Morgunblaðið - 25.08.1998, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 25.08.1998, Blaðsíða 28
28 ÞRIÐJUDAGUR 25. ÁGÚST 1998 MORGUNBLAÐIÐ STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI FRAMKVÆMDASTJÓRI RITSTJÓRAR Árvakur hf., Reykjavík. Hallgrímur B. Geirsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. STJORNARSKIPTI í KREML VISSULEGA ættu óvæntar ákvarðanir og stundum ill- skiljanlegar að koma fæstum á óvart lengur þegar Boris Jeltsín Rússlandsforseti er annars vegar. Þrátt fyrir það kom sú ákvörðun hans að reka Sergej Kírijenkó for- sætisráðherra úr embætti flestum í opna skjöldu er til- kynningin barst síðdegis á sunnudag. Einungis eru liðnir fimm mánuðir frá því að Kírijenkó tók við embætti forsæt- isráðherra af Viktor Tsjernómyrdín, sem þá hafði gegnt því frá árinu 1992. Ekki bætti úr skák að Jeltsín skipaði Tsjernómyrdín í forsætisráðherraembættið á ný, þrátt fyrir að hafa lýst yfir vantrausti á efnahagsstjórn hans fyrr á árinu. Staða efnahagsmála í Rússlandi er ógnvænleg og sumir óttast jafnvel efnahagslegt hrun á borð við það sem átti sér stað í Indónesíu. Gengi rúblunnar var lækkað í síðustu viku og einnig hafa Rússar frestað afborgunum á erlend- um lánum. Þessi alvarlega staða verður ekki rakin til ákvarðana er teknar voru í stjórnartíð Kírijenkós. Vand- inn er eldri og varð til á þeim árum er Tsjernómyrdín gegndi embætti forsætisráðherra. Tsjernómyrdín skaut nauðsynlegum umbótum á frest og þótti standa vörð um hagsmuni valdamikilla fyrirtækja og einstaklinga í Rússlandi. Samstarf hans við Dúmuna var vissulega með ágætum og ekki kom til jafnalvarlegra árekstra milli ríkisstjórnar og þings og í stjórnartíð Kíri- jenkós. Helsta skýringin á því er hins vegar sú að Tsjernómyrdín lagði fátt fyrir þingið, sem líklegt var til að valda deilum. Erfiðar ákvarðanir í efnahagsmálum voru látnar bíða betri tíma. Brýnt er að tekið verði á málum af festu í Rússlandi eigi Rússar að endurheimta traust erlendra fjármálastofnana en það er forsenda þess að hægt verði að reisa efnahag landsins við. Til að svo megi verða þarf hin nýja stjórn hins vegar að sýna fram á að hún beri ekki einungis hag þröngs hóps fyrir brjósti. Jafnframt er það forsenda fram- fara og bættra lífskjara í Rússlandi að umbótum verði ekki skotið á frest heldur haldið áfram á þeirri braut að laga efnahagslíf Rússlands að umheiminum. Nái stjórn Tsjernómyrdíns ekki tökum á hinum alvar- lega efnahagsvanda gæti það haft ófyrirsjáanlegar póli- tískar afleiðingar og orðið vatn á myllu þeirra afla er telja samstarf við Vesturlönd af hinu illa. Slíkt væri engum í hag, hvorki Rú'ssum né nágrannaþjóðum þeirra. NORRÆNA HÚSIÐ 30 ÁRA NORRÆNA HÚSIÐ í Reykjavík hélt upp á 30 ára af- mæli sitt um helgina. Húsið var reist á árunum 1966 til 1968 eftir teikningum finnska arkitektsins Alvars Aaltos. Það er rekið sameiginlega af Norðurlöndunum og er hlutverk þess að efla áhuga Islendinga á menningu hinna Norðurlandaþjóðanna og jafnframt að kynna öðrum Norðurlandabúum íslenska menningu. Húsið var fyrst sinnar tegundar á Norðurlöndum en síðan hafa norræn hús og stofnanir risið víða, nú síðast á Grænlandi. Óhætt er að segja að hlutur hússins hafi verið stór í ís- lensku menningarlífi þessi þrjátíu ár, enda hefur starf- semin verið íjölbreytt. Lengst af var mest áhersla á fagur- listir og fræði en undanfarin ár hefur starfsemi hússins aukist og nýr forstöðumaður, Riita Heinámaa frá Finn- landi, hyggst auka hana enn frekar, eins og fram kom í viðtali við hana í síðustu Lesbók. Heinámaa vill stórauka starfsemi hússins sem menningarseturs og upplýsinga- miðstöðvar en í framtíðinni segist hún einnig sjá fyrir sér aukna starfsemi í þágu barna og unglinga. Sömuleiðis vill hún aukna samvinnu um alþjóðleg efni. Með aukinni samvinnu Evrópuþjóða hefur nauðsyn nor- rænnar samvinnu orðið