Morgunblaðið - 27.06.1998, Blaðsíða 68

Morgunblaðið - 27.06.1998, Blaðsíða 68
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI6691100, SÍMBRÉF 5691181 PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.1S, AKUREYRI: KA UPVANGSSTRÆTI1 LAUGARDAGUR 27. JÚNÍ 1998 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Morgunblaðið/Jim Smart Buslað í pottunum HONUM gekk illa að stöðva vatnsflauminn litla snáðanum sem ásamt pabba sínum heim- sótti Laugardaislaugina í blíð- viðrinu í gær. Þrátt fyrir góða einbeitningu og hjálp frá pabba tókst ekki að loka fyrir vatnið og verða því feðgarnir að reyna aftur síðar. Fjöldi fólks var í laugunum á öllum aldri og einnig voru sólbekkir þétt skipaðir. Alls náði hitinn 18,4 stigum í Reykjavík og ljóst að sumarið er komið. Heitast á landinu var þó á Þingvöllum eða 20 stig en Norð- lendingar urðu að sætta sig við 11. Spáð er léttskýjuðu um landið sunnan- og vestanvert um helg- ina, en kalda norðvestan til og allra austast. Skýjað að mestu og sums staðar súld á annesjum að næturlagi á Norðurlandi og á Austfjörðum. Yfírvofandi uppsagnir hjúkrunarfræðinga Fundir en eng- inn árangur FUNDIR fulltrúa stjórnvalda og hjúkrunarfræðinga héldu áfram í gær og enn er leitað leiða til að koma í veg fyrir að hjúkrunarfræð- ingar hætti störfum frá og með næsta miðvikudegi. Stjórnendur spítalanna bíða átekta, tilbúnir með þann undirbúning sem unnt er, en þeir vonast til að stjórnvöldum tak- ist að koma í veg fyrir neyðarástand á sjúkrahúsunum. Ekki leikur vafí á þeirri skyldu hjúkrunarfræðinga og raunar fleiri heilbrigðisstétta að koma til hjálpar sé heilsutjón yfírvofandi eða manns- lífum hætt. Fordæmi munu vera fyr- ir því að greiða hjúkrunarfræðing- um, sem sagt hafa upp og kaUaðir verða til starfa, eftir þeim nýja samningi sem gerður verður. Hjúkr- unarstjórar leita eftir því við við- komandi hjúkrunarfræðinga á hin- um ýmsum deildum að þeir verði reiðubúnir að bjarga málum ef kem- ur til neyðarástands og er þá eink- om horft til áðurnefndrar leiðar með greiðslu fyrir slíka vinnu. Ekki er víst að samið verði beinlínis um sér- stakar verktakagreiðslur fyrir þessa þjónustu. Skurð- og svæfingahjúkrunar- fræðingar á Sjúkrahúsi Reykjavíkur sendu frá sér yfirlýsingu í gær þar sem minnt er á að störf þeirra séu mjög sérhæfð. Segja þeir að krafist sé tveggja ára viðbótarnáms að loknu fjöguiTa ára háskólanámi í hjúkrun og ljóst að útilokað sé fyrir aðra hjúkrunarfræðinga og/eða aðr- ar starfsstéttir að ganga inn í störf þeirra án tiltekinnar menntunar og starfsþjálfunar. Starfsfólk og sjúklingar á hjarta- deild og öldrunardeild Landspítala lýstu einnig áhyggjum sínum vegna yfirvofandi ástands. „Það er illa far- ið með gamalt fólk sem getur ekki bjargað sér sjálft. Ég skil ekki í nokkrum manni að semja ekki við fólk sem vinnur við svona,“ sagði Lára Einarsdóttir sem liggur á öldr- unardeild. Get ekki/10 Netfangið Keiko boðið á 10 milljönir KEIK ehf., sem Þróunarfélagið í Eyjum og Vestmannaeyjabær stofn- uðu vegna komu háhyrningsins Keikos, hefur verið boðið svæðisnet- fangið Keiko.is til sölu fyrir 10 millj- ónir króna. Ólafur Snorrason, verkefnisstjóri hjá