Morgunblaðið - 25.08.1998, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 25.08.1998, Blaðsíða 35
; < < < 1 i i < < 4 s 4 4 s MORGUNBLAÐIÐ________________________________________________________ÞRIÐJUDAGUR 25. ÁGÚST 1998 35 MINNINGAR undir heimili í borginni. En þau undu við sitt þótt eyðileggingin væri geigvænleg. Og þegar tímar liðu varð heimili þeirra sérstakur staður. Þau eignuðust lítið hús á góðum stað í Kensington og þar bjuggu þau uns þau fluttust heim til Islands. Þetta var í Victoria Grove nr. 22 og fljótlega var heimilið kall- að Grófin af Islendingum. Grófin varð landanum mikill aufúsugarður. Hann stóð opinn þeim íslendingum sem komu til borgarinnar, hvort sem þeir voru að leita sér lækninga, dvöldu við nám eða áttu önnur er- indi. Karl var á þönum að veita að- stoð ef með þurfti og Margrét tók á móti þeim sem að garði bar með einstakri mildi og gestrisni. Okkur hjónum var þetta vel kunnugt því að um skeið æxlaðist það svo til að við dvöldum í sumar- leyfum í Grófinni og þau hjón voru hjá okkur þegar þau voru í fríum heima á Islandi. Greiðvikni Karls og fórnfýsi og hið opna hús í Grófinni var viður- kennd og metin af landsmönnum: Karl var kosinn heiðursfélagi ís- lendingafélagsins í London og Is- lenska orðunefndin veitti honum heiðursmerki. Árið 1968 var Karli veitt yfir- læknisstaðan við geðdeild Borgar- spítalans og gegndi hann því starfi meðan aldur leyfði. Karl Strand ólst upp hjá tveimur rosknum móðursystkinum sínum á Neslöndum í Mývatnssveit. Þar var enginn rausnargarður en ylur og heimilishlýja. Og þótt hann væri heimsborgari, fjölmenntaður og norskur í föðurætt var hann samt alla tíð Mývetningur að kjama. Og Þingeyingur var hann af lífi og sál. Meðan hann bjó erlendis og kom heim í fríum og eftir að hann fluttist alveg heim, jafnvel fram á síðustu ár þegar heilsan var farin að gefa sig, fannst honum ekkert sumar sem skyldi nema hann kæmist norð- ur og heim eins og hann kallaði það. Þegar börn þeirra hjóna voru að alast upp úti í London þótti þeim hjónum sjálfsagt að senda þau til ís- lands í fríum til ættfólksins heima. Það kom stundum í hlut okkar hjóna að taka á móti þeim á flugvelli og finna þeim farkost til heimkynna skyidfólks iyrir norðan eða sunnan. Okkur þótti þetta ánægjulegt verk- efni. Viðar og Hildur voru myndar- böm og vænting þeirra heils hugar. Það var þessi inngróna tryggð og vinsemdarhugur sem einkenndi kynni okkar við Karl Strand um ára- tugi. Af sama toga er spunnin sam- úðarkveðja okkar hjóna til Margrét- ar og fjölskyldunnar við leiðarlok. Stefán Júlíusson. Haustið 1959 vorum við hjónin í námsferð í London. Við höfðum oft heyrt karlmannlega og skýra rödd Karls Strand geðlæknis í útvarpi flytja ítarlegar fréttir frá heims- borginni. Páll hringdi í Karl, svona rétt til að heilsa uppá hann. Lækn- h-inn, sem við höfðum aldrei augum litið, svaraði ljúfmannlega kveðju hans og spurði að bragði hvort við vildum ekki þiggja kvöldverðarboð hjá þeim hjónum. Hann bað þess líka að við tækjum með okkur fleiri Islendinga, ef við vissum af þeim. Við höfðum