikstjóri eða
stjórnandi áhættuatriða.
LAUGARDAGSMYNDIR SJONVARPSSTOÐVANNA
Stöð 2 ► 12.25 Hocus Pocus (‘93)
'k'/i er eins brandara mynd um þrjár
nornir (Bette Midler, Kathy Najimi
og Sarah Jessica Parker), sem rísa
upp frá dauðum eftir nokkrar aldir
til að hefna sín á krakkaormunum
sem komu þeim á bálið í Salemborg.
Það gerist á hrekkjavökunni.
Leikkonurnar eru ekki sem verstar
en fyndnin gengur sér fljótt til húð-
ar.
Stöð 2 ►14.30 Born Free - A New
Adventures er framhald vinsællar
dýralífsmyndar um samskipti veiði-
varðar og konu hans við þrjá ljóns-
unga í Kenýa. Þar stálu ungarnir
senunni. Vonandi er þessi í svipuðum
gæðaflokki.
Stöð 2 ►22.50 Sú var tíðin að Barry
Levinson var í hópi merkustu leik-
stjóra Hollywood. Það tímabil hefur
greinilega runnið sitt skeið á enda
(að undanskilinni Wag the Dog).
Pörupiltar - Sleepers (‘95) er nýlegt
dæmi. Myndin hefst á sjöunda ára-
tugnum I Hell’s Kitchen í New York.
Fjórir fjörugir æskuvinir lenda í
ógöngum og eru vistaðir á betrunar-
hæli þar sem taka við misþyrmingar
og kynferðisleg misnotkun. Árin líða.
í seinni hlutanum eru þeir orðnir
fullorðnir menn og hefna harma
sinna. Sundurlaus, kraftlítil, klisju-
kennd og endaslepp. Kevin Bacon, í
hlutverki fangavarðar með kvala-
losta, stendur einn upp úr leikara-
hópnum sem telur m.a. stjörnur eins
og Brad Pitt og Robert De Niro. ★★
Stöð 2 ► McCabe and Mrs. Miller
(‘71). Sjá umsögn í ramma.
Sjónvarpið ►23.30 Nornirnar í
Eastwick - The Witches ofEastwick
(‘87) segir af spaugilegum viðskipt-
um djöfsa (Jack Nicholson) við þrjár
þurfandi fraukur í bæ á Nýja-
Englandi. Meinfyndin og hressileg.
Leikkonurnar Susan Sarandon, Cher
og Michelle Pfeiffer eru hver annarri
betri og getnaðarlegri og Jack
Nicholson er í sínu grínaktugasta og(
djöfullegasta skrattakollsformi sem
haninn úr neðra í hænsnabú-
inu. ★ ★★
Sæbjörn Valdimarsson
FARIÐ var í skrúðgöngu á 17.
júní í Árósum í Danmörku.
Þjóðhátíðar-
dagurinn
í Arósum
TÆPLEGA 60 fslendingar á
öllum aldri mættu í Grænlend-
ingahúsið í Ársósum þar sem
haldið var upp á 17. júní. í
garðinum voru grillaðar pylsur
og á staðnum voru seldar 17.
júní blöðrur og íslenskir fánar.
Síðan var gengið í skrúðgöngu
og sungið og trallað á leiðinni
til Mindeparken þar sem farið
var í leiki. Allir voru í þjóðhá-
tíðarskapi þrátt fyrir rok og
rysjótt veður þennan dag.
Höfðu menn á orði að enginn
þyrfti að fá heimþrá því veðrið
væri dæmigert fyrir 17. júní á
*íslandi.
Robert Altman
í villta vestrinu
Stöð 2 ► McCabe og frú Miller -
McCabe and Mrs. Miller (‘71)
er gerð á blómatímanum á löngum
og litskrúðugum og ekki síst
misjöfnum ferli bandaríska
leikstjórans Roberts Altmans. Sem
er persónulegastur sinna
stéttarbræðra og hittir naglann
beint á höfuðið - ef hamarinn geigar
ekki. Hér dregur hann upp sína
eigin hráu mynd af frumbýlingum í
smáþorpi í vestrinu á öldinni sem
leið. Sú mynd er lítið skyld þeirri
sem við eigum að venjast yfirhöfuð í
hefðbundnum vestrum. Þorpið, sem
er einhvers staðar í
norðvesturríkjunum, er í byggingu,
allt hrátt og skítugt, snjór, slabb og
drulla þekja yfirborðið.
Mannskapuiinn á svipuðu róli.
Harðsoðnir frumbyggjar, skítugir,
drykkfelldir ódámar, jaskaðar
portkonur. Aðalpersónumar eru
McCabe (Warren Beatty), ævintýra-
og framkvæmdamaður,
fjárhættuspilari og melludólgur, sem
m.a. gerir út lítið og vinalegt
pútnahús í félagi við mellumömmuna
Julie Christie. Sem notar ópíum til
að gleyma hinum kalda og skitna
raunveruleika. Þau leika bæði
fimavel, ekki síst Beatty sem hinn
tregi og ástfangni McCabe, og
Christie er ærandi fógur. Mikil
stemmningsmynd sem nýtur góðs af
kvikmyndatöku Vilmos Zsigmonds
og eftirminniiegri tónlist Leonards
Coens. ★★★Vá. Ekki við allra hæfi.