Morgunblaðið - 25.08.1998, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 25.08.1998, Blaðsíða 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 25. ÁGÚST 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Fjárfesta verð- ur skipulega í fj ar lækningum BESTA nýting á möguleikum fjar- lækninga væri að verja t.d. 3-5% af heildarfjármagni stóru sjúkrahús- anna til fjárfestinga í tækjabúnaði. Með því yrði byggt upp nútíma samskipta- og upplýsingakerfi þar sem fjarlækningar gegndu lykil- hlutverki. Þetta var meðal þess sem Ingi- mar Einarsson, deildarstjóri hjá heilbrigðisráðuneytinu, greindi frá á ráðstefnu um fjarlækningar í dreifðum byggðum og norður- skautssvæðum sem nú er haldin í Reykjavík. Ingimar segir að fram- lög til stóru sjúkrahúsanna í Reykjavík nemi kringum 15 milljöðrum króna á ári og því sé verið að tala um nokkuð hundruð milljóna króna fjárfestingu í um- ræddum búnaði. Hann segir að með fjarlækningum sé unnt að rjúfa fag- lega einangrun heilbrigðisstarfs- manna í dreifðum byggðum. Lækn- ar þar geti leitað ráðgjafar hjá starfsbræðrum sínum á stóru sjúkrahúsunum, þar sem mest þekking á að vera fyrir hendi, sem ýtt geti undir símenntun þeirra, en læknar í þéttbýlinu öðlist einnig við það betri skilning á aðstæðum í dreifbýlinu. Ingimar segir að oft sé erfitt að koma í gegn framlögum til nýjunga sem þessara, þær lendi aftast í röð- inni og detti síðan uppfyrir og víki fyrir launum og öðrum fjárfesting- um sem taldar eru nauðsynlegar. Þess vegna hafí nefnd um for- gangsröðun á sjúkrahúsum lagt til stefnumörkun af þessum toga og að horft yrði t.d. til ársins 2005. „Þró- un í tækni- og gæðamálum líður þess vegna oft fyrir það að menn eru alltaf að glíma við launaliðinn. Það yrði ekki ef við gætum fest ákveðið hlutfall til þessa mála- flokks,“ sagði Ingimar í samtali við Morgunblaðið. Tilraunir með fjarlækningar hafa staðið yfir um nokkurt skeið og segir Ingimar sjúkrahús í Vest- mannaeyjum, Neskaupstað, Sauð- árkróki og Stykkishólmi hafa tekið þátt í þeim. Á næstunni munu einnig Höfn og Egilsstaðir verða með, en til þessa hefur einkum ver- ið um aflestur á röntgenmyndum að ræða. Talið er að fjarlækningar þurfi ekki að auka kostnað við heilbrigð- isþjónustu þegar til lengri tíma er litið. Þær geta í sumum tilvikum orðið til þess að ekki þarf að senda sjúkling t.d. með sjúkraflugi til stórs sjúkrahúss en stundum gætu þær hins vegar einmitt orðið til þess. Segir Ingimar að reikna megi með að þetta jafni sig út til lengri tíma. Morgunblaðið/Kristján PJÖLDI manns heiðraði Halldór Blöndal á sextugsafmæli hans í gær. Á myndinni taka Halldór og Kristrún Eymundsdóttir, eiginkona hans, á móti gestum í Iþróttahölliimi á Akureyri. Blöndal sextugur Halldór HALLDÓR Blöndal, samgöngu- ráðherra og þingmaður Sjálf- stæðisflokksins í Norðurlands- kjördæmi eystra, varð sextugur í gær og af því tilefni buðu Hall- dór og kona hans, Kristrún Ey- mundsdóttir, vinum og vanda- mönnum til afmælisveislu í íþróttahöllinni á Akureyri. Mikill Qöldi fólks heiðraði Halldór með nærveru sinni og bárust honum margar gjafir og heillaóska- skeyti á þessum tímamótum. Fjölmargar ræður voru haldn- ar