nýlega hitt hjónin Jó- hannes Olafsson lækni og Aslaugu Johnsen hjúkrunarkonu. Saman sátum við tvenn læknishjón veglega veislu hjá þeim sæmdarhjónum, frú Margi-éti og Karli Strand. Gestrisni og góðvild þeirra hjóna var alveg einstök. Kvöldið leið undrafljótt við up[)byggilegar samræður. Þau hjón kunnu þá list að láti fólki líða vel í návist sinni á hlýlegu heimili sínu. Það er alkunna að ótal íslendingar, ungir sem aldnir, nutu gestrisni, gistingar og fyrirgreiðslu þessara samhentu hjóna á þeim aldarfjórð- ungi sem þau bjuggu í Lundúnum. Karl tók við stöðu yfirlæknis geð- deildar Borgarspítalans árið 1968, sem var fyrsta geðdeildin við al- mennt sjúkrahús hér á landi og mikið heillaspor fyrir geðheilbrigð- isþjónustuna í landinu. Geðdeildin var ekki sérhönnuð sem slík en nýttist vel. Ég átti því láni að fagna að forsjónin hagaði því svo til að eft- ir árs nám í geðlækningum í Bristol í Englandi réðst ég um eins árs skeið frá júlí 1970 til 1971 sem að- stoðarlæknir hjá Karli Strand. Karl var frábær yfirlæknir, enda hafði hann langa læknisreynslu að baki frá London. Honum tókst að ná samvinnu við aðra ágæta yfírlækna á þessum nýja spítala, auk þess sem hann kunni vel að meta mikilvægi góðrar samvinnu við stjómendur spítalans. Karl hafði þá eðliskosti sem nauðsynlegir eru góðum geð- lækni. Hann var mannvinur, frið- samur en fastur fyrir, samvisku- samur og mjög starfsamur. Á geðdeild þarf að glæða skilning og auka öryggi, uppræta ótta og kviða ef full lækning á að takast. Karl hafði ríkan skilning á því að all- ir sjúklingar þurfa á sálrænni styrkt- arlækningu að halda. Hann íylgdist líka vel með öllum nýjungum í lyfja- meðferð og notaði óhikað raflækn- ingar þar sem þær áttu best við. Karl vakti yfir velferð sjúklinganna á deildinni og gerði sér far um að skapa afslappað og örvandi um- hverfi. Vikulegar kvöldvökur voru haldnar og urðu vinsælar hjá sjúk- lingum og jafnvel starfsfólki annarra deilda. Oftast voru það sjúklingamir sjálfir eða fyrrverandi sjúklingar sem sáu um dagskrána enda alkunna að geðrænir kvillar fara ekki í mann- greinarálit. Þeir geta þjáð um tíma gáfumenn og listafólk. Karl bar ótakmarkaða virðingu og umhyggju fyrir þeim sem hann stundaði sem læknir og örvaði þá til ákvarðana þegar það var tímabært. Gagnkvæm samvinna var markmið- ið. Sama gilti um samstarfsfólk hans. Hann leyfði öllum að njóta sín, bar traust til þeirra, fól þeim ábyrgð og kunni að meta vel unnin störf. Og það var gott að leita til hans um allt sem laut að meðferð og samskiptum. Hann var fóðurlegur án þess að vera íhlutunarsamur. Hann hafði örugga yfirsýn yfir alla meðferð sjúklinga, bæði á geðdeild Borgarspítala, Arnarholti og Hvíta- bandi, þekkti alla og fylgdist vel með. Sjálfur fór hann á aðrar deildir Borgarspítala og skilaði ítarlegum skriflegum upplýsingum til starfs- bræðra á öðrum deildum eftir sam- ráðskvaðningar. Kari vann aLa tíð á stríu og var að vonum vinsæll af sjúldingum ánum scteim hæfni sinnar. Hann var sívinnandi, ánnig efth'vak- ldc á Bœgargítala og stariá® sem geðlækná' hjá Ttyggmgpstofiiun