Morgunblaðið - 25.08.1998, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 25.08.1998, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ I’RIÐJUDAGUR 25. ÁGÚST 1998 27 AÐSENDAR GREINAR Framsóknar- banki Svía SJALDAN eða aldrei hefir íslenzk þjóð orðið vitni að sví- virðilegri og í senn raunalegri uppákomu en að undanförnu í bankamálum. Mönn- um býður helzt í grun, að þeir, sem þar ráða ferðinni kunni að vera gengnir af göflunum. Menn, sem hafízt hafa handa við að selja ill- vígustu auðjöfrum Evrópu þjóðbanka Is- lands í hendur, geta tæplega talizt með réttu ráði. Alla vega hlýtur gömlum fylgis- mönnum Sjálfstæðisflokksins að blöskra og blæða í froðu yfír þess- ari ráðabreytni. I viðtali Morgunblaðsins við for- sætisráðherra nýverið tók hann þann kostinn að stikla á fyrri yfir- lýsingum og loforðum ríkisstjórn- arinnar um dreifða eignaraðild, innlenda. Tók þó fram til að klappa Finni um kjammana að hann teldi glapræði ef ekki hefðu verið teknar upp viðræður við Wallenberga. Sá sem þetta ritar telur þetta örgustu öfugmæli. Það er fullkomið glapræði að leyfa íslenzkum fjár- glæframönnum og valdafíklum að ráðslaga við erlenda auðmenn um sölu á einum af mikilvægustu horn- steinum fjárhagslegs sjálfstæðis Islands. Annað tveggja er að valdahroki ráðamanna er svo taumlaus að þeir telji sig geta boðið almenningi hvað sem er, eða að þeir eru slegnir al- gjörri blindu á skynsamlega leiki á hinu pólitíska taflborði. Þó er þriðji möguleikinn líklegastur hvað varð- ar Sjálfstæðisflokkinn. í honum eiti það ekki lengur þjóðkjörnir stjórnmálamenn, sem ráða mestu, heldur fámennar klíkur peninga- manna innan LIÚ, VSI og Verzlun- arráðsins. Valda- og peninga- Brandtex fatnaður græðgi skeytir ekki um landamæri eða þjóðerni. I Framsóknar- flokknum er það flokk- svæðing bankanna sem situr í fyrimimi. Fyr- irætlanir þein-a blasa við: Seljum Svíum 30% af Landsbankanum. Síðan seljum vér Landsbankanum 50% eignarhlut SÍS-arms- ins gamla í VIS og tök- um sem greiðslu 25% af hlutafé Landsbank- Sverrir ans- Það nefnum vér Hermannsson „dreifða eignaraðild". Að svo búnu leyfum vér Svíum að leggja stóru línurnar í stjórn bankans og munu þeir með því móti telja sig hafa undir hönd- um ráðandi hlut í bankanum, sem og er. En vér íramsóknarmenn, með fjármálasérfræðingana Finn og Gunnlaug Sigmundsson í farar- broddi, stjórnum hér heima at- kvæðakaupum, hermangi og öðrum góðum og arðgefandi útvegum og ábatasömum, sem gefa. oss og flokknum sjálfum styrk í göfugii baráttu vorri fýrir margbreytilegra mannlífi, þar sem máttur mútunnar fær notið sín til fulls. Og áfram dunardansinn í Hrana. Kristján í LIÚ og hans menn, VSÍ og Villi í Verzlunarráði, verðandi varaformaður Sjálfstæð- isflokksins, vilja ekki sitja hjá að- gerðarlausir og telja í áttina að Is- landsbanki fái að sporðrenna Bún- aðarbankanum. Þetta telja þeir þó ekki nóg, því að á þessum bæjum eru menn sömu skoðunar og Stretchbuxur kr. 2.900 Konubuxur frá kr. 1.690 Dragtir, kjólar, blússur og pils. Ódýr náttfatnaður. Nýbýlavegi 12, sími 5544433 Líka Hóf Fákafeni 9 sími 5682866 Yfir 1.200 notendur KERFISÞROUN HF. Fákafeni 11 • Simi 568 8055 www.islandia.is/kerfisthroun Kambránsmenn að skipta beri jafnt. Til að hallist ekki á stjórnar- merinni er sala Fjárfestingar- banka atvinnulífsins til sparisjóð- anna í aðdrögum. I Sparisjóða- bankanum ráða sjálfstæðismenn lögum og lofum með fyrrverandi framkvæmdastjóra flokksins frammá. Auk þess era útlán gömlu ríkissjóðanna Fiskveiðasjóðs, Iðn- lánasjóðs og Iðnþróunarsjóðs, sér- lega girnileg glás. Og spón úr aski sínum myndi Framsóknarbanki Það er glapræði að leyfa íslenzkum valda- fíklum, sefflr Sverrir Hermannsson, að ráðslaga víð erlenda auðmenn um sölu á ein- um af mikilvægustu hornsteinum