Morgunblaðið - 25.11.1998, Page 6

Morgunblaðið - 25.11.1998, Page 6
6 MIÐVIKUDAGUR 25. NÓVEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Framtíðarsýn framkvæmdastjóra sænska rafveitusambandsins Markaðsvæðing leiddi til lægra raforkuverðs Á SÍÐARI degi ráðstefnu Samorku í gær, þar sem rætt var um fram- tíðarskipan orkumála á Islandi var augum beint að markaðsvæðingu orkufyrirtækja í víðu samhengi. Jan Samuelsson, framkvæmda- stjóri sænska rafveitusambandsins, ræddi um áhrif markaðsvæðingar á orkufyrirtækin og sagði að bjart væri um að litast í raforkubúskap þar í landi, en tæp þrjú ár eru síðan horfið var frá miðstýringu til mark- aðsvæðingar. Raforkufyrirtækjun- um gengi nokkuð vel að spjara sig á markaðnum þar sem takmarkið væri að þjóna viðskiptavinum í stað þess að safna auði eins og tíðkaðist á einokunartímum. Til samanburð- ar má nefna, að þegar íslensk orku- fyrirtæki velta um 25 milljörðum króna árlega giskaði Jan Samuels- son á að sænsku orkufyrirtækin veltu um a.m.k. 50 milljörðum sænskra króna eða 400 milljörðum íslenskra króna og vildi hann þó halda sig í neðri mörkunum. Sagði Samuelsson að markaðsvæðingin hefði haft í fór með sér lækkandi raforkuverð, en vegna mikillar skatttekju sænska ríkisins hefðu neytendur ekki fundið eins mikið fyrir lækkuninni og ætla mætti. „Það er freistandi fyrir ríkið að skattleggja þessa starfsemi, en það verður samt að gæta þess að leggja ekki of þunga skatta á hana,“ sagði Samuelsson í samtali við Morgun- blaðið. Verðið á niðurleið Þótt enginn rökstyðji lengur miðstýringu í raforkubúskap í Svi- þjóð er samt nokkuð hörð umræða um núverandi ástand er lýtur eink- um að skattamálunum. „Á sama tíma og afköst hafa aukist í raf- orkubúskapnum og verðið lækkað, hafa yfirvöld hækkað skattana, sem kemur fram í raforkuverðinu," seg- ir Samuelsson. Hins vegar binda menn miklar vonir, að hans sögn, við að neytendur muni finna fyrir verðlækkuninni þegar sala hefst til heimahúsa því verðið er sífellt á niðurleið. „Ætli íslendingar að fara út í markaðsvæðingu verða þeir að gæta sín á því að raforkufyrirtækin séu áþekk að stærð því verði einn ráðandi aðili á markaðnum mun hann rústa hann. Ennfremur er gott að hafa fjölbreytta eignaraðild að fyrirtækjunum, því það er óþarfi að hafa öll fyrirtækin í einkaeign þótt starfað sé í samkeppnisum- hverfi.“ Hann segir að íslendingar gætu vel lært af reynslu norrænna þjóða í markaðsvæðingu og metið kostina og gallana við slíkar um- bætur. Raforkukaupendur ánægðir í Bretlandi Ray Wilson hjá Rannsóknar- stofnun orkuiðnaðarins í Bretlandi ræddi um viðhorf raforkukaupenda á samkeppnismarkaði og sagði að breytingarnar frá miðstýringu til markaðsvæðingar hefðu gengið mun betur fyrir sig í Bretlandi en menn höfðu búist við. Umbæturnar fóru fram árið 1989 og nú um stundir eru raforkukaupendur afar ánægðir, ekki síst þegar þeir líta á rafmagnsreikningana sína. „Raforkuverðið hefur lækkað um 20%,“ segir Wilson í samtali. „Eg held að umbæturnar hafi haft mjög jákvæð áhrif á þá sem starfa í orku- geiranum. Nú er öll ákvarðanataka miklu auðveldari og starfsmönnum er falin aukin persónuleg ábyrgð og fyrirtækin hafa mjög skýra mynd af markmiðum sínum. Þetta var aldrei með þessum hætti í gamla kerfinu." Wilson segir að með mark- aðsvæðingunni hafi losnað mikil starfsorka úr læðingi sem hefur sýnt sig í vaxandi starfsemi margra sjálfstætt starfandi hæflleika- manna sem ekki fengu útrás fyrir kunnáttu sína áður fyrr. „Markaðsvæðingin virkar," segir hann. IVAllir sem koma að henni eru sigurvegarar að einhverju leyti, en breytingar sem þessar þaif að framkvæma af varkárni. Ennfrem- ur þarf í lengstu lög að gæta þess að fara hægt í breytingarnar. Við lentum í heilmiklu basli með tölvu- kerfi og rafmagnsreikningamál og það er fyrst núna, eftir níu ár, að feriið er komið í viðunandi horf. Við höfum lært mikilvæga lexíu á þess- um tíma og höfum í seinni tíð ein- beitt okkar að því að taka lítinn hluta fyiár í einu í áframhaldandi starfi.