ríkisins í gö á' eflir að harmfóráeftiriaiin. Að loknu sérfræðinámi í desem- ber 1975 hóf ég aftur störf á geð- deild Borgarspítala og nú sem sér- fræðingur. Á tíu ára afmæli Borgar- spítala kom út veglegt afmælisrit sem fylgirit Læknablaðsins með greinum eftir lækna spítalans. Þá hvatti hann mig til þess að skrifa grein. Það varð úr vegna skamms fyrirvara að ég og Páll skrifuðum greinina „Sjálfsvígstilraunir". í þehTÍ grein, þeirri fyrstu um sjálfs- vígstilraunir, er fyrst notað orðið sjálfsvíg í stað orðsins sjálfsmorð, að hans áeggjan. Karl var mjög ritfær og orðhagur með afbrigðum. Hvorki í ræðu né riti lét hann neitt frá sér fara sem ekki var vandað og vel valið. Það lýsir Karli vel, að hann skrifaði merka bók fyrir leikmenn um hug- læga kvilla og tilfinningaleg vanda- mál. Hann taldi að starf læknisins yrði mun auðveldara, ef sjúklingar og aðstandendur þeirra hefðu nokkra þekkingu og skilning á hvernig sjúkdómar verða til, um or- sakir þeirra og afleiðingar, um rannsóknir og lækningar í þágu læknavísindanna á hverjum tíma. Þessi bók, sem kom út 1960, lýsir Karli vel. Stílsnilld hans nýtur sín ótrúlega vel þar sem fjallað er um hugtök á erfiðu sérsviði. Eftir starfslok Karls á geðdeild Borgarspítala hitti ég Karl og Mar- gréti oft. Það var ánægjulegt að sjá hversu þessi samhentu hjón geisl- uðu af hamingju, hlýju og góðvild til allra. Við Páll sendum frú Margréti, börnum þeirra, tengdabörnum og barnabörnum innilegar samúðar- kveðjur og biðjum þeim blessunar Guðs í öllu. Ég læt Karl eiga lokaorðin, sem tekin eru úr bókinni „Hugur einn það veit“: „Þeir sem kunna að hafa lesið hana í þeirri von að finna for- skriftir er hlýða mætti í blindni verða fyrir vonbrigðum. Hinum, sem öðlast hafa eilítið víðari sýn yfir vandamál andans, hlutverk ástar, skilnings, öryggis, þurftar og full- nægingar í lífi hvers manns frá fyrsta til hinsta dags, er þakkað fyr- ir samvinnu við höfundinn.“ Guðrún Jónsdóttir. Karl Strand var yfirlæknir geð- deildar Borgarspítalans frá upphafi og leiðir okkar lágu saman er ég gerðist eftirmaður hans í því starfi. Á næstu árum tókust með okkur Karli góð kynni og einnig kynnt- umst við hjónin Margréti konu hans, meðal annars á samkomum innan Borgarspítalans. Okkur var mikil ánægja að því að fá að kynnast þeim hjónum betur, þótt tækifærin hefðu gjarnan mátt vera fleiri. Geðdeild Borgarspítalans tók formlega til starfa 25. júní 1968 og hefur því gegnt hlutverki sínu í geð- heilbrigðisþjónustunni um þrjátíu ára skeið. Hin eiginlega forsaga geðdeildar Borgarspítalans var sú, að allt frá 1955, og einkanlega frá 1964, var fengist við lækningar á geðsjúkdómum á farsóttarsjúkra- húsinu í Þingholtsstræti. Sú starf- semi var síðan flutt yfir í Borgar- spítalann þegar hann tók til starfa á árinu 1968. Karl stundaði framhaldsnám í geðlækningum í Englandi og hafði starfað þar um árabil áður en hann tók að sér stöðu yfirlæknis geð- deildar Borgarspítalans. Karl stundaði nám í geðlæknisfræði við fremstu stofnanir á því sviði í Bret- landi, gegndi ýmsum trúnaðarstörf- um og naut