Morgunblaðið - 25.11.1998, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 25.11.1998, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. NÓVEMBER 1998 11 FRETTIR A-flokkarnir á Reykjanesi hafa komið sér sainan um prófkjör í janúar Kvennalistinn á kost á einu sæti af fimm efstu AF INNLENDUM VETTVANGI FULLTRÚAR Alþýðu- flokksins og Alþýðubanda- lagsins á Reykjanesi hafa komist að samkomulagi um að halda prófkjör í janúar þar sem flokkarnir, sem að sameiginlegu framboði standa, fái tryggingu fyrir einu af fimm efstu sætunum. Stjórn kjördæmisráðs Alþýðubandalagsins gerði um þetta formlega samþykkt í fyrrakvöld og féllst þar með á óskir Alþýðuflokksmanna um prófkjör. Kvennalistinn hefur óskað eftir fresti til að svara þessum kröfum, en mikil óánægja er í röðum Kvenna- listakvenna með þessa tillögu. Sem kunnugt er samþykkti landsfundur Kvennalistans að setja það skilyrði fyrir þátttöku í sameig- inlegu framboði að Kvennalistakona yrði í einu af þremur efstu sætum í hverju kjördæmi. Tillaga A-flokk- anna á Reykjanesi gengur út á að haldið verði próíkjör um fimm efstu sætin og að hver flokkur fái a.m.k. eitt af þessum fimm sætum. Þetta þýðir að eina tryggingin sem Kvennalistinn fær er að Kvenna- listakona verður aldrei neðar en í fimmta sæti. Verði þetta niðurstað- an er vandséð hvernig Kvennalist- inn á að geta verið með í sameigin- legu framboði á Reykjanesi nema þá að hann falli frá landsfundarsam- j^ykkt sinni. Kvennalistanum still upp við vegg Fyrirhugað var að halda fund í framboðsnefndinni á Reykjanesi í gær, en í henni eiga sæti fulltrúar flokkanna þriggja. Fundinum hefur hins vegar verið frestað að beiðni Kvennalistans. Mikil óánægja er meðal Kvennalistans með kröfur A- flokkanna. Þær benda á að í þeim átökum sem verið hafa í Reykjavík um framboðsmál hafi Kvennalistinn aldrei tekið afstöðu með öðrum hvorum A-flokknum eins og hann hefði þó auðveldlega getað gert. Nú hafi A-flokkarnir á Reykjanesi ákveðið að stilla Kvennalistanum upp við vegg með skilyrðum sem hann geti ekki fallist á. Fulltrúar A-flokkanna vísa þessu á bug og benda á að það hafi verið Kvennalistinn sem upp- _________ haflega hafi sett skilyrði fyrir þátttöku í samfylk- ingu; skilyrði sem A- flokkarnir hafl ekki get- að fallist á. Greinilegt er á samtölum við Alþýðuflokks- og Alþýðubandalagsmenn á Reykja- nesi að þeirri skoðun vex fylgi að rétt sé að þessir flokkar fari tveir saman í framboð og skilji Kvenna- listann eftir. Kvennalistinn á Reykjanesi stendur frammi fyrir tillögu A-flokkanna um opið prófkjör í efstu fímm sætin. Tillagan upp- fyllir ekki landsfundarsamþykkt flokksins um eitt af þremur efstu sætum í hverju kjördæmi. Oljóst er hvaða tillaga verður ofan á í framboðsmálum í Reykjavík, en þar er leitað leiða til að sætta sjónarmið. Egill Ólafsson skoðaði framboðsmál sam- fylkingar á Reykjanesi og í Reykjavík. FORYSTA Alþýðu- bandalagsins vill að Svavar Gestsson leiði listann í Reykjavík. JÓHANNA Sigurðar- TIL umræðu hefur ver- dóttir telur að eina leið- ið að Guðný Guðbjörns- in til að höggva á hnút- dóttir bjóði sig fram á inn sé að hafa prófkjör. Reykjanesi. Stuðningsmenn prófkjörs hafa boðaðfund engin þeirra þingkona og því má búast við að þær eigi undir högg að sækja í opnu prófkjöri. Þær eru einfaldlega ekki eins þekktar og þingmennirnir. Til við- bótar má nefna að litlu munaði að Kristín Hall- dórsdóttir dytti út af þingi í síðustu kosning- um og sigurmöguleikar frambjóðenda Kvenna- listans í opnu prófkjöri hljóta að markast af því fylgi sem flokkurinn hefur í kjördæminu. Samfylkingarmenn á Reykjanesi stefna að því að ná flmm mönn- um í kosningunum í vor, en fímmta sætið getur þó alls ekki talist öruggt og nægir í því sambandi að minna á slæma útkomu samfylkingar á Reykjanesi í skoðanakönnunum. __________ Formlega séð tekur