Morgunblaðið - 25.08.1998, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 25.08.1998, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. ÁGÚST 1998 37 MINNINGAR GUÐNÝ ÞORBJÖRG ÁGÚS TSDÓTTIR + Guðný Þorbjörg Ágústsdóttir frá Ystabæ á Sæbóli í Aðalvík var fædd 24. febrúar 1931. j Hún lést á heimili sínu 15 ágúst síðast- liðinn. Foreldrar ( hennar voru Ágúst ísleifsson, f. 1.8. 1893 og Halldóra Ingibjörg Hjálmars- dóttir, f. 24.8 1896. Systkini hennar eru: Berglín Einara, f. 9.11. 1916, látin, Hulda Ki’istrún, f. | 22.7 1918, látin, Guðmundur I Snorri, f. 21.4 1922, látinn, Kjartan Sölvi, f. 20.8 1928, lát- ' inn, Hermann Magnús, f. 23.8 1926, látinn, Hörður Sverrir, f. 23.3 1935, Sigríður Hjör- dís Árný, f. 19.1 1937, Guðmundur Helgi, f. 24.9 1939, látinn. Guðný Þor- björg giftist Jóni Þorsteini Magnús- syni, f. 12.3 1927, látin. Börn þeirra eru: Magnús, f. 9.7 1953, Halldóra, f. 5.2 1957, Borghild- ur, f. 11.4 1959, Þorsteinn, f. 1.5 1962. Barnabörnin eru 8 að tölu. Útför Guðnýjar fer fram frá Grafarvogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 15.00. Vor hinsti dagur er hniginn af himnum í saltan mar. Sú stund kemur aldrei aftur sem einu sinni var. (Halldór Kiljan Laxness.) Móðir okkar systkinanna er nú ( látin og líkt og stundin sem var ( kemur hún aldrei aftur, minning- , arnar eru það eina sem eftir stend- ur af heilli mannsævi. Mamma ólst upp á Ystabæ á Sæbóli í Aðalvík á Homströndum á miklum umbrota- tímum í íslenskum landbúnaði og seinni heimsstyrjaldarinnar. Hún sagði okkur gjarnan sögur af því þegar Bretarnir komu og reistu ratsjárstöð á fjallinu fyrir ofan Sæ- ból, hlæjandi sagði hún frá því hvernig Ágúst faðir hennar brást við þegar Bretarnir skutu sér „villi- kind“ í soðið sem Ágúst átti. Hlátur hennar var smitandi og ef henni þótti eitthvað virkilega fyndið sló hún í lófa sér og varð síðan að þerra augun á eftir. Faðir hennar flutti alfarinn frá Aðalvík 1948 og settist fjölskyldan þá að í Múlakampi í Reykjavík. Þar kynntist hún föður okkar, Jóni Þ. Magnússyni. Þau byggðu húsið í Langagerði 8 og bjuggu þar uns þau skildu 1972, en þá keypti hún íbúð á Bergþóragötu 51, þar sem hún bjó síðan. Hún starfaði lengi í eldhúsinu á elliheimilinu Grund. Hún unni ferðalögum og ferðaðist þegar tækifæri gafst, mér er til efs að til sé sá staður á Islandi sem hún hafði ekki komið til einu sinni eða oftar og alls staðar þekkti hún fólk sem hún heimsótti. Eitt sinn er Elísabet, elsta barnabarnið, var í pössun hjá mömmu langaði Elísa- betu svo mikið til að fara í útilegu. Mamma sló þá upp tjaldi í garðin- um hjá sér og þar gistu þær svo í svefnpokum nokkrar nætur og oft eftir það, svona leysti mamma gjaman litlu málin. Mamma átti við erfíðan sjúkdóm að etja, sjúkdóm sem fáir skilja og engin lækning er við, sjúkdóm sem breytti þessari annars hæglátu manneskju í aðra persónu. Það kom mér alltaf jafn undarlega fyrir sjónir hve margir virtust ekki gera sér grein fyrir því að mamma gat ekk- ert við þessum sjúkleika sínum gert. Við börnin þín kveðjum þig með þökk í hjarta, elsku mamma. Magnús Jónsson, Halldóra Jónsdóttir, Borghildur Jóns- dóttir, Þorsteinn Jónsson. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýju við andlát og útför ástkærs sambýlismanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, SIGURJÓNS ÚLFARSSONAR, Árskógum 6, áður Nökkvavogi 5, Reykjavík. Ólína Kristinsdóttir Margrét Sigurjónsdóttir, Sigurður Sigurjónsson, Dorothea M. Högnadóttir, Hanna Sigurjónsdóttir, Jón Sverrir Jónsson, Sigríður Sigurjónsdóttir, Haraldur Jónsson, Skæringur Sigurjónsson, Guðbjörg Ármannsdóttir, Ólöf Sigurjónsdóttir, Hatlur Björn Hallsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð hlýhug og vináttu við andlát og út- för okkar ástkæra eiginmanns, föður, tengdaföður og