fjárhags- lega sjálfstæðs Islands. Svía missa þegar Sparisjóðabank- inn færi að vinsa úr lánum Fisk- veiðasjóðs til sjávarútvegsins og koma árinni þar fyrir borð með auðveldum hætti. Mönnum kann að virðast þessi sýn órum líkust. En taki kjósand- inn ekki hið fyrsta í taumana mun hann vakna upp við það sem stað- reyndir, sem hann hyggur martröð nú. Fyrir þá sem lifðu hamingju- stund íslenzku þjóðarinnar 17. júní 1944 er það þyngra en tárum taki að horfa á valdhafana leggjast í sölumennsku við aðrar þjóðir um fjöregg hennar. Og oddviti þeirra lýsir því yfir að það væri glapræði að gera það ekki, þótt reynt sé að öðra leyti að brynja sig með froðu- kenndum skvalduryrðum. Höfundur er fyrrv. bankastjóri. Einbýli — raðhús á Seltjarnarnesi óskast snarlega Við leitum að ofangreindri eign fyrir ailt að 18-20 millj. í skiptum fyrir 140 fm lúxusíbúð í lyftuhúsi við Eiðistorg, með giæsilegu útsýni, auk bílskýlis. Einnig gætu bein kaup komið til greina. Upplýsingar gefur Bárður hjá Valhöll, fasteignasölu, Síðumúla 27a, sími 588 4477. Frábær fyrirtæki 1. Gamalgróin hársnyrtistofa sem hefurverið á sama stað í 25 ár. Pumpustólar, sanngjörn leiga, langur leigusamningur. Fastir viðskiptavinir. Sanngjarnt verð. 2. Sérstakt þjónustufyrirtæki á Vesturlandi, það eina sinnarteg- undar, húsnæðið fylgir með. Hentugt fyrir hjón eða tvo einstak- linga. Laust strax. Þjónustar allt Vesturland. 3. Heildverslun með gjafavörur og blómavörur. Lítil og nett heild- verslun með mörg sambönd og góð umboð. Laus strax fyrir haustvertíðina. 4. Aldrei þessu vant höfum við til sölu góða dagsöluturna bæði í Reykjavík og Hafnarfirði. Snyrtileg fyrirtæki með siðlegan opnunartíma. 5. Frábær sérverslun til sölu staðsett við Laugaveginn. Glæsileg veslun með fallegar og snyrtilegar vörur. 6. Lítil kertaverksmiðja sem framleiðir ilmkerti til sölu. Hægt að hafa í bílskúr, þarf ekki mikið pláss og getur verið hvar á land- inu sem er. Gott verð. 7. Heilsustúdíó til sölu á góðum stað. Ný tæki og mikil vinna fyrir duglegt fólk. Upplýsingar aðeins á skrifstofunni. F.YRIRTÆKIASAUIN SUÐURVE R I SÍMAR581 2040 OG 581 4755. REVNIR ÞORGRÍMSSON. \Cr<\€ri, Gœðavara Gjafavdra - matar- og kaffistell. Allir verðflokkar. + Heimsírægir hönnuöir m.a. Gianni Versace. VERSLUNIN Ltiugavegi 52, s. 562 4244. Skíðaveisla Heimsferða til Austurríkis frá kr. 48.930 20.000 kr. Heimferðir bjóða nú glæsilegt afQláffnr fwvin úrval skíðaferða til bestu .... a*,Ur *”'■* skíðastaða Austurríkis með *jOISlCSf|(flllia beinu flugi til Munchen viku- lega frá 23. janúar 1999. Fyrstu 200 farþegarnir njóta 5.000 kr. I afcláfflir kynningarafsláttar og nú getur I *llllll þú tryggt þér ævintýralega skíðaferð á betri kjörum en þú hefur nokkra sinni séð. Við höfum valið Zell am See og Saalbach- Hinterglemm sem okkar aðaláfangastaði. Þeir sameina stór- kostlegt úrval skíðabrekkna við allra hæfi, afbragðs gististaði og síðast en ekki síst feiknarlega skemmtilegt mannlíf á kvöldin, mikið úrval góðra veitinga- og skemmtistaða. Hér getur þú valið um yfir 60 lyftur á hverju svæði, snjóbretta- svæði og yfir 100 km af skíðagöngubrautum. Og að sjáfsögðu nýtur þú traustrar þjónustu fararstjóra Heimsferða allan tímann. 200 sæti með sérafslætti. Bókaðu strax ■ ... ELiðrJ Verð kr. 29.630 Flugsæti p.mann m.v. hjón með 2 böm, 2-11 ára. Verð kr. 48.930 Flug, hótel og flugvallarskattar m.v. hjón m. 2 böm, vika 23. janúar, Pinzgauer Hof. Verð kr. 56.960 Flug, hótel og flugvallarskattar m.v. 2 í herbergi. Beint morgunflug tii Munchen Brottför kl. 8:30 á laugardögum: 23. janúar 30. janúar 6. febrúar 13. febrúar 20. febrúar 27. febrúar 6. mars HEIMSFERÐIR Austurstræti 17, 2. hæð ♦ s(mi 562 4600. www.heimsferdir.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.