“ Wilson telur Island ekki of lítið fyrir markaðsvæðingu og eðlisávís- un hans segir hanum að vel sé ger- legt að hefja markaðsumbætur hér- lendis. „Það er hugsanlegt að fjórir til fimm drefingaraðilar geti skapað samkeppnisumhverfi,“ segir Wilson og wtekur sem dæmi sitt heimaland þar sem sambærileg tala er tólf dreifingaraðilar, sem skipta á milli sín 28 milljónum raforkukaupenda. I Bretlandi er raforkusalan ekki ólík því sem þekkist nú á Islandi í verslun með síma á frjálsum mark- aði þar sem margs konar tilboð bjóðast símnotendum. Hitaveitur ekki afskrifaðar I erindi Jakobs S. Friðrikssonar, yfirmanns þjónustudeildar Hita- veitu Reykjavíkur, kom fram það álit hans að hitaveitur hafi verið af- skrifaðar sem þátttakendur í mark- aðsvæðingu orkumarkaðar á ótrú- verðugan hátt. „Eg get ekki betur séð en að sömu markmið náist með markaðsvæðingu hitaveitna og raf- veitna, í það minnsta þarf að kanna slíkt betur. Árangur markaðsvæð- ingar er slíkur að krafa þjóðfélags- ins hlýtur að vera um markaðsvæð- ingu orkumarkaðar þar sem það er mögulegt," sagði Jakob í erindi sínu. Eins manns verk ÞESSIR borgarstarfsmenn voru að þrífa bílinn sinn í gær á bens- ínstöð að loknu dagsverki. Að vísu var ekki allt tiltækt vinnu- afl nýtt, enda auðvitað óþarfi að allir séu að standa úti í kuldan- um og bleytunni og sennilega hefur aðeins einn kústur verið tiltækur. Jarðskjálfti skammt frá Hveragerði JARÐSKJÁLFTI sem mældist 3,5 á Richterkvarða með upptök um fimm kílómetra norður af Hveragerði varð rétt fyrir klukkan níu í gærkvöldi. Pálmi Erlendsson jarðfræðingui' hjá Veðurstofunni segir að margir bæjarbúar hafi haft samband og sögðust þeir hafa fundið mjög greini- lega fyrir skjálftanum. Hann fannst gi'einilega í Biskupstungum og stöku Reykvíkingur varð hans var. Ritstjóri norska lögfræðitímaritsins Kritisk Juss Birting skattaupplýs- inga stangast á við Mannréttindasáttmála Ritstjóri norsks lögfræðitímarits telur að birting álagningarskráa geti stangast á við ákvæði Mannréttindasáttmála Evrópu um verndun einkalífs. Helgi Þorsteinsson kannaði umræðuna hér á landi þar sem starfshópur á vegum fjármálaráðuneytis- ins hvetur til þess að aðeins verði birtar endanlegar skattskrár. JENS Petter Berg, sem er rit- stjóri lögfræðitímaritsins Kritisk Juss í Noregi, telur að birting skattaupplýsinga eins og þær tíðkast á Norðurlöndum, annars staðar en í Danmörku, geti stangast á við Mannréttindasáttmála Evrópu. í þessu sambandi nefnir hann þó ekki ísland, enda kom fram í samtali Morgunblaðsins við hann, að honum var ekki kunnugt um reglur hér á landi. Meirihluti starfshóps, sem skipaður var af íslenska fjármála- ráðuneytinu, lagði í fyrra og í sumar fram tillögur um að framvegis yrðu aðeins endanlegar skattskrár birtar, en ekki álagningarskrár. Geir H. Haarde fjármálaráðherra segir að ekki séu á döfinni á næstunni neinar breytingar á íslenskum reglum um þetta efni. í leiðara í tímariti sínu hvatti Berg Skattebetalerforeningen, samtök skattgreiðenda í Noregi, til að láta reyna á lögmæti birtingar skatta- upplýsinga. Hann segir að uppruna- legar ástæður þess að skattskrár voru birtar ppinberlega í Noregi hafi verið tvær. í fyrsta lagi sú að stjórn- völd hafi viljað spara sér kostnað við að láta hvern og einn skattgreiðanda vita hvað hann þyrfti að greiða, og því Iátið duga að auglýsa að upplýs- ingarnar