Norðurlandabúum enn ljósari en áður. Margt tengir Norðurlönd saman, ekki síst tungu- málaleg og menningarleg arfleifð. Það hefur ótvírætt gildi að hlúa að þessum rótum og styrkja um leið þessi tengsl. í þeirri viðleitni gegnir Norræna húsið mikilvægu hlut- verki. E LÖGFRÆÐINGAR, læknar og aðrir vísindamenn voru í meii Merk rann en hvatt t DAVÍÐ Oddsson, forsætis- ráðherra, sté fyrstur í pontu á ráðstefnunni. Eins og komið hefur fram í fjölmiðlum fjallaði hann m.a. um nauðsyn einkaleyfa sem hvata fyrir frumkvöðla að taka áhættu og skapa verðmæti. Ummæli hans um að tugir eða jafnvel hundruð óviðkom- andi aðilar hafi aðgang að upplýsing- um um sjúklinga hafa vakið athygli og hörð viðbrögð, m.a. landlæknis, sem segir forsætisráðherra hafa fengið rangar upplýsingar. Tólf ár langur tími fyrir einkaleyii Sigurður Guðmundsson læknii- og formaður Vísindasiðanefndar sagði að tölvuskráning upplýsinga um heilsu væri þegar hafin hér á landi á heilsu- gæslustöðvum og sjúkrahúsum og til þess væri notað sama tölvukerfið. Upphaflega hugmyndin hafi verið sú að búa til marga litla gagnagrunna, sem hægt væri að tengja saman. „í frumvarpi til laga um gagna- grunn á heilbrigðissviði er gert ráð fyrir einum miðlægum gagnagrunni. Persónupplýsingar verða dulkóðaðar, en greiningarlykill verður til. Einstak- lingum verður gefinn kostm- á að hafna því að upplýsingar um þá verði færðar inn í grunninn og færsla upp- lýsinga verður einnig háð samþykki þeirra sem setja þær inn í grunninn, sem eru fyrst og fremst læknar. Þá er gert ráð fyrir að einn handhafi rekstr- arleyfis fjármagni grunninn og hafi einkaleyfi á tiltekinni notkun hans í tólf ár. Hins vegar verður aðgangur heilbrigðisyfirvalda tryggður og að- gangur íslenskra vísindamanna að því marki, að hann er háður mati sér- stakrar umsagnarnefndar.“ Sigm-ður sagði að vísindagildi grunnsins væri verulegt. „Það er eng- inn vafi á því að grunnur sem þessi getur fært okkur miklu betra rann- sóknartæki, ekki eingöngu til erfða- fræðirannsókna heldur ekki síður á sviði faraldsfræði og lífheilsu.“ Hann sagði að nú væru menn í fyrsta skipti að átta sig á að hugsan- lega fælist fjárhagslegt verðmæti í heilsufarsupplýsingum. „Hins vegar eru nokkur álitamál. Er til dæmis þörf á einum miðlægum gagnagrunni, í stað margra smærri? Og hvað með persónuleyndina? Við höfum ekki komið okkur saman um hvernig á að fara með upplýsingar um látið fólk. Og hvað með samþykki sjúklinga? Hvað með einkaafnot? Tryggjum við jafn- ræði til rannsókna eða komum við í veg fyrir rannsóknir einhverra vís- indamanna?" Varðandi samþykki sjúklinga sagði Sigurður að frumvarpið gerði ráð fyrir að fólk gæti neitað að upplýsingar um það færu inn í gagnagrunn. „Þurfum við ef til vill að ganga lengra, vegna sérstöðu málsins, og leita samþykkis hjá hverjum og einum? Við eigum að- ild að nokkrum alþjóðasáttmálum um heilbrigðismál. í þeim koma fram veigamikil ati'iði siðareglna. Möguleg- ur ávinningur rannsókna verður að vega þyngra en áhættan og hagsmunir einstaklings verða að ríkja yfir þörfum vísinda og samfélags. Þátttakandi í hvers kyns rannsóknum þarf að veita samþykki sitt, að fengnum upplýsing- um um hvað eigi að gera, hvers vegna og hver áhættan sé. Ennfremur er gert ráð fyrir að um hverja rannsókn fjalli sérstök nefnd, svokölluð vísinda- siðanefnd." Sigurður sagði að hægt væri að gera rannsóknir án upplýsts samþykk- is, en þá þyrfti samþykki forráða- manna og rannsóknin þyrfti að koma þátttakendum að gagni eða auka veru- lega þekkingu manna á rannsóknar- efninu og hafa mjög litla áhættu eða álag fyrir þátttakendur. Sigurður fjallaði næst um rannsókn- h- á gögnum, sem þegar væru til. „Hér er enn gert ráð fyrir að nafnleynd ríki. Ef nafnleynd útilokar gerð rannsókn- ar, eins og til dæmis á við um tilteknar rannsóknir á sviði erfðafræði, þá þarf upplýst samþykki eða með