Þróunarfélaginu, segir að tals- ÁTVR tekur við krít- arkortum frá 1. júlí Opnunar- tími versl- ana lengd- ur í næsta mánuði HÆGT verður að greiða með krítarkorti á sölustöðum Áfeng- is- og tóbaksverslunar ríkisins (ÁTVR) frá og með 1. júlí nk., en þá taka gildi ný áfengislög sem heimila slíkt. Að sögn Þórs Odd- geirssonar, aðstoðarforstjóra ÁTVR, verður örugglega hægt að greiða með Eurocard krítar- korti strax 1. júlí, en eins og er væri ekki ljóst hvort hægt verði að greiða með Visa krítarkorti þar sem enn hefði ekki náðst samkomulag við Visa ísland. Vonir eru á hinn bóginn bundn- ar við að samkomulag náist eftir helgi. Þá verður heimilt irá og með 1. júlí nk. að hafa verslanir ÁTVR opnar jafn lengi og aðrai- verslanir í sama verslunar- kjama. Að sögn Þórs er stefnt að því að lengja opnunartíma verslana ÁTVR til klukkan tvö á laugardögum í byrjun júlímán- aðar. verður áhugi sé hjá bæjaryfirvöld- um að búa til heimasíðu vegna komu Keikos til Vestmannaeyja. Hann hafi meðal annars kynnt sér hvort einhver hefði tryggt sér svæðisnet- fangið Keiko.is og komist að raun um að frumdrög að slíkri síðu væru til. „Ég hafði samband við eiganda síðunnar og spurði hvort hann vildi selja svæðisnetfangið til Eyja. Þeg- ar til kastanna kom var verðið sem eigandi heimasíðunnar setti upp alltof hátt, eða 10 milljónir króna.“ Ólafur segir að Keikur ehf. hafi í framhaldi ákveðið að vinna að eigin heimasíðu og búist er við að þeirri vinnu ljúki á næstunni. Ekki náðist samband við eiganda svæðisnet- fangsins Keiko.is. James D. Wolfensohn forseti Alþjóðabankans Island taki að sér fjarkennslu í Afríku JAMES D. Wolfensohn, forseti Al- þjóðabankans, og Halldór Ás- grímsson utanríkisráðherra ákváðu á fundi sínum í Reykjavík í gær að kanna möguleika á að ísland, í samstarfi við Alþjóðabankann, taki að sér fjarkennslu um sjávarútveg og nýtingu jarðhita í þróunarlönd- um. Á blaðamannafundi í gær sagði Wolfensohn að sérþekking Islend- inga lægi á sviði fiskveiða og nýt- ingar jarðhita. „Ég ræddi við ráð- herrann þann möguleika að ísland legði ekki aðeins fram fjármuni og aðstoð á vettvangi, heldur yrði nú- tímatækni nýtt þannig að hægt yrði að koma á fjarnámi; að fyrirlestrum og námskeiðum á sviði íslenzkrar sérþekkingar yrði sjónvarpað um gervihnött til Afríku og annarra heimshluta," sagði hann. Fjarkennsla á vegum jarðhita- og sjávarútvegsskóla SÞ? Halldór Ásgrímsson sagði í sam- tali við Morgunblaðið að hann hefði upplýst Wolfensohn um áhuga ís- lendinga á fjarvinnslu og góðu upp- lýsingastreymi. „Ég sagði honum frá því að hér væri annars vegar rekinn Jarðhitaskóli Háskóla Sam- einuðu þjóðanna og hins vegar væri í undirbúningi að koma hér upp Sjávarútvegsháskóla SÞ. Ég tel möguleika á að þessar stofnanir geti tekið þátt í fræðsjustarfi í Afríku með fjarkennslu. Ég sagði að mér væri jafnframt kunnugt um að Há- skólinn á Akureyri hefði tekið fjar- kennslutækni í þjónustu sína og væri í samstarfi við háskóla í öðrum löndum. Sá skóli hefði til dæmis áreiðanlega áhuga á að vinna með Aiþjóðabankanum að slíkum verk- efnum,“ sagði Halldór. ísland á mikið/12
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.