Halldóri til heiðurs en það var Davíð Oddsson, forsætisráð- herra, sem reið á vaðið. Halldór er mikill hagyrðingur og hann hefur auk þess staðið fyrir lagn- ingu fleiri kílómetra af bundnu slitlagi en nokkur annar sam- gönguráðherra. Það vakti því mikla kátínu þegar Davíð Odds- son sagði í ávarpi sínu að fyrir utan konu og fjölskyklu væri Halldóri ekkert kærara en bund- ið mál og bundið slitlag. Fjarlækningar geta laðað lækna til starfa á afskekktum stöðum FJARLÆKNINGAR krefjast nýrra vinnubragða og stundum getur verið erfitt að breyta þeim en þær geta líka orðið til þess að auðveldara sé að fá lækna til starfa á afskekktum stöðum, var meðal þess sem Curt Made, heilsugæslu- læknir frá Svíþjóð, benti á í erindi sínu á ráðstefnu um fjarlækningar í dreifðum byggðum sem nú stend- ur í Reykjavík. Curt Made hefur tekið saman tölur um fjarlækningar sem stund- aðar hafa verið í Tarnaby í norður- hluta Svíþjóðar nálægt landamær- um Noregs. Sambandi var komið á við háskólaspítalann í Umeá. Á 20 mánaða tímabili frá 1996 til 1998 HVER ber ábyrgð á meðferð sjúklings sem veitt er gegnum íjarlækningar? Hvemig era upp- Iýsingar um sjúklinga, t.d. á myndböndum, varðveittar? Er sambandi læknis og sjúklings háttað á annan hátt við íjarlækn- ingar en þegar þoir sitja augliti til auglitis? Þessar og fleiri spuraingar komu fram þegar læknar og lögfræðingar ræddu um lagaleg og siðfræðileg álita- mál á ráðstefnu um fjarlækning- ar. Ásmundur Brekkan, fyrrver- andi prófessor og fulltrúi í ráð- gjafarnefnd heilbrigðisráðuneyt- isins um fjarlækningar, sagði í inngangserindi sínu að gagn- kvæmt traust milli sjúklings og læknis væri horasteinn heil- brigðiskerfisins. Aukin fjöl- var fjarlækningum beitt í 123 til- vikum. Af þessum fjölda var í þriðjungi tilfella leitað ráðgjafar lækna í Umeá. Curt Made sagði að eftir könnun hefði komið í ljós að 98% sjúklinga myndu þiggja með- ferð eða ráðleggingar með fjar- lækningum. Sérfræðingar sem veittu ráðgjöf töldu hana fullnægj- andi í 79% tilvika og heilsugæslu- læknar meta mjög mikils þann þátt sem fjarlækningar væru í við- bótarmenntun þeirra, sagði Curt Made. Pál Weihe greindi frá fjarlækn- ingum í Færeyjum en sambandi milli sjúkrahússins í Þórshöfn og Ríkisspítalans í Kaupmannahöfn breytni og nýir möguleikar hefðu ekki og myndu vonandi ekki breyta því. í fjarlækningum yrði að athuga afstöðu sjúklings til fjarlækninga sem væru í mörgum tilvikum frábrugðnar hinu hefðbundna sambandi þeg- ar læknir og sjúklingur stæðu augliti til auglitis. Því var varpað fram að fjar- lækningar væru ekki sérgrein eða sérstakur þáttur í hefðbund- inni heilbrigðisþjónustu heldur ætti að líta á þær sem viðbót, tæki til að meðhöndla sjúklinga. Læknar og aðrir heilbrigðis- starfsmenn sem sinntu fjarlækn- ingum væru undir sömu löggjöf seldir og við hefðbundnar lækn- ingar. Ragnhildur Arnljótsdóttir, lögfræðingur og deildarstjóri í var komið á fyrir tveimur árum. Sagði hann mögulegt að hafa myndbandsfundi og einbeittu menn sér á sviði röntgenlækninga, meinafræði, hjartalækninga, augn- lækninga og kvensjúkdóma. Myndbandsfundir þungir í vöfum Fram kom að myndbandsfundir hefðu þótt