Morgunblaðið - 25.11.1998, Síða 2

Morgunblaðið - 25.11.1998, Síða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 25. NÓVEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Fyrsta ráðgefandi álit EFTA-dómstólsins í íslensku máli Akvörðun um lækkun lyíja- verðs stríðir ekki gegn EES í RÁÐGEFANDI áliti sem birt var í gær fellst EFTA-dómstóllinn á þá afstöðu íslenska ríkisins að ákvörðun Lyfjaverðlagsnefndar um lækkun lyfjaverðs 22. nóvember árið 1996 stangist ekki á við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið. Álitsins var aflað að beiðni Héraðsdóms Reykja- víkur í máli sem Samtök verslunarinnar-Félag ís- lenskra stórkaupmanna, FÍS, hafa höfðað gegn íslenska ríkinu og Lyfjaverðlagsnefnd. Krefst stefnandi ógildingar ákvörðunar Lyfjaverðlags- nefndar sem fól meðal annars í sér að hámarks- verð lyfja í heildsölu lækkaði um 2,65% ef kostn- aðarverð var kr. 3.000 eða hærra. Tilefnið var samanburður á heildsöluverði lyfja á Norður- löndum sem sýndi að það væri hæst á íslandi. Ógildingarkrafa FÍS byggist bæði á íslenskum stjórnsýslureglum og ákvæðum EES-samnings- ins, nánar tiltekið tilskipun ráðsins 89/105/EBE. I málflutningi fyi-ir EFTA-dómstólnum, sem fram fór í byrjun október, byggði FIS á því að 2. og 3. gr. tilskipunarinnar ættu við og þær heimil- uðu ekki einhliða ákvörðun yflrvalda um verð- breytingu á borð við ákvörðun lyfjaverðlags- nefndar. EFTA-dómstóllinn telur hins vegar að 4. gr. tilskipunarinnar eigi við þar sem yfii'völd- um er heimilað að gn'pa til verðstöðvunar að gefnum vissum skilyrðum. Þetta ákvæði eigi við jafnvel þótt þarna hafi ver- ið um verðlækkun lyfja að ræða en ekki verðstöðv- un. Þá segir dómstóllinn að einhliða ákvörðun lög- bærs stjómvalds um að lækka heildsöluverí) sé að meginstefnu í samræmi við tilskipunina. Akvæðið mæli ekki fyrir um nein sérstök atriði sem gæta verði að þegar sllk ákvörðun sé tekin. Ríki sé ein- ungis lögð sú skylda á herðar að endurskoða ákvörðun sína síðar ef eftir því er leitað. Málið fluttu Baldvin Hafsteinsson hdl. af hálfu Samtaka verslunarinnar-Félags íslenskra stór- kaupmanna, FÍS, og Einar Gunnarsson, lögfræð- ingur viðskiptaski-ifstofu utanríkisráðuneytisins, fyrir hönd íslenska ríkisins. Að sögn Baldvins þýðir þessi niðurstaða ekki að málið fyrir Hér- aðsdómi Reykjavíkur sé tapað því þar sé byggt á fleiri ógildingarástæðum heldur en þeúri að EES-samningurinn hafi verið brotinn. Morgunblaðið/Porkell FJÖLNIR Pálsson flugmaður og Ólafur W. Finnsson flugstjdri eftir að hafa snúið við frá Vestmannaeyjum. Tveim tímum eftir að myndin var tekin var vélin send með farþega til Egilsstaða, en snúið við aftur vegna skemmda sem komu í ljds eftir eldinguna fyrr um morguninn. Fokker-vél Flugfélags fslands snúið við tvisvar sama daginn Skemmdir á loftneti vegna eldingar Hávaðamengun við Miklubraut yfír hættumörkum Land- læknir vill bráðar aðgerðir ÓLAFUR Ólafsson landlæknir hef- ur ritað Ingibjörgu Sólrúnu Gísla- dóttur borgarstjóra bréf þar sem hann óskar eftir að hið bráðasta verði gripið til aðgerða til að draga úr hávaða frá umferð við Miklubraut milli SnoiTabrautar og Rauðarár- stígs. Hann nefnir þrjár leiðir, að setja hraðatakmarkanir, þrengja götuna eða byggja varnarvegg. Ólafur skrifar bréfið vegna kvart- ana frá Guðlaugi Lárussyni, íbúa á Miklubraut 13, en hann hefur í nokk- ur ár barist fyrir því að dregið verði úr hávaða frá umferð við Miklubraut. Landlæknir segir að Guðlaugur og kona hans séu ekki við