framboðsnefnd flokk- anna á Reykjanesi sjálf- stæða ákvörðun um framboð, en það er þó ljóst að framboðsmál á Reykjanesi tengjast Reykjavík. Fari ÖSSUR Skarphéðins- son stefnir á fyrsta sætið í Reykjavík. INGIBJORG Sólrún Gísladóttir reynir að miðla málum. Kvennalistinn stæði höllum fæti í prófkjöri Staðan á Reykjanesi er sú að allir núverandi þingmenn A-flokkanna ætla að bjóða sig fram aftur. Þetta eru Rannveig Guðmundsdóttir, Guðmundur Arni Stefánsson og Ágúst Einarsson, Alþýðuflokki, og Sigríður Jóhannesdóttir, Alþýðu- bandalagi. Ki'istín Halldórsdóttir, Kvennalista, sækist ekki eftir end- urkjöri, en hún hefur ekkert tekið þátt í viðræðum um sameiginlegt framboð. Þó Kvennalistinn á Reykjanesi eigi margar frambærilegar konur er flokkanna framboðsmálum svo að Kvennalistinn sjái sér ekki fært að taka þátt í sameiginlegu framboði á Reykjanesi hlýtur það að hafa áhrif á þátttöku flokksins í sameiginlegu framboði í Reykjavík. Við þetta bætist að nokkuð hefur verið rætt um að Guðný Guðbjörns- dóttir þingkona færi sig frá Reykja- vík og taki sæti á lista samfylkingar á Reykjanesi. Ef það verður niður- staðan hefur það áhrif á framboðs- mál í kjördæmunum. Alþýðubandalagið vill ti-yggja Svavari fyrsta sætið Óljóst er hver verður niðurstaðan í framboðsmálum í Reykjavík. Eng- inn formlegur fundur hefur verið haldinn í framboðsnefndinni síðan 3. nóvember, en „plottað" er um framboð í samtölum og á óformleg- um fundum. Búið var að boða fund í nefndinni í fyrradag, en honum var frestað að ósk Kvennalistans. Al- þýðuflokkurinn hefur staðið fast á þeirri kröfu að halda prófkjör, en andstaða er við það í Al- þýðubandalaginu. Þar er þó einnig að finna stuðn- ingsmenn prófkjörs. Kvennalistinn hefur leit- ast við að taka ekki af- stöðu með öðrum hvorum aðilanum. Kvennalistakonur hafa lagt höfuðá- herslu á að tryggja sér tvö sæti í Reykjavík og sagt að aðferðin við val á listann sé ekki aðalatriðið í þeirra huga. Forysta Alþýðubandalagsins hef- ur lagt mikla áherslu á að tryggja Svavari Gestssyni fyrsta sætið í Reykjavík. Hún telur þetta nauð- synlegt ekki síst vegna klofningsins í Alþýðubandalaginu í kjölfar ákvörðunar flokksins að ganga til sameiginlegs framboðs. I allt sumai- og fram á haust var talin veruleg hætta á að Svavar gengi til liðs við flokk Steingríms J. Sigfússonar. Mikil andstaða er hins vegar við það innan Alþýðuflokksins að Svavar verði í fyrsta sætinu og auk þess er Svavar ekki í miklu uppáhaldi hjá Framsýn-Birtingararminum í Ál- þýðubandalaginu. Alþýðubandalag- ið krefst þess að fá fyrsta sætið Vegna þess hvað Svavar er um- deildur er talið tvísýnt hvort hann nái fyrsta sætinu í opnu prófkjöri. Ljóst er að bæði Össur Skarphéð- insson og Jóhanna Sigurðardóttir stefna á fyrsta sætið og eiga góða möguleika á að ná því. Alþýðu- bandalagsmenn eiga mjög erfitt með að sætta sig við að efsti maður þeirra yrði hugsanlega aðeins í þriðja sæti, ekki síst í ljósi þess að Alþýðubandalagið hefur alla tíð ver- ið sterkasta aflið í Reykjavík af þessum þremur flokkum. Menn verði í þessu sambandi að hafa í huga að gengið er út frá því að Al- þýðuflokksmaður leiði listann á Reykjanesi. Margs konar tillögur hafa verið nefndar til lausnar á þessari deilu. Ein er sú að hafa prófkjör um styrk- leika flokkanna, en ekki um menn. Þátttakendur í prófkjörinu myndu þá krossa við A, G, V og jafnvel Þ, en enga einstaklinga. Flokkarnir myndu síðan velja sína menn í þau sæti sem þeir fengju. Ekki eru allir hrifnir af þessari lausn. Borgarstjóri reynir að miðla málum Margrét Frímannsdóttir, formað- ur Alþýðubandalagsins, hefur lagt mikið á sig til að leysa þennan ágreining án þess að hafa tekist það. Upp á síðkastið hefur Ingi- björg Sólrún Gísladóttir borgar- stjóri reynt að miðla málum. Hún hefur lagt til að reynt verði að finna málamiðlun um handröðun á lista. