Morgunblaðið - 25.08.1998, Blaðsíða 18
18 PRIÐJUDAGUR 25. ÁGÚST 1998
MORGUNBLAÐIÐ
ÚR VERINU
FAXAMJÖL hefur nú fest kaup á nótaskipinu Kap VE 4 frá Vinnslustöðinni, en Kap hefur áður borið nöfnin
Hersir og Jón Finnsson.
Faxamjöl kaupir Kap
FAXAMJÖL hf., dótturfélag Granda
hf., hefur keypt öll hlutabréf í út-
gerðarfélaginu Mel hf. af Vinnslu-
stöðinni hf. Með í kaupunum fylgir
nótaskipið Kap VE 4 auk 0,5% afla-
hlutdeildar í loðnu, rúmlega 400 tonn
af úthafskarfa og hugsanlegur veiði-
réttur úr norsk-íslenzka síldarstofn-
inum. Með kaupunum er Faxamjöl
að styrkja félagið í veiðum og
vinnslu á uppsjávarfíski.
Sala Vinnslustöðvarinnar á skip-
inu er á hinn bóginn liður í því að
lækka skuldir og fækka skipum, en
með sölunni nást sett markmið um
skuldalækkun. Vinnslustöðin gerir
eftir þetta út 6 skip í stað 9 áður og
segir Sigurgeir Brynjar Kristgeirs-
son, aðstoðarframkvæmdastjóri fyr-
irtækisins, að nú séu öll skip þess
með rúmar aflaheimildir og góðan
afkomugrundvöll. Vinnslustöðin hef-
ur nú um 5% aflahlutdeild í loðnu og
gerir út tvö loðnuskip.
Auknir
möguleikar
Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson,
framkvæmdastjóri Faxamjöls, segir
að auk þess að styrkja fyrirtækið í
veiðum og vinnslu á uppsjávaifiski,
séu kaupin á Kap liður í endurnýjun
á nótaskipi Faxamjöls, Faxa RE,
sem er eitt minnsta loðnuskip flotans
og orðið um 30 ára gamalt. Kap
verður afhent Faxamjöli um helgina
og mun áhöfn Faxa boðið að flytja
sig yfir á hana, en síðan verður hald-
ið til kolmunnaveiða, enda loðnuveið-
ar ekki leyfðar eins og er.
„Með þessum kaupum verðum við
með um 2,5% af loðnukvótanum og
höfum yfir að ráða öflugu skipi, sem
gefur okkur möguleika á að sækja í
tegundir, sem við gátum ekki áður
eins og kolmunna, makríl, rækju og
fleira. Kapin getur bæði verið með
flot- og botntroll auk nótarinnar og
eykur það möguleikana verulega,"
segir Gunnlaugur Sævar Gunnlaugs-
son.
Með sölunni á Kap VE 4 verður
Kap II VE tekin í notkun á ný, en
hún hefur að mestu legið við bryggju
undanfarin misseri, þar sem veiði-
heimildir hafa ekki dugað þremur
nótaskipum fyrirtækins. Henni hef-
ur þó verið beitt til veiða úr norsk-ís-
lenzku sfldinni. Áhöfninni af Kap VE
4 hefur verið boðið pláss á þeirri
gömlu.
Vinnslustöðin á nú 6 skip, nóta-
skipin Kap II og Sighvat Bjarnason,
togarann Jón Vídalín og bátana
Drangavík, Danska Pétur og
Brynjólf.
Bretland:
Ný áætlun um
stuðning við sjáv
arútveg kynnt
ELLIOT Morley, sjávarútvegsráð-
herra Bretlands, tilkynnti á dögun-
um nýja áætlun til stuðnings sjávar-
útvegi í Bretlandi. Helstu tillögur
eru stofnun úreldingarsjóðs fyrir ár-
in 1999 og 2000, fjárstyrkir til að
bæta öryggismál fiskiskipa, til
stuðnings framleiðslu og markaðs-
setningu sjávarafurða. Fjárstuðning-
iu- verður veittur þeim svæðum
Bretlands sem byggja að stórum
hluta afkomu á fiskveiðum. Auk þess
er lagt til að gervihnattaeftirliti verði
komið á við alla stærri togara fyrir
janúar 2000.
Engar áætlanir um
veiðileyfagjald
Morley segir ríkisstjórnina ekki
hafa neinar áætlanir um veiðileyfa-
gjald sem stendur, þrátt fyrir að þær
raddir hafí heyrst að einhver hluti
fjái-mögnunar ætti að koma frá sjáv-
arútveginum sjálfum í formi gjalda,
en framlag ríkisins til sjávarútvegs
er 25 milljónir punda á ári. Morley
telur að vandlega þurfi að ígrunda
hugmyndir um veiðileyfagjald og
hvort þær hugmyndir samræmist
ramma ESB. Hins vegar mun kostn-
aður stærri skipa við gervihnatta-
samband verða greiddur að hluta af
rfldnu.
Skotar óhressir með áætlunina
Skotar eru ekki ánægðir með fjár-
stuðningsáætlun bresku ríkisstjórn-
arinnar og segir Hamish Morrison,
formaður skosku sjómannasamtak-
anna (SFF), að ekkert í tillögunum
greiði leið Skota. Hann segir að ekk-
ert í áætluninni geri ráð fyrir að
skosk fiskiskip fái aðstoð við tækja-
kaup, nauðsynleg fyrir gervihnatta-
eftirlit, og eins séu engar áætlanir
um endumýjun í skoska flotanum. Á
sama tíma muni þeir „lágmarks-
styrkir“ sem árlega hafa verið veittir
til kaupa á öryggisviðbúnaði flotans
vera óbreyttir.
Mótmæla auknum álögum
Morley segir að SFF muni nota
fýrsta tækifæri til að mótamæla
auknum álögum á sjómenn og bætir
við að nauðsynlegt sé að kanna hvort
ekki sé hægt að draga úr umfangs-
miklum reglugerðum um fiskveiðar
sem séu dýrar í framkvæmd og dýr-
ar fyrir skattgreiðendur.
Smásöluverð
í hámarki
VERÐ á fiski hefur hækkað um
15% á örfáum vikum vegna lítils
framboðs. Veiðar hafa verið
minni en venjulega vegna slæms
veðurs og í aflanum er mikið af
smáfiski. Minnkun innflutnings
þorsks setur einnig mark á
breska markaðinn. Verst kemur
fiskskorturinn niður á matvæla-
framleiðendum og smærri söluað-
ilum sem selja hinn landskunna
rétt, fisk og franskar.
Fylgstu daglega með
öflugustu úrvalsdeild
í heimi á mbl.is
Boltavefur mbl.is vindur enn upp á
sig með ítarlegri og lifandi umfjöllun
um enska boltann í vetur. Fréttir af hverri
einustu umferð á meðan leikirnir fara fram
Liðin, leikirnir og leikmennirnir. Heimasiður
félaganna, nýjar fréttir á hverjum degi, nánast
allar upplýsingar sem hægt er að finna
um árangur allra liða. Fylgstu með
frá upphafi. Enski boltinn er byrjaður
að rúlla á mbl.is
mbl.is/boltinn/enski
Enski boltinn á mbl.is - þar sem hlutirnir gerast hratt!