Morgunblaðið - 23.08.1998, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 23. ÁGÚST 1998 55
FÓLK í FRÉTTUM
ERLENDAR
Pétur Hallgrímsson
tónlistarmaður
fjallar um nýjustu plötu
Tricky, „Angels with dirty
fnces".
Englasöngiir
Tricky
FYRSTA plata Tricky „Maxinquaye"
fór beint í 5. sæti breska vinsældalist-
ans fyrir þremur árum.
Adrian Thaws, betur þekktur
sem Tricky, hefur verið heldur
betur iðinn við kolann síðan
hann gaf út sína fyrstu smáskífu
í janúai’ ‘94 (hafði að vísu gefíð
út áður „Locally"). Síðan hefur
hann gefið út 12 smáskífur og
nú fyrir skömmu fjórðu breið-
skífuna. Þar að auki hefur
Tricky verið í samstarfi við
ýmsa tónlistarmenn, s.s. Massi-
ve Attack, Neneh Cherry,
Whole og Elvis Costello. Og
hvemig hljómar svo nýja skíf-
an?
Að mínu mati stenst hún all-
ar þær væntingar sem ég hafði.
í heild er hún þyngri en fyrsta
meistaraverk kappans „Max-
inequaye" og myndar betri og
þéttari heild en „Pre-Millenni-
um Tension" sem þó var langt frá
því að vera einhver hálfdrættingur.
Á nýju skífunni sem Tricky hljóðrit-
aði í New York, New Orleans, Los
Angeles og á Bahamaeyjum notar
hann mun fleiri hljóðfæraleikara en
áður, meðal annars hinn snargeggj-
aða gítarleikara Scott Ian úr
metalsveitinni Anthrax og gítarleik-
ara Tom Waits, Marc Ribot.
Tricky sameinar mjög skemmti-
lega hin ýmsu hljóðfæri sem gefa
mjög heildstæða mynd. Textar
Trickys eru allbeittir sem iyrr, þar
sem allmargir fá á baukinn í loka-
lagi disksins, meðal annars hljóm-
plötuiðnaðurinn (record companies)
og blaðamenn (demise). Margir
halda kannski að Tricky sé að
skjóta á Michael Jackson í laginu „6
Minutes“ en það er síður en svo. í
nokkrum textum er Tricky kannski
full „paranoid", þar sem kölski eða
handbendi hans sjást í hverju horni.
Sennilega er það afrakstur full-
margra heimsókna jóna og súnka.
Erfitt er að taka út einstök lög af
plötunni þó „6 Minutes", „Broken
homes“, þar sem Tricky nýtur full-
tingis rokkgyðjunnar R.J. Harvey,
og „Record companies" rísi hátt.
Ef betri plata en „Angels without
faces“ rekur á fjörur mínar þetta
árið mun mig reka í rogastans.
Tricky er og verður alveg snökkt-
andi snillingur og Angels ... hljóm-
ar sem englasöngur í mínum eyr-
um.
SÝND í
SYND I
Okkur vantar módel
Heimsfrumsýning á X-18 skóm verður
haldin á íslandi 29. ágúst.
Valdir verða 2 strákar og 4 stelpur
Einnig verða valin módel til að sýna í
Dusseldorf
og vera í bæklingi fyrir X-18
Valið verður í Hausverk auglýsingastofu,
Mörkinni 1 n.k. mánud. kl. 18.00 til 21.00.
Sama hús og Gullsól, gengið innað neðanverðu.
Upplýsingar í síma 588 9544 eða 892 1242
Ökkur vantar módel
Niðsterkur, fisléttur
og rúmgóður
skólabakpoki
ÚTIVISTARBÚÐIN
við Umferðarmiðstöðina
Simar 551 9800 og 551 3072
m
Allt frá
leikskóla
upp í
háskóla
vex „Fjallarefurinn“
I/AfFI
■
:: V
REYKIAVIK
Vegna fjölda
áskorana heldur
söngkonan Caron
eina aukatónleika á
Kaffi Reykjavik í
kvöld. Caron sló í
gegn á hinum tveim
tónleikunum og
gerði rifandi lukku
fyrir troðfullu húsi.
Misstu ekki af
þessum frábæru
tónleikum.
reyKTavik
HEITASTI
STAÐURINN
í BÆNUM
Misstu
ekki
af þessari frábæru
söngkonu.
I
lM
BA ÐIIUSH)
BRAUlARÍiOLI I ?0, SÍMI 561 5100
JKAMSlMiKT CXj yos
Bæíarhraunl 4 • Simi: 565 2212