lægju frammi til sýnis. í öðru lagi hafi yfirvöld viljað auka skattheimtu, með því að gera öllum almenningi kleift að kæra skatt- greiðendur sem þeir teldu að greiddu of lágan skatt. Aldagömul hefð og réttmæt Aðalritari norska blaðamannasam- bandsins, Per Edgar Kokkvold, svaraði Berg í lesendabréfi til netút- gáfu dagblaðsins Várt land. Hann segir að birting skattskráa njóti stuðnings mikils meirihluta þing- manna og styðjist við aldagamla hefð. Hann vitnar meðal annars í álit fjárlaganefndar norska Stórþingsins þess efnis að fjölmiðlamenn geti þurft á þessum upplýsingum að halda. Fjárlaganefndin taldi einnig að ef fjölmiðlar kysu að birta upplýsing- arnar á óviðeigandi hátt, væri það ekki hlutverk stjómvalda að sinna því, heldur væri það vandamál rit- stjórnanna og hefði með samband einstakra fjölmiðla og almennings að gera. Kokkvold telur að meginrök fyrir birtingu álagningarskráa sé ekki að almenningur geti fylgst með störfum skattayfirvalda heldur að hægt sé að uppgötva og bæta úr göllum á skatt- kerfinu. Kokkvold segir að samkvæmt Mannréttindasáttmála Evrópu sé hverjum og einum tryggður réttur einka- og fjölskyldulífs, friðhelgi heimilisins og einkasamskipta, en skattaupplýsingar, það hvað hver og einn leggi til samfélagsins, heyi'i ekki undir einkalífið. Fjölmiðlaumfjöllun bíði endan- legrar skrár Starfshópui' sá sem skipaður var hér á landi á vegum fjármálaráðu- neytisins til að kanna þessi mál, tel- ur að upplýsingar úr álagningar- skrám hafi á síðustu árum einkum verið notaðar í viðskiptalegum til- gangi, sem söluvara. Áður fyrr hafi almenningi verið gert kleift að bregðast við og kæra of lágt tekju- og eignamat, en þær forsendur séu ekki fyrir hendi lengur. Starfshópurinn gagnrýnir að áhugi fjölmiðla hafi einkum beinst að því að kanna tekjur einstakra manna og þjóðfélagshópa. „Hafa ákveðnir einstaklingar jafnvel verið valdir ár hvert og birtar um þá upplýsingar og þær gjarnan bornar saman milli ára. Þegar haft er [í] huga hve þar er oft vegið nærri friðhelgi einkalífs fólks og rétti þess til einkalífsvemd- ar er mikilvægt að eyða réttaróvissu um lögmæti slíkrar birtingar.“ „Starfshópurinn telur óæskilegt að álagningarskrár, sem eðli málsins samkvæmt geti reynst villandi séu grundvöllur svo umfangsmikillar fjölmiðlaumfjöllunar sem verið hef- í ur. Telur starfshópurinn eðlilegra að sú umfjöllun bíði útgáfu hinnar end- anlegu og leiðréttu skrár, þ.e. skatt- I skrár.“ Starfshópurinn kannaði meðal annars hvemig birtingu skattaupp- lýsinga væri háttað í nágrannalönd- um. í Svíþjóð er lengst hefð fyrir að- gangi almennings að gögnum hins opinbera og þar eru birtar opinber- lega upplýsingar um útsvar, tekju- v skatta, fasteignaskatta og fjár- magnstekj uskatt. I Noregi eru aðeins birtar álagn- ingarskrár og eru þær hafðar til sýn- ir í þrjár vikur. Þó er einnig hægt að fá upplýsingar úr skránum eftir að þeim tíma lýkur ef um er beðið. í Finnlandi er lögð fram álagning- arskrá öllum til sýnis og einnig gefur ríkið út bók um skattskyld laun og álagða skatta hins almenna borgara. I Danmörku eru hvorki álagning- i ar né skattaskrár birtar, enda er talið að upplýsingar um álagða skatta séu persónuupplýsingar sem lúta skuli almennum þagnarskylduá- kvæðum. í Frakklandi eru upplýsingar um skattgreiðslur bæði einstaklinga og fyrirtækja opnar öllum skattgreið- endum í viðkomandi umdæmi. Heim- ilt er að rita upp upplýsingar úr skránum en ekki má afrita þær með öðrum hætti, eða gefa út eða prenta með nokkru móti. í Lúxemborg, Bretlandi, Hollandi og Þýskalandi eru engar upplýsingar birtar opinberlega um skattgreiðslur framteljenda.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.