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins hefur hún reynt að fá and- stæðinga Svavars til að fallast á að hann verði í fyrsta sætinu. Pólitískir samherjar hennar innan A-flokk- anna hafa ekki allir verið hrifnir af þessu, en mikill stuðningur er með- al þeirra við prófkjör. Sáttatilraun- um hennar hefur hins vegar verið betur tekið innan Kvennalistans. Stuðningsmenn prófkjörs í öllum flokkunum þremur ætla að hittast í vikunni og leggja á ráðin um hvern- ig best sé að haga málum á næstu dögum. Það er því ljóst að tilraunir til að miðla málum með því að ná samkomulagi um uppstillingu mæta andstöðu. Sumir viðmælendur Morgunblaðsins sögðu að það væri komin mikil kergja og pirringur í marga vegna deilna um þessi mál undanfarnar vikur og því sé afar erfitt að finna málamiðlun. í þessu ljósi verður að skoða yflrlýsingu Jó- hönnu Sigurðardóttur um að hún sjái ekki aðra leið til að höggva á ----------- hnútinn en að viðhafa prófkjör. Þess ber þó að geta að mörgum óar við þeim kostnaði sem fylg- ir slíku prófkjöri. Menn hafa í huga hvernig prófkjör sjálf- stæðismanna á Reykjanesi þróaðist. Erfitt geti verið að halda kostnaði frambjóðenda niðri ekki síst í ljósi þess að mikið er í húfi fyrir fram- bjóðendur og flokkana sem að sam- fylkingunni standa. Islensk þjóðmál í frönsku riti HEIÐUR himinn er fyrirsögnin á gi-ein Jaques Mer, fyrrverandi sendiherra Frakka í Reykjavík, um efnahagslíf á Islandi 1997. Hann hefur fjallað um íslenskt efnahagslíf í bókinni Les Pays d’Em’ope oceidentale um efna- hagsmál í Evrópulöndum. Áður hafði hann skrifað bók um Is- land og einnig um Noreg og eft- ir að farið var að gefa út sér- staka bók um Vestur-Evrópu- löndin hefur hann skrifað kafl- ann um Island, bæði í fyrra og svo aftur núna. Bækurnar eru gefnar út af opinberu útgáfufyrirtæki (La Documentation francaise, éditeur, Paris) á ábyrgð menn- ingar- og menntamálaráðu- neytisins franska. Þær eru einkum ætlaðar opinberum starfsmönnum og háskólafólki, bæði háskólanemum og kenn- urum. Þykir einkum fengur að þessari bók um íslensk málefni, því sáralítið er að finna af nýju efni um Island á frönsku. í greininni gerir Jaques Mer grein fyrir pólitísku ástandi á Islandi, stöðugleikanum sem einkennt hefur þennan tíma, til- raunum til sameiningar stjórn- arandstöðunnar, sem enn sé klofin, áframhaldandi uppsveiflu og aðhaldi, utanríkispólitíkinni og tengslunum við Evrópusam- bandið og alþjóðastofnanh’. Nefnd SÞ um skýrslu fslands Lýst ánægju með laga- setningu GREINT var frá tilmælum nefndar Sameinuðu þjóðanna gegn pyntingum í frétt í blað- inu sl. laugardag í framhaldi af því að nefndin fjallaði um skýrslu Islands um stöðu mála hér á landinu. I fréttinni láðist að geta þeirra jákvæðu atriða, sem nefnd SÞ gat í skýrslu sinni. I inngangi er þess getið að fulltrúar íslands hafi veitt mjög greinargóðar upplýsingar og skýrsla íslands hafi verið í fullu samræmi við al- mennar skýrslugerðaleiðbein- ingar nefndai-innar. Þá lýsir nefnd SÞ yfir ánægju sinni með þær breytingar sem gerðar voru á stjórnarskrá Is- lands árið 1995, sem hafi aukið mannvernd. Er sérstakri ánægju lýst yfir því að með breytingunum hafi verið komið á algeru banni gegn pyntingum. Að lokum lofar nefndin ís- lensk stjómvöld fyrir setningu laga og reglna um réttindi handtekinna manna, lögreglu- yfirheyrslur og vernd manna sem lagðir eru á geðsjúki-ahús gegn vilja sínum. Einbýlishús við Laufásveg Til sölu er óvenju glæsilegt og vandað einbýlishús á besta stað við Laufásveg. Húsið er 341,3 fm, kjallari og tvær hæðir, auk bílskúrs. Þá er einnig í húsinu óinnréttað ris. Einstakt tækifæri til að eignast hús á einum eftirsóttasta stað borgarinnar. Upplýsingar gefnar á skrifstofunni. Agnar Gústafsson hrl., Eiríksgötu 4, Reykjavík.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.