Morgunblaðið - 25.08.1998, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐ JUDAGUR 25. ÁGÚST 1998 21
ERLENT
Reuters
BRESKIR vísindamenn hefja uppgröft á líkum sex manna, sem létust
af völdum spænsku veikinnar á Svalbarða árið 1918.
Veirunnar sem olli spænsku veikinni leitað
Uppgröftur haf-
inn á Svalbarða
Ósló. Reuters.
Ekki talin hætta
á að veiran vakni
til lífsins á ný
VISINDAMENN frá Noregi,
Kanada, Bretlandi og Bandaríkjun-
um hófu á laugardag uppgröft á lík-
um sex norskra námumanna, sem
létust af völdum spænsku veikinnar
á Svalbarða árið 1918.
Vísindamennirnir ráðgera að
taka sýni úr lungum og öðrum líf-
færum, í von um að finna leifar af
veirunni, sem olli mesta inflúensu-
faraldrinum á öldinni. Tilgangurinn
er að grafast fyrir um erfðagerð
veirunnar, til að kanna hvort hún er
skyld þeiiTÍ svínainflúensu sem
þekkt er í dag, og í framhaldinu að
þróa nýtt bóluefni.
Uppgröfturinn mun væntanlega
taka nokkra daga, en líkin eru graf-
in á um 2,5 metra dýpi í frosinni
jörð. Þegar vísindamennimir nálg-
ast kistumar munu þeir klæðast
einangruðum búningum og bera
öndunargrímur. Að sögn Toms
Bergans, sem tekur þátt í að sam-
ræma rannsóknir hópanna, er það
bæði til að verjast veirunni og til að
koma í veg íýrir að sýnin spillist.
„Ef einhver vísindamannanna væri
með flensu þá gætum við setið uppi
með sýni af rangri veiru“, sagði
Bergan.
Talið er að spænska veikin hafi
orðið 20 - 40 milljónum manna að
fjörtjóni þegar hún gekk yfir heims-
byggðina árið 1918. Til samanburð-
ar má nefna að í fyrri heimsstyrjöld-
inni, sem lauk sama ár, létu um 13
milljónir manna lífið á vígvöllunum.
EKKI er talin hætta á að veiran
sem olli spænsku veikinni árið 1918
vakni til lífsins á ný, nú þegar al-
þjóðlegur hópur vísindamanna gref-
ur upp lík nokkurra manna sem dóu
á Svalbarða af völdum hennar, að
sögn Margrétar Guðnadóttur, pró-
fessors á veirurannsóknastofu Há-
skólans.
Margrét segir að menn hafi talið
spænsku veikina líka þeim inflú-
ensufaröldrum sem geisuðu næstu
10 ár á eftir, en þeir hafi hins vegar
ekki verið eins mannskæðir. Eftir
það hafi komið til nýir stofnar. Hún
segir staðfestingar hafa fengist á
þessu á seinni árum með mótefna-
mælingum í gömlu fólki, m.a. hér-
lendis. Þær mælingar komu til eftir
að hermaður í Bandaríkjunum lést
af völdum svínainflúensu árið 1976
en þá hvatti Alþjóða heilbrigðis-
málastofnunin aðildarríkin til að
leita að mótefnum í gömlu fólki.
Veiran skyld svínainflúensu
„Við höfum vissu fyrir því að
stofninn sem olli spænsku veikinni
er líkastur stofni svínainflúensu
sem hefur komið upp undanfarin ár
og leggst sem betur fer sjaldan á
fólk. Þessar rannsóknir staðfestu
það sem menn höfðu áður fundið
með mótefnamælingum,“ sagði
Margrét. Hún sagði vísindamennina
nú hyggjast rejma að ná sýnum úr
lungum til að finna þar erfðagerðina
af þessari veiru. „Ef þeim tekst það
er það mikil viðbót við það sem þeg-
ar er vitað. Vonandi geta þeir ekki
vakið upp og reyna ekki að vekja
þessa veiru til að hún taki að fjölga
sér, enda er ólíklegt að eftir öll
þessi ár sé hægt að vekja upp heila
veiru.“
Margrét sagði að með núverandi
tæknikunnáttu ætti að vera hægt
að búa til erfðafræðilega röð úr
sýnum sem ná mætti úr þessum
líkum. „Með því ætti að vera hægt
að bera saman erfðagerð veirunnar
við erfðagerð svínainflúensuveir-
anna. Það myndi færa okkur vit-
neskju um hvers konar veira þetta
var og gefa tækifæri til að búa til
nýtt bóluefni, en lítil vinna hefur
því miður verið lögð í að endur-
bæta þau inflúensubóluefni sem til
eru. Þetta er ónumið land og það
freistar fólks að leggja í svona
verkefni til að geta komið með
betra bóluefni, svo það hefur
praktískan tilgang," sagði Margrét
að lokum.
Frakkland
Valdabar-
átta í Þjóð-
fylkingunni
París. Reuters.
VARAFORMAÐUR Þjóðfylkingar-
innar í Frakklandi, Bruno Megi’et,
hefur tilkynnt að hann sækist eftir
því að leiða lista fylkingarinnar í
kosningunum til Evrópuþingsins í
júní á næsta ári. Hingað til hefur
Jean-Marie Le Pen, formaður Þjóð-
fylkingarinnar, leitt lista öfgasinn-
aðra franskra hægrimanna til Evr-
ópuþingsins.
Megret hefur tilkynnt Le Pen
ákvörðum sína en formaðurinn hef-
ur ekki tjáð sig opinberlega um
málið. Le Pen er sagður ætla eigin-
konu sinni, Jany Le Pen, efsta sæt-
ið, en ákvörðun um hver leiði listann
er í höndum lítils hóps leiðtoga
Þjóðfylkingarinnar. Jean-Marie Le
Pen á yfir höfði sér dóm fyrir lík-
amsárás en hann veittist að þing-
konu Jafnaðarmannaflokksins á síð-
asta ári. Verði hann fundinn sekur
getur hann ekki gefið kost á sér til
setu á Evrópuþinginu.
Subaru 1800 Stw, árg. '87,
5 g., 5 dyra, blár, ek. 173 þ.
Verð 290 þ.
Hyundai Pony GLsi, árg. '94,
1.500, 5 gíra, 5 dyra, vinrauður,
ek. 74 þ. Verð 590 þ.
Range Rover Vouge, árg. '88,
3.500, ssk., 5 dyra, Ijósblár, ek.
141 þ. Verð 1.150 þ.
Renault Twingo, árg. '96,
1.200, 5 gíra, 2 dyra, vínraður,
ek. 27 þ. Verð 780 þ.
Ford Escort CLX, árg. '96,
1.400, 5 g., 3 dyra, hvítur, ek.
149 þ. Verð 970 þ.
Daihatsu Charade TS, árg. '91,
1.000, 5. g., 3. dyra, hvírtur, ek.
101 þ. Verð 370 þ.
Toyota Camry GLi 4x4, árg.
'88, 2.000, 5 g., 4. dyra, hvítur,
ek. 144 þ. Verð 650 þ.
Bílalán til allt að
60 mánaða.
Visa Euro raðgreiðslur
til allt að 36 mánaða.
Range Rover Vouge, árg. '91,
nýsk. '94, 3.900, 5 g., 5 d, hvítur,
ek. 98 þús., nýskráður '94.
Verð kr. 1.980 þ.
B&l notaðir bílar . Suðurlandsbraut 12 • Sími: 575 1200 • Beinn sími: 575 1230