verðskuldaðrar virðing- ar landa sinna. Undir farsælli forystu Karls Strand mótaðist geðdeildin á næstu árum og með atorku hans og fram- sýni ásamt samvinnu við dugmikla brautryðjendur, sem réðust til starfa á deildinni, tókst að byggja upp öfluga deildarstarfsemi, þá fyrstu sem sett var á laggirnar hér á landi við almennt sjúkrahús. Má nærri geta að oft hafi starfið verið erfitt, en allt tókst það samt giftu- samlega, eins og við hin vitum sem á eftir komum. Karl lét sér mjög annt um hag sjúklinga deildarinnar og var mjög virtur af þeim og öllum sínum samstarfsmönnum. Hann var maður hreinskiptinn og ákveðinn í framgöngu, en drenglyndur og sanngjarn. Þrautseigju hans og starfsorku var við brugðið. Hann sinnti, auk starfa sinna á deildinni í Fossvogi, umfangsmiklum störfum m.a. í Arnarholti og á Hvítabandinu. Karl lagði mikla rækt við íslenskt mál og tamdi sér vandað málfar í hvívetna. Hann þýddi m.a. nokkur fræðiheiti á íslensku og stuðlaði að fræðslu fýrir almenning og fagfólk. Árið 1960 kom út bók eftir hann er nefnist „Hugur einn það veit“. Karl lýsti því svo sjúlfui', að bókin væri ætluð almenningi og að í henni væri fjallað um huglæga kvilla og ýmis tilfinningaleg vandamál. Með bók- inni vildi hann efla þekkingu á geð- rænum kvillum og bæta meðferð þeirra með aukinni þekkingu al- mennings á þessu sviði. Karl Strand lét af störfum yfir- læknis geðdeildar Borgarspítalans fyrir aldurs sakir árið 1982 og eru honum þökkuð farsæl störf og merkilegt framlag til geðlækninga á Islandi. Við hjónin sendum frú Margréti og fjölskyldunni hugheilar samúð- arkveðjur. Hannes Pétursson. Hinn 13. þ.m. lést í Reykjavík Karl Strand, fyrrverandi yfirlæknir 87 ára að aldri. Með Karli er geng- inn merkur brautryðjandi í geð- lækningum á íslandi. Ég átti því láni að fagna að starfa með Karli í tæpan áratug eða frá 1972 uns hann lét af störfum fyrir aldurs sakir. Það var bjart yfir málefnum sjúkrahúsa í lok sjöunda áratugar- ins. Borgarspítalinn var að rísa og geðdeildin var opnuð í júní 1968. Kai’l Strand var ráðinn til að veita deildinni forstöðu. Sneri hann þá heim frá Bretlandi ásamt fjölskyldu sinni eftir námsdvöl og síðar giftu- ríkan starfsferil sem geðlæknir í London. Með Karli komu ferskir andar nýjunga í geðlækningum. Nýja deildin á Borgarspítalanum var opin geðdeild sem var óalgengt á þeim tíma. Þá var það líka óvenju- legt að deildin var á almennu sjúki'ahúsi en ekki í sérbyggingu eins og tíðkast hafði. Þetta átti stór- an þátt í því að brjóta niður þá for- dóma sem ríktu á þessu sviði. Karl lagði ríka áherslu á iðjuþjálfun og fékk því áorkað að húsnæðinu var breytt þannig að góð aðstaða skap- aðist fyrir iðjuþjálfun. Þá innleiddi Karl raflækningar á deildinni. Ýms- um stóð stuggur af þessari lækning- araðferð, en hún reyndist vel frá upphafi. Þannig var geðdeildin strax í upphafi mikilvægur hluti af bráða- sjúkrahúsi sem sinnti jafnt geðræn- um sem öðrum vandamálum sjúk- linga. Átti Karl stærstan hlut í þeirri þróun. Karl hafði líka mikil áhrif á almenna stefnumótun og uppbyggingu spítalans. Hann var formaður