góða heilsu. Þau þjáist bæði af öndunar-, hjarta- og æðasjúkdómum. Mælingar hafi sýnt að hljóðstyrkur við húsvegg hjá þeim sé yfir 70 dB, en þar eru skil- greind hættumörk. Um Miklubraut aka um 42.000 bílar á sólarhring á 60- 80 km hraða, segh’ í bréfinu. Ekki hægt lengur „Eg fæ ekki séð að unnt sé að horfa lengur á þau ganga bónleið til búðar,“ segir landlæknir í bréfi sínu. Grípa verði hið bráðasta til aðgerða, t.d. að útvega hjónunum leiguíbúð. Aðrar aðgerðir geti falist í því að lækka hámarkshraða niður í 30 km á klukkustund. I öðru lagi að þrengja götuna fyrir framan húsin númer 11-15, en þar ber mest á hávaða. I þriðja lagi að byggja varnarvegg fyrir framan hús númer 5-15 við Miklubraut. „Mig grunar að svipuðum aðgerð- um væri löngu lokið í sumum öðrum hverfum borgarinnar eða sveitarfé- lögum en ég hef vitaskuld engar sannanir fyrir því. Aðgerðir þær sem ég hef nefnt hér eru þær minnstu er mér koma í hug. Ég legg mikla áherslu á að hafist verði handa hið bráðasta og tek mið af heilsufari íbúa við Miklubraut," seg- ir í bréfi landlæknis. ------------ Alvarlega slas- aður eftir útafakstur á * Olafsvíkurvegi LÍTIL sendibifreið valt á Ólafsvíkur- vegi við Urriðaárbrú milli klukkan 1 og 2 aðfaranótt þriðjudags. Ökumað- urinn, sem var einn í bifreiðinni, var meðvitundarlaus er að var komið og var hann fluttur með sjúkrabifreið á Sjúkrahús Reykjavíkur og lagður inn á gjörgæsludeild. Honum er haldið sofandi í öndunarvél og er hann al- varlega slasaður, að sögn iæknis. Mikil hálka var á veginum þegar slysið varð og er hugsanlegt að hún hafi verið orsök slyssins. ELDINGU laust niður í Fokker- flugvél Flugfélags íslands í gær- morgun í áætlunarflugi milli Reykjavíkur og Vestmannaeyja. Hluti siglingatækjanna sló út, en aðrar skemmdir urðu ekki á vél- inni og hvorki farþega né áhöfn sakaði. Þegar flugvélin kom inn í að- flugið til Eyja versnaði veður skyndilega og ákváðu því flug- mennirnir, Olafur W. Finnsson og Fjölnir Pálsson, að hætta við lendingu og sneru vélinni við til Reykjavíkur. I brottfluginu flaug vélin inn í skýjabakka þar sem eldingunni laust niður í vélina. „Við sáum strax að þetta var eld- ing, en það var aldrei nein hætta á ferðum því við flugum eftir öðrum siglingatækjum til Reykjavíkur," sagði Ólafur við Morgunblaðið skömmu eftir lend- inguna á Reykjavíkurflugvelli, sem heppnaðist að óskum, rétt fyrir klukkan níu. Sagði hann að vissulega hefði þeim brugðið við hvellinn, og glampann sem líktist leifturljósi myndavélar eftir lýsingu Fjölnis að dæma, enda hafði hvorugur lent í slíku áður. Vélinni snúið við frá Egilsstöðum stuttu seinna Vélin reyndist að mestu óskemmd, en fór í skoðun í flug- skýli á Reykjavíkurflugvelli þar sem farið var yfir siglingatæki hennar. Ekki var flogið aftur til Eyja í gær vegna veðurs, en vél- inni var flogið að lokinni skoðun til Egilsstaða um klukkan 11. Ekki tókst heldur að lenda henni þar vegna bilunar sem kom upp og var henni því enn snúið aftur til Reykjavíkur án þess að far- þegar kæmust á leiðarenda. í Ijós kom að loftnet vélarinnar hafði skemmst, sem rakið var til áhrifa eldingarinnar. Mikið annríki var á Reykjavík- urflugvelli vegna ástandsins, en gripið var til þess ráðs að flytja farþega á minni flugvélum í stað Fokkersins. Sérblöð í dag b Á MIÐVIKUDÖGUM v ttnay' liiiiltilftjtflif nftir 1 ^sInir ÍR áfrýjar : Eigum úrskurði : harma að HKRR hefna Birgir reynslunni ríkari C4

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.