því að beita fýrir sig ætluðu samþykki, þar sem gert er ráð fyrir að viðkomandi sé samþykkur rannsókninni hafi hann ekki neitað henni. Sú hugsun liggur að baki frumvarpinu. En við getum verið á hálum ís þegar við veltum fyrir okk- ur hverjir eigi upplýsingarnar. í ný- samþykktum lögum um réttindi sjúk- linga er ekki kveðið á um þetta, en heilbrigðisstofnanir hafa varðveislu- rétt og -skyldu. Öll vafaatriði verður að túlka mjög þröngt." Sigurður sagði ljóst að þegar væri farið að hagnast fjárhagslega á heilsu- faysupplýsingum, með rannsóknum. „Eg held að ekki sé eðlismunur á því að selja niðurstöður og selja aðgang að gögnum sem geta leitt til niðurstaðna, svo íremi sem persónuleyndin er tryggð. Það er því erfitt að sjá á þessu verulega siðferðilega meinbugi." Einkaleyfi á aðgangi að heilsufars- upplýsingum eru, að sögn Sigurðar, mjög viðkvæmt mál og rökin eingöngu viðskiptaleg. „Ef við föllumst á að einkaleyfi kunni að vera nauðsynlegt, þá eru tólf ár langur tími.“ Umhverfísmat vegna gagnagrunns? Þorgeir Örlygsson prófessor og for- maður Tölvunefndar fjallaði um per- sónuvemd. Hann sagði að taka mætti undir að skráðar heilsufarsupplýsing- ar gætu verið auðlind sem þjóðhags- lega hagkvæmt gæti verið að nýta. Það væri þó ekki sjálfgefið að sömu sjónarmið ríktu við veitingu leyfa til úrvinnslu heilbrigðisgagna og þegar veitt væru námu-, veiði- og virkjana- leyfi. „Lagareglur um nýtingu fiski- stofna miða að því að vernda fiski- stofna gegn rányrkju og komið hefur verið á fót sérstakri rannsóknarstofn- un, Hafrannsóknastofnun, sem gerir tillögur um hvernig hagkvæmt sé að nýta auðlindina. Lagasetning stuðlar bæði að vernd og hagnýtingu auðlind- arinnar. Hér haíá líka verið sett nátt- úruverndarlög, svö dæmi séu tekin. Þá hafa verið sett sérstök lög um mat á umhverfisáhrifum, sem kveða á um slíkt mat áður en leyfi er veitt til fram- kvæmda. Ef við göngum út frá því að skráðar upplýsingar um heilsu þjóðar- innar séu auðlind verður lagasetning um gagnagrunn að tryggja að við nýt- ingu þeirrar auðlindar sé ekki gengið svo næmi henni að til auðnar horfi eða skaði hljótist af.“ Hann sagði að frumvarpið væri eitt stærsta mál sem komið hefði til kasta Alþingis. „Málið varðar ekki aðeins ski-áningu og hagnýtingu upplýsinga Erfðarannsóknir og umfjöllunarefni ráðs bands ungra sjálfstæð Ragnhildur Sverrisdói endur, sem fjölluðu m. leg álitamál, persói og þróun um alla þjóðina í áratugi. Það snýst um viðkvæmar upplýsingar um sjúk- dóma og orsakir þeirra, sjúkdómsmeð- ferð og árangur hennar, lyfja-, áfeng- is- og vímuefnanotkun. Því er eðlilegt að fram komi sú krafa að farið sé var- lega. Það þarf með öðrum orðum að fara fram mat á umhverfisáhrifum þeirra framkvæmda, sem lagasetning um gagnagrunn á heilbrigðissviði get- ur haft í för með sér, þannig að sjá megi fyrir hverjar afleiðingarnar verða.“ Þorgeir sagði að ekki væri hægt að koma í veg fyrir að miðlægir gagna- grunnar með persónulegum upplýs- ingum yrðu til, til dæmis væri saka- skrá haldin á þann hátt. „Gagnagi'unn- ur á heilbrigðissviði er annars eðlis. Hann tengir saman upplýsingar og gerir kleift að sjá heildarmynd, sem einstaklingurinn gat ekki vitað að hægt yrði að búa til þegar hann gaf upplýsingarnar. Eitt helsta mai-kmið vestrænnar löggjafar um persónu- vernd hefur verið að sporna við að hægt sé að fá slíka heildarmynd af þegnum þjóðfélagsins." í máli Þorgeirs kom fram að þegar væru í gildi lög um vernd persónu- legra upplýsinga, en miðað við núver- andi aðstæður væri útilokað að Tölvu- nefnd gæti tekið að sér það risavaxna verkefni að hafa eftirlit með hagnýt- ingu gagnagrunnsins. Eðlilegt væri því að setja sérlög um slíkan gagna- grunn. Það væri talinn mikill kostur við rannsóknir að þjóðin væri einsleit, en um leið gerði það verndun persónu-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.