læknaráðs Borgarspítal- ans á árunum 1969-1971 og miðlaði þar af mikilyægri reynslu sinni og þekkingu. Á sjöunda áratugnum jukust umsvif geðdeildarinnar og vistheimilið í Arnarholti varð hluti af deildinni. Það var mjög ánægjulegt að fá að starfa náið með Karli á þessum ár- um og kynnast mannkostum hans. Hann var ákveðinn og rökfastur maður sem gott var að vinna með. Hann var jafnframt einn stundvís- asti maður sem ég hef kynnst. Féll honum það miður ef menn komu of seint á fundi og er það trú mín að menn hafi ekki látið slíkt endurtaka sig. Hann var mikill áhugamaður um íslenskt mál og á mörg nýyrði í íslenskri tungu. Orð sem hann byrj- aði að nota í daglegu starfí á geð- deildinni unnu sér strax sess í mál- inu. Má hér nefna orðin iðjuþjálfi, geðlægð og raflækningar. Þannig var Karl sífellt vakandi á fjölmörg- um sviðum og fylgdist einnig vel með þróun spítalans eftir að hann lét _af störfum. Ég veit að ég tala fyrir munn margra fyrrverandi samstarfs- manna Karls þegar ég þakka hon- um fyrir ómetanlegt brautryðjenda- starf við uppbyggingu geðdeildar Borgarspítalans og starf að geð- lækningum hérlendis. F.h. Sjúkra- húss Reykjavíkur þakka ég Karli samfylgdina og hið mikla starf hans og sendi frú Margréti og fjölskyldu samúðarkveðjur. Jóhannes Pálmason. Kveðja frá Geðlæknafélagi íslands Karl Strand fyrrum yfirlæknir geðdeildar Borgarspítalans lést hinn 13. þessa mánaðar og er með honum genginn einn mætasti maður úr hópi íslenski-a geðlækna. Karl fæddist á Kálfaströnd í Mývatns- sveit 24. okt. 1911 en foreldrar hans voru Karl Strand kaupmaður og Kristjana Jóhanna Jóhannesdóttir, hjúkrunar- og nuddkona. Karl lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri árið 1934 og embættis- prófi frá læknadeild Háskóla ís- lands árið 1941. Karl var síðan við nám og störf í London frá 1941 til 1968. Starfaði hann lengst af sem geðlæknir á West Park Hospital eða frá 1943 til 1948 og aftur frá 1949 til 1968. Jafnframt starfaði hann við göngudeildir þriggja sjúkrahúsa í suðurhluta borgarinn- ar. Á Lundúnaárum sínum tók Karl virkan þátt í félagslífi Islendinga þar og var kjörinn heiðursfélagi Is- lendingafélagsins í London árið 1963. Árið 1968 er geðdeild Borgarspít- alans var opnuð tók Karl stöðu yfír- læknis þar og stýrði deildinni far- sællega til ársins 1983. Karl starfaði sem geðlæknir við Ti-yggingastofn- un ríkisins frá 1983-1990. Karl fékkst nokkuð við ritstörf og lét sér mjög annt um íslenskt mál. Hann sat um tíma í orðanefnd Læknafélags íslands og var meðrit- stjóri Læknablaðsins frá 1968-1971. Kai'l ritaði bókina: Hugur einn það veit, þættir um hugsýki og sál- kreppu, sem kom út 1960 en auk þess liggja eftir hann tímaritsgrein- ar og þýðingar. Árið 1953 hlaut hann riddarakross Fálkaorðunnar og árið 1996 var hann kjörinn heið- ursfélagi Geðlæknafélags íslands. Stjóm Geðlæknafélags íslands biður guð að varðveita minningu þessa heiðursmanns og sendir frú Margréti, börnum þeirra Karls og ástvinum öllum dýpstu samúðar- kveðjur. Stjórn Geðlæknafélags íslands. Leiðir okkar og Karls Strand lágu