afa, HRÓARS B. LAUFDAL, Munkaþverárstræti 6, Akureyri. Sérstakar þakkir til Heimahlynningar krabbameinssjúkra á Akureyri. Guð blessi ykkur. Jóhanna Jóhannsdóttir, börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabarn. Afmælis- | og minn- 1 ingar- greinar MIKILL fjöldi minningar- greina birtist daglega í Morg- unblaðinu. Til leiðbeiningar fyrir greinahöfunda skal eftir- ( farandi tekið fram um lengd < greina, frágang og skilatíma: ( Lengd greina Um hvern einstakling birtist ein uppistöðugrein af hæfilegri lengd á útfarardegi, en aðrar minningargreinar um sama einstakling takmarkast við eina örk, A-4, miðað við meðal- línubil og hæfilega línulengd, - eða 2200 slög (um 25 dálksenti- metrar í blaðinu). Tilvitnanir í j sálma eða ljóð takmarkast við | eitt til þrjú erindi. Formáli Æskilegt er að minningar- greinum fylgi á sérblaði upp- lýsingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, er fædd- ur, hvar og hvenær dáinn, um foreldra hans, systkini, maka, og börn, skólagöngu og störf og loks hvaðan útför hans fer ( fram. Ætlast er til að þessar / upplýsingar komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletr- aður, en ekki í greinunum sjálfum. Undirskrift Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. < Frágangur og | móttaka ( Mikil áherzla er lögð á að handrit séu vel frá gengin, vél- rituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt að disk- lingur fylgi útprentuninni. Það eykur öryggi í textamenferð og kemur í veg fyrir tvíverkn- að. Þá er ennfremur unnt að senda greinar í símbréfi - 569 1115 - og í tölvupósti (minn- ing@mbl.is). Vinsamlegast sendið greinina inni í bréfinu, ( ekki sem viðhengi. + Bróðir okkar og frændi, GÍSLI ÞORKELSSON frá Fagurhóli, Grundarfirði, Torfufelli 36, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 27. ágúst kl. 13.30. Jarðað verður í Hafnarfjarðarkirkjugarði. Systkini og fjölskyldur þeirra. + Ástkær eiginmaður minn og faðir okkar, GEIR GARÐARSSON flugstjóri, Blikanesi 17, Garðabæ, lést á Landspítalanum fimmtudaginn 13. ágúst. Útförin hefur farið fram. Þökkum auðsýnda samúð. Fyrir hönd systkina og annarra vandamanna, Marita Garðarsson, Anna María Geirsdóttir, Edda Geirsdóttir. + Sonur minn, KRISTJÁN JÓNSSON loftskeytamaður, sem lést mánudaginn 17. ágúst síðastliðinn, verður jarðsunginn frá Litlu kapellunni, Foss- vogskirkju fimmtudaginn 27. ágúst kl. 13.30. Jón Gunnarsson. + Elskulegur frændi okkar, RAGNAR ERLENDSSON, Hrafnistu í Reykjavík, áður til heimilis á Hringbraut 78, verður jarðsunginn frá Grensáskirkju miðviku- daginn 26. ágúst kl. 13.30. Fyrir hönd aðstandenda, Ásdís B. Pétursdóttir. + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý- hug við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, JÓNS GUÐMUNDSSONAR frá Ytri-Ánastöðum, Garðavegi 19, Hvammstanga. Elísabet Eggertsdóttir, Þóra Jónsdóttir, Eðvald H. Magnússon, Helga A. Jónsdóttir, Hólmgeir Jónsson, Sigurósk E. Jónsdóttir, Gústaf Daníelsson, Eggert Jónsson, Guðmundur Jónsson og barnabörn. + Innilegar þakkir færum við öllum þeim, sem sýndu samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, STELLU GUNNAR SIGURÐARDÓTTUR, Logafold 56, Reykjavfk, áður til heimilis í Sólheimum 23. Jóhannes Norðfjörð, Sólrún L. Ragnarsdóttir, Hermann Norðfjörð, Ingibjörg S. Norðfjörð, Sigurður Ingólfsson, barnabörn og barnabarnabörn. + Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug vegna fráfalls og útfarar JÓNS ÁRNA ÁRNASONAR. Stella Pétursdóttir, Hjördis Petra Jónsdóttir, Helgi Stefánsson, Sigrún Jónsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Lokað Vegna jarðarfarar GUÐJÓNS GUÐMUNDSSONAR verður Krabbameinsfélagið, Skógarhlíð 8, lokað eftir hádegi í dag, þriðjudaginn 25. ágúst. Krabbameinsfélagið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.