nokkuð þungir í vöfum og krefðust mikils skipulags þai- sem svo margir þyi-ftu að vera við- staddir á báðum endum. Oft væri allt eins hægt að greina frá vanda- málinu á myndbandi, senda það til Kaupmannahafnar og fá ráðlegg- ingar til baka. Pál Weihe sagði heilbrigðisráðuneytinu, taldi nauðsynlegt að selja ákveðnar reglur um íjarlækningar. Byggja mætti á gildandi löggjöf en skýra yrði betur og skilgreina fjarlækningar og það yrði best gert með leiðbeiningum sem kæmu frá landlæknisembættinu. ljóst að samband milli lækna með fjarlækningatækni myndi aukast en benti jafnframt á að oft vildu læknar í fámennari byggðum fá sérfræðinga í heimsókn sér til að- stoðar. Fleiri læknar greindu frá notkun fjarlækninga í löndum sínum, m.a. í Kanada og Noregi, en algengast er að samskipti eigi sér stað vegna röntgenmynda eða mynda með tölvutækni sem læknar í dreifbýli sýna sérfræðingum á háskóla- sjúkrahúsum gegnum fjarlækn- inganet og fá þannig ráðleggingar. Þá kom fram að talið er að kostn- aður við búnað vegna fjarlækninga muni fara lækkandi. Hún sagði að líta mætti á það sem skyldu heilbrigðisyfirvalda að bjóða þjónustu með fjarlækn- ingum í Ijósi þess að nauðsynlegt væri að veita bestu mögulegu heilbrigðisþjónustu hveiju sinni. Það yrði að fara eftir aðstæðum og tæknimöguleikum. Notkun sjálfvirkra myndavéla hefst á ný RÁÐGERT er að hefja notkun á sjálfvirkum myndavélum á gatna- mótum á næstu dögum. Notkun á þeim var hætt um tíma eftir að dómur féll sem kvað á um að ekki væri unnt að byggja á ljósmyndum sem sönnunargögnum í máli öku- manna sem óku gegn rauðu ljósi. Jón Bjartmars, hjá ríkislögreglu- stjóra, sagði að eftir að dómurinn féll hefði búnaðurinn verið prófaður og innsiglaður í Þýskalandi af viður- kenndum aðila og samkvæmt al- þjóðlegum stöðlum. Þá hefðu verið bætt úr öðrum atriðum, sem fjallað var um í dómnum. Guðmundur Guðjónsson, yfirlög- regluþjónn í Reykjavík, sagðist gera ráð fyrir að myndavélarnar yrðu teknar í notkun á næstu dög- um, en það yrði áður kynnt sérstak- lega í dagblöðum. Myndavélarnar voru teknar úr notkun eftir bflstjóri var í júní sýkn- aður í Héraðsdómi Reykjavíkur af ákæru um að hafa ekið gegn rauðu ljósi. Ákæruvaldið sótti málið á grunni gagna úr sjálfvirkri og tölvu- stýrðri myndavél á gatnamótum Miklubrautar og Snorrabrautar og komst héraðsdómur að þeirri niður- stöðu að ekki væri unnt að byggja á ljósmyndum sem sönnunargögnum í málinu. í dómnum sagði að Ijósmynda- búnaðurinn hefði ekki hlotið lög- gildingu hérlendis. Sagði að um- ferðarljósin sæjust ekki á myndun- um, en á þeim komu fram upplýs- ingar sem áttu að gefa sönnun um stöðu Ijósanna þegar myndirnar voru teknar. Var niðurstaða dóms- ins sú að sýkna beri ákærða þar sem ákæruvaldið hefði ekki sýnt fram á að eftirlitsmyndavélin væri prófuð reglulega né hvort þekking og þjálfun þeirra, sem hana nota, væri viðhlítandi. Væri því ekki hægt að byggja á ljósmyndunum sem sönnunargögnum í málinu. Hver ber ábyrgð á meðferð? Morgunblaðið/Porkell UM eitt hundrað manns sitja ráðstefnur um fjarlækningar. Hófst sú fyrsta í gær og standa þær út vikuna. I >
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.