saman í byrjun júní árið 1968 við erfiðar aðstæður. Hann hafði þá verið ráðinn yfirlæknir hinnar nýju geðdeildar Borgarspítalans. Af hon- um fór orð vegna starfa hans í Bret- landi. Hér heima var nafn hans þekkt ekki sízt vegna bókar hans, Hugur einn það veit, sem Almenna bókafélagið hafði gefið út. Opnun geðdeildar Borgarspítal- ans var mikilvægur þáttur í upp- byggingu á aðstöðu til meðferðar á geðsjúkum. Fram að þeim tíma var Kleppsspítalinn eina sjúkrahúsið, sem annaðist þá, sem áttu við þenn- an sjúkdóm að stríða. Opnun geð- deildar Borgarspítalans markaði þess vegna ákveðin tímamót. Þar var í fyrsta sinn hafin starfræksla geðdeildar inn á almennu sjúkra- húsi. Ekki voru allir sammála um að það væri æskilegt eins og líka kom í ljós, þegar geðdeild Landspítalans var byggð. En jafnframt hafði opn- un geðdeildar Borgarspítalans þá þýðingu, að fleiri kosta var völ. Það skipti máli bæði vegna þess, að aldagamlir fordómar gagnvart geð- sjúkum fylgdu Kleppsspítalanum, sem að sjálfsögðu var ómaklegt en engu að síður veruleiki, en einnig gafst möguleiki á annars konar meðferð. Á geðdeild Borgarspítal- ans voru teknar upp raflækningar, sem höfðu verið umdeildar en skiptu engu að síður sköpum í mörgum tilvikum. Það féll í hlut Karls Strand að móta þessa nýju geðdeild, starfsemi hennar og andrúm allt. Það tókst honum frábærlega vel og óhætt að fullyrða, að geðdeild Borgarspítal- ans hefur búið að því alla tíð síðan. Þar hefur starfað gott fólk, sem skapað hefur hlýlegt andrúmsloft og sýnt sjúklingum og aðstandend- um þeirra það skilningsríka viðmót, sem þeir þurfa á að halda, sem þangað leita. Þessa júnídaga fyrir þrjátíu árum kom okkur ekki til hugar, að sam- skipti okkar og Karls Strand ættu eftir að vérða svo mikil og náin, sem raun varð á, en þau stóðu á þriðja áratug. Hann varð sá klettur í lífi okkar, sem oft þurfti á að halda og aldrei brást. Karl Strand var afar hreinskipt- inn í samtölum við sjúklinga sína og aðstandendur þeirra. Hann sagði óþægilega og erfiða hluti á þann veg, að það komst til skila án þess að valda viðmælendum hugarangist og sálarkvölum, sem oft gat þó ver- ið tilefni til. Jafnvel þegar öll sund virtust lokuð hafði hann lag á að segja það með þeim hætti að eftir stóð trúin á, að þessi merki læknir mundi samt finna leið út úr ógöng- unum, sem gerðist aftur og aftur. Styrkur Karls Strand í starfi virt- ist ekki sízt vera sá, að hann bjó augljóslega yfir mikilli lífsreynslu og mannþekkingu. Hann hafði djúpa þekkingu á viðfangsefni sínu. Við þessar aðstæður leitar margt á hugann. Svör hans voi-u alltaf á þann veg, að fyrirspyrjanda leið betur eftir en áður. Raunar var það svo, a.m.k. skv. okkar reynslu, að fólki leið alltaf betur eftir samtöl við Karl Strand. Hann var sterkur en hlýr per- sónuleiki. Hann var þeirrar gerðar, að okkur þótti báðum afar vænt um hann. Við eigum honum mikið að þakka. Við sendum konu hans og fjöl- skyldu þeirra innilegar samúðar- kveðjur. Sigrún Finnbogadóttir, Styrmir Gunnarsson. SJÁ NÆSTU SÍÐU
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.